Morgunblaðið - 05.05.1991, Blaðsíða 15
iggi iam ,a auoAaimnua GiaAjaHuoaoM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGURr5;iyiAÍ 1991
M
15
Tk -.1 njj , _ Morgunblaðið/Ól.K.M.
Davið Oddsson a sknfstofu forsætisráðherra á þriðjudair fvrsta
daginn í hinu nýja enibætti. ’
lægja þær öldur sein kunni að rísa
vegna þessa, áður en til úrslita kem-
ur. „Og ef það er þannig að jám er
í jám, þá verða menn hugsanlega
að gá að einhveijum öðrum valkost-
um.“
Davíð sagði að hægt væri að fara
alls konar leiðir, ef sættir nást ekki.
„Það er líka hægt að ná í mann utan
úrbæ sem er sjálfstæðismaður og
mundi vera pólitískur borgarstjóri '
sem slíkur, þó að hann hafí ekki
verið kosinn. Það er hægt ef ekki
næst nógu mikil samstaða innan
hópsins, því að það er afskaplega
mikilvægt og raunar meginkrafa að
það verði samstaða innan hópsins.
Þetta hefur verið samstæðasti hópur-
inn í flokkskerfinu hjá okkur og það
er mjög mikilvægt að það raskist
ekki.“
Þótt Davíð Oddsson láti af emb-
ætti borgarstjóra þarf það ekki að
þýða að hann hætti að vera borgar-
fulltrúi, hann var spurður hvort hann
hefði gert upp við sig að halda því
áfram eða hætta. „Eg hef stefnt að
því að vera áfram,“ sagði hann. „Ég
ætla bara að prufa það og sjá hvað
gengur. Ef það ferekki saman með
ráðherrastörfum þá hætti ég því, en
mig langar að vera eins lengi og ég
get, ég var nú kosinn til þess og er
búinn að vera borgarfulltrúi í 17 ár,
þannig að það er mikil breyting að
hætta þvf.“
FJORIR RMAÐIR
þessum sökum heyrast þau sjónar-
mið, að séu menn ekki sáttir um
einn aðila nú, þá megi velja borgar-
stjóra til bráðabirgða, þar til sjálf-
stæðismenn í Reykjavík velja í próf-
kjöri borgarstjóraefni sitt, að öllum
líkindum haustið 1993.
Reynir verulega á Davíð
í þessu máli reynir verulega á
hæfileika Davíðs Oddssonar. Ekki
hefur verið gert opinskátt hvern
hann styður í embættið. Hann ræðir
við alla borgarfulltrúa og varaborg-
arfulltrúa, að því loknu gerir hann
tillögu um eftirmann sinn. Hugsan-
lega tekst honum að leiða fram sátt
allra um tillöguna og þótt hann hafi
nú ærnum störfum að gegna í lands-
stjórninni hlýtur hann að leggja á
sig mikið erfiði við þetta verk og
skilja þannig við embætti sitt, að
einn óskiptur borgarstjórnarflokkur
standi að baki nýjum borgarstjóra.
Hér fara á eftir samtöl við þá fjóra
borgarfulltrúa sem öðrum fremur
hafa verið orðaðir við að taka við
embætti borgarstjóra.
Margir álitlegir til starfsins
Árni Sigfússon sagði mikla ein-
földun að halda því fram að aðeins
tveir menn komi til greina í embætti
borgarstjóra, „þó
að mér þyki vænt
um að vera þar
nefndur. Að mínu
mati eni félagar
mínir í borgar-
stjórn margir álit-
legir til þessa starfs
þótt að endingu
taki einn það að
sér,“ sagði hann.
„Við höfum alltaf lagt á það
áherslu að standa sameinuð og í því
felst styrkur okkar. Það er oft skipst
á skoðunum í okkar hópi, en síðan
sameinast menn um þá niðurstöðu
sem meirihluti er fyrir.
Ég veit að menn munu leggja
áherslu á skynsamlega niðurstöðu
sem mun viðhalda styrk Sjálfstæðis-
flokksins til góðra verka í þágu allra
borgarbúa. Það er kjarni málsins."
