Morgunblaðið - 01.10.1988, Blaðsíða 27
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1988
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. OKTOBER 1988
2*
Útgefandi tnWfofeffe Árvakur, Reykjavík
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson.
Aðstoðarritstjóri Björn Bjarnason.
Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, BjörnJóhannsson, ÁrniJörgensen.
Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 800 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 70 kr. eintakið.
Varnarmálin og
Alþýðubandalagið
Alþýðubandalagið hefur nú
átt aðild að þremur ríkis-
stjómum án þess að gera það
að úrslitaatriði við gerð mál-
efnasamnings að þar sé mótuð
sú stefna að bandaríska vam-
arliðið hverfí úr landi. í tveimur
stjómum þar sem ráðherrar
flokksins sátu 1956 til 1958
og frá 1971 til 1974 var það
yfírlýst stefna að vamarsamn-
ingnum við Bandaríkjamenn
yrði sagt upp. í hvomgt skiptið
kom það til framkvæmda.
Þegar alþýðubandalags-
menn gengu til stjómarsam-
vinnu í þriðja sinn við fram-
sóknarmenn og alþýðuflokks-
menn undir forsæti Ólafs Jó-
hannessonar 1978 var það tek-
ið fram í stjómarsáttmálanum,
að Alþýðubandalagið væri
andvígt aðild íslands að NATO
og dvöl vamarliðsins í landinu.
Þá var því jafnframt Iýst yfír
í samstarfsyfírlýsingu stjómar-
flokkanna, að ekki yrði ráðist
í nýjar meiriháttar fram-
kvæmdir á yfírráðasvæði vam-
arliðsins. í fjórða sinn gengu
alþýðubandalagsmenn til sam-
starfs um ríkisstjóm undir for-
ystu Gunnars Thoroddsens í
ársbyijun 1980. í stjómarsátt-
mála þeirrar stjómar stóð ekk-
ert um sérstöðu Alþýðubanda-
lagsins í vamarmálum. Og að
Keflavíkurflugvelli og Suður-
nesjum var vikið með þessum
sérkennilega hætti: „Áætlanir
um flugstöð á Keflavíkurflug-
velli verði endurskoðaðar og
ekki ráðist í framkvæmdir við
hana nema með samkomulagi
allrar ríkisstjómarinnar. Undir-
búið verði öflugt átak til at-
vinnuuppbyggingar á Suður-
nesjum. Athugað verði, hvort
rétt sé að breyta því skipulagi,
að utanríkisráðuneytið hafí
yfírstjóm allra málaflokka á
Keflavíkurflugvelli."
í framkvæmd leiddi þetta
orðalag til þess að á því rúma
ári sem stjóm Ólafs Jóhannes-
sonar sat var ekki ráðist í nein-
ar „meiriháttar" framkvæmdir
fyrir vamarliðið en hins vegar
komu hingað til að mynda hin-
ar öflugu ratsjárvélar af
AWACS-gerð haustið .1978,
eftir að alþýðubandalagsmenn
komu í stjómina og unnið var
skipulega að áformum um að
endumýja hér mannvirki og
tæki varaarliðsins. Orðin í sátt-
mála stjómar Gunnars Thor-
oddsens sem vitnað var til hér
að ofan vom skýrð á þann veg,
að alþýðubandalagsmenn hefðu
neitunarvald um nýju flug-
stöðvarbygginguna en á hinn
bóginn var ráðist í fram-
kvæmdir við Helguvík og smíði
nýrra flugskýla fyrir vamarlið-
ið.
í stefnuyfírlýsingu ríkis-
stjómar Steingríms Hermanns-
sonar segir: „Ríkisstjómin mun
ekki gera nýja samninga um
meiriháttar hemaðarfram-
kvæmdir og skipti íslendinga
við vamarliðið verða endur-
skipulögð." Þama er sem sé
enn vikið að framkvæmdaþátt-
um þeirrar stefnu sem fylgt
hefur verið í vamarmálum og
byggist á vamarsamningnum
frá 1951 en ekki gmndvellinum
sjálfum. Enn á ný sættir Al-
þýðubandalagið sig við dvöl
vamarliðsins og þær fram-
kvæmdir sem nú er unnið að í
þágu vamanna svo sem við
endumýjun og eflingu ratsjár-
eftirlits eða smíði stjómstöðvar
á Keflavíkurflugvelli.
