Morgunblaðið - 25.03.1987, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 25.03.1987, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MARZ Borg í Miklaholtshreppi. AÐALFUNDUR Félags kúa- bænda á sunnanverðu Snæfells- nesi (FKSS), sem nýlega var haldinn, samþykkti nokkrar ályktanir. Meðal annars er hvatt til þess að tekin verði upp virk framleiðslustjórnun á alla kjöt- framleiðslu. Eftirfarandi var samþykkt: Varðandi úthlutun á fullvirðis- rétti: Aðalfundur FKSS beinir því til aðalfundar Búnaðarsambands Snæfellinga að skipuð verði 7 manna nefnd til að úthluta fullvirð- isrétti á svæði Búnaðarsambands Snæfellinga. Fjórir menn verði kjömir á aðalfundi BSS, einn til- nefndur af Félagi kúabænda á sunnanverðu Snæfellsnesi, einn til- nefndur af kúabændum á norðan- verðu Snæfellsnesi og einn tilnefndur af Félagi sauðfjárbænda á Snæfellsnesi. Og hér eftir verði ætíð úthlutað samtímis fullvirðis- rétti í sauðfé og mjólk ef unnt er. Varðandi framleiðslustjómun á kjöti: Aðalfundur FKSS beinir því til aðalfundar Landssambands kúa- bænda að hvetja landbúnaðarráð- herra til að taka sem fyrst og eigi síðar en í byrjun næsta verðlags- árs, upp virka framleiðslustjómun á alla kjötframleiðslu. Telur fundur- inn það einu færu leiðina til að ná jafnvægi á kjötmarkaðnum. Varðandi fullvirðisrétt: Aðal- fundur FKSS samþykkir að skora á stjóm Búnaðarsambands Snæfell- inga að úthluta ekki fullvirðisrétti í mjólk umfram búmark hjá bænd- um nema í algerum undantekning- artilfellum. Einnig að gæta þess vandlega að fullt samræmi sé á milli tilfærslna á milli búgreina. I stjóm kúabændafélagsins eru: Magnús Guðjónsson Hrútsholti, formaður, Hallsteinn Haraldsson Gröf, ritari, Sigurður Helgason Hraunholtum gjaldkeri og Bjami Alexandersson Stakkhamri og Sveinn Guðjónsson Stekkjarvöllum meðstjórnendur. Páll Aðstandendur tónleikanna á Lækjartorgi á blaðamannafundinum. Krafan um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd: Popptónleikar á Lækjar- torgi vegna fundar utanrík- isráðherra Norðurlanda „VIÐ erum hópur fólks sem vill ekki láta fund utanríkisráðherra Norðurlandanna hér á landi fram hjá sér fara án þess að láta rödd okkar heyrast. Við segjum já við lífinu, nei við dauðanum og teljum að þjóðin standi að baki okkar,“ sagði Þorlákur Viðurkenning stórveldanna er forsenda kjamorkufriðlýsingar - segir Erik Alfs- en talsmaður norskra samtaka gegn kjarnorku- vopnum ERIK Alfsen, einn af forystu- mönnum samtakanna Nei til Atomvápen í Noregi, segir, að mikill áhugi sé fyrir á því á Norð- urlöndum að Island eigi aðild að samnorrænu samstarfi um kjarn- orkufriðlýsingu Norðurlanda. Alfsen er einn ræðumanna á úti- fundi á Lækjartorgi í dag, sem samtök nokkurra friðarhreyf- inga hér á landi hafa boðað til. Erik Alfsen sagði í samtali við blaðamann Morgunblaðsins í gær, að hugmyndin um kjamorkufriðlýs- ingu Norðurlanda gengi út á það, að þau gerðu með sér samkomulag um að banna staðsetningu, flutning og notkun kjamorkuvopna innan landamæra sinna jafnt á styijaldar- sem friðartímum. Samhliða slíku samkomulagi yrði að gera samning við kjamorkuveldin um, að þau virtu samkomulagið. An slíks samn- ings við kjamorkuveldin væri yfír- lýsing um Norðurlöndin sem kjamorkuvopnalaust svæði einskis virði. Alfsen sagði, að um leið og unn- ið væri að því að koma þessu tvennu í höfn, samkomulagi Norðurland- anna og samningi þeirra við kjam- orkuveldin, yrði reynt að fá kjamorkuvopn á landi og í sjó í nágrenni Norðurlandanna flutt brott. Slíkur brottflutningur kjam- orkuvopna þyrfti þó ekki að vera skilyrði kjamorkufriðlýsingar Norð- urlanda. Alfsen lagði áherslu á, að kjam- orkufriðlýsingin yrði norrænt framtak; yfírlýsing norrænna ríkis- stjóma um það, hvemig þær vildu standa að málum á landssvæðum, sem þær réðu yfír. Af þessum sök- um m.a. taldi hann ekki rétt, að gera það að skilyrði að kjamorku- friðlýsingin næði einnig til Sov- étríkjanna, eins og gert er ráð fyrir í ályktun Alþingis um afvopnunar- mál frá 1985. Alfsen benti á, að norrænu ríkin, Erik Alfsen Morgunblaðið/Bjami sem ættu aðild að Atlantshafs- bandalaginu, þ.e. Island, Noregur