Morgunblaðið - 23.08.1989, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 23.08.1989, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐÍf)' ÍMÍÉíVlkuMtitíR' M ÍÁGÖSf> Íé8á 29 Miele SALA-SALA-SALA-SALA LEIGA-LEIGA-LEIGA-LEIGA Fallar hf. Dalvegi 16 - 200 Kópavogi. Símar 42322 - 641020 Larry og Elizabeth mættu hönd í hönd í veislu í Hollywood nýlega. Magnús og Anna Elíasdóttir kona hans, sem fædd er í Dala- sýslu 6. desember 1913, giftu sig 1934. Þau eignuðust 4 börn og eru þrjú þeirra á lífi. Þau hjónh hafa um Iangan aldur búið í Garðabæ. Þar byggðu þau stórt og gott einbýlishús, sem þau seldu, er þau gerðust frumherjar að byggingu verndaðra þjónustuí- búða aldraðra við Boðahlein í ná- grenni Hrafnistu, hvar þau búa enn. Magnús hefur verið Kiwanis- félagi um margar ára skeið, í Kiw- anisklúbbnum Heklu. Þótt Magnús og Anna létu af störfum við Hrafnistu hafa þau alltaf séð um spilakvöldin þar og um tíma á báðum heimilunum. Magnús og Anna hafa ávallt fylgt Sjálfstæðisflokknum að máli, gegnt þar trúnaðarstörfum og unn- ið stefnu hans og málefnum af mikilli trúvirkni og samviskusemi. Hann var m.a. formaður Sjálfstæð- isfélags Garðabæjar'árin 1962-65. Fyrir öll þessi störf, 'einkavináttu okkar, í veiðiferðum sem annar- staðar, er þessum síuhga eljumanni færðar þakkir og árnaðaróskir á áttræðisafmælinu. Enginn við Boðahlein mun renna upp stórum augum þegar blaðið með grein þessari verður borið út á miðvikudagsmorgun, því sjálf- sagt mun Magnús gera það sjálfur að venju. Þau hjónin taka á móti gestum í samkomusal Hrafnistu á 5. hæð frá kl. 16.00 á afmælisdaginn. Pétur Sigurðsson JÁRNAMENN! BYGGINGA- VERKTAKAR! Vorum að fá sendingu af JÁRNAKLIPPUM Höfum einnig fyrirliggjandi: Mótahreinsivélar. Rafstöðvar. Rafmagnstalíur. Fiísasagir. Steypuhrærivélar. V erkstæöiskrana. Loftþjöppur. FJÖLLYNDI Liz Taylor kynnir mannsefiii sitt Leikkonan Elizabeth Taylor kynnti kærastann sinn, Larry Fortensky, fyrir vinum sínum í veislu nýlega. Var það skömmu áður en hún hélt til Mm-okkó í veislu annars vinar síns, Malcoms Forbes, auðkýfingsins sem ætlaði sér að halda afmæli aldarinnar og tókst það líklega. Larry er 20 árum yngri en Liz og kemur úr allt öðru umhverfi en hún. Hann er sagður vera feiminn og óöruggur með sig og þótt hann hafi oft sést með opinberlega með leikkonunni var þetta í fyrsta sinn sem hann hitti marga af vinum hennar en þeir eru flestir bæði ríkir og frægir. Á meðal veislugesta voru Albert Mónakóprins og leikararnir Robert Wagner og John Forsythe. Gest- irnir óskuðu Larry og Liz alls hins besta og spurðu hvenær brúðkaup- ið yrði. Það hefur ekki enn verið ákveðið en Liz segir að það verði sitt áttunda og síðasta. Larry Fortensky kynntist Eliza- beth Taylor á meðferðarstofnun fyrir alkóhólista. Hann er bláfá- tækur byggingaverkamaður en virðist geta gefið leikkonunni það sem hún þarfnist mest, ást og umhyggju. Fyrrverandi eiginkona hans, Karin Fortensky, segist vel skilja að samband þeirra gangi vel því að Larry elski Liz eins og hún er, með öllum kostum og göllum. Því þurfi hún frekar á að halda en fleiri skartgripum í safnið. Skrifstofutækninám Betra verð - einn um tölvu Tölvuskóli íslands S: 67 14 66 Gæöi og ending Miele heimilistækjanna eru í rauninni stórkostleg verölækkun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.