Morgunblaðið - 05.10.1990, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.10.1990, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1990 Sakadómur Reykjavíkur um meiðyrðamál: Ekki dæmt 1 málinu að ákæru óbreyttri * Akæruvald kærir til Hæstaréttar ARNGRÍMUR ísberg sakadómari hafnaði í gær kröfu ríkissaksókn- ara um að mál ákæruvaldsins gegn Halli Magnússyni, vegna meintra ærumeiðandi ummæla í garð séra Þóris Stephensens í grein sem Hallur ritaði í dagblaðið Tímann, verði tekið til dómsmeðferðar og dómsálagningar að nýju samkvæmt upphaflegri ákæru í málinu. Neitun dómarans var á því byggð að Hæstiréttur hefði með dómi 17. maí síðastliðinn vísað málinu frá héraðsdómi og því sé ekki mögulegt að hefja nýja málsmeðferð fyrir sakadómi á grundvelli þeirrar ákæru. Ákæruvaldið hefur skotið ákvörðun dómarans til Hæstarétt- ar, krafist þess að henni verði hrundið og sakadómi verði gert skylt að taka málið til dómsmeð- ferðar og dómsálagningar sam- kvæmt fyrirliggjandi ákæru. Krafa ákæruvaldsins er studd þeim rökum að með dómi Hæsta- réttar hafi dómur sakadóms og málsmeðferð verið felld úr gildi og málinu vísað frá héraðsdómi. Hins vegar hafi ákæru ekki verið vísað frá héraðsdómi og standi hún því óhögguð og ódæmd að efni til. Meirihluti Hæstaréttar hafði vísað upphaflegum dómi sakadóms frá, en þar var Halli gert að greiða 40 þúsund króna sekt og 150 þús- und króna miskabætur, þar sem ákæruvald hafði ekki sótt þing í málinu en það hefði því verið rétt þar sem í málinu væru vafaatriði og þýðingarmikið úrlausnarefni, sem snerti 72. grein stjórnarskrár- innar. Morgunblaðið/Björn Blöndal Beðið eftir„Þotuhreiðrinu“ FRAMKVÆMDUM við undirstöður listaverkanna Þotuhreiðrið og Regnboginn eftir listamennina Magnús Tómasson og Rúrí sem sett verða upp við flugstöð Leifs Eiríkssonar er nú að ljúka og að sögn Péturs Guðmundssonar flugvallarstjóra verða verkin væntanlega sett upp um áramót. Byggingamefnd flugstöðvarinnar efndi til sam- keppni um listaverk sem sett yrði upp við stöðina og urðu verk Magnúsar og Rúríar hlutskörpdst í samkeppninni. - VEÐUR Sjálfstæðisflokkurinn: Opið prófkjör sam- þykkt á Reykjanesi KJÖRDÆMISRÁÐ Sjálfstæðisflokksins á Reykjanesi ákvað á mið- vikudagskvöld að halda opið prófkjör og verður það 10. nóvember. Einnig var samþykkt að óska eftir því við miðsljórn Sjálfstæðisflokks- ins að undanþága fáist frá því ákvæði prófkjörsreglna flokksins að undirrita þurfi stuðningsyfirlýsingu áður en kosið er í prófkjöri sé viðkomandi ekki félagi í Sjálfstæðisflokknum. Verður beiðni þessa efnis tekin fyrir á fundi miðstjórnar Sjálfstæðisflokksins í dag. Bragi Mikaelsson, formaður kjör- dæmisráðsins, sagði 135 hafa verið á fundinum og hefðu atkvæði verið greidd um hvort halda ætti prófkjör eða ekki. Var niðurstaðan sú að 109 vildu prófkjör. Þá var kosið um fyr- irkomulag prófkjörsins og vildu 95 að prófkjörið yrði opið. Framboðs- frestur fyrir prófkjörið er til 15. október. Matthías Á. Mathiesen, alþingis- maður, hefur lýst því yfír að hann gefí ekki kost á sér til framboðs á ný og var honum þakkað langt starf í þágu flokksins í kjördæminu á fundinum. I upphafí fundarins minntist Bragi Mikaelsson tveggja látinna félaga, sem látist hefðu frá síðasta fundi kjördæmisráðsins, þeirra Geirs Hallgrímssonar, fyrrum þing- manns, ráðherra og formanns Sjálf-- stæðisfiokksins og Sverris Júlíus- sonar, þingmanns flokksins fyrir Reykjaneskjördæmi á árunum 1963-1971. Hann bað fundarmenn að rísa úr sætum til að votta minn- ingu látinna foringja flokksins virð- ingu sína. VEÐURHORFUR í DAG, 5. OKTÓBER YFIRt.IT í GÆR: Um 200 km suðaustur af Jan Mayen er 972 mb lægð sem hreyfist lítið í bili en mun fara að grynnast í nótt og þokast norðaustur. Um 800 km suðvestur af Reykjanesi er 990 mb tægð sem- þokast austnorðaustur. SPÁ: Norðaustan- og austanátt, Kaldi eða stinningskaldi austan til á landtnu, en gota eða kaldi vestanlands. Á annesjum austantands verða stydduéi en smáskúrir við ströndina. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG: Fremur hæg norðan- og norðaustan átt. Smáskúrir eða slydduél á annesjum norðaustanlands en að mestu úrkomutaust í öðrum landshtutum. Hitr 1-3 stig. HORFUR Á SUNNUDAG: Vestan- eða suðvestan katdi eða stinn- ingskaidi vestan tit á landinu en hægara annars staðar. Á Suðvest- ur- og Vesturlandi má búast við smáskúrum en þurrt í öðrum iands- hlutum. Hiti 5-6 stig. TAKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað x Ncrðan, 4 vindstig: ^ Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / r r r / r / Rigning r r r * / * / * / * Slydda r * r * * * * * * * Snjókoma * * * -J Q° Hitastig: 10 gráður á Celsíus 'y' Skúrir * V El = Þoka = Þokumóða ’, 5 Súld OO Mistur —[- Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma Akureyri Reykjavik hitl 1 4 veður slydduél (éttskýjað Bergen 40 skýjað Heisinki 7 þokumóða toupmannahötn vantar Narssarssuaq 3 alskýjað Nuuk 1 slydd Osto m fikýjað Stokkhólmur 14 þokumóða Þórshöfn 8 skýjað Algarve 22 skýjað Amsterdam 44 léttskýjað Barcelona 18 rigning BerKn 13 rigning Chicago 27 heiðskírt Feneyjar 20 þokumóða Frankturt 14 þokumóða Qtasgow 13 skúr á sfð.klst. Hamborg 13 skúrásið.klst. Las Palmas 26 skýjað London 1S skýjað LosAngeks 25 neiðskírt Luxemborg 13 láttskýjað Madrid 22 iettskýjað Malaga 28 iéttskýjað MaBorca 24 skýjað Montreal 16 skýjað NewYork vantar Ortando vantar París 18 skýjað Itóm 28 skýjað Vín 14 skýjað Washington vantar Winnipeg 14 skýjað Sjálfstæðisflokkurinn: Fimm nýir þátttak- endur í prófkjöri KRISTJÁN Guðmundsson, trésmiður, Lára Margrét Ragnarsdóttir, hagfræðingur hjá Ríkisspítölunum, Ólafur ísleifsson, hagfræðingur hjá Seðlabanka íslands, Rannveig Tryggradóttir, húsmóðir og þýð- andi, og Þuríður Pálsdóttir, yfirkennari Söngskólans í Reykjavík, hafa lýst yfir þátttöku í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík föstudaginn 26. og laugardaginn 27. þessa mánaðar. Kristján Guðmundsson er for- maður Málfundafélagsins Óðins. Lára Margrét Ragnarsdóttir er for- maður heilbrigðis- 'og trygginga- málanefndar Sjálfstæðisflokksins. Ólafur ísleifsson hefur setið í stjóm SUS og situr í efnahagsnefnd Sjálf- stæðisflokksins. Hann var efna- hagsráðgjafí ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar 1987-1988. Rannveig Tryggvadóttir situr í fulltrúaráði Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Þuríður Pálsdóttir á sæti í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins. Fyrsta loðnan á land Nokkur skip eru nú í leit að loðnu ÞÓRSHAMAR GK landaði í Bolungarvík í gær 40 tonnum af smá- loðnu, sem fengust fékk við Kolbeinsey en skipið fór til loðnuleitar um helgina. Þetta er í fyrsta skipti, sem íslenskt skip landar loðnu á vertíðinni. Rannsóknaskipið Árni Friðriks- son og Hilmir SU hafa einnig verið í loðnuleit undanfama daga, svo og leita Börkur NK og Súlan EA að loðnu á næstunni. Hilmir SU hefur verið á Halamiðum og Ámi Frið- riksson á Dohrnbankanum. Ámi Friðriksson fór út á mánudag en skipið verður í loðnurannsóknum til 10. nóvember. Rannsóknaskipið Bjami Sæmundsson verður í loðnu- rannsóknum 1. til 20. nóvember. i § > i i 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.