Morgunblaðið - 15.12.1990, Síða 38

Morgunblaðið - 15.12.1990, Síða 38
MORÖUNBUAÐIÐ UAIÍGARDAGUR15. DESEMBER 1990 m KONFEKT fyllt með viskihkjör. Frábært með kaffinu eftir matinn. * SKÍ\A\I)U (iO'IT * Bretland: ^ Reuter A flösku upp Tempsá Breskur ævintýramaður, Tom McClean, veifar ljósmyndara úr „brú“ óvenjulegrar fleytu á Tempsánni í Eondon í gær. Var hann að sigla hinni flöskulaga fleytu sinni til sýningarsvæðis sem hýsa mun alþjóð- lega bátasýningu í Uondon í byijun janúar nk. GUCCI Frdbœr úr útlit og gœði MO TT* Langholtsvegi 111, AYXd. J. 9 sími 680690. GUESILEGAR JÓLAGJAFIR CUCCI úrinfœrðu aðeins hjd Garðari Ólafssyni úrsmið, Lækjartorgi. Yfirvöld samþykkja að veita upplýsing- ar um ferðir kafbáta St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunbladsins BRESK yfirvöld samþykktu í síðustu viku í fyrsta sinn að veita upplýsingar um ferðir kafbáta á veiðisvæðum í Clydefirði. Flakinu af bátnum Antares, sem sökk í fyrra mánuði eftir að net hans hafði flækst í kafbáti, var lyft af hafsbotni á mánudag. í síðustu viku féllust bresk stjóm- völd á að veita sjómönnum við veið- ar á Clydefírði upplýsingar fyrirfram um ferðir kafbáta og fyrirhuguð æfingasvæði þeirra á firðinum. Sjómenn við Clydefjörð höfðu hót- að harkalegum aðgerðum vegna þess að Antares sökk. Kafbátastöð er í Faslane við Clydefjörð. Sjómenn hótuðu að loka kafbátalæginu með því að leggja bátum sínum við það, ef ekki yrði orðið við óskum þeirra um upplýsingar um ferðir kafbát- anna um fjörðinni. Helst vildu þeir, að kafbátarnir sigldu einungis ofan- sjávar inni á firðinum. Archie Hamilton, aðstoðarland- varnaráðherra, tilkynnti í síðustu viku, að farið yrði að óskum sjó- manna og þeir yrðu látnir vita fyrir- fram til að draga úr hættu á slysum. Hann sagði, að vegna slökunar spennu í Evrópu væri ekki eins mik- il þörf og áður á leynd um kafbáta- ferðir. Hann sagði þó, að kafbátam- ir yrðu of auðveld skotmörk, sigldu þeir einungis ofansjávar á firðinum. Ráðherrann sagði einnig, að breskir kafbátar yrðu að geta æft sig á grunnslóð eins og í hafdjúpunum. Þess vegna yrði æfingum haldið áfram á Clydefirði. Einnig var ákveðið, að í næstu viku hefjist tilraunir með sérstakan útbúnað á veiðinet og vörpur, sem gefur frá sér hljóðmerki til kafbát- anna. Mikill meirihluti sjómanna við Clydefjörð hefur lýst sig hlynntan þessum aðgerðum stjórnvalda. Á mánudag var flakinu af bátnum Antares lyft af hafsbotni. Uík þriggja manna úr fjögurra manna áhöfn bátsins hafa fundist. Rannsókn á tildrögum slyssins hófst sl. þriðju- dag. Pólland: Þingið fellst á afsagn- arbeiðni Mazowieckis Varsjá. Reuter. ÞING Póllands féllst í gær á afsagnarbeiðni Tadeusz Mazowieckis forsætisráðherra og ríkisstjórnar hans. Lech Walesa, hinn nýkjörni forseti Póllands, mun skipa næsta for- sætisráðherra landsins, en síðdegis í gier lá ekki fyrir hvenær það yrði. Neðri deild þingsins (Sejm) samþykkti af- sagnarbeiðni forsætisráðherr- ans með 224 at- kvæðum gegn 16 en 122 þing- I menn sátu hjá. jZM I Þingheimur fór « A:yg?,J þess á leit við Tadeusz Mazowiecki að Mazowiecki hann gegndi áfram embætti for- sætisráðherra þar til Walesa hefði skipað eftirmann hans. Mazowiecki var í framboði í for- setakosningunum sem fram fóru í Póllandi 25. nóvember. Hann varð fyrir miklu áfalli í fyrri umferðinni Þú svalar lestrarþörf dagsins ásíðum Moggans!