Morgunblaðið - 07.10.1987, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1987
Bylgjan hf. á Suðureyri:
Sérhæfð kúfiskvinnsla
Suðureyri.
ADALFUNDUR Bylgjunnar hf.
á Suðureyri var haldinn föstu-
daginn 25. september sl. Þann
dag bauð stjórn Bylgjunnar gest-
um að skoða starfsemina. Bylgj-
an hf. var stofnuð sumarið 1986
af Byggðastofnun og nokkrum
einstaklingum á Vestfjörðum.
Tilgangur félagsins er að stunda
veiðar og vinnslu á kúfisk. Keypt
var sérsmfðað kúfiskveiðiskip
með vatnsplóg frá Hollandi og
kom það til landsins í vor. 1 sum-
ar var skipið á tilraunaveiðum
fyrir Vestfjörðum á vegum Haf-
rannsóknastofnunar en það
hefur nú hafið veiðar fyrir verk-
smiðjuna. Einnig var keypt
nýlegt hús á Suðureyri og þar
sett upp sérhœfð kúfiskvinnslu-
lína sem nú er verið að reynslu-
keyra.
Kúfískurinn er skelfískur sem
fannst í miklu magni allt í kringum
landið. Hann fínnst helst á sand-
botni þar sem hann grefur sig niður.
Hann er talinn einn stœrsti físk-
stofn hér við land og því hefur í
marga áratugi verið rætt um að
nýta hann. Víða eru til þykkar
skýrslur um kúfiskinn en ekki hefur
orðið af framkvæmdum. Kemur þar
einkum tvennt til. í fyrsta lagi er
verð á kúfísk lágt á þeim eina
markaði sem er vel þekktur, þ.e.a.
s. sem hráefni til súpugerðar í
Bandaríkjunum. í öðru lagi er ljóst
að hefðbundnir plógar geta ekki náð
kúfiski í því magni sem þarf. Þar
þarf að koma til ný og dýr veiði-
tækni sem ekki er til hérlendis,
þ.e.æs. vatnsplógur.
í júní 1986 var stofnað hlutafé-
lagið Bylgjan á Suðureyri. Því var
ætlað að hefla veiðar og vinnslu á
kúfisk með sérhæfðara skipi og
vélum en áður hafði verið reynt.
Byggðastofnun lagði fram 5 millj-
ónir í hlutafé en aðrir stærstu
hluthafar eru Vélsmiðjan Mjölnir í
Bolungarvík og Báran hf. á Suður-
eyri, bæði með 4 milljónir í hlutafé.
Aðrir hluthafar eru einstaklingar á
Suðureyri og f Reykjavík. Heildar-
hlutafé er tæplega 20 milljónir.
Framkvæmdastjóri fyrirtækisins er
Amór Stefánsson.
Hluthöfum var og er ljóst að hér
er um áhættusama tilraun að rseða
sem engan veginn er víst að skili
tilætluðum árangri. Til þess eru
óvissuþættir of margir, t.d. veiði-
geta skipsins, nýting í vinnslu,
söluverð í Evrópu eða Japan og
fleira. Hér eru miklir hagsmunir í
húfí ekki aðeins fyrir Suðureyri sem
hefur búið við einhæft atvinnulíf
og nokkra stöðnun heldur einnig
marga aðra staði því ef þessi tilraun
tekst má ætla að nokkrar kúfísk-
verksmiðjur rísi annars staðar á
landinu. Þegar eru aðilar tilbúnir
til að fara af stað annars staðar
ef tilraunin á Suðureyri tekst.
Bylgjan keypti sérútbúið kúfísk-
skip með vatnsplógi frá Damen
Shipyards í Hollandi og kom það
til landsins í vor. Skipið var skýrt
Villi Magg eftir Súgfíriíingi sem var
mikill áhugamaður um kúfískveið-
ar. Það ber einkennisstafína ÍS-87.
Það er 24 metrar og um 150 brl.
og verða 5—6 menn í áhöfn. Það
stundar dagróðra og er burðargetan
tæplega 40 tonn. Skipið hefur
reynst vel en nokkur vandkvæði
voru í upphafí með flutningsbúnað-
inn á skelfísknum um borð. Villi
Magg var á tilraunaveiðum fyrir
Vestfjörðum í sumar á vegum Haf-
rannsóknastofnunar og fundust góð
mið. Skipið hefur nú hafíð veiðar
fyrir verksmiðjuna. Byggðastofnun
hefur samþykkt að styrkja skipið
síðar til tilraunaveiða fyrir Norður-
landi.
