Morgunblaðið - 05.10.1990, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 05.10.1990, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1990 43 Áning hjá formanni Sjálfstæðisflokksins. Morgunblaðið/Ámi Johnsen FERÐALÖG Sendiherra- hjón skoða landið Bandarísku sendiherrahjónin Charles og Sue Cobb hafa mikinn áhuga á að kynnast landi og þjóð. Fyrir skömmu riðu þau ásamt fjallabændum, Þorsteini Pálssyni og konu hans Ingibjörgu Rafnar fram hjá 23 fossum Skógár og yfir Fimmvörðuháls, en þaðan var gengið í Þórsmörk. Ferðin heppnaðist hið besta. Voru sendi- herrahjónin hrifin af því sem fyrir augu bar, ekki síst Sue Cobb, en hún er þaulvön fjallgöngu og hefur meðal annars klifið fjöll í Himalaya- fjallgarði. Ferðalangarnir við skálann á Fimmvörðuhálsi. Charles Cobb og Ingibjörg Rafnar, eiginkona Þorsteins Pálssonar. David Lynch EMMY-VERÐLAUNIN „Fáránleik- inn höfð- aði ti! mín“ Emmy-verðlaunin voru af- hent eigi alls fyrir löngu í Banda ríkjunum. Fyrir afliend- inguna var margbent á að sjón- varpsþáttaröðin „Twin Peaks“ eftir leikstjórann David Lynch og framleidd af Propaganda Films væri tilnefnd til 14 Emmy-verðlauna livorki meira né minna. Það væntu þess marg- ir, að „Twin Peaks“ rnyndi vinna eftirminnilegan stórsigur. Raun- in varð önnur, Lynch fékk tvær minni háttar viðurkenningar, engin Emmy-verðlaun. Lynch hafði á orði eftir at- höfnina, sem haldin var með t.il- heyrandi pomp og pragt, að hon- um hefði fundist samkvæmið æ , fáránlegra el'tir því sem leið á kvöldið. Þegar Ijóst var að TP fengi engin Emmy-verðlaun hefði honum verið efst í huga hversu glæsilegur ósigur sinn væri. „En loks fór um mig þægi- leg tilfinning. Þetta var eins og leikhús fáránleikans og fárán- leiki höfðar verulega til mín. Því var mér lífsins ómögulegt að fara í fýlu út af þessu,“ sagði Lynch. TILBREYTING Paula Abdul reynir fyrir sér í leiklistinni Paula Abdul er ein helsta stjarna dans- og tónlistar geirans vestur í Hollywood, en nú vill hún reyna fyrir sér í leiklistinni. Fram- leiðendur og leikstjórar hafa lengi hvatt hana til að gefa kost á sér í eitthvert hlutveririð, en ungfrúin hefur til þessa viljað festa sig í sessi í sínu fagi. Nú trónir hún þar á toppnum og sæti hennar þar verð- ur vart af henni tekið. Ungfrú Abdul hefur valið að leika aðalkvenhlutverkið í róm- antískri grínmynd sem heitir „Sing- les“. Kaus hún handritið umfram Paula Abdul önnur vegna þess að hvergi í því er ætlast til þess að hún syngi eða dansi. Hún vill sem sé einangra sig alveg frá fagi sínu og reyna eitt- hvað nýtt. Leikstjóri verður Camer- on Crowe, en Warner Bros. standa að gerð myndarinnar sem verður frumsýnd síðla á næsta ári. Crowe segist þess fullviss að Abdul sé mikið efni í leikkonu, hún geti allt, sama hvað það heitir ... COSPER Nei, mér leiðist ekki upplestur þinn, ég er alls ekki að hlusta. Aöeins7 soludaaar eftir & Latio ekki hepp úr hendi s Frm Kai Myndbandahorn BILDSHOFÐA10 Með lágu verði, miklu vöruúrvali og þátttöku fjölda fyrirtækja hefur stórút- sölumarkaðurinn svo sannarlega slegið í gegn og stendur undir nafni. STEINAR hljómplötur - kassettur; KARNA- BÆR tískufatnaður herra og dömu; HUMMEL sportvörur alls konar; VINNUFATABÚÐIN fatnaður; PARTÝ tískuvörur; BOMBEY barna- fatnaður; SAUMALIST alls konar efni; SKÆÐI skófatnaður; BLÓMALIST blóm og gjafavörur; STÚDÍÓ fatnaður; THEÓDÓRA kventískufatnaður; SKÓVERSLUN FiÖL- SKYLDUNNAR skór á alla fjölskylduna; SONJA fatnaður; HENSON sportfatnaður; KAREN fatnaður; FATABÆR fatnaður;

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.