Morgunblaðið - 23.05.1991, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 1991
2,7
Norður-írland:
Lausn í sjónmáli?
St.. Andrews, Belfast. Frá Guðmundi H. Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins, Reuter.
BRESKUR ráðherra tilkynnti í gær að svo virtist sem lausn væri í
sjónmáli í deilunni um hvar viðræður um hvernig koma megi á friði
á Norður-írlandi ættu að fara fram. Hann varaði þó við of mikilli
bjartsýni um árangur viðræðnanna.
Norður-írlandsmálaráðherra
bresku stjórnarinnar, Peter Brooke,
sagi fréttamönnum að deiluaðilar
hefðu fallist á að flestir fundir í
síðari hluta viðræðnanna færu fram
í höfuðborg Norður-írlands, Belf-
ast. Meðal þátttakenda í þeim við-
ræðum verður ríkisstjórn írlands.
Aðrar heimildir herma að megin-
hluti viðræðnanna færi fram í Belf-
ast, stuttur setningarfundur yrði í
London og síðan yrði þeim slitið í
Dublin, höfuðborg írlands. Bro-
oke vonast til að samkomulag náist
milli deiluaðila, þ.á m. rómversk-
kaþólskra og mótmælenda,_ sem
gæti leitt til þess að Norður-írland
fái sjálfsstjórn á nýjan leik eftir að
hafa verið stjórnað beint frá Lund-
únum í 17 ár.
Hann vonast til að þetta verði
skref í átt til friðar, jafnvel þótt
Sinn Fein, pólitískur armur írska
lýðveldishersins (IRA), sé útilokað-
ur frá viðræðunum. Markmið IRA
er sameining írlands og Norður-
írlands.
Borís Jeltsín
Fulltrúaþing Rússlands:
Forsetaembætti stofnað
Þýskaland:
Fyrrum ráða-
menn teknir
Berlín. Reuter.
ÞÝSKA lögreglan hefur
handtekið Willi Stoph, fyrr-
verandi forsætisráðherra
Austur-Þýskalands, og Heinz
Kessler, fyrrum varnarmála-
ráðherra landsins.
Mennirnir hafa, ásamt Erich
Honecker, fyrrverandi leiðtoga
landsins, verið ákærðir fyrir að
hvetja til manndrápa. „Sem fé-
lagar í landvarnaráðinu árið
1974 báru þeir ásamt Honecker
ábyrgð á fyrirskipun um að
skotið skyldi á hvern þann sem
reyndi að komast yfir landa-
maérin,“ sagði í tilkynningu frá
þýska dómsmálaráðuneytinu.
Um 200 Austur-Þjóðveijar
biðu bana á flótta yfir landa-
mærin til Vestur-Þýskalands á
árunum 1961 til 1989.
Nýrfundur
EFTA og EB
Vínarborg. Frá Kristófer M. Kristinssyni,
fréttaritara Morgunblaðsins.
Evrópubandalagið (EB) hefur
óskað eftir sameiginlegum ráðherr-
afundi með ráðherrum Fríversl-
unarbandalags Evrópu (EFTA) 17.
eða 18. júní nk. A fundinum sem
yrði haldinn í Lúxemborg yrði gerð
Moskvu. Reuter.
Fulltrúaþing Rússlands, æðsta
valdastofnun Sovétlýðveldisins,
samþykkti í gær stofnun embætt-
is forseta lýðveldisins, sem fengi
framkvæmdavald og yrði þjóð-
kjörinn.
Tillaga þessa efnis var samþykkt
með 615 atkvæðum gegn 235. Rót-
tækir umbótasinnar á þinginu höfðu
óttast að harðlínumönnum tækist
að fella tillöguna, en tveir þriðju
hlutar þingsins þurftu að samþykkja
hana. Forsetinn fær vald til að skipa
ráðherra, gefa út tilskipanir og víkja
embættismönnum frá.
Talið er öruggt að Borís Jeltsín,
forseti rússneska þingsins, fari með
sigur af hólmi í forsetakosningunum,
sem fara fram 12. júní. Harðlínu-
menn saka Jeltsín um lýðskrum og
segja kosningarnar ótímabærar. Þeir
■ Kaupmannahöfn- Danir og
Norðmenn hafa gert með sér
samning um að norska ríkið fái
afhent 6000 skjalagögn frá tímabil-
inu 1380-1814, þegar Noregur var
hluti af danska ríkinu. Afhendingin
fer fram á 6-8 árum þar sem efnið
verður áður skráð og fært á örfilm-
ur. Marita Petersen, sem á sæti í
færeysku landstjórninni, og Jo-
hannes Dalsgaard, landsbókavörð-
ur í Færeyjum, hafa vakið athygli
Dana á því að á meðal fyrrnefnds
efnis séu um 200 skjöl sem varða
Færeyinga.
■ Genf- Tvenn samtök um-
hverfisverndarsinna, World Wide
Fund for Nature og Greenpeace,
kröfðust þess í gær að hvalveiðar
í atvinnuskyni yrðu bannaðar í ótil-
tekinn tíma. Samtökin sökuðu Jap-
ani, íslendinga og Norðmenn um
að hafa virt að vettugi bann það
sem aiþjóða hvalveiðiráðið setti árið
1986. Ráðið þingar í Reykjavík
dagana 27. til 31. maí. Þar verður
tekin afstaða til krafna landanna
þriggja um að banninu verði aflétt.
