Morgunblaðið - 16.02.1988, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 16.02.1988, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1988 41 Samtök græningja, sá eini ómengaði eftirKjartan Jónsson Það þykir flnt í dag að vera umhverfisvemdarsinni, a.m.k. í pólitíkinni. Það liggur við að það heyri til undantekninga á meðal flokkanna að vera ekki umhverfis- vemdarflokkar að einhverju leyti. Það má rekja m.a. til þess að a.m.k. gömlu flokkamir eiga sumir við til- vistarvanda að glíma og taka það sem þeim fínnst vænlegt til vin- sælda vegna skorts á málstað. Þess háttar tækifærismennska birtist hvað greinilegast fyrir kosningar þar sem flokkarnir koma með há- stemmdar yfírlýsingar um umhverf- isvemd sem þeir svo eftirá ganga jafnvel þvert á. Þessar yfírlýsingar hljóma þó yfirleitt hjáróma og hálf aumkunarverðar, svona eins og þegar getulausir karlar em með klámkjaft. __ Héma á eftir ætla ég að fyalla um helstu pólitisku valkostina sem boðið er upp á og bendla sig við græn mál. Alþýðubandalagið Alþýðubandalagið er skýrt dæmi um slíkan tilvistarvandaflokk. Und- anfarin ár og áratugi hafa þeir ver- ið tvístígandi með úreltan sósíal- isma, reynt að klæða hann í kjólföt og hvítt og allrahanda klæðnað og þar á meðal grænan. Vandamálið hefur bara verið það að þeir hafa ekki vitað hvort þeir ættu að halda eða sleppa og hefur afleiðingin orð- ið nokkumveginn algjört getuleysi sem lýsir sér í fylgi í kosningum. Á síðasta landsfundi var skýrt kveðið á um sósíalisma (hvað sem það á að þýða í þetta skiptið), sem gerir Alþýðubandalagið að ómögulegum valkosti fyrir flest alla umhverfís- vemdarsinna nema þá sem eru líka sósíalistar. Auðvitað er einn og einn þar á bæ sem er að þessu í alvöru en það gildir ekki um flokkinn í heild sinni. Borgaraflokkurinn og SUS Borgaraflokkurinn hefur líka verið með „græna línu“ en virðist ekki taka sig mjög alvarlega sjálfur í þeim málum svo það er sjálfsagt lítil ástæða fyrir aðra að gera það. Þeir í Sambandi ungra sjálfstæðis- manna sjá um grænu málin á þeim bæ en hvort sem þeim er alvara eða ekki er ég ansi hræddur um að það verði bara klappað á kollinn á þeim og þeim sagt að hafa sig hæga ef skoðanir þeirra fara ekki saman við skoðanir þeirra sem stjóma flokknum, ijarfna-gnseig- endunum. Þau hafa hingað til ekki farið mjög vel saman, það gildismat og sá lífsmáti sem græningjar beij- ast fyrir og gróðahyggja Sjálfstæð- isflokksins. Sá eini ómengaði Af áðumefndu má sjá að það em ekki margir fysilegir kostir fyrir þá sem vilja framgang grænna mála. Yfírleitt fylgir þeim einhver pakki Kjartan Jónsson sem flestir umhverfísvemdarmenn vildu vera lausir við. Þetta er ein af ástæðunum fyrir því að hér voru stofnuð Samtök græningja sl. haust. Það var nauðsyn á slíkum samtökum og kemur til með að verða í framtíðinni. Þau vandamál sem þau beina kröftum sínum að verða sífellt alvarlegri og kreijast þess sífellt að komast framar í for- gangsröð. Sívaxandi mengun, auknar kröfur um frið og aukið jafnrétti á öllum sviðum em nægi- legar ástæður til þess að um þessi _ mál séu stofnuð samtök. Vil ég því skora á sem flesta sem vilja að þessi mál fái verðugan málsvara að leggja Samtökum græningja lið því hann er af öllum öðrum möguleikum sá eini ómeng- aði. Höfundur er félagi í Samtökum græningja. Framsóknarflokkurinn Framsóknarflokknum hefur frá fomu fari verið eiguaður græni lit- urinn þótt fáum detti í hug að bendla flokkinn við hefðbundin græn mál. Þeir ungu framsóknar- menn sem stóðu fyrir því að Fram- sóknarflokkurinn var yfirlýstur umhverfísvemdarflokkur eiga skilið bjartsýnisverðlaun ef þeir hafa búist við því að fólk tæki þetta bókstaf- lega því það er ljóst að flokkur sem hefur landbúnaðarráðuneytið með höndum ber ábyrgð á gróðureyð- ingu á hálendinu. Sjávarútvegs- málaráðherra fær líka seint inn- göngu í umhverfís- og náttúru- vemdarsamtök sem þekkja til verka hans. Það er ekki nóg til þess að flokkur geti kallast umhverfis- vemdarflokkur að formaður hans hefur gaman af skíðum og göngu- ferðum. Kvennalistinn Kvennalistinn er þó undantekn- ing frá tilvistarvandaflokkunum áðumefndu. Hann hefur frá upp- hafi beitt sér fyrir grænum eða mjúkum málum. Þær útiloka hins- vegar helming íslendinga frá því að taka fullan þátt í starfsemi þeirra auk þess sem það þýðir ekki að reyna að skýra alla hluti út frá reynsluheimi kvenna eða útfrá karl- rembu. Þeirra aðaláhersla, þ.e. jafn- réttismálin, er heldur ekki nema hluti af áherslumálum græningja og er ekki við því að búast að þeim séu umhverfismálin jafn hugleikin. MM ÍHHHHÉSHnSHMHHÉ IL TOLVUPRENTARAR ■ * i BYGGINGAWONUSTA SIMI84585 ÖRKtN/SlA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.