Morgunblaðið - 05.02.1988, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 05.02.1988, Blaðsíða 12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1988 Sigurður Gunnarsson á þessu stóra verksmiðjuhúsnæði. Frú Lovísa Christíansen arkitekt var ráð- in til að gera tillögur og teikningar varðandi breytingar og innréttingar á húsnæðinu. Annaðist hún það verk- efni af mikilli kostgæfni og smekkvísi og tókst að breyta þessu verksmiðju- húsi í einkar vistlegt og fagurt heimili. Skulu henni hér enn fluttar innilegar þakkir. Margir aðilar sýndu rekstrarfélög- unum mikla vinsemd og rausn með því að gefa heimilinu smærri og stærri gjafír og létta þannig róðurinn að mun. Á engan tel ég hallað, þó að ég nefni aðeins þann aðilann sem lagt hefur langmest af mörkum til Múlabæjar, en það er Kvennadeild Reylq'avíkurdeildar Rauða krossins. Flyt ég henni og öllum hinum alúðar þökk. Að öllum undirbúningi loknum og fengnu rekstrarleyfi heilbrigðisráð- herra, var dagvistarheimilið opnað formlega og vígt til starfa með við- höfn þann 27. janúar 1983, að viðstöddu miklu fjölmenni — eða fyr- ir fímm árum. Fimm ár eru ekki langur tími ef miðað er við meðalævi okkar íslend- inga. Engu að síður hefur það komið í ljós, eins glöggt og verða má og eins og rekstraraðilamir gerðu sér fulla grein fyrir í upphafí, að þörfín fyrir slíka starfsemi var mikilvæg og brýn. Það sannar hin mikla aðsókn og eftirspum, og hin óblandna án- ægja vistmanna . og aðstandenda þeirra með starfsemi og rekstur stofyunarinnar. Ástæðan er tvímælalaust sú, að starfið hér miðar fyrst og fremst að því að létta einangrun og veita aðra hjálp og öryggi öldmðu fólki, sem enn býr á eigin heimilum og gera því þannig fært að búa þar, eins lengi og það getur og vill en sú stefna í öldrunarmálum er nú mjög ofarlega á baugi og er að mati flestra, sem um þessi mál ijalla, hárrétt. Þetta er hliðstætt heimilishjálp við aldraða. Daglegrar, flölþættrar þjónustu af ýmsu tagi njóta hér jafnan 48 vist- menn — og hér er alltaf fullt og jafnan ekki færri en 40 á biðlista. Fleiri koma þó hingað vikulega því að margir eru hér aðeins tvo til þijá daga í hverri viku, raunar flestir svo að það em um 120 manns, sem hing- að koma á viku. Sumir sjá sér sjálfír fyrir flutningi en stofnunin sækir flesta og flytur þá aftur heim. Enginn vafi er á því að Múlabær á fyrst og fremst vinsældir sínar þvi að þakka hve vel hefur til tekist með ráðningu starfsfólks, én þar er valinn maður í hvetju rúmi. Eins og öllu lífsreyndu fólki er kunnugt, skiptir jafnan mestu máli hver heldur um stjómartauma sérhverrar stofnunar. Stjóm Múlabæjar hefur notið þeirrar gæfu að hafa sama forstöðumanninn þessi fímm fyrstu ár starfseminnar, Eyfírðinginn unga, Guðjón Bijáns- son, sem er fágætlega geðþekkur og vel menntaður áhugamaður um öldr- unarmál. Væntir stjómin þess að fá að njóta starfskrafta hans sem lengst og flytur honum og starfsfólkinu öllu hugheilar þakkir á þessum tímamót- um. Ekki get ég skilið svo við þessa stuttu umsögn um starfsfólk Múla- bæjar, að ég drepi ekki aðeins með örfáum orðum á samstarf okkar stjómarmanna og forstöðúmanns á þessu árabili. Það hefur alltaf verið einstaklega ánægjulegt og ætíð verið sameiginlegt áhugamál okkar allra að gera hag Múlabæjar sem bestan og bæta aðstöðu hans eftir megni. Ég held ég lýsi samstarfi okkar best með því að vitna í nokkur orð, sem ég skráði í 40. fundargerð okkar 18. desember 1986. Þar stendur þetta: „Ritari vakti athygli á að þessi fundur væri sá fertugasti sem stjóm- in héldi um þessi þörfu og mikilvægu mái. í því sambandi kvaðst hann vilja leyfa sér að segja, að hann væri MILLTEXinnimálning með7eöa20%gljáa-BETT vatnsþynnt plastlakk með 20 eóa35% gljáa - VITRETEX plast- og mynsturmálning - HEMPELS lakkmálning og þynnir- CUPRINOLfúavarnarefni, gólf-og y húsgagnalökk, málningaruppleysir ofl. - ALCRO servalakk og spartl - MARMOFLOR gólfmálning - BREPLASTA spartl og