Morgunblaðið - 16.02.1988, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 16.02.1988, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1988 27 Tugmilljóna kr. tjón hjá fiskeldisstöðvunum í Hvalfirði: Ekkí haft tíma til að bíða - segir Friðrik Sigurðsson framkvæmdasljóri Lands- sambands fiskeldisstöðva um áföllin í Hvalfirði LJÓST er að fiskeldisfyrirtækin í Hvalfirði hafa orðið fyrir tapi sem skiptir tugum milljóna kr. 200—300 þúsund laxaseiði, það eru göngu- seiði frá því í fyrravor, voru í sjókvium á svæðinu og ef þau hefðu náð að vaxa eðlilega í sláturstærð fram á haust hefðu þau skilað 300—400 tonnum af laxi, að verðmæti á annað hundrað milljónir kr. Að auki hefur orðið að selja hálf- vel yfir hundrað milljónir kr. Frá vaxinn lax fyrir lægra verð en ann- þessu verður síðan að draga hluta ars og tapast þar margar milljónir rekstrarkostnaðar fram til næsta kr. Enn er ekki ljóst hvað lifír af hausts, svo sem fóður í þessa físka, • Morgunblaðið/Gunnar Hallsson Rögnvaldur Ingólfsson við bl sinn og Ástu Halldórsdóttur undir vegsvölunum þar sem þau höfðust við þangað til björgunarsveitin kom á vettvang. í hrakningum á milli snjóflóða á Óshlíð: físki, til dæmis hjá Laxalóni í Hvammsvík, en ef allt fer á versta veg gæti heildartekjutap stöðvanna orðið nokkrir milljónatugir eða jafn- þannig að beint peningalegt tap getur verið erfitt að reikna ná- kvæmlega. „Ég get alveg skilið þær gagn- • P „Um leið skall á mér snjo- flóð og setti mig um koll“ -segir Rögnvaldur Ingólfsson, annar ferðalanganna Bolungarvík. Björgunarsveitin Ernir var kölluð út um klukkan 16 á laugardag þar sem farið var að óttast um unga stúlku sem farið hafði á bíi inn Óshlíð áleiðis til Isafjarðar um kl. 13. Laust upp úr klukkan 17.00 fundu björgunarsveitarmennirnir stúlkuna, sem heitir Ásta Halldórsdóttir, þar sem hún var í bO sínum inni í vegsvölum sem eru rétt innan við svokallað Hald um miðja vegu á milli Bolungarvik- ur og Hnifsdals. Þar var einnig Rögnvaldur Ingólfsson, sem var á ferð um sama Ieyti og Ásta, og í samtali við fréttaritara Morgun- blaðsins, sagðist Rögnvaldi svo frá ferðum sínum: „Ég var á leið inn í Hnífsdal laust upp úr kl. 13 á laugardag. Veðrið var þá sæmilegt, gekk á með dimm- um éljum en nokkuð bjart á milli. Það var verið að moka Óshlíðina og færðin um hana því góð. Ég náði snjóruðningstækinu inni í svo- kölluðum Hvanngjám, en þar eru aðrar af tveimur vegsvölum sem eru á Óshlíðarveginum. Þar sem ég var á eftir moksturstækinu hurfu ljósin á því allt í einu og þegar ég hafði keyrt svona fímmtfu til sextíu metra í viðbót sá ég að komið var snjóflóð á milli okkar. Þegar ég er að snúa við kemur Ásta þama á sínum bíl og eftir að hafa aðstoðað hana við að snúa við, höfðum við samflot til baka. Þegar við komum rétt út fyrir Krossinn þá var komið annað snjó- flóð þar og við þar með lokuð á milli snjóflóða. En okkar megin við Krossinn voru hins vegar hinar veg- svalimar sem eru á Oshlíðarvegin- um, þannig að við gátum alla vega haft afdrep þar inni. Við, hins veg- ar tókum þá ákvörðun, að freista þess að komast til baka aftur inn í hinar vegsvalimar og geyma bilana þar og ganga þaðan inn í Hnífsdal. En þá hafði heldur betur bæst við snjóflóðin þannig að við komumst aldrei alla leið og urðum því að snúa við enn einu sinni. Ásta festi bílinn sinn í nýmokuðum snjó- göngum og ég þurfti að draga hann þar út úr. Rétt eftir það kemur skriða einmitt þar sem Ásta hafði fest bílinn. Eftir þetta fómm við inn í ytri svalimar. Við ákváðum að bíða þar því Ásta sagði mér að hún hefði gert ráð fyrir að hún léti vita af sér þegar hún kæmi inn á Isaijörð og yrði því áreiðanlega farið að svipast um eftir henni von bráðar. Enn virtist vera að bæta við snjó- flóðum því á meðan við biðum þama undir svölunum þá horfðum við á eitt snjófióð koma rétt við opið á vegsvölunum. Við höfum kannski verið búin að bíða í einn og hálfan til tvo tíma þegar