Morgunblaðið - 20.09.1988, Blaðsíða 65
65
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20 SEPTEMBER 1988
mest þótti mér varið í að ræða við
hann um bókmenntir, einkum
bandarískar bókmenntir, en þar var
hann miklu víðlesnari og hafði
næmari skilning en sá sem þessar
línur ritar. Það er svo undarleg leið
þetta mannlíf og víða, sem leiðir
okkar liggja, en megi sá sem öllu
ræður velja honum mildari leið á
næstu vegferð. Hafí hann þökk
okkar samstarfsmannanna fyrir allt
of stutta samferð. Ég vil fyrir okk-
ar hönd votta bömum og öðrum
aðstandendum samúð okkar með
þessum fátæklegu orðum.
Armann O. Ármannsson.
Frétt um andlát vinar kemur
ætíð í opna skjöldu. Þegar ég frétti
um sviplegt fráfall Ira varð mér
fyrst á að spyija sjálfan mig: Af
hveiju? En svarið var ekki til. Eða
þá að það er svo einfalt að við fínn-
um það ekki. Eða þá að þau eru
svo mörg að við skiljum þau ekki.
Við sem sigldum með honum á
höfunum héma megin sitjum hljóð
og horfum á hann beita vind og
sigla útá ókunnan sjó. Með honum
fara óskir okkar og bænir og við
eigum minningamar.
Ira var Bandaríkjamaður en hafði
búið á íslandi í tæpa tvo áratugi.
Fyrst var hann til sjós nokkrar ver-
tíðir en lærði síðan trésmíði og vann
við það upp frá því og var verk-
lagni hans rómuð. Um tíma rak
hann eigið trésmíðaverkstæði en
undanfarið starfaði hann hjá Bygg-
ingafélaginu Ármannsfelli. Undan-
fama mánuði hafði hann einnig
unnið í Veitingahúsinu Gaflinum.
Hann kvæntist Nínu Hrólfsdóttur
og eignuðust þau tvö böm, Mar-
gréti og Hrólf.
Leiðir okkar Ira lágu fyrst saman
fyrir nokkmm ámm, framan af sem
kunningjar á götu en örlögin réðu
því að lífsleiðir okkar skámst meir
og kunningsskapurinn varð vinátta.
Og ég lít til baka yfír farinn veg
með þakklæti í huga.
Ira var glaðlyndur maður og lífíð
og sálin í hveijum hóp og gott var
var að leita til hans. Og þrátt fyrir
misjafnt gengi í lífínu og tilvemnni
eins og gengur þá var hann ekkert
fyrir að bera mál sín á torg og
kvaddi yfírleitt með orðunum: Þú
hefur það gott!
Eins og hann sagði sjálfur var
hann pólskur gyðingur, fæddur og
uppalinn í Bandaríkjunun\ en bjó
næstum hálfa ævina á íslandi. Þeg-
ar þessi orð em skrifuð er hann á
ný kominn til feðra sinna þar sem
hann var jarðsettur sl. sunnudag;
hann er í senn á heimaslóðum og
á ókunnum vegum.
Við sitjum eftir með höfuðin full
af minningum. Vinir hans kveðja
hann með söknuði. En sárastur er
söknuður þeirra sem stóðu honum
hjarta næst. Foreldrar hans og syst-
ir í Bandaríkjunum. Sambýliskona
hans, Inger Einarsdóttir. Nína
Hrólfsdóttir, fyrrverandi eiginkona
hans. Og síðast en ekki síst og sár-
ast bömin hans, Magga og Hrói.
Ég sendi ykkur öllum mínar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Eiríkur Brynjólfeson
STYRKTARAÐILI
~u~
JL
&
...OG AÐEINS BETUR!
FLUGLEIÐIR
100 töflur
Tyggitöflur meö frískandi
appelsínubragði. Vítamix er
fjölvítamín fyrir börn og full-
oröna.
J/Æ TÓRÓ HF
Síöumúla 32. 108 Reykjavík. o 686964