Forsenda fyrir kúfiskveiðum er
ný og öflug veiðitækni. Vatnsplóg-
urinn svokallaði hefur verið notaður
Morgunblaðið/Halldór Bemódusson
Bylgjan hf. bauð gestum að skoða starfsemina sama dag og aðalfundur félagsins var haldinn.
Vestmannaeyjar;
Lifnar yfir bræðslukörlum
Kap II. VE með
fyrstu loðnuna
Veotnuumaeyjuin.
Á mánudagskveldið kom Kap
H. með fyrstu loðnuna sem
hingað berst á þessari verttð.
Aflinn sem var 680 tonn fékkst
um 100 milur norður af Vest-
fjörðum
„Við vorum flörutíu og tvo
klukkutíma að baksa heim“ sagði
ólafur Einarsson, skipsstjóri, I
stuttu spjalli við Morgunblaðið (
gærkveldi þegar þeir voru að
koma úr sínum fyrsta loðnutúr á
þessari vertíð.„ Aflann fengum
við f sjö köstum, hún er frekar
smá en blönduð".
Ólafur kvaðst ekki hafa séð
miklar lóðningar og lltið frétt af
loðnu enda væru fáir bátar á mið-
unum. ólafur sagði þá fá tvöþús-
und krónur fyrir tonnið sem væri
með þvf hæsta sem greitt væri
og væri aflanum landað f Fiski-
mjölsverksmiðjuna í Eyjum, sem
reyndar á bátinn.
„Við bíðum nú til morguns því
spáin er leiðinleg og siglingin
Loðnulöndun f Eyjum
löng“ sagði kafteininn á mánu-
dag. Þess má geta að annar
loðnubáturinn sem hefur loðnu-
veiðar frá Eyjum á þessari vertfð,
Sighvatur Bjamason VE. lagði
af einnig af stað á mánudags-
kvöld eða þriðjudagsmorgunn.
Má ætla að við þessar fréttir
lyftist brúnin á bræðslukörlum hér
f bæ, svo og að peningalyktin fari
brátt að kitla nef bæjarbúa.
— bjarni.
Villi Magg ÍS-87.
um nokkurt skeið f Bandarfkjunum.
Hann er þungt tæki og byggist á
því að niður úr skipinu er dælt í
gegnum barka miklu magni af sjó
við kjaftinn á plógnum. Við það
rótast botninn upp og plógurinn
nær til kúfísksins sem er grafínn í
botninn. Sjódælingin er orkufrek
og því er olíueyðsla á skipinu nokk-
ur. Nauðsynlegt reyndist að styrkja
plóginn og gera á honum nokkrar
breytingar. Þar sem hér er um nýja
veiðitækni og ný veiðisvæði að ræða
má reikna með að töluverðan tíma
taki að ná hámarksafköstum við
veiði.
Bylgjan keypti nýlegt fískverk-
unarhús á Suðureyri, byggt 1982.
Það er 550 fermetrar að grunnfleti
á tveimur hæðum með 300 rúm-
metra frystiklefa. Vélar voru
keyptar af Trausti hf. í Reykjavík.
Tafír hafa orðið á afhendingu
vinnslulínunnar og ýmsir byijunar-
örðugleikar komið upp. Nú er verið
að reynslukeyra vélamar.
Fremsti hluti vinnslulfnunnar er
mjög svipaður hefðbundinni hörpu-
disklfnu. Skelin fer úr mötunarkari
f þrýstiopnara og þaðan á hristara
og skeljabrotsskilju. Aftasti hluti
línunnar er hins vegar sérstæður
fyrir kúfískvinnslu en þar er svo-
kölluð magasprengivél. Til að hægt
sé að nota kúfiskinn f dósasúpur
þarf að sprengja hann og hreinsa
innan úr honum. Við það lækkar
nýtingin vemlega en vonast er til
að hún verði um 10%.
í upphaflegum áætlunum var
reiknað með að selja allan kúfískinn
á Bandarfkjamarkað en þar nota
nokkur stórfyrirtæki kúfiskinn í
dósasúpur. Búið var að fá umboðs-
aðila og semja við þessi fyrirtæki.
