Morgunblaðið - 16.01.1988, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 16.01.1988, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1988 49 jarðar og vissu hvað moldin gat gefíð af sér, væri rétt að henni hlúð. Helgi var hagur vel á tré og jám og allt lék í höndum hans. Með afburða dugnaði og elju tókst þeim að reisa glæsilegt býli, sem ber vott um samheldni þeirra og snyrti- mennsku. Búfé þeirra, ræktun þess og meðferð, var einnig til fyrir- myndar. Helgi hafði mikið yndi af hestum og var hestlaginn í besta lagi. Átti hann góða gæðinga og vann oft til verðlauna á þeim á hestaþingum. Hann vann að félagsmálum hesta- manna og var kallaður þar til trúnaðarstarfa. Hann var formaður Hrossaræktarfélags Hrunamanna nú er hann lést og einnig starfaði hann að félagsmálum sauðfjár- bænda. Margar voru stundimar sem við Helgi áttum saman á hestum. Allt frá því við vomm litlir drengir, sner- ist hugurinn mikið í kring um hestana og sauðféð. Óharðnaðir unglingar fómm við í fyrstu fíjall- ferðina, en þær áttu eftir að verða margar. Stórbrotin og fögur öræfín heilluðu og smala þarf kjamgóð sauðlöndin haust hvert. Ungum var honum falið að vera Qallkóngur okkar og gegndi hann því embætti í átján ár af mikilli prýði. Það er ekki vandalaust að stjóma hálfum Qórða tug ærslafullra fjallmanna í nær viku leitum, halda aga og gæta þess að allt fari sem best við smölun og rekstur á annan tug þúsunda sauðfjár til rétta. En Helgi fór einnig mjög oft í eftirleitir þeg- ar komið var fram í október og veður orðin válynd. Reynir þá oft á þrek og þor manna. Þá var Helgi við grenjavinnslu í afréttinum mörg vor og varð hann því gjörkunnugur hveijum reit fljótlega, sem kom sér vel fyrir fjallkónginn. Að kvöldi nýársdags kom ég síðast að ísabakka og færði þeim hjónum myndir, sem ég hafði tekið í fímmtugsafmæli Helga fjómm dögum áður. Þá var glatt á hjalla og mann§öldi sótti þau heim. Sú gleðistund gleymist engum sem þar var. Þetta nýárskvöld var einkar notalegt og hlýtt og allt virtist vera svo bjart framundan, allir erfíðleik- ar að baki. Það hafði oft blásið á móti, en Helgi kunni að haga sínum lífsins seglum rétt. Minningin um þennan prúða og hugljúfa frænda mun vara á meðan lífíð endist. Ég votta ástkærri eiginkonu, syni, bróður hans og öðrum að- standendum djúpa samúð. Megi Guð styrkja þau í hinni miklu sorg. Sigurður Sigmundsson, Sy ðra-Langholti. Minning: Hjalti Guðnason trésmíðameistari Fæddur 9. júlí 1912 Dáinn 21. desember 1987 Frændi minn og æskufélagi Hialti Guðnason trésmíðameistari Eskifirði er látinn. Hann andaðist 21. desember sl. Hann var fæddur á Eskifírði og þar lifði hann og starfaði alla ævi. Hjalti var sonur Guðnýjar Pétursdóttur, sem nú er 96 ára og býr á Eskifírði, og Guðna Jóns- sonar trésmíðameistara. Hjalti var ekki gamall, þegar í ljós komu hjá honum miklir hæfíleikar. Og ekki var hann gamall þegar hann fór að teikna og smíða ýmsa hluti. Þá var hann fljótt næmur fyrir söng og tónlist. Faðir hans átti orgel sem hann lék á og komst Hjalti upp á að nota það og varð ótrúlega snjall að ná úr því tónum og lagi. Ég minnist