Morgunblaðið - 19.07.1989, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 19.07.1989, Blaðsíða 26
Flóð í Eyjafjarðará: Bjargaði kálinu og rófunum með dælu í KJÖLFAR hlýindanna undan- farið hefur mikið flóð verið í EyjaQarðará og segir Eiríkur Hreiðarsson garðyrkjubóndi á Grísará í Hrafinagilshreppi að þau hafi náð hámarki á föstu- dags- og laugardagskvöld í síðustu viku. Eiríkur hefur tvívegis orðið illa fyrir barðinu á fióðum í ánni, en hann er með um tveggja tii þriggja hektara land niður við bakka henn- ar. Sumarið 1986 og svo aftur sumarið 1988 flæddi yfir landið þannig að garðarnir fóru á kaf. Eiríkur sagði að af hefði hlotist ómælt tjón, en í fyrrahaust byggði hann varnargarða við bakkann fyr- ir hluta af landinu, þar sem það var lægst. Að auk fékk hann sér bensín- dælu sem dælir vatninu jafnt og þétt út. í landinu er framræslu- skurður og er vatnsstöðunni í hon- um haldið lægra en í ánni. „Ég var ákveðinn í að reyna að veijast flóðum nú í sumar og það virðist hafa tekist,“ sagði Eiríkur. Hann sagði að þegar flóð var mest í ánni hafi eitthvað flætt inn á landið, en ekki orðið teljandi skaði af. Alltofheitt í símaklefunum Þeir ferðamenn sem hringja írá símstöðinni á Akureyri í vini og ættingja til að segja þeim fi-éttir af góðviðrinu, geta ekki lengur lokað að sér meðan á samtalinu stendur. Hurðir símaklefanna voru teknar af í upphafi hitabylgjunnar og er ástæðan sú að hitinn í klefunum var nánast óbærilegur. Gísli Eyland stöðvarstjóri Pósts og síma á Akureyri sagði að um tilraun væri að ræða og enginn hefði kvartað yfir að geta ekki lokað að sér. Hann sagði að loftræsting sem í símaklefunum er hefði engan veginn dugað þegar hitinn færi yfir 20 stig og því hefði verið ákveðið að fjarlægja hurðirnar, að minnsta kosti yfir sumarmánuðina. Eiríkur sagði að í framtíðinni stefndi hann að byggingu hærri vamargarða og einnig væri ætlunin að fá stærri og stöðugri dælu. „En þessi tilraun hefur gefist nokkuð vel.“ Smábátafélagið Klettur: Grásleppuhrogn verði gefin fijáls Eiríkur sagðist stefna að því að taka upp fyrstu rófumar í næstu viku og liti nokkuð vel út með upp- skeruna. Eiríkur Hreiðarsson garðyrkju- bóndi á Grísará hefiir tvívegis orðið fyrir barðinu á fióðum í EyjaQarðará, en nú hefiir hann fengið sér bensíndælu sem dælir vatninu jafiióðum út í ána aftur. Betri er hálfiir skaði en allur, segir Aðalbjörn Sigurlaugsson í Ólafsfirði „ÉG TEL mun hyggilegra að reyna að halda viðskiptum en að verðleggja okkur út af mörkuð- um, betri er hálfur skaði en all- ur,“ sagði Aðalbjörn Sigurlaugs- son skipstjóri í Ólafsfirði. Smá- bátafélagið Klettur, sem i eru aðilar allt fi-á Siglufirði í vestri og Húsavík í austri efiidi nýlega til fundar þar sem meirihluti fundarmanna samþykkti ályktun þess efiiis að verð á grásleppu- hrögnum skyldi gefið fijálst. Aðalbjöm sagðist engar forsend- ur sjá fyrir því að halda verðinu, sem ákveðið var í febrúar, til streitu, enda hafi strax orðið vart við undirboð í kjölfar verðlagning- arinnar. Verðið var ákveðið 11 hundruð þýsk mörk fyrir tunnuna, eða í kringum 31 þúsund krónur á núvirði, en frá því dragast um 4.000 krónur vegna ýmissa gjalda. Aðal- björn segir að fljótlega eftir að verð- ið hafi verið ákveðið hafí tunnan verið seld á 25 þúsund krónur og nú sé að minnsta kosti tvenns kon- ar verð í gangi auk fyrirfram ákveðna verðsins frá í vetur. Hann sagði að fyrir um 6 árum hafi ís- lendingar verið með um 70% heims- markaðarins, en sennilega væri hlutdeildin dottin niður í um 30%. Nú væm söluhorfur afar slæmar og taldi Aðalbjöm að ekki væri búið að selja nema um 5.000 tunn- ur sem þó væru ekki allar komnar í hendur kaupenda. „I vetur töldu kaupendur sig myndu kaupa um 11-12 þúsund tunnur, en mér sýn- ist stórbrestur kominn þar í og ein- hveijir útflytjendur hafa engum samningum náð,“ sagði Aðalbjörn. Hann sagðist hafa um það nýjar upplýsingar að framleiðslan á heimsmarkaði sé mun meiri en áður var talið, eða um 44 þúsund tunnur í stað 36 þúsund. „Það gerir útlitið ekki bjartara. Nú verða menn að velja þá bestu leið sem til er og þá næstbestu ef því er að skipta. Það hefur aidrei verið hægt að forðst staðreyndir til lengri tíma,“ sagði Aðalbjörn. Hann sagði að grá- sleppuveiði væri lífsviðurværi nokk- urra Ólafsfirðinga og því væri afar slæmt að ekki væri búið að selja nema um 10 tunnur af um 350 tunnum sem sjómenn í Ólafsfirði hefðu náð. Menn væru því illa á vegi staddir ef ekki tækist að selja afurðimar. Mun meiri iíkur væru á að samningar tækjust við kaupend- ur ef fallið yrði frá fyrirfram ákveðnu verði. Fra Hitaveitu Akureyrar Vegna sumarleyfa verður starfsemin í lágmarki fr'a og með 22. júlí til 13. ágúst. Símavarsla verður á venjulegum afgreiðslustíma, en skrifstof- an verður opin þriðjudaga og fimmtudaga milli kl. 12.30 og 15.00. Bilanir tilkynnist í síma 22105 eða 985-27305. Engar nýframkvæmdir verða á vegum HA nema í Gerðahverfi II á tímabilinu. Tengingar innanhúss verða framkvæmdar, ef nauðsyn krefur. Hitaveitustjóri. Morgunblaðið/KGA Blásarasveitin heldur til útlanda Blásarasveit Tónlistarskólans á Akureyri hélt utan til Þýskalands og Hollands á föstudagskvöld. Um fjörutíu blásarar taka þátt í ferðinni, en auk fararstjóra og annarra sem fylgja með hópnum telur hann um sextíu manns. Blásarasveitinni var boðið að taka þátt í alþjóðlegu lúðrasveitarmóti sem haldið er í Kerkrade í Hollandi, en þar koma fram fjölmargar lúðrasveitir víðs vegar að úr heiminum. Aður en sveitin tekur þátt í mótinu heldur hún nokkra tónleika í Þýskalandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.