Morgunblaðið - 13.12.1988, Side 70

Morgunblaðið - 13.12.1988, Side 70
70 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988 fclk f fréttum Myndir þessar voru teknar er verslanir SÚN og ÁTVR voru opnaðar. Má þar sjá Höskuld Jensson, forsijóra ÁTVR, Kristin Jóhannsson, framkvæmdastjóra SÚN og Hermann Beck, útsölustjóra ÁTVR. NESKAUPSTAÐUR SUN opnar nýja verslun Neskaupstað. Frá fréttaritara Morgunblaðsins, Ágústi Blöndal. Samvinnufélag útgerðarmanna (SÚN) flutti nýlega verslun sína í nýtt húsnæði á Hafnarbraut 6 en SÚN og Sfldarvinnslan keyptu það húsnæði nýlega af kaupfélag- inu. SÚN verður á neðri hæðinni með verslun og skrifstofuhald og sfldarvinnslan mun bráðlega flytja skrifstofur sínar á efri hæðina. Mikil breyting til batnaðar verður með þessum flutningi því áður var SÚN með verslunar- og skrifstofu- hald í 40 fermetra húsnæði en fær nú 270 fermetra undir sína starf- semi. I versluninni verður einkum verslað með veiðarfæri, verkfæri og vinnufatnað. Nú geta Norðfirð- ingar bætt fjórða Vaffinu við er Frá opnun Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á Neskaupstað. þeir fara í þessa verslun því vínbúð- kvæmdastjóri Samvinnufélagsins er in nýja er til húsa hjá SÚN Fram- Kristinn V. Jóhannsson. John McEnroe og Tatum O’Neal Jane Fonda í fjórða sæti Leikkonan Jane Fonda hefur fengið titilinn fjórða mikil- vægasta konan í heiminum, í skoðanakönnun er gerð var í Bandaríkjunum nýlega. Hinar þijár mikilvægu eru í þessari röð: Móðir Teresa, Margaret Thatcher og Nancy Reagan. Ástæðan fýrir mikilvægi Jane er framlag hennar til líkams- ræktar og fegurðar í heiminum en hún hefur sem kunnugt er boðað heilbrigt líf og fegurð í bókum sínum og á myndbönd- um. Tennisstjarnan John McEnroe og leikkonan Tatum O’Neal eiga von á þriðja bami sínu. Þau hjón hafa verið gift í tvö ár og segja menn að það hafi verið heldur stormasamt þar á bæ en nú hafi allt fallið í ljúfa löð. Eiginmaðurinn hefur víst hindrað Tatum í að leika í kvikmyndum og telur heppilegra að hún en ekki barnfóstran sjái um uppeldi lítiila barna þeirra. Það er einnig sagt að hann sé sjúklega afbrýðissamur og hafi orðið fokillur er hún og poppgoðið George Mic- hael hafi daðrað ögn í einni veisl- 'unni. En sem sagt, hann hefur stillt skap sitt enda er það augljóst að kona hans fari ekki út í kvikmynda- leik á næstunni. SYSTIR SORU Hj ónaskilnaður í aðsigi Það á ekki af henni Söru Ferguson, hertogaynju af York, að ganga. Hún er sökuð um að vera slæm móðir og því til sannindamerkis nefnt að hún hef- ur dvalist fjarri dóttur sinni, Bea- trice, í sex vikur. Hún er sögð vera of þung og klaufaleg og ekki síst er fjallað um lélegan fata- smekk hennar. Það virðist þó bót í máli að hún hefur nýlega ráðið til sín sömu konuna og sér um fataskáp svilkonu hennar, Díönu prinsessu. Faðir hennar hefur gert henni og konungsfjölskyld- unni lífið leitt eftir að það upplýst- ist hvers konar dömur hann hittir gjarnan. Og nú hefur vandamálunum fjölgað í fjölskyldunni. Systir hennar stendur í skilnaðarmáli og lítur breska konungsfjölskyldan slík málalok óblíðum augum. Jane er eldri systir Söru og hefur verið gift í fjölda ára ástr- ölskum manni sem heitir Alex Makim. Þau höfðu eignast böm og buru í Ástralíu en nú hefur Jane fallið fyrir argentískum póló- leikara og ætlar hún að yfirgefa mann sinn fýrir fullt og allt. Sara hefur víst reynt að tala um fýrir stóru systur til þess að fá hana Breska konungsfjölskyldan lítur hjónaskilnaði óblíðum augum, hvort sem er hjá ætt- mönnum eða venslafólki. ofan af því að sundra fjölskyld- unni, en Jane hvikar ekki frá ákvörðun sinni. Hún er víst harð- ákveðin í því að taka bömin með sér og hefja sambúð með þeim argentíska. LIFHRÆÐSLA Dulbúningur og slönguást Stórpopparinn Michael Jackson þekkist ekki á götum úti, en það er ekki heldur ætlun hans. Hann hefur tekið upp þann sið að dulbúa sig svo ekki verði hann ónáð- aður af æpandi skríl. Menn segja hann nú eiga við stöðuga lífhræðslu og trúi hann því statt og stöðugt að flestir vilji hann feigan. Nýlega tókst glöggum ljósmynd- ara að bera kennsl á Jackson, eða réttara sagt á lífvörðinn, er þeir vom saman á gangi í dýragarði Berlínarborgar. Michael á sem kunnugt er eigin dýragarð með hin- um ýmsu dýrategundum, allt frá pöddum upp í gíraffa. Dýrin eru hans bestu vinir og þeir einu segja sumir. Nýlega skarst í odda með Mic- hael og föður hans vegna slöngu sem er í hópi dýravina stjörnunnar og fór faðirinn óvirðulegum orðum um skriðdýrið. Milli þeirra feðga hafa ekki verið miklir kærleikar. Þykir faðirinn frekur til fjárins og Ef grannt er skoðað má þekkja hér stórpopparann Michael Jack- son Qg með honum Billy, lífvörð hans. ekki sýna eignarrétti sonarins nægilega virðingu. Upp úr sauð þegar slangan var móðguð í áheyrn Michaels. Eftir það hefur faðirinn ekki aðgang að penigahirslum son- arins og gegnir engri umboðs- mennsku fyrir hann. Faðir hans hefur hvorki beðið slönguna né Michael afsökunar. COSPER 0 \ 4 4 T~ 0 0 C 2 A ££!,?. 10777 COSPER - Vertu ekkert að vola þótt konan sé farin frá þér, hún kemur örugglega aftur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.