Morgunblaðið - 10.12.1987, Page 58

Morgunblaðið - 10.12.1987, Page 58
58 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987 Stjörnu- Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson Heilsa Vogarinnar í dag ætla ég að fjalla um Vogina (23. sept.—22. okt.) út frá líkams- og heilsufræði. Lesendur eru minntir á að hver maður á sér nokkur stjömumerki og þvf geta önn- ur merki einnig haft sitt að segja hvað varðar heilsuna. Elftirfarandi getur t.d. einnig átt við um þá sem hafa Vog Rísandi eða Tungi í Vog. Nýrun Vogin stjómar neðra baki, nýrum og nýmakerfi. Vogir eiga því oft í vandræðum með þessa lfkamshluta og eiga til áð fá nýmaverki eða nýma- sjúkdóma. FœÖa í ágætri bók um stjömuspeki og heilsufræði, Astrology and Health, eftir Sheila Geddes, segir að Vogir þurfi að at- huga jafnvægið milli sým og basa í fæðunni. Góö heilsa Annars er sagt að Vogin sé eitt af heilbrigðari merkjum dýrahringsins. Ástæðan fyrir því er sú að Vogin er merki jafnvægislistarinnar og á því auðvelt með að finna jafn- vægi í fæðuna. Hún rejmir a.m.k. iðulega að temja sér lifnaðarhætti sem taka tillit til ólíkra þátta, þ.e. gætir jafnvægis milli sálar og líkama og einstakra fæðuteg- unda. Vogin hefur innbyggt jafnvægisskyn sem hún beitir jafnvel án þess að vita það sjálf. Hiö sálrcena Þörf Vogarinnar fyrir að vega og meta getur í einstaka til- vikum leitt til sálrænna erfíðleika. Vegna þess hversu auðvelt hún á með að sjá tvær hliðar á hveiju máli getur hún oft ekki gert upp huga sinn og verður fyrir vikið tauga- veikluð, óörugg og í einstaka slæmum tilvikum sálsjúk. Óréttlceti Óréttlæti í umhverfi Vogar- innar getur sett hana útaf laginu og leitt í sumum tilvik- um til þess að hún verður beinlínis líkamlega veik. Það má segja að hún sé viðkvæm og verði oft veik ef umhverfið er ljótt eða henni óhagstætt á einhvem hátt. HiÖ œskilega Vogir þurfa, kannski eins og aðrir, hreyfingu og einhvetja líkamsrækt. Er þá talað un að hópiðkun henti vel, en ekki einstaklingsgreinar. Skylmingar eru góð íþrótt fýrir Vogina, vegna þess að þar er lögð áhersla á þjálfun jafnvægis. Gefandi tómstund- ir (eða vinna) fyrir Vog eru síðan á listrænum sviðum, þvi fegutð og listrænt samspil lita og muna, verka róandi og gæðandi á skap hennar. Til að halda góðri heilsu og hamingju þarf Vogin síðan að rækta með sér ákveðið sjálfstæði. Hún er félagslynd og þarf á öðru fólki að halda, en þarf eigi að síður að læra að vera sjálfri sér nóg og stjóma sjálf eigin lífí. Annars er hætt við að velferð hennar verði um of háð duttlungum annarra. Ef ástarsamband brotnar, þá brotnar hin ósjálf- stæða Vog. Viðkvcem svœÖi Að lokum ætla ég að telja upp nokkur svæði líkamans sem eru viðkvæm hjá Vog- inni. Mjóhryggur og lendar (lendagigt), nýru, þvagblaðra og blöðruvandamál, opin sár á húð eða