Áður en samstarf hófst með
þeim Steingrími Hermannssyni
og Ólafí Ragnári Grímssyni um
stjóm landsins lá formaður AI-
þýðubandalagsins ekki á skoð-
unum sínum um Steingrím og
stjómstöðina á Keflavíkurflug-
velli. Ólafur Ragnar sagði í við-
tali við Þjóðviljann um síðustu
áramót, að bygging stjóm-
stöðvarinnar væri prófsteinn á
það hvort Steingrímur Her-
mannsson utanríkisráðherra
meinti eitthvað með ræðum
sínum um frið og afyopnun.
Vildi formaður Alþýðubanda-
lagsins að sjálfsögðu að hætt
yrði við framkvæmdina. Skyldi
orðum hans nú verða snúið upp
á Ólaf Ragnar Grímsson í hans
eigin flokki?
Svavar Gestsson forveri
Ólafs Ragnars Grímssonar á
formannsstóli í Alþýðubanda-
laginu og núverandi mennta-
málaráðherra hefur átt undir
högg að sækja vegna þess hve
vamarleysisstefnu flokksins
var illa fylgt fram í stjómunum
1978 og 1980. Hefur hann
hvað eftir annað orðið að svara
ávítum vegna þessa á síðum
Þjóðviljans og Ólafur Ragnar
Grímsson gekk á sinn hátt í lið
með þeim sem höfðu uppi dylgj-
ur um Svavar vegna vamar-
og öryggismálanna. Af því öllu
sést að alþýðubandalagsmenn
þola ilía tvískinnung forystu-
manna sinna í þessu máli og
að þeir fómi yfírlýstri stefnu
fyrir ráðherrastóla. Kannski
hefur Ólafur Ragnar Grímsson
betri tök á flokknum að þessu
leyti en Svavar Gestsson?
Gamla klukkan
hefur mælt tímann
í Lyfjabúðinni Iðunni í 60 ár
Sextíu ár eru liðin síðan
Lyfíabúðin Iðunn var
stofnuð í Reykjavík, opn-
uð haustið 1928. Þá voru
fyrir í bænum Reykjavíkur Apó-
tek og Laugavegs Apótek. Lyfía-
búðin Iðunn varð þannig þriðja
apótekið í höfúðborginni og það
ellefta sem hlotið hafði leyfi hér
á landi frá 1760, er Bjarni Páls-
son landlæknir setti á stofii
fyrsta apótekið í Nesi við Selt-
jöm. Stofiiandinn og fyrsti lyf-
saii í Iðunni var Jóhanna Magn-
úsdóttir, sem einnig varð fyrst
kvenna á íslandi til að nema
lyQafræði. Lauk kandidatsprófi
í Danmörku 1919. Hún var ekki
aðeins góður fúlltrúi framsæk-
inna kvenna, heldur líka einn af
frumheijum í íslenskri apótek-
arastétt. Fmmkvæði á enn einu
sviði hafði hún. Hún valdi fyrst
fyrirtæki sínu alíslenskt heiti,
Lyfíabúðin Iðunn, í stað hins
hefðbundna nafiis apótek. Síðan
2. desember 1928 hefúr Lyfía-
búðin Iðunn verið til húsa á sama
stað við Laugaveginn. Gömlu
dökku viðarinnréttingarnar selja
enn virðulegan og hlýlegan svip
á búðina með ótal litlum forvitni-
legum skúffúm, hillum með
nokkrum postuiinskmkkum og
glösum með latneskum nöfiium
og gamla innfellda klukkan mæl-
ir enn tímann eins og hún hefúr
gert í 60 ár. Hér hafa lyfsalar
engan hag séð í að elta tísku-
sveiflur. Lyfsalar i Iðunni hafa
raunar ekki verið nema þrir.
Jóhanna Magnúsdóttir 1928-1961,
Jón Þórarinsson lyfíafræðingur,
sem rak lyfíabúðina til dauða-
dags 1975 er núverandi lyfsali,
Kjartan Gunnarsson, lyfsali í
Borgaraesi, tók við og hefúr rek-
ið hana sl. 12 ár. Hefúr þvi verið
mikil festa i rekstri Lyfjabúðar-
innar Iðunnar i 60 ár.
