Morgunblaðið - 23.05.1991, Side 2
!
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAI 1991
Fjárþörf LÍN verði lækkuð um 300 milljónir:
Ekki ljóst hvernig
ná á þeim spamaði
- segir Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra
RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveðið að breyta útlánareglum Lánasjóðs
íslenskra námsmanna (LÍN) þannig að viðbótarfjárþörf sjóðsins lækki
um 300 m.kr. þannig að hún verði 400 m.kr. króna í stað 700 m.kr..
Kemur þetta fram í skýrslu um ríkisfjármál fyrir árið 1991 sem Frið-
rik Sophusson, fjármálaráðherra, lagði fram á Alþingi í gær. Ólafur
G. Einarsson, menntamálaráðherra, segir að stjórn LIN lxafi verið fal-
ið að gera tillögur um hvernig ná megi þessum sparnaði.
„Það er ekki enn ljóst hvernig
þetta verður útfært. Málið er hjá
stjórn sjóðsins eins og er og hefur
hún verið beðin um að ná fjárþörf-
inni niður um 300 m.kr. Við vitum
þó ekki enn hvort það er gerlegt,"
segir menntamálaráðherra. Hann
segir að ef þetta markmið náist fram
að fullu geti það þýtt um 20% lækk-
un á útlánum sjóðsins. „Fráfarandi
stjóm lánasjóðsins var búin að vinna
ákveðið verk í niðurskurðarátt en
taldi ekki rétt að samþykkja þær til-
lögur rétt áður en hún léti af störf-
Morgunblaðið/Þorkell
Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ, og Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, að lokinni undir-
ritun samkomulags launanefnda launþegasamtakanna og vinnuveitenda í húsakynnum Alþýðusambands-
ins síðdegis i gær.
Samkomulag aðila vinnumarkaðarins um launahækkanir:
6.300 króna eingreiðsla
til allra launþega í júlí
Persónuuppbót vegna viðskiptakjarabata metin til 2% launahækkunar
LAUNANEFNDIR launþegasamtakanna og viðsemjenda þeirra
komust að samkomulagi í gær um launahækkanir 1. júní sam-
kvæmt kjarasamningum og hlutdeild launþega í viðskiptakjara-
bata. Auk 2% áfangahækkunar launa 1. júní greiðist, 0,57% vegna
verðlagsákvæðis kjarasamninganna. Samkomulag tókst um að laun-
þegum skuli til viðbótar greidd sérstök 6.300 króna eingreiðsla
að meðtöldu orlofi 1. júlí vegna viðskiptakjarabata. Þá gaf ríkis-
stjórnin fyrirheit í gærmorgun um að lífeyrisþegar skuli fá sam-
bærilega uppbót samkvæmt ákveðnum viðmiðunum en ekki er
búið að ganga frá með hvaða hætti það verður. Ásmundur Stefáns-
son, forseti ASÍ, segir að eingreiðslan þýði um 2% launahækkun
út samningstímann. Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri
VSI, segir að þessi uppbót feli í sér útgjaldaauka fyrir launagreið-
endur uppá 750-800 milljónir kr.
í úrskurði launanefndanna segir
að starfsfóik sem er við störf í fyrir-
tæki þann 14. júní og verið hefur
í fullu starfí frá 1. mars sl. skuli
fá sérstaka 6.300 kr. eingreiðslu
1. júlí. Starfsfólk með skemmri
starfstíma skuli fá greitt hlutfalls-
lega miðað við starfstíma á tímabil-
inu frá 1. mars - 14. júní. Starfs-
fólk í hlutastarfí, sem uppfylli sömu
skilyrði, fái greitt hlutfallslega mið-
að við starfshlutfall af 40 stunda
vinnuviku. Starfshlutfall þeirra sem
vinna að jafnaði óreglulegan vinn-
utíma eða utan dagvinnutíma verði
fundið með hlutfalli unninna stunda
af vinnustundafjölda sem gildi fyrir
fullt starf á viðkomandi starfssviði.
Fæðingarorlof allt að sex mánuð-
um skerðir ekki rétt til greiðslu.
Iðnnemar sem eru í föstu vinnusam-
bandi við meistara eða fyrirtæki og
eru í starfí á viðmiðunartímanum
fá 4.400 kr. Eingreiðslan greiðist
aðeins tíma- og mánaðarkaupsfólki
16 ára og eldri, en kemur ekki til
viðbótar aflahlut sjómanna. Hins
vegar fá þeir hlutfallslegan rétt til
greiðslunnar ef þeir hafa fengið
greidda kauptryggingu á viðmiðun-
artímabilinu.
