Morgunblaðið - 08.10.1989, Blaðsíða 15
C 15
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 8. OKTÓBÉR
pítalanum og á Kópavogshæli. En
aðalvinnustaðurinn var Slysavarð-
stofa Reykjavíkur en þar starfaði hún
samfleytt frá 1956 og þar til hún
varð að láta af störfum sökum heilsu-
brests á árinu 1971.
A slysavarðstofunni tók hún
gjarnan næturvaktir tii þess að geta
verið til taks á heimilinu á daginn
meðan börnin voru að vaxa úr grasi.
Ég kynntist Oddnýju tengdamóður
minni síðla'árs 1971. Hafði hún þá
í u.þ.b. áratug háð harða baráttu við
erfið veikindi, sem smátt og smátt
leiddu til líkamlegrar fötlunar. Hún
hafði að mörgu leyti sigrað í þeirri
baráttu því stærsta markmiðinu var
náð — börnin höfðu komist til þeirr-
ar menntunar og starfa er þau kusu.
Með okkur Oddnýju tókst strax
góð vinátta, sem hefur verið mér
afar mikils virði. Glettnin og gaman-
semin var oftast sá blær, sem
umlukti samskiptin við hana. Mér
fannst ég skynja í fari hennar ríka
réttlætiskennd og þörf fyrir að vera
jafnan í hlutverki veitandans — þess
er gefur. Hún hafði næmt innsæi og
skilning á mannlegum breyskleika
án þess að fella nokkurn tíma dóm
um líferni fólks.
Minnisstæðust er hún mér í hlut-
verki sögumannsins þegar hún
greindi frá lífshlaupi sínu, gleði og
sorgum án þess að draga undan eða
breiða yfir. Aðskilnaður við móður í
æsku, fráföll ástvina og síðast þung-
bær og þjáningarfull veikindi. Erfið-
leikunum var mætt með ótnilegu
æðruleysi og stillingu en þráin eftir
hvíldinni var mikil í lokin.
Síðustu árin dvaldi Oddný á dval-
arheimilinu Seljahlíð og naut að-
hlynningar og umönnunar hjúkr-
unarfólks þár.
Ég er þess fullviss að hún kveður
þennan heim í fullri sátt við Guð og'
menn.
Hvíli hún í friði.
Rannveig Guðmundsdóttir
Námskeið fyrir
HERRA
Á AIDRINUM 20-40ÁRA
Óskum eftir körlum á skrá fyrir
myndatökur og sýningarstörf.
Æskileg hæð er 1,80 cm.
Upplýsingar í síma 678855 frá kl. 13-17
Módel '79 og Dansstudió Sóleyjar hafa ákveðiö
að halda námskeið fyrir karlmenn á aldrinum 20-40
ára. Námskeiðið er fyrir þá sem hafa áhuga á að
komast lengra áfram í sýningarstörfum og fyrir
þá sem vilja byrja.
Kennari er Happy Miller sem m.a. hefur sett upp
sýningar fyrir Kenzo, Lacoste ásamt fleiri.
model 70
SÓLEVJAÍ?
ERIIBIBBA OG HALLDÓR
AÐ FLYTJA ÚR LANDI?
í Islensku óperunni
GAMIABÍÓi
SÝNINGAR:
Miðvikudaginn 1 1. okt. kl. 20.30 - uppselt
Fimmtudagin 1 2. okt. kl. 20.30
Miðvikudginn 18. okt. kl. 20.30
Fimmtudaginn 19. okt. kl. 20.30
Takmarkaóur sýningarfjöldi
MISSIÐ EKKIAF ÞEIM
Miðapantanir
Helstu
ráðamenn þjóðarinnar
voru „heiðursgestaleikarar “ hjá Bibbu ogHalldóri á
siðasta leikári. Hver verður „gestaleikari“ á nœstu sýningu?