Morgunblaðið - 04.10.1989, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 04.10.1989, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 1989 Landsþing breska Yerkamannaflokksins: Segir vera öngþveiti í efnahagsmálunum Brighton. Reuter. NEIL Kinnock, leiðtogi breska Verkamannaflokksins, sagði í gær, að flokkurinn myndi komast til valda á næsta áratug og fengi þá að glíma við einahagslega óstjórn og erfiðleika, sem væru arfur núverandi stjórnar íhaldsflokksins og Margaret Thatcher forsætis- ráðherra. í aðalræðu sinni á landsþingi Verkamannaflokksins hét Kinnock því að rífa upp efnahagslífið og lagði áherslu á, að aldrei kæmi til neinna samninga við litlu miðflokk- ana. Sagði Kinnock, sem var kjörinn Ferdinand Marcos: Erfingjar krafiiir um þýfi Manila. Reuter. STJÓRN Filippseyja hefiir fallið frá ákærum á hendur Ferdinand Marcosi, fyrrum forseta landsins, sem lést í síðustu viku á Hawaii. A hinn bóginn verða erfingjar Marcosar krafnir um milljarða Bandaríkjadollara sem forsetinn og eiginkona hans, Imelda, eru sögð hafa rænt með ýmsum hætti frá Filippseyingum. Dómari í málinu gegn Marcosi sagði í gær að óviðeigandi væri að halda áfram málaferlum gegn „ákærða sem nú er horfinn á vit hins ókunna." Sálumessur eru sungnar að næt- urlagi í auðu setri Marcosarhjón- anna í Manila, forsetanum til heið- urs. Stuðningsmenn hans vænta þess að lík hans verði flutt til lands- ins og hjátrúarfullir í þeirra röðum trúa því að andi hans sé þegar kom- inn heim. Blaðið Manila Bulletin skýrði frá því á forsíðu í gær að stórt, svart fiðrildi hefði sést flögra um forsetasetrið daginn eftir að Marcos lést og að lokum hefði það sest á mynd af honum. Stjóm Corazon Aquino forseta hefur neit- að að Marcos fái leg í landinu þar sem stjórnvöld óttast átök ef opin- ber útför hans verður gerð. Imelda Marcos grátbað í gær Aquino að breyta ákvörðun sinni „til að stuðla að friði og heiðri föðurlandsins." Bretland: Rottuplága í ráðuneyti St. Andrew’s. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgun- blaðsins. HLUTI starfsmanna breska utanríkisráðuneytisins heíúr hótað verkfalli vegna rottu- plágu í húsakynnum ráðu- neytisins. í Cornwall House við Wat- erloo í Lundúnum starfa um 150 manns á vegum utanríkis- ráðuneytisins. Þeir segja að rottur hlaupi um öll herbergi hússins, spori skjöl og gögn og dreifi flóm um alla bygginguna. Nýlega varð að fjarlægja lif- andi rottuunga úr mslakörfu á einni skrifstofunni. Yfirmenn ráðuneytisins hafa enn sem komið er einungis við- urkennt „tilvist nagdýrs" í hús- inu og telja að byggingarfram- kvæmdir á næstu lóð valdi vandræðunum. Þeir hafa þó látið prófa drykkjarvatnið. Fyrr á þessu ári fluttu starfs- menn viðskiptaráðuneytisins úr þessari byggingu. Eftir það urðu menn fyrst varir við rottur í húsinu. formaður flokksins fyrir sex árum, að flokksheilsan væri nú betri en í langan tíma en varaði menn við andvaraleysi þrátt fyrir gott gengi í skoðanakönnunum. Kinnock hefur unnið að því hörð- um höndum að stýra flokknum nær miðju og með þeim árangri, að landsþingið samþykkti nú með miklum meirihluta að hætta að krefjast einhliða kjarnorkuafvopn- unar. Kinnock beið hins vegar ósig- ur þegar hann beitti sér gegn til- lögu um verulegan niðurskurð á Ijárveitingum til varnarmála al- mennt. A flokksþinginu á mánudag var kosin ný flokksstjórn og bar það helst til tíðinda, að Ken Livings- tone, sem er lengst til vinstri i flokknum og hefur verið frammá- maður hans í borgarstjórn Londons var felldur úr flokksstjórninni. I hans stað kom John Prescott, sem fer með