Morgunblaðið - 18.07.1989, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 18.07.1989, Qupperneq 48
48 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1989 HÚSNÆÐISSTOFNUN ROBIN BORG Hjá pabba og mömmu í sumar Enn er ekki séð lyrir endann á deilum Jannike Björling og Bjöms Borgs um yfirráðarétt yfir syni þeirra, Robin. Skötuhjúin komu sér þó saman um að Robin væri hjá mömmu sinni í júní, en pabba sínum í júlí. Jannike hefúr lýst því yfir að hún haldi enn í vonina um að þau Björn taki saman aftur. Myndin er tekin fyrr í sumar þegar þau mæðgin, Jannike og Robin, bmgðu sér á ströndina. Gróðursetningarferð Það var mikið um að vera við skála starfsmanna Húsnæðis- stofnunar við Gíslholtsvatn í Holt- um laugardaginn 10. júní þegar starfsmenn stofnunarinnar komu þangað í gróðursetningarferð. Fjöldi plantna var gróðursettur og á eftir var haldin heljarmikil grill- veisla. Um það bil þijátíu manns, böm og fullorðnir, tóku þátt í gróður- setningarferðinni. Lára Vigfusdóttir fyrir framan skála starfsmanna Húsnæðis- stofhunar við Gíslholtsvatn. Morgunblaðið/Jóhann F. Guðmundsson Friður II á siglingu í Hafnarfjarðarh öfn. SIGLINGAR A seglskótu frá Nýfundna- landi til Islands Morgunblaðið/Ami Sæberg Jón Kr. Gunnarsson, Jennifer Lund og John Longhill um borð í seglskútunni Friði II í HafnarQarðarhöfh. John Longhill sigldi fyrir stuttu ásamt Jennifer Lund og Jóni Kr. Gunnarssyni á seglskútunni Friði II frá Nýfundnalandi til ís- lands. John Longhill rekur ættir sínar til íslands, eins og nafn skú- tunnar ber með sér, og er frændi Jóns Kr. Gunnarssonar. Friður II sigldi frá St. Anthony á Ný- fundnalandi 2. júlí síðastliðinn og á ellefta degi sigldi skútan inn í Hafnarfjarðarhöfn. Þar biðu fjar- skyldir ættingjar Johns á hafnar- bakkanum en þetta er \ fyrsta skipti sem hann kemur til Islands. Að sögn Jóns Kr. Gunnarssonar gekk ferðin vel og var vindátt hagstæð alla leið. Jón er gamall sjómaður en hefur ekki siglt þessa leið áður. John Longhill hefur átt skútuna í 8 ár. Hann hefur siglt á henni í Karabíska hafinu og fyrir ströndum Nýja Englands. John býr í Greenville í Norður Karólínu ríki í Bandaríkjunum. Hann kenndi við East Carolina háskólann en lét af störfum fyrir ári síðan. John kvaðst ætla að eyða tveimur vikum á íslandi en ætlar svo að sigla sömu leið til baka. Með nöfnunum John og Joni í ferðinni var Jennifer Lund frá Atlanta í Georgíuríki í Banda- ríkjunum. Jennifer hefur ekki siglt þessa leið áður, frekar en þeir félagar. Aðspurð sagði hún ferð- ina mjög skemmtilega lífsreynslu, sérstaklega hefði verið gaman að fylgjast með hvölum á leiðinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.