Morgunblaðið - 06.09.1988, Síða 64
, MQRGUhj^LAPIQ, frRlftJUpAffljJR 6r ffEPTEMftfiR ]1988
Rekstur Ávöxtunar tekinn
til opinberrar rannsóknar
Bankaeftirlitið fer nú með vörslu sjóða fyrirtækisins
Ríkissaksóknari hefur falið
Rannsóknarlögreglu ríkisins að
taka til opinberrar rannsóknar
rekstur og starfsemi Avöxtunar
sf og verðbréfasjóða á vegum
fyrirtækisins. Ákvörðunin
byggist á athugun bankaeftir-
lits Seðlabanka íslands á starf-
semi Ávöxtunar og sjóðanna,
segir i frétt frá viðskiptaráðu-
neytinu. Jafnframt hefur við-
skiptaráðherra svipt Pétur
Björnsson annan eiganda
Ávöxtunar um stundarsakir
leyfi til verðbréfamiðlunar.
Leyfi Péturs hefur _ tekið til
verðbréfamiðlunar Ávöxtunar
sf, Verðbréfasjóðs Ávöxtunar
- segirÞórður
Ólafsson hjá
Bankaeftirlitinu
„Það sem við höfum fyrst og
^fremst að leiðarljósi í afskiptum
okkar af þessu máli er að hags-
munir þeirra sem eiga kröfur á
þessa verðbréfasjóði verði
tryggðir eins vel og unnt er,“
sagði Þórður olafsson forstjóri
Bankaeftirlits Seðlabankans.
Þórður sagði að enn hefðu eng-
ar ákvarðanir verið teknar um hvort
á næstunni yrði greitt upp í þegar
framkomnar innlausnarbeiðnir.
„Málið er á skoðunarstigi og á
meðan svo er getum við ekki úttal-
„ÞETTA sýnir hve nauðsynlegt
það er fyrirtækjum í þessum við-
skiptum, sem eru mjög viðkvæm
fyrir orðspori, að hafa traustan
bakhjarl vegna innlausna,“ sagði
Pétur H. Blöndal forstjóri Kaup-
þings. „Þar skildi á milli Ávöxt-
unar og stærri fyrirtækjanna, til
dæmis Kaupþings sem með sam-
starfi við sparisjóði hefur þriðju
stærstu innlánsstofnun landsins
að bakhjarli."
Pétur sagðist telja að verðbréfa-
•'‘markaðurinn stæði betur eftir en
hf og Rekstrarsjóðs Avöxtunar
hf. Fyrrgréindum aðilum er því
óheimilt að annast verðbréfa-
miðlun að svo komnu máli. Ekki
er ljóst hve mikinn skaða við-
skiptamenn Ákvöxtunarsjóð-
anna munu bera vegna þessa.
Að sögn Braga Steinarssonar
vararíkissaksóknara hefur ákæru-
valdið mælt fyrir um rannsóknina
við rannsóknarlögreglu ríkisins og
beinist hún að ætluðum brotum
eigenda Ávöxtunar og forsvars-
manna sjóða á vegum fyrirtækis-
ins á lögum um verðbréfamiðlun.
Bragi sagði að kannað yrði hvort
Ávöxtunarmenn hefðu gerst sekir
um hegningarlagabrot en sagði
að okkur um þetta.“ Hann sagði
að rannsókn yrði hraðað eins og
kostur er. Aðspurður um hvort for-
svarsmenn Ávöxtunar hefðu haft
forgöngu um að Bankaeftirlitið
yfirtæki reksturinn sagði Þórður
að þetta hefði verið eðlilegt fram-
hald af athugun á starfsemi fyrir-
tækisins sem bankaeftirlitið hefði
gengist fyrir. Aðspurður um hvort
sú athugun hefði verið ákveðin í
framhaldi af fullyrðingum Ólafs
Ragnars Grímssonar um hæpna
stöðu verðbréfafyrirtækja sagði
Þórður: „Yfírlýsingar Ólafs Ragn-
ars hafa ekkert með þetta mál að
gera. Staða fyrirtækisins var til
skoðunar hér löngu áður en hann
lét sín ummæli falla.“
áður þar sem þetta mál hefði í raun
verið lengi yfirvofandi og vitneskja
um það hefði fælt marga frá því
að eiga viðskipti á þessum mark-
aði. „Þar sem nú er búið að taka á
þessu máli á ég von á þvi að verð-
bréfasjóðimir vaxi enn frekar í
næstu framtíð og nái þeirri stærð
sem gerist í nágrannalöndunum til
hagsbóta fyrir lántakendur en þó
sérstaklega sparifjáreigendur,"
sagði Pétur H. Blöndal forstjóri
Kaupþings.
ekkert hafa fram komið sem benti
sérstaklega til þess.