fylliefni - Allar stæröir og gerðir afpenslum, rúllum, bökkum, límböndum ofl. ofl. Kynnið ykkur veröió og fáiö góö ráö í kaupbæti. uennctoq, viá&aíct eiytta, Litaval SÍÐUMÚLA 32 SÍMI 68 96 56 Mikilvæg og merk þjónusta f tilefni af fimm ára afmæli Múlabæjar eftirSigurð Gunnarsson Múlabær, þjónustumiðstöð aldr- aðra og öryrkja, tók formlega til starfa fyrir fímm ámm í húsnæði því þar sem SÍBS hafði áður starfrækt vinnuverkstæði, Múlalund. í fyrstu, eftir að húsnæðið var opnað, fóru fram viðræður við eigend- ur um að þar yrði áfram vinnuverk- stæði, en nú skyldi þar eingöngu starfa aldrað fólk, 67 ára og eldra, við létt iðnaðarstörf og yrði ötullega unnið að því að koma framleiðslunni á markað, svo að starfsemin bæri sig að meira eða minna leyti. Starfsmenn Samtaka aldraðra höfðu um skeið undanfarið túlkað þá stefnu og þá sjálfstæðu fram- kvæmdanauðsyn í ræðu og riti, að allir þeir sem hættir væru aðalstarfí vegna aldurs, en væru enn heilsu- hraustir eins og margir eru nú á þeim aldri, vildu vinna hlutastarf við hæfi og halda lengur tengslum við vinnufélaga og lífræn störf, — já við lífíð sjálft, ættu ótvírætt að eiga kost á því. Nefnd áhugaaðila vann að þessu verkefni nokkum tíma, hélt fundi og ræddi við kunnáttumenn. Um þetta er töluverð saga, sem ekki verður rakin hér. Égget héraðeins, að niður- staða þessara jákvæðu og ég vil segja tímabæru athugana varð neikvæð. Það þótti ekki fært á þessu stigi að leggja í þann kostnað að koma upp slíku verkstæði og auk þess veruleg óvissa um sölu á framleiðslunni. Oddur Ólafsson læknir og fyrrv. alþm., stjómarmaður SÍBS, fylgdist vel með þessum athugunum. Áttum við Oddur um þetta langar viðræður a.m.k. tvisvar sinnum, og var hann einkar jákvæður eins og vænta mátti. En þegar fyrir lá neikvæð niður- staða með vinnuverkstæðið, barst talið fljótt að því að nýta þetta ágæta húsnæði á einhvem annan hátt í þágu aldraðra. Reykjavíkurdeild Rauða krossins kom nú brátt inn í þessar nýju viðræð- ur og hafði einmitt á stefnuskrá sinni að vinna að því að koma upp dagvist- arheimili fyrir aldraða og öryrkja strax og hentugt húsnæði fengist. Eftir nokkrar viðræður milli þessara þriggja aðila, SÍBS, Reykjavíkur- deildar Rauða krossins og Samtaka aldraðra, tókust samningar um rekst- ur dagvistarheimilis fyrir aldraðra og öryrlqa fímm daga vikunnar á tveim- ur hæðum í þessu húsi, Ármúla 34, f 600 fermetra rými og hlaut nafnið Múlabær. Það var sameiginlegt álit rekstraraðilanna allra, að þetta rekstrarform, þessi aðstoð við aldraða og öryrkja og heimili þeirra, væri aðkallandi og mikilvæg. Rekstrar- samningur þeirra var undirritaður 21. september 1982. Til skýringar skulu hér aðeins nefndar 4 greinar úr samningnum: 1. SÍBS leggur til húsnæðið án •eigugjalds sem eigið framlag til ofan- greindrar starfsemi. 2. Reykjavíkurdeild RKÍ leggur fram sem eigið framlag kostnað allan við breytingar á húsnæðinu, innrétt- ingar þar og húsbúnað, allt í samræmi við lauslega áætlun, eða við stöðu hönnunar hinn 31. maí 1982. 3. Samtök aldraðra verða aðilar að rekstrinum án sérstaks stofnfram- lags, en munu af fremsta megni, allt frá upphafi og meðan samvinna þess- ara aðila varir, vinna að því að ríkið og almennir sjóðir leggi sitt af mörk- um til þess, að hugsjónin um betri aðbúnað fyrir aldraða nái að rætast, enda er efnt til þessarar starfsemi í fullu trausti þess, að því marki verði náð. 4. Hallarekstur skiptist þannig milli samstarfsaðila: Samband íslenskra berklasjúklinga og Reykjavíkurdeild Rauða krossins greiða tvo fímmtu hluta hvor um sig, en Samtök aldraðra einn fímmta. U ndirbúningsframkvæmdirnar, sem urðu víðtækar og fyrirhafnar- samar og hófust töluvert löngu fyrr, voru ekki síst fólgnar í gjörbreytingu bæði þakklátur, hrifínn og stoltur þegar hann hugsaði til þessa ánægju- lega og farsæla samstarfs stjómar- manna — og þá ekki síður við forstöðumann oggjaldkera, sem jafn- an sætu fundi stjómarinnar. Kvaðst hann ekki minnast, að á það góða samstarf hefði nokkru sinni borið skugga, og fyrir það vildi hann þakka af heilum huga.