Morgunblaðið - 06.09.1988, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1988
LÁ FYRIR DAUÐANUM í FYRRA EN HEFUR NÚ NÁÐ SÉR:
JOSÉ CARRERAS
SYNGUR í ARENA
Frá Brynju Tomer á Ítalíu.
JOSÉ Carreras, hinn þekkti ten-
órsöngvari sem fyrir ári komst
að því að hann hefði hvítblæði, hef-
ur nú náð sér og fyrir skömmu
söng hann í hinu foma Arena-
hringleikahúsi í Veróna. „Ég syng
fyrir þá sem þjást af hvítblæði,"
sagði söngvarinn þegar hann steig
á sviðið.
José Carreras er 41 árs og hefur
um árabil sungið reglulega í Scala-
óperuhúsinu í Mílanó og öðrum
þekktum óperuhúsum. Fyrir
skömmu var haldin sönghátíð í hinu
foma rómverska Arena-hringleika-
húsi í Veróna á Ítalíu, þar sem
margir þekktustu óperusöngvarar
heims komu saman og sungu til
styrktar Alþjóðasamtökum gegn
hvítblæði sem Carreras stofnaði
sjálfur.
Þegar ljóst var að José Carreras
væri haldinn hvítblæði, var honum
ekki hugað langt líf, en hann barð-
ist við sjúkdóminn og fór í allar þær
meðferðir sem hugsast gat. Árang-
urinn sáu menn í Arena nú f sum-
ar. Margir áhorfendur grétu meðan
Carreras söng; fyrir nokkmm mán-
uðum hefðu þeir ekki trúað því að
sjá hann nokkum tíma framar á
sviði.
José Carreras er Spánverji en býr
hér og þar í heiminum þar sem starf
José Carrer-
as, spánski
tenórsöngv-
arinn sem
kominn er
aftur á svið-
ið eftir erf-
iða baráttu
við
hvítblæði.
Að loknum
söngnum
var Carrer-
as færður
blómvönd-
ur. Margir
grétu með-
an hann
söng.
söngvara krefst þess að þeir séu
stöðugt á ferðalögum. Hann er
kvæntur og á þijú böm, en var í
nokkur ár í ástarsambandi við
ítölsku söngkonuna Katiu Riccia-
relli sem nú er gift Pippo Baudo,
einni skærustu sjónvarpsstjömu ít-
ala.
Um tólf þúsund manns komu á
sönghátíðina í Arena og var mest
kiappað fyrir Carreras sem söng
aukalag eftir að hafa verið klappað-
ur upp. Eftir sönginn var honum
færður blómvöndur. „Þakka ykkur
fyrir blómin," sagði hann. „En ég
met meira þá staðreynd að hér skuli
allir þessir söngvarar koma fram
til að styrkja sjóðinn sem vonandi
á eftir að hjálpa þeim sem þjást af
hvítblæði. Ég met ykkur, áhorfend-
ur, sem með komu ykkar styrkið
sjóðinn. Hvítblæði er hræðilegur
sjúkdómur og í kvöld syng ég fyrir
þá sem af honum þjást.“
Músíkleikfimin
hefst mánudaginn 26. september.
Styrkjandi og liðkandi æfingarfyrir
konur á öllum aldri. Byrjenda- og
framhaldstímár. Kennslaferfram
í íþróttahúsi Melaskóla. Kennari
Gígja Hermannsdóttir.
Upplýsingar og innritun í síma
13022 um helgina og virka daga í
sama síma eftir kl. 15.
Hljómsveitin -
JÚNKES
(NÝ DÖNSK)
skemmtir gestum ásamt gestum og
óvæntum uppákomum í kvöld
dCC&7~ínn
t kvcelnnl úndlr LnfcjartJOflH simar 11340 og 62162S
.. .máður getur alltaf á sig blómum bætt