Morgunblaðið - 06.09.1988, Side 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1988
RÆÐUMENNSKA OG
MANNLEG SAMSKIPTI
Kynningarfundur
Kynningarfundur verður haldinn fimmtudaginn
8. september ki. 20.30 á Sogavegi 69.
Aliir velkomnir.
★ Námskeiðið getur hjálpað þér að:
★ Öðlast hugrekki og meira sjálfstraust.
★ Láta í Ijósi skoðanir þínar af meiri sannfæring-
arkrafti í samræðum og á fundum.
★ Stækka vinahóp þinn, ávinna þér virðingu og
viðurkenningu.
★ Talið er að 85% af velgengni séu komin und-
ir því hvernig þér tekst að umgangast aðra.
★ Starfa af meiri lífskrafti - heima og á vinnu-
stað.
★ Halda áhyggjunum í skefjum og draga úr kvíða.
Fjárfesting í menntun skilar þér arði ævilangt.
Innritun og upplýsingar í síma 82411
0
STJÖRIMUIUARSKÓUIMIM
% Konráö Adolphsson. Einkaumboð fyrir Dale Carnegie námskeiðin"
Sérmeirkjum
ölglös
LmJ
Sérmerkjum ölglös
með skemmtilegum
teikningum eða eftir
ykkartillögum!
Höfðabakki 9
Reykjavík s. 685411
Minning:
Þorsteinn Björgvinsson
skipasmíðameistari
Þorsteinn Björgvinsson skipa-
smíðameistari í Stykkishólmi lést
föstudaginn 26. ágúst sl. eftir harða
og erfiða baráttu við þann sjúkdóm
sem flesta fellir í dag. Veikindi Þor-
steins höfðu reynt mjög á þennan
hógværa og trausta dreng sem allt
til síðustu stundar vildi leggja gott
til mála. Hann tókst á við erfíð veik-
indi með sama yfirvegaða hætti og
hann tókst á við önnur verkefni sem
forsjónin lagði honum á herðar. Þor-
steinn fæddist 19. júlí 1944, þriðji
elstur af ellefu systkinum, sem sjá
nú á eftir bróður sínum.
Foreldrar Þorsteins voru Björgvin
Þorsteinsson skipasmiður, sem lát-
inn er fyrir tíu árum, og Alexía
Pálsdóttir sem er búsett í Stykkis-
hólmi og heldur heimili með yngstu
dætrum sínum. Þeir sem til þekkja
hafa jafnan minnst þess með aðdáun
hve samheldni hefur einkennt þessa
stóru fjölskyldu, sem hefur safnast
saman á Víkurgötunni, treyst þar
Qölskylduböndin og notið samveru
og hollráða í foreldrahúsum. Slíkar
§ölskyldur eru homsteinar hvers
bæjarfélags og samfélagsins sem
heildar. I umróti hversdagsins og
hraða líðandi stundar er mikils virði
fyrir unga sem eldri að eiga öruggt
skjól og athvarf. Þess mun Þorsteinn
hafa notið í foreldrahúsum og síðar
á eigin heimili.
Starfsvettvangur Þorsteins var í
Stykkishólmi. Hann lærði skipa-
smíðar í Skipasmíðastöðinni
Skipavík í Stykkishólmi og vann þar
lengst af, fyrst sem nemandi og
sveinn og síðar sem verkstjóri, en
réðst síðar til Rækjuness hf. þar sem
hann sá um framkvæmdir og útgerð-
arstjóm. Öll störf Þorsteins ein-
kenndust af yfírveguðum vinnu-
brögðum og ömggri framgöngu sem
skapaði honum traust samstarfs-
manna, jafnt yfirmanna sem undir-
manna. Eins og að framan er getið
lærði Þorsteinn skipasmíðar og er
hann meðal margra iðnaðarmanna
sem lokið hafa iðnnámi í Stykkis-
hólmi. Hann sýndi menntunarmálum
iðnaðarmanna og rekstri Iðnskóla
Stykkishólms mikinn áhuga og tók
þátt í að leggja á ráðin við að styrkja
stöðu framhaldsnáms og hverskonar
verknáms í bænum.
Kynni mín af Þorsteini hafa eink-
um orðið í tengslum við samstarf
okkar að atvinnumálum og bæjar-
málum.
Þorsteinn var traustur fylgismað-
ur og þátttakandi í þeim samstillta
hópi, sem starfað hefur að stjórn
bæjarmála í Stykkishólmi sl. fjórtán
ár. Hann átti sæti á framboðslista
sjálfstæðismanna og óháðra við
bæjarstjómarkosningamar 1982 og
1986. Sem varabæjarfulltrúi lagði
hann áhugamálum sínum og annarra
lið og var jafnan traustur og hollráð-
ur. Hann átti sæti í hafnarstjóm
Stykkishólmshafnar en hafnarmálin
og rekstur dráttarbrautarinnar vom
honum umfram annað sérstakt
áhugasvið á vettvangi bæjarmála.
Þá starfaði hann í ráðgjafarnefnd á
vegum atvinnumálanefndar vegna
útgerðar og kvótamála. Samstarfs-
menn Þorsteins á vettvangi bæjar-
mála minnast hans með söknuði og
þakklæti fyrir ánægjulegt samstarf.
Eftirlifandi kona Þorsteins er Rut
Meldal, dóttir þeirra sæmdarhjóna
Valtýs Guðmundssonar bygginga-
meistara og Ingunnar Sveinsdóttur
húsfreyju í Stykkishólmi. Þorsteinn
og Rut eiga þrjá syni; Björgvin sem
stundar nám í verkfræði við Há-
skóla íslands; Rúnar Má sem lauk
stúdentsprófí frá Menntaskólanum á
Laugarvatni sl. vor og Hreiðar Inga
tíu ára, sem er heima við nám í
grunnskóla.
Fjölskyldan sér á eftir ástkærum
föður og má nú treysta á það vega-
nesti, sem hann hefur veitt þeim og
miðlað. Er ekki að efa að synirnir
munu með stuðningi móður sinnar
takast á við lífið með þeim hætti,
sem gott heimili hefur nú þegar lagt
grunn að og augljós manndóms-
merki drengjanna gefa til kynna að
þeir hafí getu til.
Með þessari kveðju vil ég og fjöl-
skylda mín senda Rut, sonunum
þremur, Alexíu, systkinum Þorsteins
og öðrum ástvinum samúðarkveðjur.
Minningin um góðan dreng og
gegnan borgara mun lifa.
Sturla Böðvarsson
Kennsla hefst mánudaginn 19. sept.
Fjölbreytt og skemmtileg kerfi fyrir alla
aldurshópa.
Innritun og upplýsingar í síma 38360
frá kl. 14-18.
Afhending skírteina í skólanum laugar-
daginn 17. sept. frá kl. 13-16.
Ballettskóli jk s?
Eddu
Scheving
Skúlatúni 4
Meðlimur i' Félagi íslenskra listdansara.