Morgunblaðið - 30.04.1991, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 30.04.1991, Qupperneq 54
54 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. APRIL 1991 ■ ÞÝSKI píanistinn Elfrun Gabriel heldur tónleika á Vest- fjörðum á næstunni. Elfrun er mikill Chopin túlkandi og hefur haidið tónleika víða um heim. Hún fer að þessu sinni í tónleikaferð um Vestfirði og mun leika á eftirtöldum stöðum: Á Flateyri miðvikudaginn -w 1. maí klukkan 21, í Bolungarvík laugardaginn 4. maí klukkan 17 og á Þingeyri mánudaginn 6. maí klukkan 21. Vogar: Skóflustunga tekin að nýjum Vogum. ALLS 35 börn á leikskólanum Sólvöllum í Vogum tóku fyrstu skóflustunguna að nýjum leik- skóla á Suðurgötu 1-3 í Vogum á sumardaginn fyrsta að við- stöddu fjölmenni. Börnin fengu afhenta skóflu við Féiagsheimilið Glaðheima og þaðan var gengið í hóp að Suðurgötu 1-3. Jón Gunnarsson oddviti flutti ávarp og sagði að mikil þörf væri á að fá nýjan leikskóia og að stefnt sé að því að taka nýjan leikskóla í notkun í lok ágústmánaðar næst- leikskola komandi. Kostnaður er áætlaður 16 milljónir króna, en verktaki er Vilberg Þór Jónsson, húsasmíða- meistari. Að athöfninni Iokinni var gestum boðið að þiggja veitingar í boði hreppsnefndar í Glaðheimum. Þangað mætti fjökli fólks og leik- skólabörnin skemmtu með söng. - EG. Börn úr leikskólanum Sólvöllum taka fyrstu skóflustunguna að nýjum leikskóla í Vogum. Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson Leíkfélag Reykjavíkur gefa fólki aftur tækifæri á 50% afslætti á eftirtaldar leiksýningar sem nú eru að kveðja: Sumartilboði leikfélagsins, síðasta vetrardag var frábærlega vel tekið og komust færri að en vildu. Þess vegna höílim við ákveðið að 1932 föstiu/og/nn J. n/a/ Ég er meistarinn föslnclag/nn J. /naí ÆT Sigrún Astrós /angarc/agi'nn 4. n/c/i Fló á skinni fini/ntuclaginn 2. n/cn og /a/iga/claginn 4. n/aí LEIKFÉLAG REYKIAViKUR M BORGARLEIKHÚSIÐ Miðasalan cr opin daglcga kl. 14-20, ncma minudaga frá kl. 13-17, auk þcss cr tckið á móti pöntunum í síma 680680 milli kl. 10-12 alla virka daga. Grciðslukortaþjónusta Súld og Danny New- mann á Akureyri HLJÓMSVEITIN Súld heldur tónleika miðvikudag og fimmtudag, 1. og 2. maí, á veitingastaðnum 1929 á Akureyri. Hljómsveitin mun m.a. flytja lög af geisladisknum Bfindflug ásamt nýju frumsömdu efni. Með í förinni verður sérstakur gestur hljómsveitarinnar, breski blúsgítarleikarinn og söngvarinn Danny Newmann. Danny Newmann hefur víða troðið upp hérlendis á undanförnum vikum og vakið athygli fyrir góðan blús. Hann lék hér fyrr á árum með hljómsveit Manfred Mann og hljóm- sveitinni Earth Band. Danny mun m.a. flytja ásamt Súld lög af nýj- ustu plötu sinni, Bless Tupelo. Tónieikar Súldar og Danny New- mann hefjast kl. 22. UR DAGBÓK LÖGREGLUIMNAR í REYKJAVÍK: 26. - 28. apríl 1991 Helgin 26.-28. apríl var frem- ur róleg á vettvangi lögreglu- starfsins. Bókuð tímasett útköll voru samtals 472. Vegur þar vafa- laust þyngst rysjótt veðrátta ásamt því að mjög er liðið á mán- uðinn og því víða farið að sjást í botn á peningabuddum borgar- anna. I 63 tilfellum þurfti lögreglan að blanda sér í mál þar sem sam- skipti borgaranna og Bakkusar voru með þeim hætti að óviðun- andi var. Varð ekki hjá því kom- ist að vista nokkra af þessum 63 í fangageymslum lögreglu meðan dómgreindin var að jafna sig. Árekstrar urðu 25 þar sem ein- ungis varð eignatjón en aftur á móti varð eitt umferðarslys (einu of mikið) þar sem ekið var á gang- andi vegfaranda á Sæbraut við Laugarásbíó á föstudagskvöldið kl. 22.40. Ekki er vitað til að það hafi verið mjög alvarlegs eðlis. Kærur vegna umferðarlaga- brota þessa daga voru 160. Helstu þættir sem þar um ræðir eru of mikill hraði, meint ölvun við akst- ur, stöðvunarskyldubrot, ekið gegn rauðu ljósi, svo eitthvað sé nefnt. Verður aldrei of oft kveðin sú ágæta vísa að umferðarreglur eru ekki til að brjóta þær heldur til að greiða fyrir í samskiptum borgaranna á þessu sviði. Vegna meintrar ölvunar við akstur voru 12 menn kærðir. Heppilegra hefði verið að bíða nokkra stund eftir leigubíl, mínúturnar skipta ekki svo miklu máli. í húsi einu í borginni kom til alvarlegs ágreinings á milli sam- býlisfólks, sem endaði með því að húsráðandi greip til skotvopns og hótaði að nota það. Skelfing greip um sig á heimilinu og var lögregl- an kvödd til að skakka leikinn sem hún gerði og var hættuástandi afstýrt. Maðurinn var síðan færð- ur í fangageymslu og málið síðan til rannsóknar hjá Rannsóknar- lögreglu ríkisins. 11 innbrot voru tilkynnt til lög- reglu og í nokkrum tilvikum náði lögreglan brotamönnum á vett- vangi og málin síðan send til frek- ari rannsóknar með hefðbundnum hætti. VORLÍNAN ER KOMIN Skór [ miklu urvali Frábær dömu galla sportfatnaður VISA-EURO Laugavegi 62 Sími 13508 SENDUM IPÓSTKRÖFU

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.