_____________x er óþekktur milljónamæringur, Stanislaw Tyminski, náði óvænt öðru sæti á eftir Lech Walesa. Mazowiecki hafði boðað að hann myndi segja af sér fengi hann ekki nægilegt fylgi til að keppa við Walesa í siðari umferðinni. Er úr- slitin lágu fyrir kunngerði hann að þessi ákvörðun stæði óhögguð en niðurstaðan þótti skýr vísbend- ing um að alþýða manna hefði snúið baki við forsætisráðherran- um vegna þeirra harkalegu efna- hagsaðgerða sem hann og ríkis- stjórn Samstöðu höfðu beitt sér fyrir. Walesa gjörsigraði síðan Tyminski í síðari umferðinni á sunnudag eins og fram hefur kom- ið í fréttum. Mazowiecki varð forsætisráð- herra Póllands í september í fyrra. Var það í fyrsta skiptið í rúm 40 ár sem embætti forsætisráðherra gekk kommúnistum úr greipum í fyrrum leppríkjum Sovétmanna í Áustur-Evrópu. Tólf dánir eftir sér- trúarathöfn í Mexíkó Mexíkóborg. Reuter. TÓLF manns fundust látnir í gær í húsi í borginni Tijuana í norð- vesturhluta Mexíkó. Að sögn lögregluyfirvalda virðist fólkið hafa komið saman til að fremja einhverskonar trúarathöfn og látist af völdum eitrunar. — Á meðal hinna látnu var 6 ára gömul telpa og 12 ára gamall drengur. Líkin mynduðu hring á gólfinu sem var afmarkaður með reipi. Lögreglumenn fundu fimm aðra, þ.á m. ungabam, meðvitund- arlausa og nær dauða en lífi á öðr- um stöðum í húsinu. Bæklingar frá óþekktum sértrúarsöfnuði sem kall- ast „Templo del Medio Dia“ eða „Hádegismusterið" lágu á víð og dreif um húsið. „Fólkið virðist hafa verið á anda- fundi — þar sem það hafði samband við verur úr öðrum heimi,“ sagði Sergio Barrios lögregluforingi. Hann sagði að fólkið hefði sennilega dáið eftir að hafa drukkið eitrað iðnaðaralkóhól sem það hefði talið vera romm. Hann sagði að lögregl- an teldi nær útilokað að um fjölda- sjálfsmorð hefði verið að ræða. Úr bókinni: Hjátrú:Þeir sem eru duglegastir, iðnastir og eiga mest skilið að komast til metorða. Raunveruleiki:Vertu raunsær! Athugaðu áslandið í eigin fyrirtæki eða öðrum. VeraKann að foreldrar þfnir hafi sannfært pig að lffið sé sanngjarnt eða a.m.k. að þaö ÆTTI að vera sanngjamt. Hvaða skoðun sem þu hcfur á sanngimi skiptir það mestu mali að það er engin TRYGGING fyrir sanngimi Phil Laui Þetta er bók sem höföar til allra sem vilja auku tekjur sínur og öölust ruunhtett viðhorf til peningu Fæst í bókaverslunum um land aiitj einnig getur þú pnntað bókinu hjú okkur og við scndum hunu ÖÍtOfi't '" ' sumdægurs þér uð kostnuöarluusu, w% bl fi, Laugavegur 178, 105 Reykjavík, S.: 91-622199 ^ÍFSA^ Blaöagrind kr. 6.600,- Snyrtlborð m/atól kr. 26.400,- Skartgripaskrín 4 teg. Verð frá kr. 7.800,- Fataslá kr. 6.800,- Skartgripaskápur kr. 33.700,- ÍPœfcÁ I Ífi/cö't/icimfíi/t/ ./{uu/cn -ÖÁa/inen mi/ \ :£i/cö<fii//unq ’/J/wcc/aii au J.wfiic'ui
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.