Fjöldi manns hefur á 60 árum
starfað í Lyfjabúðinni Iðunni. Á
fyrstu áratugunum vann þar um
hálfur þriðji tugur erlendra lyfja-
fræðinga, auk margra íslenskra
lyfíafræðinga, sem síðar urðu sjálf-
Morgunblaðið/Sverrir
Kjartan Gunnarsson, apótekari í Lyfíabúðinni Iðunni. Klukkan sem felld er inn i gömlu upprunalegu
innréttinguna með öllum lyfjaskúflúnum, hefúr gengið þar í 60 ár.
stæðir apótekarar í Reykjavík og
úti um Iandsbyggðina. Sýnir það
kannski best þátt Lyfjabúðarinnar
Iðunnar í þróun íslenskrar lyfsölu,
þegar Íslendingar sjálfir voru að
taka við lyfíagerð af erlendu fólki.
Segir Kjartan Gunnarsson, lyfsali,
að þama hafi mikið lið mætra
kvenna og karla lagt hönd á plóg-
inn. Góðan orðstír apóteksins þakk-
ar hann fyrst og fremst góðu og
traustu starfsfólki. Starfsfólki sem
ætíð hafi látið sér annt um nafn
og hag apóteksins, enda verði sú
hópvinna sem fram fari innan
veggja lyfjabúðar að vera þannig
að sérhver hlekkur í keðjunni sé
traustur.
„Þegar Lyfíabúðin Iðunn tók til
starfa var hér aðeins fámennur
starfshópur — einn lyfíafræðingur,
einn lærlingur, ein afgreiðslustúlka,
hreingemingakona, sem einnig
þvoði meðalaglös og flöskur, og
bróðir minn, sem sá um bókhaldið
í hjáverkum," skrifaði Jóhanna
Magnúsdóttir á 25 ára afmæli Ið-
Lyfjabúðin Iðunn við Laugaveg hefúr lítið breyst að ytra útliti í 60
ár, þótt lyfsalan hafi tekið stakkaskiptum. Fyrstu áratugina vora
yfir 90% allra lyfía löguð á staðnum, nú 5-10%, annað flutt inn.
Hf - ~ 1ÉÉÍ
Starfsfólk Iðunnar 1946. Fremst sitja Jóhanna Magnúsdóttir apótekari og stofnandi Lyfíabúðarinnar
Iðunnar, Óskar Einarsson læknir, Þóra Óskarsdóttir, Birgir Einarsson, Valborg Hermannsdóttir, Kristj-
án Hallgrímsson. Standandi frá vinstri: Guðríður Erlendsdóttir, Jóhanna ívarsdóttir, Elín Ólafsdóttir,
Sigríður Erlendsdóttir, Baldvin Sveinbjörnsson, Ásdís Jónsdóttir, Kristín Sigmarsdóttir, Guðmunda Jú-
liusdóttir, Friðbjörg Steinþórsdóttir, Inga Þorkelsdóttir, Oddný Eyjólfsdóttir. Og aftast: Topsöe Jens-
en, Hólmfríður Halldórsdóttir, Inga Þorsteinsdóttir og Gréta Kristjánsdóttir.
unnar, en þá vora þar starfandi
yfir 20 manns, svipaður fjöldi og
nú á afmælinu 1980. Var þar einn
lyfjafræðingur auk Jóhönnu, Johan
Ellerap síðar apótekari á Seyðisfirði
og í Keflavík. Höfðu verið afgreidd-
ir 17 þúsund lyfseðlar fyrsta árið,
en vora á aldarfjórðungi komnir upp
í 60 þúsund .
Jóhanna var merkur brautryðj-
andi og kjarkkona mikil. Hún var
alin upp á miklu menningarheimili,
dóttir Magnúsar Torfasonar sýslu-
manns og bæjarfógeta á ísafírði og
síðar í Ámessýslu, og konu hans,
Camillu, sem lauk fyrst íslenskra
kvenna svo vitað sé stúdentsprófi
1889 í Danmörku og varð einnig
fyrst kvenna til að nema við há-
skóla og ljúka þar prófi. Jóhanna
fæddist 1896 í Árbæ í Holtum og
lauk stúdentsprófi átján ára gömul
1914 frá MR, fjórða konan sem það
hafði gert og setið í skólanum. Jó-
hanna byrjaði lyfjafræðinámið í ísa-
fíarðarapóteki árið 1914, en lauk
kandidatsprófi frá Farmaceutisk
Læraanstalt í Kaupmannahöfn árið
1919. Vann hún í Danmörku í 2
ár og síðan í sex ár í Reykjavík-
urapóteki eftir heimkomuna, en
réðst þá í að setja á stofn eigin
lyfjaverslun í árslok 1928. Jafn-
framt veitti hún frá júlí 1928 til
vors 1930 forstöðu Áfengisverslun
ríkisins. Er Jóhönnu minnst sem
eins af framheijum í íslenskri apó-
tekarastétt, sem mikið lét að sér
kveða. Hún var einn af stofnendum
Apótekarafélags íslands og í stjóm
þess á áranum 1929-41, síðast
formaður þess. Árið 1939 giftist
hún Óskari Einarssyni lækni og
skólabróður sínum úr menntaskóla.
