Morgunblaðið - 01.10.1989, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 01.10.1989, Blaðsíða 32
3288 C n MORGUNBLAPIÐ VELVAKANPI SUTyHUDA6öRi\.J0K,TÓBEH 1989 , , 5/nAli ,,\>ok gerfet eicki betm. en þetta.." ©1987 Universnl Press Syndicate Æi! Kysstu mig í snatri. Eg ætla að gera þá af- brýðisama... Með morgimkaffinu ... En við erum báðir orðnir 5 cm hærri en við vorum við síðustu mæl- ingu........ HÖGNI HREKKVÍSI „ þí) TRUFLAÐIR TÓKJLE-IKANA HANS. " A FORNUM VEGI Engin uppgjöf í mönnum Vopnafirði Kassíópeia, hið litla en fagra stjörnumerki á norðurhveli him- ins. Kassíópeia hin fagra - stjörnumerkið fyrsta á síðsumri Til Velvakanda. Undanfarnar vikur hafði verið þungt loft og því lítt sést til himins eftir að dimma tók uni nætur. Varla gáfust tækifæri til að huga að stjörnum. En eitt kvöldið seint (19. ágúst 1989) varð mér gengið upp á Borg- arholtið, þar sem Kópavogskirkja stendur. Enn var himinn nær alveg hulinn skýjum, svo sem verið hafði lengi undanfarið. Eg renndi augum um hvelfinguna og litast um, hvort nokkurs staðar sæist í gegnum op á skýjahulunni. Og viti menn! A einum stað var eyða sem vel mátti sjá upp um, næstum á háhimni. Og hér blasti við augum eitt af minnstu en fegurstu stjörnumerkj- um himins. Það var Kassíópeia. (Ristin). Heillaður horfði ég á þessa himinsýn, hún var mér sem opin- berun, fyrsta sýn til stjarna á þessu síðsumri. En ekki leið á löngu, þar til aftur þéttust skýin á þessum stað og sýnin fagra hvarf. Grikkir gáfu þessu sjörnumerki nafnið kassíópeia, eftir goðsagna- drottningu Egyptalands. Maður hennar var konungurinn Sefeus en dóttir Andrómeda, en einnig þau nöfn eru björt stjörnumerki á norð- ursvæði himins. í þessu stjörnumerki sást afar- bjart nýstirni árið 1572, en það var fullt horfið tveim árum síðar. Stjörnumerkið Kassíópeia er í lögun líkt bókstafnum W og því auðvelt að þekkja það, enda eru stjörnur þess vel bjartar. Lítum til himins á heiðskýrum kvöldum og njótum þeirrar dýrðar- sýnar sem þar blasir við augum hvert sem litið er. Og látum okkur heillast af þeim lífgandi orku- straumum, sem þaðan berast þeim, sem næmleika hafa til að skynja þá. Ingvar Agnarsson Fyrir frainan rafmagnsverk- stæðið K.V.V. hitti fréttaritari Arna Magnússon, rafvirkjameist- ara og spurði hvarð væri efst í huga af ffréttum síðustu daga. Arni taldi að þar bæri mest á fréttum af erfiðri rekstrarstöðu fyrirtækja á staðnum og virtist sem það væri nokkuð sama hvort um væri að ræða fiskvinnslu og útgerð eða þjónustu og verslun. Fjölmiðlar hlutdrægir á kostnað dreifbýlis Aðspurður um það hvort erfið staða fyrirtækjanna setti að ein- hveiju leyti svið sinn á bæjarlífið, taldi hann það ekki vera, þar sem ekkert fyrirtæki hefði stöðvast og atvinnuástand yrði að teljast nokk- uð gott þótt rekstrargrundvöllur væri vart fyrir hendi í bili a.m.k. Þó mætti greina ákveðið ergelsi ráðamanna gagnvart þeirri stað- reynd að alltof hátt hlutfall afurða- verðs verður eftir annars staðar en hér heima. Arni nefndi að mjög erfitt væri að stilla fólkinu í landinu upp sem tveimur andstæðum hóp- um, annars vegar Reykjavík og hins vegar landsbyggðinni. Fjölmiðlar ættu þar vafalítið einhveija sök, væru oft á tíðum hlutdrægir á kostnað dreifbýlisins og teldu of oft lítið púður í fréttum frá hinum dreifðu byggðum nema ef um gjald- þrot eða aðrar neikvæðar fréttir væri að ræða. Hægt á í Qárfestingum og uppbyggingu Methúsalem Einarsson