Morgunblaðið - 20.06.1987, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 20.06.1987, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, LA.UGARDAGUR 20. JÚNÍ 1987 15 Nýtt Líf í heimsókn hjá konungshjónunum í Stokkhólmi Þrátt fyrtr að konungdæmí séu á fallanda fæti víðast S heiminum eru kóngar og drottningar enn þjóðhöfðingjar í næstu nágrannalöndum okk- ar, Danmörku, Noregi og Svíðþjóð. Nýtt Líf hélt á fund sænsku konungs- hjónanna í höil þeirra í Stokkhólmi og ræddi meðal annars við þau um framtíð konungdæmis í Svjðþjóð, rikiserfðir, hlutverk þeirra í sænsku þjóðlífi, kvenna- pólitík og fleira. Áður en Carl Gustaf gekk að eiga Silviu drottningu voru uppi raddir í Svíþjóð sem sögðu að ef til vill væri nú tímabært að leggja af konungdæmi í landinu. Silvia vann strax hug og hjörtu sænsku þjóðarinnar og nú minnist enginn lengur á að setja beri konung af. I greininni fjallar Torfi einnig um lifnaðarhætti Masaja og segir meðal ann- ars: „Nokkru eftir að Masajar verða kynþroska eru þeir umskornir, stúlkurnar líka. í samjöfnuði við þá aðgerð er umskurn Gyðinga barnaleikur. Stúlkurnar mega hljóða eins og þær vilja meðan á aðgerðinni stendur, en þeim er haldið og þær sleppa ekki fyrr en allt er afstaðið." Athyglisverð grein höfundar sem hefur ríka samúð með náttúrubörnum Afríku. Viðtöl: Með náttúrunni — gegn sjúkdómum Frá aldaöðli hefur maðurinn notað ýmislegt úr ríki náttúrunnar í iækn- ingaskyni. Grasalækningar, nálastungur, svæðanudd og fleira voru algengar lækningaaðferðir en þessar aðferðir hafa flestar haldið sinum sessi þrátt fyrir mikla framþróun í læknavísindum og verið notaðar samhliða hefð- bundnum lækningaaðferðum. Menn hafa nýtt sér reynslu liðinna kynslóða og látið náttúruna vinna með sér gegn sjúkdómum. Nýtt Líf ræðir við Ástu Erlingsdóttur, en hún er þekktasti grasalæknir okkar Islendinga, dóttir Erlings heitins Filippussonar grasalæknis. Jafnframt er rætt við Ævar Jóhannesson tækjafræðtng við Raunvísindastofnun Háskóla íslands, en hann er meðal margra áhugamanna um þetta efni og hefur sjálfur reynslu af óhefð- bundnum lækningaaðferðum. „Þar eru konur metnar í kýrverðum44 Masajar eru þjóðflokkur í Kenya sem enn lifir tiltölulega frumstæðu lífi. í stórskemmtilegri grein segir Torfi Ólafsson, þýðandi, frá heimsókn sinni á fund þessara fijálsu barna náttúrunnar en sonur hans, Helgi Torfa- son, jarðfræðingur, var með í förinni og tók myndir af því sem fyrir augu bar. — Rætt við hjón, sem eru fædd og uppalin í Reykjavík, en fluttu austur fyr- ir fjall og búa að Arnarstöðum í Flóa og stunda þar umfangsmikla hrossarækt og reka hundagæsluheimili. — Þorsteinn G. Gunnarsson tekur Jón Ólafsson, einn ef brautryðjendum á Rás 2, tali. — Kristina Haraldsdóttir er ein vinsælasta ljósmyndafyrirsæta íslands, en rætt er við hana um fyrirsætustarfið og fleira. — Hann er kallaður Diddi fiðla og segist frekar vera fúskari heima en frægur á ferðalögum. Það er Ragnheiður Daviðsdóttir sem ræðir við hann. Greinar: — Jón Gíslason næringarfræðingur fjallar um vítamín og steinefni, en lengi hefur verið deilt um mikilvægi þess, að taka reglulega inn vítamin og stein- efni í töfluformi i þeim tilgangi að stuðla að betri heilsu. — Afturhvarf til náttúrunnar virðist vera áberandi um þessar mundir. Fjali- að um myndina Mosquitoströndin. — Hvernig gengur ungum listamönnum að koma list sinni á framfæri? Þor- steinn G. Gunnarsson fjallar um málið. Handavinna, tíska, matur, Eiite '87 o.fl. Nýtt Líf — blað í takt við timann, fjölbreytt og vandað. Nýtt Líf — blað í takt við tímann.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.