Morgunblaðið - 16.02.1988, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 16.02.1988, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1988 MÁLEFNI ALDRAÐRA / Þórir S. Guðbergsson Tilhlökkun og eftirvænting Á ári aldraðra 1982 var mikið rætt og ritað um málefni aldraðra. í lok þess árs voru samþykkt lög á Alþingi sem gengu í gildi 1. jan. 1983 og marka að mörgu tímamót á íslandi í þessum málaflokki. Lög þessi eru nú í endurskoðun og kem- ur til kasta alþingismanna að meta stöðuna að nýju, sníða af vankanta og galla, safna upplýsingum af öllu landinu um framkvæmdir og virkni og leggja nú höfuðáherslu á kosti laganna og bæta við því sem ekki stendur í núgildandi lögum. Og nú verða aldraðir áreiðanlega spurðir sjálfir hvað þeir telji að leggja þurfi áherslu á. Þeir vita best hvar skór- inn kreppir, þeir hafa reynsluna. Mikil gróska héfur verið í þessum málaflokki víða um land og sífellt bætast fleiri í hóp þeirra sem vilja leggja sitt af mörkum til þess að málefni aldraðra skipi veglegan sess í hveiju sveitarfélagi á landinu. Því miður heyrist enn söngur sem sýnir að ekki er allt eins og það á að vera. Söngur sem stundum hljómar á þessa leið: Ég kvíði svo ellinni. — Eg veit ekki hvað bíður mín. — Ég er svo hræddur um að verða veikur og vera upp á aðra kominn. Hvernig stendur á því að margir fullorðnir kvíða því að verða aldrað- ir og margir aldraðir óttast að verða enn eldri? Hefur um of verið lögð áhersla á þá aldraða sem þurfa þjónustu, íbúðarhúsnæði og hjúkr- unarheimili? Halda margir að allir aldraðir þurfi þjónustu og séu upp á aðra komnir? Hefur of sjaldan verið lögð áhersla á virkni aldraðra og alla möguleikana sem bíða á efri árum? Allt það sem hefur verið gert og verið er að gera? Kann að vera að við, sem mest látum frá okkur heyra á þessu sviði, höfum aukið á hræðslu fólks við að verða gamalt með því að minnast of mik- ið á neyðina sem knýr vissulega dyra hjá sumum öldruðum? í fróðlegum og athyglisverðum þætti í ríkissjónvarpinu fyrir skömmu var viðtal við Matthías Johannessen ritstjóra og skáld. Ég leyfi mér að vitna til orða hans þó að þau hafi verið sögð í öðru sam- hengi. Þau eiga við vor, gróanda, „Meginatriöið er því að við reynum öll að stuðla að því að æ fleiri aldr- aðir geti hlakkað til efri áranna, geti beðið þess með eftirvæntingu að fá tíma til að hyggja að hugðarefnum sínum og gera það sem þá langar til.“ náttúruna alla, lífið — frá upphafi til enda, alla sköpunina. „Tvö orð í íslensku eru afar mikil- væg: Tilhlökkun og eftirvænting." Tilhlökkun og eftirvænting • Á síðustu árum hefur umræðan um málefni aldraðra smám saman hljóðnað. Fjölmiðlar láta málefni þeirra ekki til sín taka í jafn ríkum mæli sem fyrr og oft er brugðið NÆSTA NÁMSKEIÐ HEFST 22. FEBRÚAR & KERFI wmf\ tE&M Ak UKAMSRÆKT OG MEGRUN fyrir konur á öllum aldri. Flokkar sem hæfa öllum. FRA MHALDSFL OKKA R Þyngri tímar, aðeins fyrir vanar. ROLEGIR TÍMAR fyrir.eldri konur eða þær sem þurfa að fara varlega. MEGRUNA RFL OKKA R 4x í viku fyrir þær sem þurfa og vilja missa aukakílóin núna. FYRIR UNGAR OG HRESSAR Teygja- þrek - jazz. Eldfjörugir tímar með léttri jazz-sveiflu. Morgun- dag- og kvöldtímar, sturta — sauna — Ijós. Innritun hafin. Suðurver, sími 83730. Hraunberg sími 79988. Al/ir finna flokk við sitt hæfi hjá JSB Suðurveri, sími 83730 Hraunbergi, sími 79988 upp neikvæðum myndum af öldruð- um sem stundum verða einmitt til þess að auka á hræðslu fólks við ellina og efri árin. Þögnin sjálf veld- ur einnig óvissu og öryggisleysi. Hvað bíður mín? Hvemig verður framtíðin? Hvers er að vænta? Heyrt hef ég vísindamenn halda því fram með rökum að meirihluti aldraðra heldur allgóðri heilsu langt fram eftir aldri. Heilsugæsla batnar sífellt. Um 75—80% allra aldraðra lifa við þolanlega heilsu til líkama og sálar. Þeir geta notið hinna ótrú- legustu hluta á síðasta æviskeiðinu og margir þeirra hlakka svo til morgundagsins að þeir mega varla vera að því að bíða eftir því að nóttin líði. Þeir bíða þess með eftir- væntingu og tilhlökkun að næsti dagur renni upp svo að þeir geti haidið áfram að vinna að verkefnum sínum. Ótrúlega margir íslendingar hafa unnið og vinna miklu lengur fram eftir aldri en jafnaldrar þeirra á Norðurlöndum. Margir stjómendur fyrirtækja og stofnana líta með virðingu til þeirra starfsmanna sinna sem em orðnir aldraðir og hafa öðlast langa reynslu og þekk- ingu á verkefnum og vinnulagi. Þeir fínna að hér er um trausta starfsmenn að ræða, starfsmenn sem mæta vel og reglulega, hafa yfirleitt fáa fjarvistardaga o.s.frv. íslendingar