Morgunblaðið - 06.09.1988, Síða 28

Morgunblaðið - 06.09.1988, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1988 Óseyrar- brú skal hún heita Mikill mannfjöldi fylgdist með opn- un brúarinnar yfir Ölfusárósa Selfossi. „TIL hamingju Árnesingar með Óseyrarbrú, Óseyrar- brú skal hún heita,“ sagði Þorsteinn Pálsson forsætis- ráðherra og fyrsti þing- maður Sunnlendinga í upp- hafi máls síns þegar hann opnaði brúna yfir Ölfusár- ósa formlega fyrir umferð á laugardag, 3. september. Mikill mannfjöldi var sam- an kominn við eystri brúar- sporðinn til að fylgjast með opnun brúarinnar og fagna tilkomu hennar. Snæbjöm Jónsson vegamála- stjóri lýsti mannvirkinu og af- henti það formlega til Matthías- ar Á. Mathiesens samgöngu- málaráðherra. Matthías flutti ávarp, lýsti mikilvægi brúar- gerðarinnar fyrir Árborgar- svæðið, riijaði upp brúargerðina yfír Ölfusá við Selfoss og lagði áherslu á mikilvægi samgöngu- mála við mótun byggðastefnu í landinu. Þorsteinn Pálsson forsætis- ráðherra minnti á það meðal annars í ávarpi sínu að mikil- vægt væri að byggðarlögin næðu að hagnýta sér brúna sem best. Þannig næði framkvæmd- in markmiði sínu. Með tilkomu Óseyrarbrúar hefst umferð um Ölfusárósa eftir að hafa legið niðri í hart- nær hundrað ár. Við Óseyrames var ferjustaður sem lagðist af með tilkomu Ölfusárbrúar við Selfoss. Margir baráttumenn fyrir brúargerðinni höfðu á orði á opnunardaginn að lokið væri fjömtíu ára baráttu og þetta Morgunblaðið/Sig. Jóns. Snæbjörn Jónsson vegamálastjóri afhendir Matthíasi Á. Mathiesen samgönguráðherra brúna form- lega. Með þeim á myndinni eru Sigrún Þ. Mathiesen og Bryndís Jónsdóttir. Mikill mannfjöldi var saman kominn við brúna til að fylgjast með opnun hennar. væri því mikill hátíðisdagur. Reyndar er mun lengra síðan fyrst var haft á orði að brúar væri þörf yfír ósinn. Opnuð var sýning í Stað á Eyrarbakka þar sem saga baráttunnar fyrir brúnni var rakin. Þar var einnig borið fram hátíðakaffí í tilefni dagsins. Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra opnar Óseyrarbrú formlega fyrir umferð. Að lokinni athöfninni gengu gestir yfir brúna og varð hún fljót- lega full af fólki enda á milii. Sjómenn á Eyrarbakka og Stokkseyri hafa lagt áherslu á að brúin geri þeim auðveldara um vik að sækja sjóinn frá Þorlákshöfn. Áhersla þeirra undirstrikar þýðingu brúarinn- ar fyrir Árborgarsvæðið sem atvinnulegrar heildar. Að lokinni opnun brúarinnar bauð samgönguráðherra til hófs í Hótel Selfossi. Þar voru gestir ríflega þijú hundruð. Flutt voru ávörp þar sem þýðing brúarinn- ar var undirstrikuð og tilkoma hennar lofuð. Brúarverktakam- ir þökkuðu fyrir sig með því að afhenda vegamálastjóra lit- mynd af brúnni og einnig odd- vita Eyrarbakkahrepps. I hóf- inu var tveggja baráttumanna sérstaklega getið, þeirra Sig- urðar Óla Olafssonar fyrrum alþingismanns og Vigfúsar Jónssonar fyrrum oddvita á Eyrarbakka. Eftir opnun brúarinnar var strax mikil umferð um hana og stöðugur straumur bifreiða var með ströndinni fram eftir degi. Þýðing brúarinnar í hugum manna er mikil og möguleikam- ir margir sem hún er talin opna íbúum svæðisins í félagslegu og atvinnulegu tilliti. Hringveg- urinn um Árborgarsvæðið er 3 kílómetrar og nú er jafn langt til Reykjavíkur frá Eyrarbakka og frá Selfossi. _ gig J6ns

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.