Fréttir um opinbera rannsókn á
rekstri Ávöxtunar og leyfissvipt-
ingu Péturs Bjömssonar komu í
kjölfar þess að Bankaeftirlit Seðla-
bankans yfirtók á mánudagsmorg-
un rekstur fyrirtækjanna. í til-
kynningu frá eftirlitinu sagði
ákvörðun um þetta hafí verið tek-
in að lokinni víðtækri athugun á
rekstri og starfsemi Ávöxtunar.
Einnig lægi fyrir bréf frá eigend-
um Avöxtunar, Ármanni Reynis-
syni og Pétri Bjömssyni, þar sem
eftirlitið væri beðið um að taka í
sína umsjá sjóði félagsins og hlut-
ast til um að finna þeim nýja
rekstraraðila. Bréf Ármanns og
Péturs er svohljóðandi:
„Vegna óvenjumargra innlausn-
arbeiðna í sjóði í vörslum Ávöxtun-
ar sf., þá förum við undirritaðir
eigendur Ávöxtunar sf og stjórn-
armenn í Verðbréfasjóði Avöxtun-
ar hf og Rekstrarsjóði Ávöxtunar
hf þess á leit við Bankaeftirlit
Seðlabanka íslands að það hlutist
til um að finna nýja rekstraraðila
fyrir sjóðina.
Ákvörðun þessi er tekin með
hagsmuni sparifjáreigenda í huga.
Verði Bankaeftirlit Seðlabanka
íslands við þessari beiðni munum
við undirritðair afsala okkur öllum
afskiptarétti af sjóðum og starf-
semi Ávöxtunar sf til hinna nýju
rekstraraðila og jafnframt mun
Pétur Bjömsson skila inn til við-
skiptaráðherra starfsleyfí sínu til
verðbréfamiðlunar."
Pétur Bjömsson skilaði svo
fyrrgreindu leyfi sínu til viðskipta-
ráðherra snemma að morgni
mánudags, áður en tilkynnt var
að viðskiptaráðherra hefði svipt
hann því.
Bankaeftirlitið hefur falið Gesti
Jónssyni hæstaréttarlögmanni að
annast málefni Ávöxtunar fyrst
um sinn en Þórður olafsson for-
stjóri Bankaeftirlitsins segir að
ekki hafí verið tekin ákvörðun um
hvort félögunum um sjóðina verði
slitið eða þau rekin áfram.
Að sögn Þórðar Ólafssonar for-
stjóra bankaeftirlits Seðlabankans
lágu þá fyrir niðurstöður víðtækr-
ar athugunar á rekstri og starf-
semi Ávöxtunar og sjóða á vegum
fyrirtækisins.
„Ég vona að það takist að leiða
þetta mál farsællega til lykta,“
sagði Pétur Bjömsson í samtali
við Morgunblaðið. „Það er okkur
efst í huga að enginn skaðist og
að það takist að finna nýjan
rekstraraðila þannig að takist að
snúa vöm í sókn. “ Pétur sagði
að það hefði fyrst og fremst orðið
fyrirtækinu að falli að hafa ekki
sterkan bakhjarl til að mæta
Hagsmunir kröfu-
hafa verði tryggð-
ir eins og unnt er
V erðbréfamarkaður
inn betri eftir en áður
- segir Pétur H. Blöndal hjá Kaupþingi
Yfirlýsing frá Ólafi Ragnari Grímssyni
vegna frétta um málefni Avöxtunar
MORGUNBLAÐINU barst í^ær
eftirfarandi yfirlýsing frá Olafi
Ragnari Grímssyni formanni
Alþýðubandalagsins:
„Fyrir þremur vikum taldi ég
brýna nauðsyn á að bankaeftirlitið
gripi þegar í stað til nauðsynlegra
eftirlitsaðgerða vegna þess að eitt
fjármagnsfyrirtæki og ef til vill
fleiri væri komið það tæpt að hætta
væri á að almenningur glataði fjár-
munum sem þar vom lagðir inn
til ávöxtunar. Efnahagsnefnd Al-
þýðubandalagsins sendi síðan bréf
til viðskiptaráðherra þar sem óskað
var eftir því að þegar í stað yrði
framkvæmd ítarleg skoðun á því
sem væri að gerast á hinum svo-
nefnda gráa peningamarkaði. Því
miður neitaði viðskiptaráðherra
Jón Sigurðsson að verða við þess-
ari kröfu um tafarlausa rannsókn
og bankaeftirlitið fékk ekki nauð-
synlegar heimildir til að grípa til
aðgerða.
