Morgunblaðið - 23.05.1991, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAI 1991
Flymo
7/
L 47
E 30
ÖRUGGT
VAL
Þú færð réttu
sláttuvélina hjá okkur
□ L 47 - svifnökkvinn, aflmikil
bensínvél
□ E 30 - rafknúin loftpúðavél
□ RE 30 - rafknúin hjólasláttuvél
með grassafnara
□ XE30 - rafknúin loftpúðavél
með grassafnara
□ MT - raforf til kantsnyrtingar
Opið á laugardögum 10 - 16.
GúF
Raðgreiðslur
Góð varahluta-og viðhalds'þjónusta. Q ^ PétlirSSOn hf
Slátffuvéla
maíkaðurinn
Nútíðinni Faxafeni 14, sími 68 55 80
ITC á íslandi
Þjálfun í samskiptum
eftirJónu S.
Óladóttur
_Nú er vetrarstarf ITC-deildanna
á íslandi að ljúka, sumarið er kom-
ið og reglulegu deildarstarfi lagt
til haustsins. Landsþing samtak-
anna verður haldið undir kjörorð-
inu „Nýr áratugur, ný viðhorf".
Það er jafnframt stef fráfarandi
forseta landssamtakanna, Halld-
óru Guðmundsdóttur, sem nú lætur
af embætti eftir árangursríkt starf.
Dagana 24.-26. maí mun þingið
standa yfir á Hótel Loftleiðum,
yfir hundrað félagar munu mæta
þar til leiks af stór Reykjavíkur-
svæðinu og landsbyggðinni, bera
saman bækur sínar, yfirfara vetr-
arstarfið, gera áætlanir fyrir næsta
starfsár og njóta þess sem þingið
hefur upp á að bjóða.
Þingið verður sett kl. 19.30, 24.
maí af landsforseta, síðan verður
íslensk ræðukeppni. Þrjár ræður
verða fluttar og munu fimm dóm-
arar dæma um hver vinnur til far-
andbikars þessa árs. Að loknum
kvöldverði mun varaforseti V-
svæðis, frú Kristjana Milla Thor-
steinsson, flytja ávarp, einnig Pét-
ur Gunnarsson, rithöfundur sem
er gestur fundarins.
A laugardag, 25. maí, verða
félagsmál með fulltrúum hinna 20
deilda á landinu og eftir hádegi
fræðsludagskrá. Hansína B. Ein-
arsdóttir flytur erindi, „Konur —
sjálfsmynd — vinnumarkaður“ og
Evrópunefnd ITC-Gerðar í
Garðabæ er með fræðsludagskrá
„ísland og Evrópa". Einnig verður
hefðbundin ITC fræðsla, m.a. í
höndum Guðrúnar Norðdahl ITC
Melkorku. Veislustjóri við kvöld-
verð er Gígja S. Guðjónsdóttir, ITC
Korpu Mosfellsbæ.
Á sunnudagsmorgninum verða
próf í fundarsköpum og fulltrúi
ITC frú Elaine la Rue, I-v. forseti
N/
'é Lofta- plötur og lím Nýkomiri sending
Þ.ÞORGRlMSSON&CB
Ármúla 29, Reykjavík, sími 38640
Jóna S. Óladóttir
frá Bandaríkjunum mun sitja fyrir
svörum.
Frú Þórhildur Þorleifsdóttir leik-
stjóri mun flytja erindi og síðan
er innsetning nýrrar stjórnar ITC
á íslandi fyrir næsta starfsár.
Umsjónarmaður landsþingsins _er
Unnur Helgadóttir, ITC Ýr,
Reykjavík.
Hvað er það sem við erum að
gera í ITC spyr ef til vill einhver.
Svarið er: Við erum að þjálfa skipu-
lagshæfileika, byggja upp sjálfs-
traust og ná meiri viðurkenningu
í starfi. Við höldum fundi tvö kvöld
í mánuði, leggjum áherslu á fund-
arsköp og úthlutað er verkefnum
til félaga til flutnings að tveimur
vikum liðnum.
Samtökin eru alþjóðleg og bera
heitið „International training in
communication". Þau starfa víða
um heim, stofnuð í USA árið 1938.
Hingað til lands bárust þau árið
1975. Nú eru starfandi 20 deildir
víðsvegar um landið, frá í septem-
ber og fram í maí og þá komum
við saman á landsþing. í haust
komum við saman á ný, nokkrir
hverfa úr deildum og nýir aðilar
koma í stað þeirra sem skila sér
til annarra starfa með holla og
auðugri reynslu í farteskinu.
Er þá ITC fyrir þig?
Já, vegna þess að þau uppfylla
þörf þína fyrir að hafa aukin áhrif
á daglegt umhverfi.
Já, vegna þess að þú munt eiga
auðveldara með að tjá þig.
Já, vegna þess að þú verður
ánægðari með sjálfa(n) þig þegar
þú veist hvað þú átt að gera og
hvernig, áhyggjulaust.
Höfundur er læknaritari.
Steinvari 2000
Þegar engin önnur málning er nógu gód
Þeir sem vilja vanda til hlutanna, cða bcrjast
gcgn alkalí- og frostskcmmdum, mála mcð
Steinvara 2000 frá Málningu hf.
Steinvari 2000 býður upp á
kosti, sem engin önnur
utanhússmálning á stein
hefur í dag. Hann stöðvar
því sem næst vatnsupptöku
steins um leið og hann gefur
steininum möguleika á að
„anda“ betur en hefðbundin
plastmálning. Viðloðun
Steinvara 2000 við stein er
gulltrygg, unnt cr að mála með honum við
lágt hitastig, jafnvcl í frosti, hann þolir regn
cftir um eina klst. og hylur auk þcss
fullkomlega í tveimur um-
ferðum. Steinvari 2000 er
góð fjárfesting fyrir húseig-
endur. Veðrunarþol hatls og
ending er í sérflokki og
litaval fallegt. Steinvari
2000 er málning fagmanns-
ins, þegar mæta þarf hæstu
kröfum um vernd og end-
ingu.
Næst þegar þú sérð fallega málað hús - kynntu þér þá hvaðan málningin er
$$Bmá/ning %
- það segir sig sjdlft -