þess sérstak- lega hvað það kom sér vel fyrir skólalífið í bamaskólanum og lyfti því upp og var Hjalti óspar á að spila þar þegar tækifæri buðust. Hann lærði einnig að leika á harm- onikku, fíðlu og blásturshljóðfæri og var eins og hann gæti náð tón úr þeim hljóðfærum sem hann reyndi við. Snemma varð hann lið- tækur félagi Lúðrasveitarinnar og lék þar meðan hún starfaði. Um margra ára skeið var hann síðan söngstjóri Karlakórsins Glaðs og veitti það bæjarbúum og nágrönn- um mikla ánægju. Þar náði hann miklum árangri og væri nú gaman að eiga þær raddir sem hann þjálf- aði á segulbandi. Þá var Hjalti um 30 ára skeið organisti í kirkjunni. Þetta var allt meira og minna sjálf- boðastarf nema það sem leikið var á dansleikjum og þá aldrei krafist þess gjalds sem nú þykir lágmark. Þá samdi Hjalti nokkur sönglög sem urðu vinsæl og mikið sungin. Hjalti varð síðan trésmíðameistari og gerði það að ævistarfi, enda var hann jafnvígur á tré og járn eins og þar stendur. Hjalti var drengur góður, hjálpsamur og þess munu margir minnast. Hann var giftur Jónínu Guð- mundsdóttur, Ásbjamarsonar t Við þökkum innilega öllum þeim fjölmörgu, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns mins og föður okkar, JÓNS SIGURÐSSONAR húsasmiðameistara, Fagrahvammi 8, Hafnarfirði. Auður Adolfsdóttir, Fjóla Björk Jónsdóttir, Adolf Jónsson. t Þökkum auðsýnda samúð og hlýjar kveöjur vegna andláts og útfarar VIGFÚSAR SIGURJÓNSSONAR, Norðurbyggð 15, Akureyri. Sigurlaug Vigfúsdóttir, Helgi Antonsson, Signý Jóna Hreinsdóttir, María Hreinsdóttir og fjölskylda, Soffía Hreinsdóttir og fjölskylda. t Við faerum öllum innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinar- hug við andlát og útför ÞÓRUJÓNSDÓTTUR frá Siglufirði, Hraunbæ 138, Reykjavík. Starfsfólki hjartadeildar Landspítalans þökkum við einstaka umhyggju og hjúkrun. Hallfríður E. Pótursdóttir, Stefanía M. Pótursdóttir, Kristi'n H. Pótursdóttir, Björn Pótursson, Stefán Friðriksson, Ólafur Tómasson, Baldur Ingólfsson, Bergljót Olafsdóttir. Frá fundi Kristilegra skólasamtaka, KSS. Kristileg skólasamtök: Kynnmgarfiindur í kvöld KRISTILEG skólasamtök, KSS, halda kynningarfund í húsi KFUM og KFUK við Amt- mannsstíg 2b i kvöld, 16. janúar, kl. 20.30. Fundurinn ber yfírskriftina „Er Jesús í skólanum?" og er í umsjá sr. Bernharðs Guðmundssonar og Bjarna Karlssonar. Allt ungt fólk á aldrinum 14-20 ára er velkomið. KSS starfar fyrir nemendur 8. bekkjar til loka framhaldsskóla. Hvert laugardagskvöld er samvera á Amtmannsstíg 2b og í miðri viku hittast meðlimir úr einstökum skól- um. Nokkrum sinnum á ári eru haldin helgarmót utan Reykjavíkur. Félagsmenn kjósa eigin stjóm sem skipuleggur allt starf félagsins. Virkir meðlimir eru um 100 talsins. (Fréttatilkynning) fríkirkjuprests og áttu þau einn son. Kona Guðmundar var Björg Jónasdóttir frá Svínaskála. Konu sína missti Hjalti fyrir mörgum árum og varð það honum mikið áfall. Ég fór í annan landshluta. Hjalti varð eftir. Sambandið minnkaði en þegar ég átti leið heim aftur, hitti ég hann og marg- ar stundir voru riíjaðar upp og verða þær geymdar þakklátum