Morgunblaðið - 05.05.1991, Qupperneq 10
t MdRötíkBiiíöíÖ 'MWtíöÁööíi ® WÁF 'í*)é 1
mo
Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar á ríkisráðsfundi á Bessastöðum síðastliðinn þriðjudag
í u p p h a I i s t j ó r n a r s a m s t a r f s:
Fréttaskýring eftir Agnesi Bragadóttur
DAVÍÐ Oddssyni formanni Sjálfstæðisflokksins tókst það ætlunarverk sitt
að mynda ríkisstjórn á mettíma. Þegar ríkisráðsfundur var haldinn á Bessa-
stöðum síðastliðinn þriðjudag þar sem forsetinn afhenti Davíð stjórnartaum-
ana, vantaði tæpar fjórar klukkustundir upp á að Davíð hefði haft form-
legt umboð til stjórnarmyndunar í fjóra sólarhringa. Ný ríkisstjórn Sjálf-
stæðisflokks og Alþýðuflokks var orðin að veruleika, formenn beggja flokka
voru móðir nokkuð, og ekki laust við að þeir hafi á þessum skamma tíma
orðið fyrir óvæntum skellum, sem alltaf má þó búast við í ólgusjó stjórnmál-
anna. Til eru liðsmenn beggja flokka, sem telja sig hafa borið skarðan
hlut frá borði við það samkomulag sem með formönnunum tókst, og hugsa
foringjum sínum þegjandi þörfina, að minnsta kosti sumir hveijir. Það
væri því barnaskapur að ætla sem svo, að fyrst tekist hefur samkomulag
um stjórnarsamstarf flokkanna tveggja, verði framhaldið allt með friði
og spekt. Eftir því sem ég kemst næst, fer því fjarri að óhætt sé að álykta
sem svo. Þessi orð má þó engan veginn túlka sem einhveija hrakspá ríkis-
stjórninni til handa, heldur miklu fremur sem tilraun til raunsæs mats á
innanhússástandi hvors flokks um sig. Þar virðast vandamálin vera fleiri,
stærri og hatrammari, þar sem stærri flokkurinn, Sjálfstæðisflokkurinn, á
í hlut, þó að því fari víðs fjarri að ég geti mér þess til að kristilegur andi
bróðurlegs samstarfs og eindrægni svífi yfir tíu manna þingflokki Alþýðu-
flokksins um þessar mundir.
liðeyjarfundir
formannanna fóru
fram í hinu mesta
bróðerni bæði á
laugardag og
sunnudag. Jón
Baldvin sótti hart
að Davíð hvað
varðar sjávarút-
vegsráðuneytið.
Davíð varðist lengi
vel, en niðurstaðan var samt sem
áður sú síðdegis á sunnudag að
Davíð samþykkti að eftirláta Ál-
þýðuflokknum sjávarútveginn, með
þeim fyrirvara þó, að þingflokkur
Sjálfstæðisflokksins væri því sam-
þykkur. Þess í stað hefði iðnaðar-
og viðskiptaráðuneytið komið í hlut
Sjálfstæðisflokksins. Þetta var erf-
iður samningur fyrir báða aðila, þar
sem Jón Baldvin hafði þurft að
beita mikilli hörku í viðræðum sín-
um við Jón Sigurðsson, til þess að
fá hann til að fallast á að taka að
sér sjávarútvegsmálin. Reyndar
höfðu þeir nafnarnir ekki náð um
það endanlegu samkomulagi, þar
sem Jón gerði kröfu til þess að fá
viðskiptaráðuneytið með yfir í sjáv-
arútveginn, og þá kröfu gat Davið
ekki fallist á.
í þessum efnum samþykkti Jón
Sigurðsson loks síðla á sunnudags-
kvöld að taka að sér sjávarútvegs-
ráðuneytið fengi hann einnig ákveð-
in verkefni viðskiptaráðuneytisins
sem varða gengi og gjaldeyrismál
(Seðlabanka og ríkisbanka), og al-
þjóðlegar fjármálastofnanir. Við-
skiptaráðuneyti það sem eftir hefði
orðið og fallið í hlut Sjálfstæðis-
flokks hefði farið með þau mál sem
lúta að innlendu verðlagi, Verðlags-
stofnun, samkeppni og viðskipta-
hömlum, einoaun og hringamynd-
un. Rök Alþýðuflokksins fyrir þess-
ari kröfu voru þau að aðeins með
þessum hætti hefði Alþýðuflokkur-
inn formlega aðild að efnahags-