Auk þessara hækkana fá laun-
þegar innan BSRB og ASÍ 7.500
kr. orlofsuppbót í sumar samkvæmt
kjarasamningum og hefur hún
hækkað um 500 kr. frá síðasta ári.
Félagar í BSRB fá uppbótina 1.
júní en ASÍ-félagar á tímabilinu 1.
júní - 15. ágúst
Ásmundur Stefánsson sagði að
niðurstaðan í gær væri ásættanleg
þótt launþegar hafi viljað festa
kauphækkunina inn í launatöxtum
en viðsemjendurnir hafi ekki viijað
fallast á það. „Þetta samkomulag
felur í sér viðurkenningu á því sjón-
armiði að þessi viðskiptakjarabati
skuli koma til launafólks og er í
samræmi við samningsforsendur,"
sagði hann.
Ogmundur Jónasson, formaður
BSRB, sagði að staðið hefði verið
við samninginn og væri þetta skref
í rétta átt. Kvaðst hann vera sér-
staklega ánægður með að fengist
hefði trygging fyrir að lífeyrisþegar
fengju einnig persónuuppbótina.
Þórarinn V. Þórarinsson sagði
að fulltrúar vinnuveitenda hefðu
lagt áherslu á að viðhalda möguleik-
anum á að semja á grundvelli þess
efnahagslega bata sem gert hefði
vart við sig að undanfömu. „Þjóðar-
tekjurnar verða að líkindum 3%
hærri í ár en í fyrra og við töldum
mikilvægt að fullkomið traust héld-
ist á milli þessara samningsaðila.
Með því að velja eingreiðslufyrir-
komulagið komum við til móts við
launþega um að þeir fái notið strax,
með beinum hætti, einhvers bata.
Til viðbótar er sá hluti sem stafar
af lægra innflutningsverðlagi og
komið hefur nú fram í að kaupmátt-
ur á síðustu sex mánuðum er að
meðaltali 0,6% hærri en við var
miðað við framlengingu samninga
í nóvember,“ sagði hann.
Þórarinn sagðist hafa áhyggjur
af launaþróuninni og sagði að eftir
þessar ákvarðanir hækki laun á sjö
mánaða tímabili, frá í lok nóvember
á síðasta ári, um 8,5% en til saman-
burðar væru launabreytingar á
heilu ári í OECD-ríkjunum um 6%.
„Við erum komin á hættulega braut
en teljum okkur vera að styrkja
félagslegar forsendur framlenging-
ar samninganna án þess að veikja
verulega efnahagslegar forsendur,“
sagði hann.
um. Þess ber líka að geta að fyrri
ríkisstjórn tók 200 m.kr. af fjárveit-
ingu til lánasjóðsins við afgreiðslu
fjárlaga og ætlaði sér í þessu sem
ýmsu öðru að athuga málin síðar á
árinu. Það lendir einfaldlega á okkur
að gera það.“
Ráðherra segir að það sem nú sé
til umfjöllunar sé einungis endur-
skoðun á úthlutunarreglum sjóðsins
til að ná niður fjárþörf hans. Hann
hafí hins vegar einnig ákveðið að
skipa nefnd til að endurskoða lögin
um LÍN og verði farið í það verk í
sumar þannig að hægt verði að
leggja fram frumvarp fyrir Alþingi
næsta haust.
Lárus Jónsson, formaður stjórnar
LÍN, segir stjórnina ekki vera fama
að ræða þetta mál enn þá. Hann
geri þó ráð fyrir að fljótiega verði
boðað til fundar í stjórninni. Enn sem
komið er sé málið hins vegar einung-
is á umræðustigi. „Það var lækkuð
fjárveitingin til sjóðsins um 200 m.kr.
við fjáriagaafgreiðslu og hafa ekki
verið gerðar neinar ráðstafanir til
að ná þeim niðurskurði. Þarna er
verið að taia um að ná því markmiði
í raun og 100 m.kr. því til viðbótar.
Þetta er það eina sem hægt er að
segja um málið á þessu stigi," segir
Lárus.
Sigurjón Þ. Ámason, formaður
Stúdentaráðs, segir að hann sé mjög
sleginn yfír þessum áformum og
varla trúa að eigi að gera þetta. „Ef
það á að spara 300 m.kr. í haust
þýðir það að samþykkja verður út-
hlutunartillögur sem fela í sér 600
m.kr. niðurskurð miðað við heilt
námsár. Það myndi þýða um 20%
skerðingu námslána. Núna er hám-
arkslán fyrir námsmann í leiguhús-
næði 55.000 krónur á mánuði og
myndi það því lækka í 44.000 ef lán
yrðu skorin niður um 20%. Það ber
hins vegar að hafa í huga að meðal-
lán eftir að búið er að taka tillit til
tekna em líklega um 40.000 krónur.