huga. Því miður átti Hjalti ekki kost skólagöngu og var það skaði. En í þá daga voru það fáir sem áttu kost á að leggja út á menntabraut- ina. En það er ég viss um að hann hefði verið virkari ef hann hefði fengið að ganga í skóla eins og hann þráði. Hjalti verður mér ávallt minnisstæður. Ég vil í þes- um fáu línum minnast góðvinar og fráénda. Hann verður mér kær í minningunni. Aldraðri móður og ástvinum hans færi ég samúðar- kveðju. Kveð hann svo þakklátum huga og bið blessunar guðs á nýj- um leiðum. Blessuð veri minning hans. Arni Helgason ísafjörður: Ljóðatónleikar ísafirði. JÓHANNA V. Þórhallsdóttir messósópran og Margrét Gunn- arsdóttir píanóleikari halda ljóðatónleika í sal Frímúrara, Hafnarhúsinu á ísafirði, laugar- daginn 16. janúar. Á efnisskrá tónleikanna eru göm- ul ítölsk lög og ljóð eftir Schubert og Brahms og frönsku tónskáldin Fauré, Duparc, Debussy og Pou- lenc. Jóhanna V. Þórhallsdóttir er Reykvíkingur og hóf söngnám hjá John A. Speight við Tónskóla Sigur- sveins D. Kristinssonar. Hún stundar nú framhaldsnám í London hjá Iris Dell-Acqua og Vera Rozsa. Margrét er fædd á ísafirði og hóf píanónám 8 ára gömul hjá Ragnari H. Ragnar við Tónlistar- skóla ísafjarðar. Að loknu stúdents- prófí frá Menntaskólanum á ísafirði stundaði hún nám við Tónlistarskól- ann í Reykjavík sem nemandi Árna Kristjánssonar. Margrét býr á ísafírði og kennir píanóleik við Tón- listarskóla ísaijarðar. Tónleikarnir á laugardaginn hefi- ast kl. 17.00. - Úlfar t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför bróður okkar, KRISTJÁNS BENEDIKTSSONAR frá Haganesi. - Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á gjörgæsludeild Landspítalans. Kristbjörg Benediktsdóttir, Hákon Benediktsson, Valey Benediktsdóttir, Sigurbergur Benediktsson, María Benediktsdóttir og aðrir vandamenn. t Þökkum innilega auðsýnda samúö og hlýhug við andlát og útför, ÓLAFS HJARTARSONAR, Grýtubakka 4. Sérstakar þakkir til starfsfólks handlækningadeildar 1 3-D, Land- spítalanum. Guðrún Guðmundsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. Stofnfundur samtaka um glútenofnæmi STOFNFUNDUR samtaka þeirra er haldnir eru glútenofnæmi verður haldinn i dag, laugardag- inn 16. janúar kl. 14. Fundurinn verður haldinn i félagsheimili Sjálfsbjargar, Hátúni 12, inn- gangur um vesturdyr. í frétt frá samtökunum segir að glúten sé eggjahvítuefni sem fínnist í hveiti, heilhveiti, rúgmjöli, höfrum og byggi. Hjá þeim sem þjáist af glútenóþoli, rými hæfileiki slímhúð- ar smáþarma til að soga upp næringarefni úr fæðu. Því sé nauð- synlegt að að þeir sem haldnir séu glútenofnæmi forðist neyslu þess. Alþjóðlegt merki glútenlausrar fæðu er komax með skástriki yfír, umlukið hring. Engin íslensk mat- væli séu merkt á þennan hátt svo vitað sé. Óvíst er hversu margir em haldn- ir glútenofnæmi hérlendis en líkur em taldar á að þeir geti verið allt að 900. Birtíng afmætis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Blóma-og skreytingaþjónusta W hvert sem tilefnid er. * GLÆSIBLÓMIÐ GLÆSIBÆ, Álfhcimum 74. sími 84200
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.