Morgunblaðið - 31.07.1987, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 31.07.1987, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1987 Frá Brownseaeyju til Borgarvíkur Skátamót á 75 ára afmæli skátahreyf ingarinnar á Islandi eftirJón Grétar Gunnarsson Skátahreyfíngin spratt af hug- myndum Baden Powells um skipulagt unglingastarf. Hún felst í því að unglingamir taki virkan þátt í að stjóma og skipuleggja starf sitt. Viðfangsefnin eru víðtæk, margbreytileg, sniðin að getu og áhugamálum hvers og eins. Þau eiga það sameiginlegt að beinast að jafnri áherslu á félags- mál og lausn raunhæfra verkefna sem að notum koma í dagsins önn, og viðfangsefna sem auka á hæftii skátans til að komast í snertingu við náttúra landsins, sögu þess og samfélag. Grandvöll- ur skátastarfs er flokkakerfið en það byggist upp á tilhneigingu bama og unglinga til að mynda hópa. Flokkakerfíð leggur áherslu á að einstaklingurinn njóti sín, fínni viðfangsefni við sitt hæfí, og fínni að hann sé ómissandi hlekkur í skátaflokknum. Nú á 80 ára afmæli skátahreyf- ingarinnar og 75 ára afmælis á íslandi, er langt liðið síðan Baden Powell fór í sína fyrstu skátaúti- Iegu, á Brownsea-eyju í ánni Thames árið 1907. I þeirri úti- legu, sem segja má að hafí ráðið úrslitum um að skátahreyfingin var stofnuð, sannreyndi hann kenningar sínar um skátastörf, en í kjölfar hennar sprattu upp skátafélög um allt Bretland og síðan um allan heim, á ótrúlega skömmum tíma. Það er því ekki að tilefnislausu sem skátar standa að ýmsum uppákomum, nú á átt- ræðisafmæli skátastarfs. Á þessu aftnælisári hafa verið haldin flöl- mörg skátamót, um land allt. Skulu þar helst nefnd skátamót Skátafélagsins Árbúa „Fjör í flokk“ sem haldið var við Hafra- vatn, mót Skátasambands Vest- flarða á Snæfellsnesi. Skátafélag- ið Garðbúar héldu mót við Úlfljótsvatn og nú síðast mót Skátafélagsins Vífíls í Heiðmörk. Litli skátadagurinn var haldinn í Öskjuhlfð í byijun sumars og var hann fjölsóttur af ungmennum sem gafst þar kostur á að spreyta sig í ýmsum greinum skátaí- þrótta. Þó að hér hafí verið stiklað á stóra um helstu stórviðburði í starfí skátafélaga er ekki hjá því komist að nefna framlag þriggja skátafélaga í Reykjavík, Árbúa, Dalbúa og Skjöldunga. Þau bjóða nú börnum og unglingum tæki- færi á að taka þátt í útilífsnám- skeiðum en þar gefst þátttakend- um kostur á því að kynnast viðfangsefnum skáta, undir leið- sögn reyndra skátaforingja, þar sem útilíf er aðalviðfangsefnið. Markmið þessara námskeiða er að gefa þátttakendum færi á því að þroska samstarfshæfíleika og tillitssemi með hópvinnu, efla líkamsþrek og vekja áhuga á náttúranni og löngun til að vemda hana. Væntanlegir stórviðburðir í skátastarfinu era svo utanferð rúmlega 100 skáta til Ástralíu, þar sem þeir taka þátt í alheims- móti skáta „Jamboree". Skátafé- lagið Dalbúar halda skátamótið „Meiri ást“, skátafélagið Klakkur heldur mótið „Sporið" í Vagla- skógi og skátafélagið Skjöldungar halda „Minkamót" í Borgarvík, en frá því skal sagt hér. í Voga- og Sundahverfí í Reykjavík starfar skátafélagið Skjöldungur, sem lengi hefur gert sér far um að vinna að eflingu skátastarfsins, og kappkostað að veita félögum