Eignuðust þau eina dóttur, Þóra
Camillu, og bjuggu uppi yfir lyfja-
búðinni á Laugaveginum. Jóhanna
lét af störfum sem lyfsali í maí
1961. Hún lést 1981.
Jóhanna lét Lyfjabúðina Iðunni
eftir í góðum höndum samstarfs-
manns síns Jón Þórarinssonar lyfja-
fræðings, sem hafði starfað þar frá
1944. Hann hafði lokið kandidats-
prófi í faginu frá Philadelphia Col-
lege of Pharmacie and Science það
sama ár. Hann rak lyfjabúðina til
1975. Einnig sat hann í stjóm fyrir-
tækisins um árabil og í stjóm Ápó-
tekarafélags íslands eftir að hann
gerðist apótekari. 1976 tók Kjartan
Gunnarsson við Lyfjabúðinni Ið-
unni. Hann hafði áður stofnað Bor-
gamess Aótek og rekið það fyrstu
12 ár þess. Einnig hafði hann stofn-
að og rekið heildverslun með lyf.
Lyfíabúðin Iðunn er enn til húsa
þar sem starfsemin hófst fyrir 60
áram. Jóhanna Magnúsdóttir byij-
aði þar með lyfíabúðina á neðstu
hæðinni og eignaðist húsið allt. Nú
era tvær hæðir og bakhúsið notað
fyrir starfsemina. Áður en bakhúsið
var byggt, var fallegur tijágarður
að húsabaki, sem Jóhanna vildi
ekki missa. Gerði sér þá lítið fyrir
og flutti hann upp á þakið. Þar var
garðurinn í fjöldamörg ár. Kjartan
Gunnarsson kveðst hafa séð eftir
garðinum, þegar þurfti að gera upp
þakið. Þá vildi Lyfíaeftirlitið ekki
leyfa honum að hafa lyfjageymslu
í húsi með garði á þaki. Svo hann
varð að víkja.
Kjartan hittum við í skrifstofunni
á annarri hæð, þar sem veggir era
þaktir gömlum landakortum og
myndum úr gömlum íslandsleið-
öngram, ásamt ýmsum forvitnileg-
um gömlum munum. Enda er hann
safnari mikill, og hefur haft upp á
mörgum fágætum landakortum úti
í heimi. Hann sagði að eitthvað
væri til af dóti úr apótekinu frá
gamalli tíð, pillubox og fleira, sem
yrði geymt.
Þótt búnaður lyfíabúðarinnar
hafi fengið að halda sér, þá hefur
orðið mikil breyting á rekstrinum,
segir Kjartan. „Þegar ég kom að
þessu starfi um 1945 þá vora yfír
90% lyfjanna framleidd í apótekinu.
Nú er þessu öfugt farið, 90-95%
lyfja sem hér era seld era flutt inn
af sérstökum lyfjainnflytjendum.
Þegar ég var að byija í Laugavegs-
apóteki hjá Stefáni Thorarensen,
sem var strangur húsbóndi og góð-
ur kennari, þá var hann að byija
með fyrstu lyfjaheildsöluna þar í
kjallaranum. Hann kom auga á það
að innflutningur tilbúinna lyfja
væri framtíðin og þar hafði hann
alveg rétt fyrir sér. Byijaði á að fá
umboð frá Ámeríku á stríðsáranum
og flytja inn fyrir sjálfan sig. Fór
svo að selja öðram lyfsölum um
allt land og tryggja sér umboð í
Evrópu. Það varð svo fyrsta lyfía-
heildsalan. Ég tók seinna þátt í
þessari þróun, því ég stofnaði lyfja-
heildsöluna Hermes hf. haustið
Starfsfólk Lyfíabúðarínnar Iðunnar. Frá vinstri: Guðrún Kjartansdóttir, Erla Rúriksdóttir, Anna B.