Nú hefur því miður komið í ljós
að viðvaranir okkar voru á rökum
reistar og æmar ástæður voru til
þess að opinberir aðilar tækju
málin í sínar hendur.
Það er því enn brýnna en nokkru
sinni fyrr að tafarlaust verði lögum
og reglum breytt á þann veg að
veita bankaeftirlitinu og öðrum
opinberum stofnunum allar þær
eftirlitsheimildir sem nauðsynlegar
eru til að koma í veg fyrir að hlið-
stæð þróun og orðið hefur hjá
Ávöxtun geti endurtekið sig. Því
eru ítrekaðar þær kröfur og tillög-
ur sem settar voru fram í bréfi til
viðskiptaráðherra 22. ágúst.“
Laugavegur 97, þar sem skrifstofur Ávöxtunar sf. eru til húsa.
skyndilegum innlausnum og þess
vegna hefði það ekki getað brugð-
ist við eins og þurfti þegar skriðan
dundi yfír. Pétur sagði að borist
hefðu beiðnir um að innleysa um
það bil helming af 400 millióna
sjóði fyrirtækjanna frá því að Olaf-
ur Ragnar Grímsson lét ummæli
sín um stöðu verðbréfafyrirtækja
falla. „Þá vorum við að undirbúa
okkur undir setningu nýrra laga
um verðbréfafyrirtæki. í því skyni
vorum við að endurskipuleggja
reksturinn og losa okkur úr fyrir-
tækjarekstri. Það stóð fyrir dyrum
að breyta rekstrarfyrirkomulaginu
og fá nýja aðila til samstarfs en
þá skall þetta á,“ sagði Pétur
Bjömsson. Pétur kvaðst telja að
eignir Ávöxtunar muni nægja til
að standa undir öllum kröfum
spariíjáreigenda. „Það verður von-
andi lagt allt kapp á að ná inn
þessu íjármagni. En það er ekki
hægt að ætlast til þess að hægt
sé að leysa upp hálfan sjóðinn á
fáeinum dögum. Því er við búið
að það fólk sem var búið að gera
áætlanir sem miðuðu að því að
losa fé á þessum tíma verði fyrir
einhveiju tjóni meðan það bíður
eftir innlausn,“ sagði Pétur
Bjömsson.
Um afmarkað
mál er að ræða
- seg-ir Gunnar Helgi Hálfdánar-
son hjá Fj ár f estingar f élaginu
„MÉR SÝNIST að sparifjáreig-
endur og almenningur hafi gert
sér grein fyrir því að hér sé um
afmarkað mál að ræða,“ sagði
Gunnar Helgi Hálfdánarson
framkvæmdastjóri Fjárfesting-
arfélagsins. „Ávöxtun hefur ver-
ið sér á báti að því leyti að þeir
hafa ekki haft jafnsterkan bak-
hjarl og FJárfestingarfélagið,
Kaupþing og Verðbréfamarkað-
ur Iðnaðarbankans þar sem innl-
ánsstofnanir eru afgerandi eign-
araðilar. Með aðild sinni veita
innlánsstofnanir okkur þjónustu
um innlausn sjóðanna og eins
faglegt aðhald og eftirlit með
rekstri.“
„Þessi þijú fyrirtæki höfðu með
sér samstarfsnefnd verðbréfasjóða
þar sem við settum okkur reglur
sem voru mun strangari en tíðkast
annars staðar á markaðnum og eru
einnig aðilar að Verðbréfaþingi ís-
lands, sem gerir stranga skoðun
hjá Bankaeftirliti að skilyrði fyrir
aðild,“ sagði Gunnar Helgi. „Ávöxt-
un hafði ekkerí af þessu og upp-
fyllti ekki skilyrði samstarfsnefnd-
arinnar eða Verðbréfaþings. Við
viljum meina að þetta sé einangrað
mál og sýnir fram á nauðsyn þess
að fólk skoði hveijir standi á bak
við þessi fyrirtæki. Aðspurður um
áhrif þessa máls á verðbréfamark-
aðinn sagði Gunnar það sitt mat
að óróabylgjan væri gengin yfir og
að hann kvaðst telja að sparifjáreig-
endur hefðu áttað sig á því að yfir-
lýsingar Ólafs Ragnars Grímssonar
hefðu einungis átt við um Ávötxun.