og Danmörk, hefðu þegar gefið um það yfírlýsingar, að þau leyfðu ekki staðsetningu kjamorkuvopna á frið- artímum. Slíkar yfirlýsingar hefðu verið gefnar án samkomulags eða samráðs við bandalagið. Hins vegar sagði hann að samtökin Nei til Atomvápen berðust ekki gegn aðild að Atlantshafsbandalaginu, heldur eingöngu gegn kjarnorkuvopna- stefnu þess. Erik Alfsen kvaðst ekkert geta fullyrt um viðbrögð lq'amorkuveld- anna við yfirlýsingu Norðurland- anna um kjarnorkufriðlýsingu. Hann benti þó á, að Sovétmenn hefðu tekið jákvætt í hugmyndina en Bandaríkjamenn lagst gegn henni. Þau viðhorf gætu hins vegar breyst og það væri verkefni norr- ænna stjómmálamanna, að afla hugmyndinni fylgis meðal kjarn- orkuveldanna. Kristinsson listmálari á fundi með fréttamönnum sem boðað var til á mánudag. Þar voru kynntir tónleikar sem hópur hljómlistarmanna hyggst halda á Lækjartorgi á miðvikudag undir kjörorðinu „Aldrei kjarnavopn á íslandi". Að þeim loknum verður efnt til göngu frá torginu að Rúgbrauðsgerðinni við Borgart- ún J)ar sem ráðherramir þinga. A fundinum var afhent áskomn undirrituð af hópi listamanna og fulltrúa úr klerkastétt. Þar em allir landsmenn hvar í flokki sem þeir standa hvattir til að árétta vilja íslendinga um kjamorkuvopnalaus Norðurlönd með því að fylkja sér undir merki göngumanna. Ragnhildur Gísladóttir og Bubbi Morthens töluðu fyrir munn tónlist- armanna á fundinum. Þau sögðust vona að obbi þeirra sem fást við dægurtónlist komi fram á tónleik- unum. „Við „Ragga" verðum þar, þá koma hinir líka,“ sagði Bubbi. Að sögn Margrétar S. Bjöms- dóttur hafa fundarboðendur með sér óformleg samtök. Markmið þeirra er fyrst og fremst að vekja athygli á ráðherrafundinum sem þau telja að hafi ekki verið nægi- lega kynntur hér á landi. Hvort framhald verður á starfseminni er óvíst en ýmsar hugmyndir em uppi um frekari baráttu fyrir þessu mál- efni. Aætlað er að tónleikamir hefjist kl. 16.30 á miðvikudag, en gangan leggji af stað kl. 17.00. Lúðrasveit- in Svanur mun fara fyrir göngu- mönnum. INNLENT Arshátíð Gríkklandsvina Grikklandsvinafélagið Hellas boðar til aðalfundar á Hótel Esju föstudaginn 27. mars kl. 19.30. í frétt frá félaginu segir að þar fari fram hefðbundin aðalfund- arstörf en að aðalfundi loknum verði efnt til árshátíðar félagsins á sama stað og hefst hún um kl. 20.30. Á árshátíðinni verður boðið upp á gríska máltíð, en meðal skemmti- átriða má nefna atriði úr gaman- leiknum Friðinum eftir Aristófanes í þýðingu Kristjáns Ámasonar, sem flutt verður af Róbert Amfinnssyni og nemendum fjórða bekkjar í Leik- listarskóla íslands, þeim Halldóri Björnssyni, Hjálmari Hjálmarssyni, Ingrid Jónsdóttur, Ólafíu Hrönn Jónsdóttur, Stefáni Sturlu Sigur- jónssyni, Valgeiri Skagfjörð, Þóramir Eyíjörð og Þórdísi Arn- ljótsdóttur. Leikstjóri er Sveinn Einarsson. Seinna um kvöldið syngur Sif Ragnhildardóttir nokkur lög eftir Mikis Þeódórakis við undirleik Hilmars J. Haukssonar og milli skemmtiatriða og undir borðhaldi verður leikin grísk tónlist af snæld- um og í lokin er ætlunin að sýna kynningarkvikmynd um Grikkland af myndbandi. Á árshátíðinni verð- ur einnig rædd fyrirhuguð menn- ingarferð til Grikklands 5.-27. júní næstkomandi. Leikarar í leikhóp Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki sem taka þátt í uppfærslu á „Landabrugg og ást“. „Landabrugg og ást“ frumsýnt á Sauðárkróki LEIKHÓPUR Fjölbrautaskól- ans á Sauðárkróki hefur að undanförnu æft leikritið „Landabrugg og ást“ eftir Rie- mann og Schumarts. Frumsýn- ing á leikritinu verður fimmtudaginn 26. mars á Sauð- árkróki. Æfíngar á leikritinu hófust um mánaðarmótin janúar-febrúar. Leikarar em 10 en alls taka þátt í sýningunni um 15 manns. Leik- stjóri er Knútur Hafsteinsson kennari við skólann. Öll leiktjöld, leikmundir og bún- ingar vom fengnir að láni hjá Leikfélagi Sauðárkróks. Auk sýningarinnar á fímmtu- daginn verður leikritið sýnt tvisv- ar í Sæluvikunni. Félag' kúabænda á sunnanverðu Snæ- fellsnesi: Framleiðslustjórn- un verði komið á alla kjötframleiðslu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.