sínum fjölbreytt viðfangsefni. Félagið hefur á und- anfömum áram haldið nokkur skátamót, þótt nú sé nokkuð um liðið frá því það síðasta var haldið. Skátamót Skjöldunga hafa bo- rið heitin Minkamót, sem eiga nafn sitt að rekja til elstu starf- andi skátasveitar félagsins, sem hlaut þetta nafn er nokkrir stofn- félagar urðu tveimur minkum að bana í veiðiferð á Úlfljótsvatni. Fyrstu Minkamót Skjöldunga vora haidin að Úlfljótsvatni og tjaldað í Borgarvík árin 1964 og 1968. Sumarið 1972 var mótið síðan haldið í Seldal í Þingvalla- sveit. Skátamót þessi hafa ævin- lega verið skipulögð þannig að viðfangsefnin hafa verið lögð fyr- ir flokkana óskipta til úrlausnar. Áhersla hefur verið lögð á hóp- vinnu og samstarfsanda í skáta- flokkunum. Á afmælisári skátahreyfíngar- innar býður skátafélagið Skjöld- ungar enn til Minkamóts í Borgarvík við Úlfljótsvatn og tek- ur dagskrá mótsins að þessu sinni mið af fyrstu skátaútilegunni sem Baden Powell hélt á Brownsea- eyju í Thames-ánni, sumarið 1907. Þar sem gengið er út frá þátt- töku allra starfandi eininga skátafélaga, verður dagskráin þrískipt. Dagskrá fyrir skáta eldri en 15 ára svonefnda Dróttskáta hefst fimmtudaginn 6. ágúst með sólarhrings markferð þar sem sveitimar ganga á mótsstaðinn, frá nokkram fyrirfram ákveðnum stöðum og leysa úr ýmsum þraut- um tengdum útilífí. Dagskrá helgarinnar byggist svo upp á ýmsum viðfangsefnum tengdum þema mótsins þar á meðal fleka- siglingu út í Hrútey í Úlfljótsvatni, þar sem gist verður aðfaranótt sunnudags. Dagskrá fyrir skátaflokka verður mjög fjölbreytt og áreiðan- lega skemmtileg. Allir þurfa að ljúka flokkakeppni mótsins en þar kennir ýmissa grasa og geta flokkamir valið úr Qölmörgum verkefnum sem öll eiga það sam- eiginlegt að reyna á hæfni hvers einstaklings og efla skátaandann. Meðal verkefna verður Markferð: Flokkamir geta va- lið um þátttöku í sólarhrings „hike“ sem hefst á fímmtudegi, 4 tíma markferð eða 2 tíma mark- ferð. Bjargsig: Kennsla í bjargsigi og klettaklifri. Ratleikir: Hægt er að taka þátt í spennandi ratleikjum sem byggjast upp á ratvísi eftir sól, stjömum og áttavita. Eyjasafarí: Póstur sem er tengdur vatnasafarí mótsins og byggist upp á hæfni flokksins til siglinga á ýmsum furðufyrirbær- um. Trönubyggingar: Að sjálf- sögðu fær flokkurinn að spreyta sig á ýmsum greinum trönubygg- ingarlistarinnar. Ferðir: Margskonar ferðir verða á boðstólum og er þar helst að nefna: Bátsferð, hellaferð, eyjaferð, ævintýraferð, göngu- ferð, rómantíska ijöraferð, flekaf- erð og fleira, spaugilegt og spennandi. Frumlegasti flokkurinn: Þar er rejmt á sköpunargáfu og hug- myndaflug flokksins. Úlfyótur: Að sjálfsögðu kemur út mótsblað og gefst flokknum færi á að hella úr skálum visku sinnar og fylla blaðið af spaugi og léttu gríni. Yngstu skátunum, Léskátum, er gert kleyft að heimsækja mótið á laugardeginum og taka þátt í bráðskemmtilegri Léskátadag- skrá sem stendur frá kl. 10.30— 18.00. Verður þar margt að gerast t.d. póstaleikir, þrauta- braut, vatnasafarí, veiðikeppni og e.t.v. bátsferðir. Greinarhöfundur er foringi í skátafélaginu Skjöldungum. Frá skátamóti f Viðey

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.