Morgunblaðið - 04.10.1989, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 04.10.1989, Blaðsíða 36
Höföar til .fólks í öllum starfsgreinum! FÉLAG FÓLKSINS MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 1989 VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR. Ofbeldismál unglinga: Sjaldnast kært 'til lögreglunnar „MÁL af þessu tagi hafa yfirleitt ekki verið kærð til lögreglunnar," sagði Omar Smári Ármannsson aðstoðaryfirlögregluþjónn aðspurður um afskipti lögreglu af ofbeldisverkum unglinga í hinum ýmsu borg- arhverfum. „Folk hefiir yfirleitt ekki vakið athygli okkar á þessum atvikum en við erum okkur þó meðvitandi um þessa þróun, sem er mikið áhyggjuefhi." Ómar Smári sagði að lögreglan hefði orðið vör við að átök og árás- ir unglinga væru að verða harð- skeyttari og aðferðirnar illvígari en áður hefði þekkst. Þetta kæmi til Ríkið kaupir Dansstúdíó Sóleyjar íslenski dans- flokkurinn flyt- ur í húsið RÍKISSJÓÐUR gekk í gær frá kaupum á húsi Dansstúdíós Sóleyjar á Engjateigi 1 _ í Reykjavík undir starfsemi Is- lenska dansflokksins, sem búið hefur á undanfornum árum við þröngan kost í Þjóð- leikhúsinu. Að sögn Svavars Gestssonar menntamálaráðherra eru hug- myndir um stofnun listaháskóla ekki úr sögunni með þessum kaupum, en ráðherra hyggst á þingi í vetur leggja fram frum- varp um listaháskóla. Húsnæðið, sem nú væri verið að kaupa, væri fyrst og fremst fyrir ís- lenska dansflokkinn og ballett- skólann. Sóley Jóhannsdóttir, sem ásamt bræðrum sínum Pétri og Helga Jóhannssonum, rekur Dansstúdíóið, mun halda rekstr- inum áfram af fullum krafti. Fyrirtækið mun leigja helming hússins af ríkinu undir starfsemi sína næstu fimm árin. Húsið er rúmlega tveggja ára, en það er á þremur hæðum, alls um 1.600 fermetrar að stærð. Iivorugur aðilinn vildi tjá sig um kaupverð hússins. til dæmis fram í miðbæ Reykjavíkur um helgar, þar sem unglingar úr öllum borgarhverfum söfnuðust saman. Hann sagði að lögreglan myndi eiga aðild að fundi ýmissa skóla- manna, starfsmanna félagsmið- stöðva og annarra áhugamanna um undirbúning átaks gegn ofbeldi meðal unglinga og hefði hug á að aðstoða við framkvæmd þess eftir megni. Fundurinn verður haldinn í dag. „Við höfum viljað leita eftir samstarfi við félagsmála- og skóla- yfirvöld um þessi mál og ég tel að samvinna okkar við þessa aðila geti skilað miklum árangri ef kraft- arnir verða samstilltir,“ sagði Ómar -Smári Ármannssqn. Hann sagði að lögreglan hefði hug á að taka þátt í samstarfi við þessa aðila, sem metið væri að gæti skilað árangri, af öllum mætti eftir því sem fjár- hagsramminn leyfði. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Einar Bergmundur og Einar Sverrisson, rafeindavirkjar í RSÍ og starfsmenn á aðalstjórn útsendingar Ríkissjónvarpsins, reyndu í gærkvöldi að komast inn í hús sjónvarpsins við Laugaveg 178 til að ræða við félaga sína sem eru félagar í BSRB, en var meinaður aðgangur. Lyklar þeirra gengu heldur ekki að skránni, þar sem skipt hafði verið um hana. Rafeindavirkjum var einnig meinaður aðgangur að út- varpshúsinu í gærkvöldi. Aukin harka færist í deilu rafíðnaðarmanna og rikisins: Meint verkfallsbrot rædd á miðstj órnarfúndi ASÍ í dag RIKISUTVARPIÐ vísaði í gær á bug endurskoðun á undanþágum frá verkfalli sem það hafði fengið frá Rafiðnaðarsambandi Islands til útsendinga og vísaði til álitsgerð- ar embættis ríkislögmanns um ólögmæti verkfallsins með tilvísan til laga um verkfall opinberra starfsmanna nr. 33/1915. Yfir- menn hjá sjónvarpinu og rafeinda- virkjar innan BSRB unnu í gær- kvöldi nauðsynleg störf vegna út- sendinga, en af um 60 rafeinda- virkjum hjá RUV eru um 40 í RSI og um 20 í Starfsmannafélagi sjón- varps. Magnús Geirsson, formaður RSÍ, sagði að málið yrði tekið upp á miðstjórnarfundi Alþýðusam- bands íslands í dag. Á miðnætti í kvöld er vika síðan verkfallið hófst, en ekkert hefur miðað til samkomulags. Magnús Geirsson sagði að álit ríkislögmanns feldi í raun í sér að