samgöngumál í skugga- ráðuneyti Kinnocks, og hefur staðið hægra megin við miðju í Verka- mannaflokknum. Sovétríkin: Reuter Biðraðir við bandaríska sendiráðið íMoskvu MIKIÐ öngþveiti hefúr verið undanfarna daga við bandaríska sendiráðið i Moskvu, þar sem Sovétmenn hafa beðið í löngum röðum eftir nýjum eyðublöðum til að sækja um heimild til að flytja búferlum til Bandaríkjanna. A mynd- inni, sem tekin var á mánudag, stingur Sovét- maður slíku eyðublaði í kassa við sendiráðið. Eyðublöðunum er ætlað að einfalda umsóknina og stytta biðina við sendiráðið. Eftirspurnin hefur þó verið meiri en gert var ráð fyrir og mega margir Sovétmannanna búast við langri bið þar sem skortur er á eyðublöðunum. Tals- maður sendiráðsins sagði á mánudag að 30.000 eyðiblöðum hefði verið dreift og að 270.000 til viðbótar yrði dreift eftir nokkra daga. Umsækj- endur þyrftu hér eftir að senda eyðublöðin til Washington, þar sem ákvörðun yrði tekin um hvort þeir fengju að leita hælis í Bandaríkjun- um. Ennfremur yrði reynt að fjölga þeim um helming sem fengju viðtöl í sendiráðinu í Moskvu. Bandarísk stjórnvöld hafa ákveðið að útvega 50.000 flóttamönnum frá Sovétríkjunum samastað í Bandaríkjunum á næstu tólf mánuð- um. Verkföll bönnuð tímabundið í tilteknum atvinnugreinum Moskvu. Reuter, Daily Telegraph, dpa. NEFND sovéskra þingmanna vísaði í gær frá tillögu stjórnvalda sem kvað á um að verkíoll yrðu bönnuð næstu 15 mánuðina í Sovétríkjun- um. Nefndarmenn lögðu á hinn bóginn til að ríkisstjórn Sovétríkjanna yrði heimilt „að gripa tafarlaust til aðgerða" væri neyðarástand fyrir- sjáanlegt á vettvangi efnahagsmála og síðar um daginn samþykkti Æðsta ráðið að banna um hríð verkföll í tilteknum atvinnugreinum. Síðar í vikunni munu þingmenn taka til meðferðar tillögu sem kveður á um ótímabundið bann við verkföllum á tilteknum sviðum atvinnulífsins. Lev Voronín, aðstoðarforsætisráð- herra Sovétríkjanna, skýrði frá þess- ari niðurstöðu er hann ávarpaði þing- menn Æðsta ráðsins í gær. Kvað hann fulltrúa hina ýmsu þingnefnda hafa komið saman tii fundar og rætt tillögu ríkisstjómarinnar fram eftir nóttu. Niðurstaðan hefði orðið að sú að leggja til að ríkisstjórninni yrði fengin aukin völd í neyðartilvikum. Æðsta ráðið samþykkti síðan að banna um tíma verkföll flutninga- verkamanna og starfsmanna m.a. í orkuiðnaði og hvatti auk þess til þess að reglu yrði komið á járn- brautarsamgöngur í Kákasuslýðveld- um Sovétríkjanna. Varríkisstjórninni m.a. heimilað að senda hermenn á vettvang til að tryggja flutninga á nauðsynjum til Armeníu í gegnum nágrannalýðveldið Azerbajdzhan en þeir hafa legið niðri í rúman mánuð vegna deilu lýðveldanna um yfirráð yfir héraðinu Nagorno-Karabakh Óttast viðbrögð verkamanna Tillaga ríkisstjórnarinnar um 15 mánaða verkfallsbann var lögð fram á mánudag og þykir hún sýna ljós- lega þær áhyggjur sem stjórnvöld í Sovétríkjunum hafa _af verkföllum verkamanna. í júlí og ágúst lögðu um 250.000 kolanámumenn í Síberíu niður störf til að mótmæla bágum lífskjörum, matvælaskorti og óviðun- andi aðstæðum á vinnustað. Verk- fallsmenn stofnuðu sjálfstætt verka- lýðsfélag til að fylgja kröfum sínum eftir en stjórnvöld hétu því að auka stórlega framboð á neysluvarningi. Höfðu fréttaskýrendur ýmsir þá á orði. að vandséð væri hvernig stjórn- völd hygðust standa við gefin loforð. Voronín sagði að tillagan um bann Bretland: Vextir óbreyttir þrátt fyrir viðskiptahalla St.Andrew’s, frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. STÖÐUGUR hefur verið þrýst á breska fjármálaráðherrann, Nigel Lawson, að