Morgunblaðið - 09.06.1988, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 1988
21
Listahátíðarpopp
Cristian-bræður og Henry Priestman.
Það þykir tilheyra að fá á lista-
hátíð erlendar poppsveitir og
þá frekar tvær en ein. Svo er
og í þetta sinn og koma hingað
til lands bresku sveitirnar The
Christian og The Blow Mon-
keys. Halda The Christians tón-
leika í Laugardalshöllinni 16.
júní og The Blow Monkeys
verða á sama stað 17. júní.
Ekki eru sveitimar á meðal
þekktari sveita Bretlands, þó
Blow Monkeys hafi átt lög á með-
al tíu vinsælustu laga þar í landi
og töluvert hafi verið fjallað um
sveitina í bresku popppressunni.
Nafni The Christians hefur ekki
verið hampað eins, enda er sveitin
yngri, en hún heftir alla burði til
að komast í hóp vinsælustu sveita
í Bretlandi.
The Christians
16.júní
í The Christians eru tveir bræð-
ur, Garry og Russell, auk hljóm-
borðsleikarans Henry Priestman.
í upphafi voru bræðumir þrír,
Roger hét sá þriðji, og sungu þá
saman mest til að skemmta sjálf-
um sér með raddblöndun. í fyrstu
hét sveitin Equal Temperament
og vísaði nafnið til soulsveitarinn-
ar bandarísku The Temptations
og voru það einmitt helst Tempt-
ationslög sem sveinamir sungu
acappella (án undirleiks). Þeim
sem ekki þekkja til The Temptati-
ons má segja að sveitin sú er
þekktasta soulsveit þeldökkra í
Bandaríkjunum á sjöunda ára-
tugnum. 1983 komu bræðumir
fram í Liverpool og þar heyrði
Henry Priestman, sem þá lék á
hljómborð í sveitinni It’s Immater-
ial, til þeirra. Hann hreifst af
röddun bræðranna og kom því um
kring að þeir rödduðu í lagi sem
sveit hans tók upp stuttu síðar.
Henry fór að eyða meiri og meiri
tíma með bræðrunum obgfór að
koma fram með þeim öðm hvom.
1985 var svo komið að Henry var
orðinn fullgildur meðlimur sveit-
arinnar og var farinn að semja lög
sérstaklega fyrir bræðurna og
með þeim. 1986 sagði hann svo
skilið við It’s Immaterial og The
Cristians gerðu útgáfusamning
við stórfyrirtækið Island. Fyrsta
lagið, Forgotten Town, kom síðan
út í janúar 1987 og komst inn á
topp 30 í Bretlandi. Roger Christ-
ian sagði skilið við sveitina til að
reyna fyrir sér á eigin spýtur það
haust og síðan þá hefur sveitin
sent frá sér fleiri lög sem hafa
ná vinsældum og stuttu fyrir jól
kom út platan The Christians.
Tónlist The Cristians mætti
kalla nokkuð dæmigert breskt
popp, ef ekki kæmu til souláhrifin
sem gefa lögum Priestmans meiri
vídd og meira innihald en gengur
og gerist í breska poppinu. Textar
laganna §alla gjaman um ást og
aðskilnað eins og gengur, en sum-
ir tæpa þó á vandamálum sem
brenna á breskum, eins og at-
vinnuleysi. Vísast þar í lagið Hoo-
verville, en nafn lagsins á sér
uppruna á kreppuárunum í
Bandaríkjunum. í sveitinni sem
kemur hingað verða átta hljóð-
færaleikarar hið minnsta.
The Blow Monkeys
17. júní
The Blow Monkeys er öllu eldri
sveit en The Christians og hefur
þegar sent frá sér þrjár stórar
plötur. Fyrsta platan, sem kom
út 1983, hét Limping for a Gener-
ation og vakti töluverða athygli
fyrir það sem mönnum fannst
framsækin popptónlist og inni-
haldsrík. Ekki skemmdu textam-
ir, en í þeim var tekin mjög ein-
dregin pólitísk afstaða og fjallað'
opinskátt um mörg deilumál sem
yfírleitt em sub rosa í poppinu sé
þeirra getið á annað borð. Leið-
togi The Blow Monkeys er Robert
Howard, sem Bretar þekkja ein-
faldleea sem Dr. Robert, en ekki
Dr. Robert
fylgir sögunni hvaðan doktors-
nafnbótin er komin. Dr. Robert
er skoskur að uppmna, en uppal-
inn að mestu í Englandi. Seinni
hluta unglingsáranna eyddi hann
í Ástralíu, en tónlistaráhuginn
kviknaði í Englandi og beindist
þá að soultónlist fyrst og fremst
auk þess sem hann keppti í enska
unglingalandsliðinu í krikett. Aðr-
ir sveitarmeðlimir em saxófón-
leikarinn Neville Henry, trommu-
leikarinn Tony Kiley og bassaleik-
arinn Mick Anker. Sjálfur syngur
Dr. Robert og leikur á gítar.