hafa hæstu lífslíkur í heimi ásamt með Japönum og sennilegt má telja að margir geti nú vegna víðtækari rannsókna en nokkm sinni fyrr bætt heilsufar sitt enn svo að menn geti notið ell- innar í enn rikari mæli en fram til þessa hefur þekkst. Það em því meiri líkur til þess en nokkm sinni fyrr að fleiri geti notið „góðrar elli“ en nú er, fólk fer fyrr til augnlækn- is og lætur fylgjast með sjón, æ fleiri láta nú fylgjast reglulega með blóðþrýstingi og æðasjúkdómum og þannig mætti lengi telja. Ég set nú orðið „góða elli“ innan gæsalappa því að svo margt rýmist innan þessa hugtaks. Góð elli er ekki einungis góð heilsa til líkama og sálar þó að það sé eitt af því dýrmætasta sem skaparinn gefur okkur. Góð elli getur einnig þýtt góð böm, góð- ir og traustir vinir og hlýleg sam- skipti ekki síst. Meginatriðið er því að við reynum öll að stuðla að því að æ fleiri aldr- aðir geti hlakkað til efri áranna, geti beðið þess með eftirvæntingu að fá tíma til að hyggja að hugðar- efnum sínum og gera það sem þá langar til. Að við reynum hvert í okkar stétt og stöðu að gera það sem í okkar valdi stendur að hlúa að þeim sem em sjúkir, heimsækja þá sem em einmana og umfram allt „að enginn sé gleymdur". Ég hrökk í kút hér fyrir fáeinum dögum þegar ég heimsótti flestar dagvist- arstofnanir aldraðra hér í Reykjavík og heyrði hvem forstöðumanninn af öðmm segja: Hér em ótrúlega margir sem em einir og einmana. Þeir fá sjaldan eða aldrei heimsókn- ir og þegar þeir em heima em þeir því aleinir, kvíðnir og öryggislausir. Þá er gott að eiga dagvistarstofn- anir sem geta hlúð að þessum ein- staklingum. Þeir hlakka til daganna sem þeir fara og hitta fólk. Þeir bíða þess með eftirvæntingu að fá að vera með öðmm, skiptast á skoð- unum og fá þjálfun til hugar og handar. Meirihluti aldraðra getur áfram litið til framtíðarinnar með björtum augum. Flestir fullorðnir geta horft fram á veginn með tilhlökkun og eftirvæntingu þar sem nýtt ævi- skeið bíður þeirra með nýjar vonir, nýja áskomn við lífíð og tilvemna — nýtt æviskeið sem einnig hefur sín sérkenni og „sinn sjarma" eins og önnur tímaskeið á æviferlinum. „Neytum kraftanna meðan þeirra nýtur við, en hörmum þá ekki þeg- ar þeir þverra. Nema ungir menn eigi ef til vill að trega bemsku sína og rosknir menn æskuna. Ævin er jafnan söm og náttúran stjómar lífí vom á eina og óbrotna Ieið. Og hvert aldursskeið hefur sín sér- kenni. Svo sem þrekleysi einkennir bemskuárin, lífsorka æskuskeiðið, virðuleiki og festa manndómsárin, þá býr ellin yfir þroska í eðli sínu og hvert hefur sinn tíma.“ (Cíceró Um ellina.) Frísklegur fiðlari Tónlist Jón Ásgeirsson Júgóslavneski fiðluleikarinn Miha Pogacnik hélt einleikstón- leika í Fríkirkjunni sl. föstudags- kvöld og flutti þijú einleiksverk qg Chaconnuna úr annarri partít- unni eftir J.S. Bach. Flestum fiðluleikumm þykir nóg að hafa eitt fiðluverk eftir Bach á efnis- skránni, en hefja tónleikana á Chaconnunni og leika svo á eftir þijú verk til viðbótar úr þessu einstæða tónverkasafni, er eitt- hvað sem ekki er algengt. Það er ekki einasta að Pogac- nik sé mikill tæknisnillingur, held- ur er leikur hans einstaklega kraftmikill. í nokkmm köflum var leikur hans full flausturslegur og jafnvel grófur, eins og í stóm fúgunni í þriðju sónötunni, en á hinn bóginn átti hann til sérlega blíðlegan leik í hægu köflunum. Auk þess að vera frábær fiðlari á Pogacnik sér þann draum að sameiginlegur áhugi manna fyrir list upphefli öll landamæri og af- mörkun mannlegra samskipta vegna trúar eða ólíkrar menning- ar. Að þessi draumur rætist bygg- ist líklega á því að list er í raun alþjóðleg í innri gerð sinni, ekki aðeins tónlistin, heldur öll góð list. Pogacnik er því ekki aðeins „lista- maður fyrir listina" en trúir því einnig að listamaðurinn eigi erindi við mannfólkið þar sem ekki verði greint milli kynþátta, trúar eða efnahags. Þrátt fyrir að vera fæddur löngu eftir að hildarleiknum hin- Miha Pogacnik fiðluleikari. um síðari lauk, þekkir Pogacnik trúlega þá aðgreiningu, sem skipt hefur heiminum í andstæðar fylk- ingar og vill með list sinni fá fólk til að horfast f augu, og við nægta- bmnnu listarinnar upplifa sig sem eina fjölskyldu. Þetta er stór og fögur sýn og vonandi tekst þess- um „listtrúboða" að snúa sem flestum til sinnar trúar á nýtt hlutverk listarinnar í þágu mann- fólksins og fá listamenn til að stíga niður úr fílabeinstumum sfnum og varpa frá sér þeim mannfirrta boðskap, er birtist í slagorðinu „listin fyrir listina".
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.