hækka grunnvexti eftir að tölur um viðskiptajöfiiuðinn, sem birtust í síðustu viku, voru verri en búist hafði verið við. Þrýst- ingnum mun tæpast linna fyrr en í lok þessarar viku. Grunnvextir hafa verið 14% síðan f maí á þessu árL í síðustu viku voru birtar tölur um viðskiptajöfnuð fyrir ágúst og reyndist hann vera neikvæður um tvo milljarða sterl- ingspunda. Frá því upplýsingar þessar voru birtar hefur Englandsbanki varið einum til tveimur milljörðum punda af gjaldeyrisvarasjóði ríkisins til að halda gengi pundsins stöðugu. Eftir að ljóst varð hve viðskiptajöfnuður- inn var óhagstæður flæddu pund inn á alþjóðlega gjaldeyrismarkaði og allar iíkur á að . gengi þess hríðfélli. Margaret Thatcher forsætisráð- herra hefur gefið Lawson ftjálsar hendur með að gripa til aðgerða á Ijármálamörkuðum til að halda genginu stöðugu. Þau eru einnig sammála um að grunnvextir séu nægilega háir til að halda aftur af verðbólgu. Þrýstingurinn á að hækka vexti stafar af því að þá myndi erlent fjármagn streyma inn í landið og styrkja stöðu pundsins. Vaxta- hækkun yrði hins vegar mjög óvin- sæl ráðstöfun og kæmi á óhentug- um tíma fyrir ríkisstjórnina. Árleg- ur fundur breska Verkamanna- flokksins er nýhafinn og þing Ihaldsflokksins hefst í næstu viku. Hún ylli því einnig að vextir af húsnæðislánum myndu hækka sem myndi koma illa við stóran hluta þjóðarinnar. Talsmenn íjármálaráðuneytisins segja að viðskiptahallinn versni ekki úr þessu en íjármálasérfræð- ingar eru á öndverðum meiði. Á fimmtudag í þessari viku mun stjórn Bundesbank, vestur-þýska seðla- bankans, taka til athugunar hækk- un á grunnvöxtum í Vestur-Þýska- landi en slík hækkun myndi veikja stöðu sterlingspundsins. við verkföllum í 15 mánuði væri óþörf með öllu þar eð fyrirsjáanlegt væri að þingmenn myndu brátt þurfa að taka afstöðu til tillögu sem kveður á um algjört og bann við yerkföllum á mikilvægustu sviðum atvinnulífs- ins. Tillaga þessi var lögð fram á þingi í sumar en samkvæmt henni verður m.a. kolanámumönnum og flutningastarfsmönnum bannað með öllu að leggja niður vinnu. Virtur hagfræðingur, Leoníd Albakín sagði hins vegar að þingmenn hefðu óttast harkaleg viðbrögð almennings og því ákveðið að vísa tillögu ríkisstjórnar- innar frá. Vændi hann þá um sýndar- mennsku og ábyrgðarleysi Launahækkanir takmarkaðar Stjórnvöld hafa á hinn bóginn ákveðið að takmarka launahækkanir næstu 15 mánuðina og tók sú ákvörðun gildi um síðustu helgi, að sögn breska dagblaðsins The Inde- pendent. Launahækkanir verða tak- markaðar við þijú prósent á þessu tímabiii en verðbólga í Sovétríkjun- um er nú á bilinu fimm til tíu pró- sent. Er ákvörðun þessi liður í efna- hagsáætlunum þeim sem Míkhaíl S. Gorbatsjov Sovétleiðtogi kynnti fyrr í þessum mánuði með þeim orðum að þær yrðu bæði „þungbærar og óvinsælar". Virðist svo sem hann hafi reynst sannspár í þessu tilfelli því verkalýðsleiðtogar í Leníngrad eru þegar teknir að krefjast þess að takmarkanir þessar verði afturkall- aðar. Fram tii þessa hafa sovéskir verkamenn ekki haft verkfallsrétt enda kveður stjórnarskrá Sovétríkj- anna á um hinar ýmsu skyldur Sovét- borgara og tilhlýðilegt „sósíaliskt framferði". í ágústmánuði lagði ríkisstjórnin hins vegar fram frum- varp um takmarkaðan verkfallsrétt starfsmanna í tilteknum greinum. Verði frumvarp þetta að iögum verð- ur leyfilegt að nýta verkfallsréttinn í „algjörum neyðartilvikum" en starfsmönnum í orku- og hergagna- iðnaði verður m.a. óheimilt að beij- ast fyrir bættum kjörum með þessum hætti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.