Verðfall dollarans hefur hins vegar
raskað þessum áætlunum og því
hafa verið send sýnishom til Evrópu
og Japani. Engir sölusamningar
hafa þó verið gerðir. Einnig virðist
n\jög koma til greina að selja kú-
fískinn f beitu en þannig var hann
lengi notaður hérlendis. Þegar hef-
ur verið selt í beitu á 50 krónur
kflóið og hefur líkað mjög vel.
Heildarkostnaður er nú áætlaður
um 110 milljó: en hafa verður í
huga að framkvæmdum er ekki að
fullu lokið og enn er verið að vinna
þróunarvinnu bæði í vinnslulínu og
vatnsplógnum. Þar af kostaði skipið
um 55 milljónir, húsið 25 milljónir,
vélar 20 milljónir og annað 10 millj-
ónir.
Byggðastofnun hefur íjármagn-
að fyrirtækið að verulegu leyti. Hún
lánaði kaupverð skipsins, tók
ábyrgð á vélaláni, lagði fram 5
milljónir f hlutafé og lánaði auk
þess 10 milljónir. Að öðm leyti er
fyrirtækið fjármagnað með hlutafé
og yfírteknum lánum á fískvinnslu-
húsinu sem var keypt.
- HB.
Hallgrímskirkja í Saurbæ:
30 ára vígsluafmæli
HALDIÐ var upp á 30 ára vígsluafmæli Hallgrímskirkj u í Saurbæ
6. september síðastliðinu. Hátfðarguðsþjónusta var £ kirkjunni,
þar sem dr. Sigurbjörn Einarsson, biskup, prédikaði og að hepni
lokinni var kaffisamsæti að Hlöðum. Kirkjunni íiafa borist marg-
ar gjafir í tilefni afmælisins.
Við hátfðarmessuna var tekin í
notkun flóðlýsing, sem Sigmjón
Hallsteinsson, bóndi í Skorholti,
hefur gefíð kirkjunni til minningar
um foreldra sína og fjögur systkini
er hvíla í Saurbæjarkirkjugarði.
Siguijón gaf einnig ljós sem eru
meðfram gangstígnum upp að
kirkjunni.
Aðrar gjafír sem kirkjunni hafa
borist að undanfömu eru þessar:
Jón Bjamason, fyrrverandi kaup-
maður, gaf kirkjunni í júlí síðast-
liðnum hundrað þúsund krónur til
minningar um foreldra sfna, Bjama
Jónsson og Ingibjörgu Guðmunds-
dóttur, sem vom búendur á Melum
og Læk í Leirár- og Melahreppi.
Gjöfín er einnig til minningar um
föðurforeldra Jóns, Guðrúnu Guð-
brandsdóttur og séra Jón Bene-
diktsson, sem var prestur í Saurbæ
1886-1900. Langafi Jóns Bjama-
sonar, séra Þorgrímur Thorgrím-
sen, var einnig prestur f Saurbæ á
liðinni öld frá 1849-1866.
Frú Guðrún Valdimarsdóttir,
Ijósmóðir, hefur gefið kirkjunni alt-
arisdúk, sem hún hefur sjálf
saumað. Frú Guðrún er 92 ára göm-
ul. Dúkurinn var afhentur kirkjunni
12. júlí og tekinn f notkun við messu
þann dag.
í tilefni afmælisins gáfu sóknar-
böm kirkjunni 69.000 krónur ogfrú
Magnea Þorkelsdóttir og dr. Sigur-
bjöm Einarsson, biskup, færðu
kirkjunni altarisbiblfu. Einnig skal
þess getið að á liðnu vori fékk kirlq-
an 50 sálmabækur að gjöf frá Gfsla
Sigurbjömssyni, forstjóra Elliheim-
ilisins Grandar í Reylcjavík.
Að lokum skal þess getið að í
tilefni afmælisins hefur verið gerður
sérstakur platti af kirkjunni.
(Ur fréttatilkynningu)
Trilla slitn-
aði upp
Grinuey.
TRILLA slitnaði upp af legunni
við Grimsey & m&nudagskvöld.
Fyrir snarræði tókst heima-
mönnum að koma trillunni aftur
óskemmdri í land.
Foráttubrim var við Grímsey
þegar trillan slitnaði upp. Þegar
svona óhöpp verða rekur báta oft-
ast beint upp f fjöra, þar sem þeir
brotna f spón. í þessu tilviki hreif
straumur trilluna á haf út. Þrír
menn fóra um borð í bát og í fyrstu
tilraun tókst þeim að leggja svo upp
að trillunni að einn þeirra komst
um borð og gat siglt henni til hafn-
ar.
Alfreð.