Eg held að menn geri sér ekki grein
fyrir því hvaða afleiðingar svona
ákvörðun hefur. Þeir hafa ekki hugs-
að þetta dæmi tii enda,“ segir Sigur-
jón. Hann segir að í dag muni sam-
starfsnefnd námsmannahreyfíng-
anna koma saman til að ræða stöðu
mála.
Þórarinn V. Þórarinsson, VSI:
Útgáfa húsbréfa við-
heldur háu vaxtastigi
Formenn aðildarfélaga BSRB mót-
mæla vaxtahækkun ríkisstjórnarinnar
ÞÓRARINN V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitenda-
sambands íslands, segir að
ákvarðanir ríkisstjórnarinnar um
vaxtahækkanir og aðhaldsaðgerð-
ir séu skynsamlegar en þær séu
þó aðeins fyrsta skrefið og gera
verði kröfu til framhaldsaðgerða
til að tryggja stöðugleika. Hann
segir það þó valda vonbrigðum,
að á sama tíma og boðuð séu
áform um að draga úr lántöku-
þörf sé yfirlýst að gefin verði út
húsbréf fyrir 5 milljarða sem
muni fara inn á lánamarkaðinn
og halda uppi háu vaxtastigi.
Formenn aðildarfélaga BSRB
sendu frá sér tilkynningu í gær þar
sem ákvörðun ríkisstjórnarinnar um
vaxtahækkun er harðlega mótmælt.
„Sérstaklega ámælisverð er sú
ákvörðun að hækka vexti í húsnæðis-
lánakerfinu afturvirkt. Með þessu
móti eru settar enn meiri álögur á
húsnæðiskaupendur og kaupmáttur
þeirra skertur,“ segir m.a. í ályktun
formannanna.
Sjá viðtöl á bls. 24-25
Siguijón Sighvatsson og Steve Golin:
Fjármagna og dreifa
Gullpálmakvikmynd
BANDARÍSKA kvikmyndin Barton Fink hlaut Gullpálmann á
kvikmyndahátíðinni í Cannes á mánudag. Fyrirtækið Manifesto,
sem er í eigu Sigurjóns Sighvatssonar og Steve Golin í Los Angel-
es á móti Polygram-fyrirtækinu, fjárniagnar myndina að hálfu
og sjá þeir um alla dreifingu hennar utan Bandaríkjanna. Mynd-
in hlaut einnig fyrstu verðlaun fyrir leikstjórn og besta aðalhlut-
verk karlleikara. Þetta er annað árið í röð sem Sigurjón og Steve
eiga hlut að verðlaunamynd á kvikmyndahátíðinni í Cannes en
fyrirtæki þeirra, Propaganda films, sá um framleiðslu myndarinn-
ar Wild at Heart sem hlaut Gullpálmann á síðasta ári.
Sigutjón sagði í samtali við
Morgunblaðið að þeir hefðu lagt
hátt í 300 milljónir króna í mynd-
ina. „í staðinn fáum við dreifíng-
arrétt utan Bandaríkjanna. Við
njótum góðs af þessu því verðgildi
myndarinnar hækkar þegar hún
hlýtur Gullpálmann og þetta er
mjög góður árangur fyrir Mani-
festo því fyrirtækið er ekki nema
tæplega tveggja ára gamalt.“
Sigurjón sagði að fyrir verð-
launaveitinguna hafi þótt ólíklegt
að bandarísk kvikmynd myndi
hljóta verðlaunin þriðja árið í röð.
„En auk þess að hljóta Gullpálm-
ann fékk myndin tvenn önnur
verðlaun sem hefur aldrei gerst
áður í Cannes," sagði hann.
Myndinni er leikstýrt af bræðrun-
um Joel og Ethan Coen og hlaut
John Turturro fyrstu verðlaun
fyrir leik sinn í myndinni.
Siguijón sagði að Propaganda
fílms hefði sent kvikmynd sem
fyrirtækið framleiddi fyrir söng-
konuna Madonnu á hátíðina í
Cannes og var hún meðal fimm
mynda sem valdar voru á hátíðar-
sýninguna. „Henni var mjög vel
tekið og er verið að sýna hana
við mjög góða aðsókn í Banda-
ríkjunum og Frakklandi."
Siguijón sagði að Manifesto
hefði þegar selt sýningarrétt að
Barton Fink í mörgum löndum
Evrópu og að Laugarásbíó myndi
taka hana til sýninga innan
skamms.