Limping for a Generation náði
eymm gagnrýnenda og margir
töldu plötuna á meðal bestu hljóm-
platna ársins 1983, þó ekki hafí
plötukaupendur sýnt henni nema
meðaláhuga. Næstu plötu á eftir,
Animal Magic, vegnaði betur, af
þeirri plötu náði lagið Digging
Your Scene talsverðum vinsæld-
um í Bretlandi og næsta plata á
eftir, She Was Only the Grocers
Daughter, seldist enn betur. Á
þeirri plötu var það lagið It Do-
esn’t Have to Be this Way, sem
náði hátt á listum í Bretlandi, þó
ekki eins hátt og Dr. Robert og
frammámenn útgáfufyrirtækis
hans höfðu áætlað. Það er þó
ekki uppgjöf framunda þar á bæ,
því í haust er væntanleg næsta
plata sveitarinnar.
Tónlist Blow Monkeys, sem er
reyndar tónlist Dr. Roberts, því
hann semur lög og texta, hefur
tekið nokkmm stakkaskiptum frá
því fyrsta platan leit dagsins ljós.
Bandarísk souláhrif hafa orðið æ
sterkari, með tilheyrandi notkun
homaflokka og kvenbakradda.
Það má og glöggt heyra í laginu
It Doesn’t have to Be this Way
og reyndar má halda því fram að
Dr. Robert sé tekinn að semja og
leika hvíta soultónlist. Hvað
pólitíska texta varðar má geta
þess að titill siðustu plötu sveitar-
innar vísar til Margrétar Hildu
Thatcher, sem farið er ómjúkum
höndum um í textum plötunnar,
enda hefur Dr. Robert haldið því
fram að það sé hennar sök að
bilið á milli ríkra og snauðra í
Bretlandi víkkar stöðugt.
Eins og áður sagði leika The
Christians 16. júní og The Blow
Monkeys 17. júní. Ekki er gott
að gera upp á milli sveitanna og
ekki treysti ég mér til að ráð-
leggja mönnum að taka eina sveit-
ina fram yfír aðra. Þær ættu báð-
ar að standa vel fyrir sínu, þó
líklega muni The Christians rista
eitthvað dýpra.
Það er kannski til marks um
það hvað bandarísk soultónlist er
áhrifamikil í Bretlandi um þessar
mundir að sveitimar báðár sem
hingað koma séu undir sterkum
áhrifum þaðan, jafn ólíkar og þær
em.
, i þjóðhátídarskapi !
17 JÚNÍ STEMMNING I MIKLAGARÐI
Pils. Ein stærð. Fjólublátt,
hvítt, grátt,
svart.
Bolur. Ein stærð.
Fjólublár, hvítur,
grár, svartur.
1.695,-
865,-
Pólóbolur.
St. S-M-L
5 litir
1.395,-
995,-
Buxur, CARNET.
2.495,-st 3038
Pils. St. 38-46.
Rautt, blátt, svart.
Bolur. St. 38-46. Rauður,
blár, grænn. 1.195,-
Skyrta,stutterma._ f/|_/
St.S-M-L-XL L195f-
Bolur, PRIVATE.
St. S-M-L-XL
1.795,-
Belti, margir litir. 295,-
Buxur. St. 48-56
Gallabuxur.
St. 34-42.
2.095,-
Blússa.
1.395,-
995,-
Æt-
rii
/MIKLIG9RDUR
Opið: Mánudaga-fímmtudaga kl.9-1820 — Föstudaga kl.9-2IQ0 _ Laugardaga lokað MIKIÐ FYRIR LITIÐ
GYLMIR/SÍA