trygg- ingafulltrúi var sá næsti sem frétta- ritari hitti á förnum vegi. Aðspurð- ur um ástand atvinnumála og frétt- ir þar að lútandi vildi hann fyrst nefna nýstofnað félag bænda í Vopnafirði um rekstur sláturhúss annars vegar svo og rekstur mjólk- ursamlags, og sýndi stofnun þess- ara félaga kannski ljóslega að eing- in uppgjöf væri í mönnum þrátt fyrir allt tal um sameiningu og fækkun vinnslustöðva í viðkomandi greinum. Þá sagði Methúsalem að í starfi sínu sem bankamaður yrði hann var við að fólk væri farið að hægja á sér á ýmsum sviðum fjár- festinga og uppbyggingar og þá sér í lagi þeir aðilar sem byggðu sína afkomu á sjávarútvegi og skildum greinum. Hvað varðaði þær raddir sem oft heyrast hjá fólki á lands- byggðinni að Reykjavíkurkerfið Víkverji skrifar Oftast þegar skrifað er um um- ferðina í Reykjavík kveður við neikvæðan tón — og kannski að von- um þar sem að mörgu má finna. En Víkveiji er þó þeirrar skoðunar að þar sé margt jákvætt, t.d. hvað marg- ir bflstjórar hafí tamið sér kurteisi og tillitssemi, þótt þeir sem þjösnast áfí-am séu enn of margir. Þá mætti og meiri hugsunar gæta hjá sumum, t.d. bílstjóranum sem ók með stórt malarhlass á bíl sínum vestui’ Miklu- braut ekki alls fyrtr löngu. Aksturinn var í sjálfu sér ekki gáleysislegur nema hvað ekið var á vinstri akrein, en engin hlífðarfjöl var aftan á palli bílsins og einn og einn steinn hrandi úr hlassinu. Hugsunai'leysi það. XXX Fyrir nokkru var samtal við heil- brigðisráðherra í hádegisútvaipi- um fyrirhugaðar ráðstafanir til að draga úr mengun af útblæstri bíla. Þetta var nú í annað eða þriðja sinn, sem Víkveiji hlýddi á þá ræða„á öld- um Ijósvakans". En allt í sómanum með það, málið er þarft — og sönnun þess barst fyrir vit Víkveija og ann- arra vegfarenda í Þingholtunum nokkram mínútum síðar er bíldraslu var ekið þar um. Skildi hún eftir sig þvílíkt magn af sótsvörtum óþverra að sló fyrir bijóst. Hvaða bíla á að taka úr umferð ef ekki slíka? xxx Og fyrst Víkveija hefur orðið tíðrætt um hið neikvæða skal hér einu bætt við þótt það snerti umferðina ekki beint. Ef þú, lesandi góður, sérð vinnu- vél standa við hús heyrir það til und- antekninga ef hún skilur ekki eftir sig stóra eða smáa olíupolla þegar hún er fjariægð. Verst er þegar þeir eru á gangstéttum, stigið er niður í þá og metallinn berst inn í hús — en fögur verður þessi sjón aldrei og blettimir haldast lengi. Víkveiji hefur stundum velt því fyrir sér hvort þeir sem starfa við vinnuvélamar sjái nokkuð athugavert við þetta, það tilheyri bara vinnuvél- unum og flokkist ekki undir sóða- skap. Þegai viðgerð fer fram á húsum fer ekki hjá því að' því fylgja oft ýmiskonar óþrif. Mjög er samt mis- munandi hvernig þeir sem að því verki standa bregðast við. Fyrir kem- ur að spýtnasprek og múrbrotshrág- ur era látnar liggja óhreyfðar í iang- an tíma, kannski á gangstéttum, vegfarendum til ama og trafala. Aðrir fjarlægja allt slíkt strax. Allt fer þetta eftir snyrtimennsku þeirra, sem í hlut eiga. X X X Götumerkingar í Reykjavík era orðnar til fyrirmyndar. Auðveld- ar það mjög þeim, sem ekki ger- þekkja borgina, að ferðast um hana. Ein er þó sú gata sem orðið hefur útundan. Það er Kirkjustræti. Nafn þess fínnst hvergi, ekki einu sinni- á liúsgafli. Þetta rann upp fyrir Víkveija er á vegi hans varð útlend- ingur, sem skimaði í allar áttir við Dómkirkjuna og spurði til vegar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.