Ekkiauðveld ákvörðun
Katrín Fjeldsted sagði borgar-
stjóraskiptin hafa legið í loftinu að
sumu leyti um nokkurn tíma, en
ekki hafí orðið ljóst
fyrr en alveg ný-
lega að þessi staða
lægi fyrir. „Við
borgarstjóraskipti,
sem hafa ekki verið
mörg, hefur oftar
en ekki gerst að
það hefur verið til-
nefndur eftirmaður
af fráfarandi borg-
arstjóra,“ sagði hún.
Katrín sagði að ætlun Davíðs, að
ræða einslega við hvern og einn,
væri fremur í samræmi við þau
vinnubrögð sem verið hafa í borgar-
stjórnarflokknum, heldpr en bein
tilnefning eftirmanns. „Ég tel að það
liggi nokkuð ljóst fyrir hveijir gefa
■kost á sér, það séu íjórir, án þess
að talað sé um það beint opinber-
lega. Ég er vissulega ánægð með að
vera ein af þeim, en það er auðvitað
þessara félaga sem hafa starfað sam-
an margir hveijir í mörg ár að taka
ákvörðun og hún er ekkert auðveld.
Mestu skiptir að samstaða sé um
eftirmann, við eigurn jú eftir að vinna
saman, það eru þijú ár eftir af
kjörtímabilinu, þannig að samstaðan
verður að vera útgangspunkturinn."
Sækist ekki eftir að verða
borgarstjóri
Magnús L. Sveinsson sagði ýmis
nöfn hafa verið nefnd. „Ég hef gætt
þess að gefa ekki upp um mína skoð-
un á þessu, enda
ekki talið það tíma-
bært fyrr en það
lægi skýrt fyrir
hvort stóllinn losn-
aði, nú liggur það
sem sagt fyrir. Mitt
nafn hefur verið
nefnt í. þessu, en
ég get alveg sagt
það núna að ég
mun ekki sækjast sérstaklega eftir
því. að verða borgarstjóri.
Ég vil leggja áherslu á það að
hver sem verður borgarstjóri, þá
verði eining um það. Það er grund-
vallaratriði, hitt væri rnjög vont mál
fyrir okkur og má ekki eiga sér stað
að það verði öðru vísi en með fullri
einingu."
Magnús kvaðst vilja taka skýrt
fram, þar sem sú spurning hefði
komið upp hvort til greina komi að
velja mann utan borgarstjórnar-
flokksins, að það kæmi ekki til greina
af hans hálfu, „alls ekki,“ sagði hann.
Ekki
kosningakeppni
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
sagði hafa verið talað um það á
sínum tíma að borgarfulltrúar og
varaborgarful ltrú-
ar héldu umræðu
um val nýs borgar-
stjóra innan
borgarstjórnar-
flokksins. „Ég hef
haldið þetta eins og
um var rætt,“ sagði
hann. „Þessi hópur
ríkt mjög gott samstarf og menn
vilja ógjarnan að því ljúki, þrátt fyr-
ir veigamiklar breytingar sem fram-
undan eru.“
Vilhjálmur sagði því ekki að leyna
að ýmsir borgarfulltrúar og vara-
borgarfulltrúar hafi rætt við sig
varðandi mál þetta. „Ég hef vissu-
lega velt þessurn málum vel fyrir
mér og mun skýra borgarstjórnar-
flokknum frá afstöðu minni þegar
þar að kemur. En, ég lít ekki svo á
að þetta sé eitthvert prófkjör eða
kosningakeppni, þetta er mál sem
okkur ber skylda til að leysa innbyrð-
is hjá okkur þannig að menn geti
staðið sáttir á eftir. Að minnsta kosti
ætla ég að leggja mitt af mörkum
til að það takist. Hins vegar er nauð-
synlegt að í þessu gildi sanngjörn
vinnubrögð, menn fái að hafa sína
skoðun í friði og gera það sem þeirra
samviska býður.“
Árni
Magnús
ýmsum B-vítamínum og gefur zink, magníum, kalíum, A-vítamín og fleiri efni sem eru líkamanum nauðsynleg. ^s^mjólkurdagsnefnd
RÆKTAÐU LÍKAMANN
— en gleymdu ekki undirstööunni!