björgunarsveitar- mennimir komu, þrír á tveim vél- sleðum. Við lögðum strax af stað til Bol- ungarvíkur með björgunarsveitar- mönnunum. Er við vomm að fara yfír fyrstu skriðuna sem við komum að hálffestum við vélsleðann, sem ég var á, og þurfti ég því að fara af honum og labba yfír skriðuna. Þar sem ég stóð þama, að bíða eftir því að sleðinn kæmi yfír, heyrði ég mennina kalla eitthvað og taka síðan til fótanna en um leið skall á mér snjóflóð og setti mig um koll. Ekki var það þó meira, enda lítið flóð og ég lenti í jaðrinum á því. Þegar birti upp kófíð sáum við að annar vélsleðinn var hálfur á kafí í skriðunni. Okkur gekk greiðlega að losa hann, enda snjór- inn léttur, og eftir þetta gekk ferð- in út eftir vel, nema hvað heldur hafði bætt í veðrið og skyggnið orðið ansi lélegt. En til Bolung- arvíkur vomm við komin rétt um klukkan sex.“ Rögnvaldur sagði að ekkert hefði amað að honum eða Ástu, enda bæði vel búin og aðstæður til að bíða góðar inni í vegsvölunum. Hann vildi að lokum koma á fram- færi þökkum til björgunarsveitar- mannanna fyrir aðstoðina. — Gunnar rýnisraddir sem hafa heyrst að menn séu að leggja út í atvinnu- rekstur án þess að hafa kynnt sér nákvæmlega allar aðstæður," sagði Friðrik Sigurðsson framkvæmda- stjóri Landssambands fískeldis- og hafbeitarstöðva þegar rætt var við hann um tjónið í Hvalfírði. „Hita- stigið í sjónum hefur verið ákaflega hagstætt undanfama vetur en svo kemur þetta kuldakast núna með þessum skelfílegu afleiðingum. Þetta er auðvitað dýrmæt reynsla sem menn verða að læra af. Menn vissu að ákveðin hætta væri á svona uppákomum, en hafa auðvitað orðið að vega og meta sjálfír hvaða áhættu þeir treystu sér til að taka. Ég vil nefna eitt mikilvægt atriði í þessu sambandi: Við höfum ekki haft tíma til að bíða. Seiðafram- leiðslan er orðin mikil og stöðvamar hafa viljað koma einhveiju af þess- um seiðum í áframeldi hér innan- lands og þá gripið til ódýrustu lausnarinnar, sjókvíaeldisins. Þá hafa sumar stöðvamar neyðst til að fara út í þetta vegna óvæntra atvika sem lokað hafa fyrir sölu- möguleika þeirra. Eg held að þrátt fyrir þetta atvik nú eigi sjókvíaeldið framtíð fyrir sér hér við land. Nú eiga menn að snúa sér að því að endurbæta kvíamar með tilliti til náttúrulegra að- stæðna. Til dæmis með því að loka kvíunum og leiða jarðhita út í þær. Stöðvamar í Hvalfirði hafa áhuga á að nýta jarðhitann og sjókvíaað- stöðu til að koma upp svokölluðu fareldi, þar sem laxinn er alinn í sjókvíum yfír ömgga tímann og í kemm uppi á landi að vetrinum og getur það verið góð lausn þegar lit- ið er til þeirra áfalla sem þar hafa orðið," sagði Friðrik. Mál Sturlu Kristjánssonar í Borgardómi: Krefst 6 millj. króna skaðabóta Sturla hóf áróðursherferð gegn menntamálaráðherra á opinberum vettvangi, sagði lögmaður ríkissjóðs Málflutningi í máli sem Sturla Kristjánsson fyrrum fræðslu- sijóri i Norðurlandsumdæmi eystra hefur höfðað gegn fjármála- ráðherra fyrir hönd ríkissjóðs, lauk í Borgardómi Reykjavikur i gær eftir að hafa staðið í þijá daga. Sturla gerir þær kröfur að brottvikning hans úr starfi fræðslustjóra þann 13. janúar 1987 verði dæmd ólögmæt og honum verði dæmdar 6 milljónir króna í skaðabætur vegna launataps og miska, auk málskostnað- ar. Auk embættisfærslu Sturlu og ætlaðra trúnaðarbrota hans við ráðuneytið snerist málflutningur að miklu leyti um mismun- andi túlkun aðila á grunnskólaiögum og reglugerðum settum með stoð í þeim. Dómari í málinu er Hjördís Hákonardóttir en meðdómendur eru Jon L. Amalds borgardómari og Guðmundur Amlaugsson fyrr- um rektor. Lögmaður Sturlu er Jónatan Sveinsson hæstaréttar- lögmaður og iögmaður ríkissjóðs - er Guðrún M. Amadóttir hæsta- réttarlögmaður. Fjöldi vitna hefur verið kvaddur til að gefa skýrslu fyrir dómi, þeirra á meðal er fjöldi embættismanna úr menntamála- ráðuneyti, fræðslustjórar í Norð- urlandi vestra og Reykjanesi, auk Sverris Hermannssonar, þáver- andi