“ Undir þessi orð rit- ara tóku bæði formaður og forstöðu- maður og létu einkar hlýleg orð falla um samstarfíð. Það teyndi sér ekki heldur að þetta var samróma álit allra fundarmanna. Ritari endurtekur hér þessi þakk- arorð til samstarfsmanna sinna allra og vill nú gjama bæta því við, að á þessu ágæta samstarfi hefur ekki orðið nein breyting, þótt 50. fundar- gerðin verði skráð innan skamms. Af þessu má sjá, að stjómin virð- ist hafa fylgst vel með og vakað yfír störfum Múlabæjar, þar sem segja má að hún hafi haft 10 bókaða fundi á ári um starfsemi hans. Að öllu samanlögðu, þegar ég lít yfír þessa fímm ára starfssögu Múla- bæjar, fínnst mér að hann, Múlabær, hafí verið sannkallað óskabam rekstraraðilanna. Vænti ég að félagar mínir í stjóminni séu mér allir sam- mála um það — og geri mér vonir um, að hann verði það sem lengst. Að lokum vil ég leyfa mér að láta fáein orð falla um stöðu öldrunar- mála almennt, eins og þau eru nú og koma mér fyrir sjónir. Engum, sem um þau mál hugsar, blandast hugur um, að vel hefur verið unnið að þeim málum á margan hátt um land allt á síðari árum, og ber vissu- lega að þakka það. En þar sem öldruðum fjölgar ört vegna sívaxandi lífaldurs landa okk- ar, sem vafalaust á rætur að rekja . til stórbreyttra og ágætra aðstæðna okkar á flestum sviðum, miðað við það sem áður var, þarf enn að halda markvisst áfram að vinna að málefn- um aldraðra og bæta aðstöðu þeirra. Skulu hér að lokum nefnd fjögur atr- iði, sem þurfa að hafa forgang: í fyrsta lagi: Að allir þeir, sem hætta aðalstarfí, eru enn við góða heilsu og vilja gjama vinna hluta- starf áfram, eigi skilyrðislaust kost á því. Þegar grannt er skoðað er þetta það atriðið sem ef til vill vegur þyngst allra á metum í öldrunar- málum, og hníga að þvi mörg og sterk rök. í öðru lagi: Næsta atriði í mínum huga sem gera þarf strax stórátak í, í öldrunarmálum, eru sjúkramál aldr- aðra. Að þeim málum hefur einnig nokkuð verið unnið og er stórvirkið Skjól sameiginlegt átak sterkra fé- lagasamtaka, stærsta og besta átakið í þeim efnum. En betur má ef duga skal. Við getum ekki verið þekkt fyr- ir það stundinni lengur að láta aldraða, sem sjúkir eru, liggja heima við erfíðustu aðstæður og oft sára- litla eða jafnvel enga umhirðu. í þriðja lagi nefni ég húsnæðismál aldraðra sem huga þarf fljótt betur að en gert hefur verið. Eins og ég vék að fyrr, er nú stefnt að því að aldraðir dvelji eins lengi á eigin heim- ilum og þeir óska og geta og þá með aðstoð dagvistarheimila og/eða heim- ilishjálpar. En af ýmsum ástæðum kjósa margir að flytja úr of stóru húsnæði sínu í íbúð, sem er í tengsl- um við svonefndar þjónustumiðstöðv- ar, sem nú hefur verið komið upp á nokkrum stöðum hér og vfðar. En til þess að allir geti eignast slíkt hús- næði, hvemig sem efnahagur þeirra er, og fullt jafnrétti ríki í þjóðfélag- inu, þarf að fá lögfest svonefnt kaupleigukerfi, sem nokkrir sterkir áhugaaðilar stefna nú markvisst að að nái fram að ganga. Vænta allir áhugamenn í öldrunarmálum að Al- þingi samþykki sem fyrst um það lög sem að því stefna. í fjórða og síðasta lagi nefni ég nauðsyn þess að komið verði upp fleiri dagvistarheimilum með fjöl- breyttri þjónustu eins og hér í Múlabæ, bæði í Reykjavík og í þétt- býli út um land. Með því vinnst margt, sem hefur góða kosti fyrir aldraða. En þyngst munu þeir tveir kostir vega, að blessað fólkið fær aukna möguleika á að dvelja lengur en ella á eigin heimilum, sem hefur ótvíræða kosti — og að þar nýtur það samvista við jafnaldra og margvís- legrar þjónustu, sem er bæði mikill heilsu- og gleðigjafi. Vonandi vinna fleiri áhugaaðilar sem fyrst að framkvæmd þessa verk- efnis. _____________________________ Höfundur er fyrrverandi skóla- stjóri ogritari stjórnar Múlabæj ar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.