Morgunblaðið - 20.10.1989, Síða 12
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 1989
fife
aquadrive
METALAStjjC
Minning:
Emma Ragnheiður
Halldórsdóttir
Vissir þú að bátur með innanborðsvél þarf ekki að titra meira en bíil með samsvarandi vél?
AQUADRIVE losar skrúfuöxulinn
frá vélinni og kemur þannig
í veg fyrir að hann leiði hávaða
og titring í bátskrokkinn.
METALASTIK mótorpúðarnir
losa vélina frá bátskrokknum,
svo titringur hennar verður í
lágmarki.
Leitið nánari upplýsinga
hjá sölumönnum okkar.
VÉLASALAN
H.F.
ÁNANAUST 1, REYKJAVÍK. SÍMI 91-26122
ENDURNÝJAÐU NÚNA
NÝTTU ÞÉR KYNNINGARTILBOÐIÐ Á
damixa blöndunartækjunum
///
50LÍNAN
30 LÍNAN
Einföld og ódýr
Áður kr. 2.428,- Nú kr. 2.185,-
Útsöluaðilar:
COSMO UNE
Það allra nýjasta í hönnun
Áður kr. 9.765,- Nú kr. 8.789,-
20LINAN
Sígild og örugg
Áður kr. 7.001,-
Nú kr. 5.951,-
Fædd 21. október 1915
Dáin 13. október 1989
í dag verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju elskuleg tengdamóðir
mín, Emma Ragnheiður Halldórs-
dóttir, Fellsmúla 5 í Reykjavík.
Við, sem stóðum henni næst,
vonuðumst til að hún væri komin
úr allri hættu, þar sem batinn virt-
ist koma dag frá degi. En reiðar-
slagið féll yfir. Skyndilega varð hún
fárveik. Við ástvinir hennar vöktum
yfir henni þangað til öllu var lokið
rúmum tveim sólarhringum seinna.
Emma Ragnheiður Halldórsdótt-
ir fæddist að Minni-Bakka í
Skálavík þann 21. október 1915,
dóttir hjónanna Ingibjargar Björns-
dóttur og Halldórs Benediktssonar.
Börn þeirra Ingibjargar og Halldórs
voru Sigurgeir, Benedikt, Halldóra,
Emma, Hafsteinn og Björn. Ein-
ungis tvö eru nú á lífi, Halldóra sem
átt hefur við vanheilsu að stríða frá
unga aldri og Björn sem hélt alltaf
góðu sambandi við Emmu systur
sína.
Emma giftist 5. október 1940
Jóni Helga Líndal Arnfinnssyni, þau
eignuðust sjö börn saman. Aniku
sem dó nokkurra mánaða gömul,
Hafdísi, Sævar, Jón, Sædísi og
tvíburana Sæþór og Hafþór. Áður
hafði Emma eignast dótturina Ingi-
björgu Ólafsdóttur.
Ungu hjónin réðust í það stóra
verkefni á þessum tíma að byggja
sér hús á Seltjarnarnesi ásamt Jóni
bróður Emmu og Ástu konu hans.
Þeir Jónarnir voru miklir hagleiks-
menn. Þar kom að því að framtíðar-
heimili var reist, parhús sem bar
nafnið Minni-Bakki við Nesveg. En
skyndilega dró ský fyrir sólu. Þann
4. nóvember 1948 andaðist Jón
Líndal á sjúkrahúsi í Kaupmanna-
höfn, þar sem hann hafði gengist
undir skurðaðgerð. Unga konan var
skyndilega orðin ekkja með sex
börn. Þar af voru þijú innan við
tveggja ára aldur, það elsta tólf
ára. Nú voru erfiðir tímar framund-
an, en þá naut hún einstakrar að-
stoðar tengdamóður sinnar Jakob-
ínu. Tveim árum síðar kynntist
Emma Viggó Guðjónssyni vélstjóra,
miklum dugnaðar- og atorkumanni.
Viggó stundaði sjómennsku á tog-
urum, lengst af var hann á Jóni
forseta. Heimilið sem hafði búið við
öryggisleysi þar sem við lá oft á
tíðum að það þyrfti að leysa það
. upp öðlaðist öryggi á ný. Emma
.gat á ný litið björtum augum á
framtíðina. Ilún fór nokkrum sinn-
um í siglingu með Viggó. Viggó og
Emma festu kaup á sumarbústað
og áttu þar margar ánægjulegar
stundir. Eg átti því láni að fagna
að kynnast þessari heiðurskonu fyr-
ir um tuttugu og sjö árum, voru
mér þá opnaðar allar dyr á Minni-
Bakka þar sem Emma réð húsum.
Ánægjuleg ár voru framundan,
Emma varð tengdamóðir mín.
Oftast var mætt á Minni-Bakka
á helgi- og tyllidögum, þá nutu
margir gestrisni hennar. Tengdam-
amma fylgdist vel með þjóðmálum
og oft voru umræður fjörugar. Stutt
var í glens og gaman hjá henni.
Sólin var hennar lífgjafi sem hún
nærðist á, hafið, fegurðin og góð
lög. Emma var þakklát fyrir allt
sem fyrir hana var gert. Kom það
best í ljós síðustu vikurnar sem hún
lifði. Hún þakkaði sérstaklega Þor-
steini Blöndal yfirlækni sem var svo
elskulegur og hlýr og hjálpaði henni
eftir bestu getu. Einnig var þakk-
læti hennar mikið til starfsfólks
Landspítalans á deild 11 G sem
annaðist hana af mikilli umhyggju.
Þökk sé ykkur öllum.
Minning Emmu lifir hjá okkur
öllum, ekki síst hjá barnabörnunum
sem hún bar svo mikla umhyggju
fyrir.
Blessuð sé minning Emmu Ragn-
heiðar Halldórsdóttur.
Magnús Guðmundsson
Leiðrétting á minningargrein
um Sveinu Sveinbjörnsdóttur
Við vinnslu minningargreinar
um Sveinu Sveinbjörnsdóttur eft-
ir Guðrúnu H. Ossurardóttur sem
birtist í blaðinu sl. þriðjudag
urðu þau mistök að hluti setning-
ar féll niður.
I blaðinu stóð rétt framan við
miðja grein: „Ég man að eitt sinn
bauð Sveina mér heim til að skoða
kettlinga og bauð hún mér þá að
leiðir okkar ættu eftir að liggja
saman... Rétt átti setningin að vera:
„Ég man að eitt sinn bauð Sveina
mér heim til að skoða kett.linga og
bauð hún mér einn til eignar en ég
mátti ekki koma með hann heim.
Okkur grunaði ekki þá að leiðir
okkar ættu eftir að liggja saman á
fullorðinsárum og tengjast annarri
yndislegri sveit og hamingjusömum
fjölskylduböndum, er hún giftist
mági mínum Jóhannesi Steingríms-
syni trésmið frá Grímstöðum í Mý-
vatnssveit þ. 20.10.1979.
Morgunblaðið biðst velvirðingar
á þessum mistökum.
EKTA TEX-MEX MATUR
STUÐ 0G MEMÖNSK STEMNING