slímhúð, sykursýki (ójafnvægi í briskirtli) og blöðrumyndun í eggjastokk- um. GARPUR LOttP BR BINU/U DBS/ BNN 1 ÞfS/ei-/c- UNAny/NNU H?A HAOÐJAXU HlNU/H H-LA ■ EFne stutta<5öngu Ke/nuZ' am/h i'v/nnuBubiz eteiza/iu } /nÚ, HVA£> J lKoÐ,pa \ k EJiu/tfAÐ pA&UA Fye/fi>\ VEHH? pANDAN/, 1 EKKFKrSLöR, Au/MNGJAR.ET/B I SU/HS 'A /HEBAN FAOefZ , HenTT! -S _ -\-- I JDCToW 1 \ Jv \c~'tkóe*) GRETTIR SOW.ONk/ TOMMI OG JENNI UOSKA KAMNStCI NS VIÐ K.TT- , UAA AP <3EJ=A HONVM /vun. i vipecfr -• «1 .. K.FS Distf BUlLS Hw^wwwwwwwwwwwwH^;;n;H!j!j|!!!;;!!jiwwwwwwwwww^wiiiwroi;iiji;;M»w»wwiwHH aaíaiiiiia.iiiáiinfiYTf'irf ...ítiittK;a.fi.YfKí.rírvltrf' íimiímíinmíiiiimrv FERDINAND SMAFOLK Ssh, herra ... vaknaðu! Til hvers? Erfið spuming, eða hvað? BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Lee Hazen er kunnur keppnis- spilari vestanhafs, sem hefur spilað í bandariskum toppbrids í 40 ár. En stundum tekur hann hokkrar léttar rúbertur með konu sinni og kunningjum. Og þaðan er eftirfarandi spil ættað: Norður gefur; allir á hættu. Norður ♦ KG5 ¥2 ♦ KDG10 ♦ ÁG765 Vestur ♦ D2 ¥ G654 ♦ Á9875 ♦ 92 Austur ♦ 876 ¥ D10983 ♦ 63 ♦ D43 Suður ♦ Á10943 ¥ÁK7 ♦ 42 ♦ K108 Hazen var með spil suðurs. Makker hans í norður hafði tröllatrú á úrspilshæfni Hazens og ók honum því í sex spaða eftir þessum vegi hér: Vestur Norður Austur Suður — 1 lauf Pass 1 spaði 2 tiglar Pass 2 hjörtu 2 spaðar Pass 3 lauf 4 grond Pass 5 hjörtu 6 spaðar Pass Pass Pass Pass Pass Pass Pass Vestur kaus að spila út tígul- ás og meiri tlgii. Austur, sem reyndar var eiginkona Hazens, lét sexuna og þristinn. Það leit út eins og tvíspil og Hazen ákvað að notfæra sér þá staðreynd til að staðsetja trompdrottninguna. Hann spilaði tigli áfram í þriðja slag! Austur henti hjarta umhugs- unarlaust og Hazen hafði komist að niðurstöðu. Úr því eiginkonan tímdi ekki að stinga í tígulinn hlaut hún að eiga spaðadrottn- inguna. Hann tók því spaðakóng og lét gosann rúlla yfir til vest- urs. Einn niður. „Hvers vegna trompaðirðu ekki tígulinn?” spurði Hazen sína heittelskuðu. „Ég hélt þú kynnir orðið að taka trompin,“ var svarað um hæl. SKAK Umsjón Margeir Pétursson Á opnu móti í Sevilla á Spáni, sem fram fór samhliða heims- meistaraeinvíginu, kom þessi staða upp í skák júgóslavneska stórmeistarans Cebalo, sem hafði hvitt og átti leik, og Santos, Spáni. 24. Bxg6! fxg6, 25. De4 - Ha7 (25 — Kg7, 26. Dxa8 var auðvitað vonlaust), 26. Dxg6+ — Kh8, 27. Dxh6+ — Kg8, 28. Hcl — Bc5, 29. b4 og svartur gafst upp. Röð efstu manna á mótinu varð þessi: 1. Murey, ísrael 7 V2 v. af 9 mögulegum. 2—5. Sokolov, Sovét- ríkjunum, Sax, Ungveijalandi, Hodgson, Englandi og Tallaber- am, Spáni 7 v. 19 skákmenn hlutu 6 V2 v., þ.ám. stórmeistaramir Adoijean, Taimanov, Gufeld og Flear.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.