ekkert alþýðusambandsfélag hefði haft verkfallsrétt hjá opinberum fyr- irtækjum eða sveitarstjórnum. Hing- að til hefði verið talið að í því að óska eftir undanþágu fælist viður- kenning á viðkomandi verkfalli. „í hinu orðinu bera þeir fyrir sig af- gömul lög og það er líka spurniiig hvort seinni tíma lög eru öll ógild,“ sagði Magnús. Verð á síld til söltunar og frystingar hækkar um 20% Osamið um sölu síldar til Japans og Sovétríkjanna VERÐLAGSRÁÐ sjávarútvegsins hefur samþykkt 20% hækkun á verði síldar til frystingar og söltunar frá því verði, sem gilti á síðustu vertíð. Hækkun dollarsins gagnvart krónunni sama tímabil er ná- lægt 24%. Hvorki hefúr verið samið við Japani sem kaup á frystri síld né við Sovétmenn um kaup á saltsíld. í báðum tilfellum er líklegt að einhver verðlækkun verði í dollurum talið. Samkvæmt ákvörðun Verðlags- ráðsins mun hvert kíló af stærstu síldinni nú kosta 10,70 krónur. Annar stærðarflokkur kostar 9 krónur og sá þriðji 5. í fyrra voru greiddar 8,90 krónur fyrir stærstu síldina, 7,50 fyrir annan flokkinn og 4,20 fyrir þann þriðja. Sé síldin ^<seld í kössum eða körum og hæf "■.til vinnslu skal greiða 10% ofan á verðið, en það er uppsegjanlegt frá og með fyrsta nóvember næstkom- andi með viku fyrirvara. Samingar um sölu freðsíldar til Japans ganga hægt fyrir sig. Jap- anir hafa farið fram á lækkun verðsins frá í fyrra í jenum talið, en það þýðir umtalsverða lækkun í dölum talið. íslenzku útflytjendurn- ir hafa því gert Japönum ákveðið tilboð um hækkun verðsins talið í jenum. Við það situr nú, en gengið hefur verið frá öðrum skilmálum mögulegs samnings. Samningar um sölu freðsíldar á markaði Evrópu standa einnig yfir og þar er talið að náist að semja um nær óbreytt verð í gjaldmiðlum viðkomandi kauplanda. Það þýðir töluverða hækkun í íslenzkum krónum, en framleiðslukostnaður og hráefnis- verð hefur hækkað mikið milli ver- tíða. Talið er að markaður fyrir frysta síld af því tagi er hér veiðist sé 5.000 til 6.000 tonn í Japan. Birgð- ir slíkrar síldar eystra nú eru um 1.500 tonn og veikir það samnings- stöðu okkar nokkuð. Verð á þessari síld var á síðasta ári 850 dollarar fob fyrir tonnið. Miðað við það var verð á síldinni í Japan 110 yen á kíló. Miðað við sama verð í dollurum nú, yrði verð til Japana 125 jen og þá hækkun telja þeir sig ekki geta tekið á sig. Gengi hefur breytzt þeim í óhag, en okkur í hag og því er talið að báðir verði að gefa eitt- hvað eftir. Formlegar samningaviðræður um sölu saltsíldar til Sovétríkjanna eru enn ekki hafnar, enda hafa þær yfirleitt dregizt á langinn. Þar er um að ræða samninga um afhend- ingu á næsta ári og því falla þeir undir fjárlög sovétstjórnarinnar á næsta ári. Oft hefur gengið seint hjá sovézku kaupendunum að fá undanþágu til samningagerðarinn- ar. Endurskoðunin á undanþágunum til RÚV felur í sér að ekki hefði verið hægt að senda út sjónvarpsefni eftir fréttir í gærkveldi og að hljóð- varp á rás 1 takmarkaðist við lestur frétta, veðurfrétta og dánartilkynn- inga og til spilunar ókynntrar tónlist- ar þess á milli. Þá var í gær hert á undanþágum sem Póstur og sími hafði fengið og þær takmarkast nú eingöngu við þau störf sem lúta að öryggismálum. 1 bréfi útvarpsstjóra, Markúsar Arnar Antonssonar, til verkfalls- nefndar RSÍ vegna endurskoðunar á undanþágunum, segir að ljóst sé að sú tilhögun sem ^erkfallsnefndin setji skilyrði um feli í sér beina ritskoðun á dagskrá og muni baka Ríkisútvarp- inu óbætanlegt fjárhagslegt tjón, sem ekki verði við unað. Síðan seg- ir: „Ríkisútvarpið áskilur sér allan rétt til að takmarka slíkan fjár- hagslegan skaða með öllum ráðum, sem það telur tiltæk, og jafnframt áskilur stofnunin sér rétt til að krefja starfsmenn Ríkisútvarpsins, sem Iagt hafa niður vinnu án lögmætra ástæðna og/eða Rafiðnaðarsamband íslands fyrir þeirra hönd, fullra bóta fyrir allt það tjón sem leiða kann af yfirstandandi vinnustöðvun."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.