menntamálaráðherra, sem vék Sturlu úr starfí. í ræðu sinni sagði lögmaður Sturlu, Jónatan Sveinsson, að brottvikning Sturlu hefði verið formlega og efnislega ólögmæt. Málið væri komið til kasta dóm- stóla þar sem ríkisvaldið hefði í engu sinnt tilmælum um sátta- rumleitanir. Jónataii kvaðst telja að ríkissjóður hygðist gera mál Sturlu að prófmáli um hvenær heimilt sé að víkja embættismanni úr starfi. Um brottvikningu Sturlu sagði Jónatan að í áminningar- bréfí sem honum var sent 21. ágúst 1986 hafí ekki verið fjallað um ávirðingar þær sem síðar væru tilgreindar í lausnarbréfí. Ásakanir um Qármálaóreiðu og ítrekuð trúnaðarbrot við ráðu- neytið, meðal annars með því að gera opinberar við fjölmiðla haus- tið 1986, trúnaðarupplýsingar sem Sturla hafði aðgang að sem starfsmaður ráðuneytisins og not- aðar voru við yfirstandandi fjár- lagagerð væru rangar. Hið rétta væri að umræddum upplýsingum væri árlega dreift til allra skóla- nefnda og -stjómenda og væru í raun áætlanir sem skólarekstur frá september til áramóta ár hvert byggðist á. Með þær hefði aldrei verið farið sem trúnaðarmál. Sturla hefði auk þess með því að standa að blaðamannafundi þar sem fjallað var um marg- nefndar upplýsingar komið fram sem framkvæmdastjóri Fræðs- luráðs Norðurlands eystra en það stóð að fundinum ásamt fræðslu- yfírvöldum í Norðurlandi vestra. Sturla hefði því ekki tekið ákvörð- un um að boða til fundarins. Ásak- anir um fjármálaóreiðu og það að Sturla hefði virt fjárlög að vettugi sagði Jónatan rangar og nefndi tölur til stuðnings því að í Norður- landi eystra hefði ekki verið farið hlutfallslega meira fram úr sam- þykktum fjárlögum en í öðrum fræðsluumdæmum eða í mennta- málaráðuneytinu sjálfu. Jónatan sagði að Sturlu hefði aldrei verið gefinn kostur á að tala máli sínu, honum hefði ekki verið gert ljóst að fundi sem hann átti með ráðuneytismönnum skömmu fyrir brottvikningu væri ætlað að uppfylla skilyrði laga þar um enda hefðu ráðuneytismenn aldrei gefið í skyn að brottvikning úr starfí væri yfírvofandi. Jónatan sagði að málsmeðferðin bryti í bága við ákvæði 3. kafla laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, formlega og efnislega, og því væri brottvikningin ólög- mæt. Bótakröfur rökstuddi Jónat- an meðal annars með þvi að mál þetta hefði hlotið mikla opinbera umfjöllun og verið fjölskyldu Sturlu erfítt. Beint fjárhagstjón hans næmi 8 mánaða launum, en einnig bæri að meta að Sturla ætti nú ekki aðgang að störfum við sitt hæfi innan fræðslukerfis- ins og hefði frá brottvikningunni unnið í ótryggri vinnu að einstök- um verkefnum fyrir ýmsa aðila. Viðbúið væri að Sturla yrði fyrir tortryggni og óþægindum vegna opinberrar umfjöllunar um málið án tillits til lykta_þess. Guðrún M. Ámadóttir hrl. krafðist sýknu af kröfum stefn- anda fyrir hönd ríkissjóðs en til vara að kröfur yrðu lækkaðar og málskostnaður felldur niður. Guð- rún sagði að brottvikning Sturlu hefði verið formlega og efnislega lögmæt. Hann hafí af ráðnum hug sniðgengið ákvæði fjárlaga og ítrekað brotið trúnaðarskyldu meðal annars með því að beitá sér opinberlega gegn stefnu ráð- herra og hafí ráðherra ekki verið fært að hafa Sturlu áfram í sínu starfsliði við þær aðstæður. Sturla hafí vísvitandi haft að engu til- mæli um að upplýsa ráðuneytið um embættisfærslu sína og í engu sinnt tilmælum um að aðgerðir hans samræmdust fyrirmælum fjárlaga. Þegar lagt væri mat á fjármálaumsýslu Sturlu væru Qárheimildir réttari viðmiðun en fjárlög og þær sýndu svo ekki yrði um villst að Sturla hefði brot- ið gróflega gegn fjárlögum. Hér væri ekki um einstök afsakanleg tilvik að ræða. „Sturla Kristjáns- son hélt áfram þar sem fjárveit- ingavaldið lét staðar numið. Hann hrinti í framkvæmd eigin stefnu í skólamálum og hóf áróðurs- herferð gegn menntamálaráð- herra á opinberum vettvangi," sagði Guðrún meðal annars í ræðu sinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.