Þorkelsdóttir, Dóra S. Kristinsdóttir, Ágústa Ólafedóttir, Sif Gunnlaugsdóttir, Finnur Kolbeinsson lyfía-
fræðingur, Brynhildur Briem lyfíafræðingur, Vilborg Ásgeirsdóttir, Kjartan Gunnarsson apótekari,
Alfreð Ó. ísaksson, lyfíafræðingur, Sigurbjörg Jónsdóttir, Svava Ágústsdóttir, Bára Kristjánsdóttir,
Elín Kolbeins, Hildur B. Jónsdóttir, Dagmar Hannesdóttir, Addný Vatnsdal Axelsdóttir, Hulda Svein-
björnsdóttir.
LYFJABUÐIN 'fiÐUNN
K.JARTÁN GUH
«■*•*«■*
i***i*m:
við komum á morgnana byijaði
maður á því að setja upp hvíta
svuntu og hanska og svo var tekið
til við að laga lyfin. Var kannski
að laga mixtúra einn daginn, pillur
þann næsta o.s.frv., þurfti að kunna
réttu handtökin og skil á öllu. Ég
var svo heppinn að fá afbragðs
kennara, Helga Þorvarðarson sem
var einhver bráðflinkasti maður
sem ég hefi kynnst og hafði þó
ekki háskólapróf, Snæbjöm Kalda-
lóns sem seinna varð lyfsali á Siglu-
firði o.fl.
í Lyfjabúðinni Iðunni er haldið í
lítilsháttar framleiðslu lyfja á staðn-
um, 5-10%, að því er Kjartan segir.
En þótt svo stór hluti lyfjanna sé
innfluttur hefur starfsfólki ekkert
fækkað. „Hér vinna um 20 manns,
því það er og verður alltaf mikið
nákvæmnisverk að afgreiða lyf.
Reglur allar era orðnar strangari,
sem betur fer, og meira eftirlit.
Kröfur era miklar og mikið um-
stang að fara nákvæmlega að öllum
reglugerðum. Þau mál era í mjög
góðu lagi hér á landi."
„Hér verður áreiðanlega lyfíabúð
áfram, löngu eftir að ég er horf-
inn,“ sagði Kjartan Gunnarsson,
apótekari í Lyfjabúðinni Iðunni, að
lokum. „Þótt stutt virðist kannski
milli lyfíabúða hér við Laugaveginn
þá er nóg að gera. Lyfjabúð, sem
hefur starfað í 60 ár, hefur aflað
sér orðstírs og trausts. Við verðum
vör við að fólk heldur áfram að
koma hingað þótt það flytji úr ná-
grenninu. Og svo er farið að byggja
upp við Skúlagötuna og ný íbúða-
byggð að rísa við sjóinn."
E.Pá.
1928.
iNSSON
NÁRSSON
1961, sem enn er rekin. Nú era
heildsölumar reknar sem sérfyrir-
tæki og ekki ætlast til þess að við
apótekaramir flytjum inn lyf. Það
er bannað. Við kaupum þau af
heildsölunum. Þannig hefur þróunin
líka orðið í nágrannalöndum okk-
ar.“ Kjartan viðurkennir að starfið
sé því ekki eins skemmtilegt og það
var, það fínni hann æ betur. „Þegar
s mmtmm
_J| HAMSpHv. RASISi..H.:a-
mYTljGf.1
sambýli í hillunum.
Þessi mynd er tekin 1954. Star&fólkið í tijágarðinum bak við LyQabúðina Iðunni: Valborg Ásgeirs-
dóttir, Herdís Þórðardóttir, Óskar Einarsson, Ólafia Kristjánsdóttir, Jón Þórarinsson, síðar apótekari
Iðunnar, Oddný Eyjólfedóttir. Aftar standa: Steinunn Stefiinsdóttir, Sigríður Helgadóttir, apótekarinn
Jóhanna Magnúsdóttir, Þóra Óskarsdóttir, Ásmundur Eyjólfeson, Erla Kaldalóns. Aftasta röð: Guðborg
Einarsdóttir, Guðríður Erlendsdóttir, Guðrún Erlendsdóttir, Ágústa Ólafsdóttir, Örn Ævarr Markússon,
Snæbjörn Kaldalóns, Steingrimur Kristjánsson.