Liechtenstein hefur tekið óbeinan
þátt í störfum EFTA allt frá stofn-
un bandalagsins 1960 í gegnum
tollabandalag við Svisslendinga.
Liechtenstein sem hefur verið full-
valda síðan 1806 gerðist aðili að
Sameinuðu þjóðunum 1990 og Evr-
ópuráðinu 1978. Eru íbúarnir tæp-
lega 30 þúsund þannig að landið
leysir ísland af hólmi sem fámenn-
asta aðildarríki EFTA.
Hlutverk þingmanna í EES
Á fundi þingmannanefndar
EFTA í Vín í gær var samþykkt
tillaga um hvernig háttað skuli
samráði við þjóðþing EFTA-ríkja
og Evrópuþingið um málefni EES.
Þar er gert ráð fyrir að þingmanna-
ráðstefna verði haldin fjórum sinn-
um á ári. Hlutverk hennar yrði að
veita stjórn EES lýðræðislegt að-
bjóða fram Níkolaj Ryzhkov, fyrr-
verandi forsætisráðherra Sovétríkj-
anna, og Vadím Bakatín, ráðgjafi
Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétforseta,
er einnig í framboði.
Suður-Kórea:
Ro býðst til að
segja af sér
Seoul. Reuter.
RO Jai-bong, forsætisráðherra
Suður-Kóreu, bauðst til að segja
af sér í gær en forseti landsins,
Roh Tae-woo tók ekki afsögn
hans til greina strax, að sögn
talsmanns forsetaembættisins.
I yfirlýsingu forsetaembættisins
sagði að Roh forseti hefði i fyrstu
beðið forsætisráðherrann að vera
áfram í embætti. Þegar Ro neitaði
því sagðist forsetinn myndu íhuga
gaumgæfilega hvort hann tæki
afsögnina til gi-eina.
Ro bauðst til að segja af sér til
að draga úr sprennu þeirri sem
ríkt hefur í landinu síðan lögreglu-
menn börðu námsmann til bana
26. april sl.
Stöðug mótmæli hafa geisað
gegn stjómvöldum síðan -þá og
hafa átta námsmenn fyrirfarið sér
í mótmælaskyni.
VELA-TENGI
Allar gerðir
Öxull - í - öxul.
Öxull - í - flans.
Flans - í - flans.
Vesturgðtu 16 - Símar 14680-13280
Liechtenstein sj’ö-
unda EFTA-ríkið
EFTA-ráðherrar samþykktu á fundi í Vínarborg í gær að veita Liec-
htenstein formlega aðild að Fríverslunarbandalaginu. Búist er við
að aðildin taki gildi 1. september í haust þegar þjóðþing EFTA-land-
anna hafa fjallað um hana.
hald um framkvæmd og útfærslu
samningsins um EES. Þingmenn á
ráðstefnunni eiga að hafa rétt til
að leggja fram bæði munnlegar og
skriflegar fyrirspurnir fyrir EES-
ráðið, æðstu valdastofnun svæðis-
ins. Tillagan hefur verið rædd
óformlega við utanríkisviðskipta-
nefnd Evrópuþingsins sem hefur
lagt áherslu á að samkomur þing-
manna EES megi ekki kallast þing
heldur ráðstefnur til að þeim verði
ekki jafnað við Evrópuþingið.
Fulltrúar Alþingis á fundinum í
Vín eru Jón Helgason og Vilhjálmur
Egilsson.
Sameiginlegur fundur þing-
mannanefndar EFTA með fulltrú-
um Evrópuþingsins verður haldinn
í Reykjavík 18.-20. júní
næstkomandi.
Góöar gjafír
fyrir þá sem þyrstir
í fróðleik
Námsmenn!
til hamingju meb daginn...
Nú fara þeir dagar í hönd sem hvað flest ungmenni
landsins standa á tímamótum í lífi sínu. Sum hella
sér út í lífsbaráttuna af fullum krafti en önnur horfa
til frekara náms í framtíðinni. Hvor leiðin sem valin
verður er jafn mikilvægt að við höndina séu traustir
félagar sem svara öllum spumingum sem kunna að
vakna, á ítarlegan og skilmerkilegan hátt á ISLENSKU.
Viljirðu gefa varanlega gjöf þá em ISLENSK A
ALFRÆÐIORÐABÓKiN og ÍSLANDSHANDBÓKIN
góðar gjafir og gagnlegt veganesti ungu fólki í framtíðinni.
íslenska alfræðiorðabókin er litprentuð í þremur
bindum og hefur að geyma um 37000 uppflettiorð og
lykilorð, auk um 4500 ljósmynda, teikninga og korta
og taflna sem auka upplýsingagildi hennar.
Islandsh'andbókin er rúmlega 1000 blaðsíður í tveimur
bindum. Efni bókarinnar er skipt eftir sýslum með
sýslukorti í upphafi hvers kafla, þar sem sýndir em allir
vegir og þeir staðir sem fjallað er um í texta.
1300 Ijósmyndir prýða verkið.
ÖRN OG @ ÖRLYGUR
Síðumúla 11 ■ Sfmi 84866
/