Morgunblaðið - 23.05.1991, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 1991
ATVINNUAÍ Á ■/ YSINGAR
ÆT
Islenskt bergvatn
vantar menn, vana vélum, til starfa á áfylling-
arverksmiðju fyrirtækisins. Mikil vinna.
Þeir, sem hafa áhuga, snúi sér til Rúnars
Karissonar, verkstjóra, eða Jóns Scheving,
framleiðslustjóra, fyrir hádegi föstudag.
Kennarar
Að Grunnskólanum á Hellu vantar áhugasama
kennara til kennslu í eftirtöldum greinum:
íslenska, danska.íþróttir og kennsla yngri
barna.
Upplýsingar veita skólastjóri í síma 98-75943
eða 98-75138 og formaður skólanefndar í
síma 98-78452.
Verslunarstarf
Húsgagnaverslun í austurhluta Reykjavíkur,
sem er að stækka og bæta við fólki, óskar
að ráða starfskrafta til sölu- og afgreiðslu-
starfa. Um er að ræða heilsdagsstörf, þar
sem er mjög góð vinnuaðstaða og góður
starfsandi. Leitað er að starfskröftum sem
hafa reynslu af verslunarstörfum, hafa
ánægju af að þjónusta viðskiptafólk og selja
fallegar vörur, svo sem húsgögn.
Vinsamlegast sendið eiginhandarumsókn á
auglýsingadeild Mbl. sem fyrst merkta:
„H - 7861“ með öllum þeim upplýsingum
sem máli skipta. Við svörum áreiðanlega
umsókn yðar.
Aðeins er óskað eftir umsóknum frá þeim,
sem leita að góðu og tryggu framtíðarstarfi.
Kennarastöður við
Framhaldsskólann
á Húsavík
Eftirtaldar stöður eru enn lausar til umsókn-
ar við Framhaldsskólann á Húsavík:
1. Ein kennarastaða í hjúkrunarfræði og
skyldum greinum á sjúkraliðabraut. Til
greina kemur að þjappa náminu saman í
4-6 vikna námskeið og nota sumarleyfið
í gefandi starf.
2. Einn kennarastaða í ensku og frönsku.
3. Tvær kennarastöður í sérkenslu og
kennslu þroskaheftra.
4. Ein staða raungreinakennara í 9. og 10.
bekk grunnskóla.
5. Ein staða bókasafnsfræðings eða kenn-
ara á skólasafni.
Húsnæðishlunnindi og flutningsstyrkur í
boði.
Nánari upplýsingar í símum 96-42095 og
96-41720.
Skólameistari.
Bakarasveinn
- nemi
Við viljum ráða nú þegar til starfa bakara-
svein. Leitað er að hörkuduglegum aðila,
sem hefur góða og hagnýta starfsreynslu,
er stundvís og reglusamur og á gott með
að samlagast öðru fólki. Ágæt laun eru í
boði fyrir réttan aðila.
Þá leitum við að ungum einstaklingi, sem hef-
ur áhuga á að komast á samning í bakaraiðn.
Allar nánari upplýsingar veitir Hörður Kristj-
ánsson, bakarameistari, í bakaríinu milli
kl. 9.00-12.00.
Gjaldkeri
Stórt fyrirtæki miðsvæðis í borginni vill ráða
gjaldkera til framtíðarstarfa sem fyrst.
Æskilegt að viðkomandi hafi reynslu sem
gjaldkeri i bankakerfinu.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.,
merktar: „G - 3925“, fyrir föstudagskvöld.
Starfskraftur óskast
Óskum eftir að ráða starfskraft til að vinna
við og hafa umsjón með uppvaski.
Upplýsingar gefur starfsmannastjóri á staðn-
um milli kl. 9.00 og 16.00.
*
\vOVIC(jC3LU
Sigtúni 38.
Sérfræðingur á
sviði vatnafræði
Orkustofnun óskar að ráða sérfræðing á
sviði vatnafræði til starfa við vatnamæling-
ar. Aðalverksvið verður greining, meðferð
og framsetning vatnafræðilegra gagna.
Viðkomandi þarf að hafa háskólapróf á raun-
greinasviði, svo sem í vatnafræði, verk-
fræði, veðurfræði eða skyldum greinum.
Nánari upplýsingar um starfið veitir dr. Árni
Snorrason, forstöðumaður Vatnamælinga.
Skriflegar umsóknir, sem greini aldur,
menntun og fyrri störf, skulu sendar Viðari
Á. Olsen, starfsmannastjóra, eigi síðar en
7. júní 1991.
Trq ORKUSTOFNUN
GRENSÁSVEGI 9 - 108 REYKJAVlK
Matsmaður
-frysting
Matsmaður vanur línuveiðum óskast á línu-
bát sem frystir aflann um borð.
Upplýsingar í síma 91-679308.
Atvinna
Starfsmaður óskast til að annast viðhald
málningar o.fl. á skipum og húseignum fyrir-
tækisins.
Upplýsingar í símum 651200.
Sjólastöðin hf.
1. stýrimaður
óskast á b/v Bretting NS 50. Þarf að geta
leyst skipstjóra af.
Um framtíðarstarf er að ræða.
Upplýsingar í síma 97-31143.
Blikksmiðir
Vana blikksmiði vantar á verkstæði og í úti-
vinnu. Mikil vinna. Góð laun fyrir góða menn.
Upplýsingar hjá verkstjóra. Sími 681104.
Nýja blikksmiðjan.
Trésmiðir
Óskum eftir að ráða einstaklinga eða vinnu-
flokka íinnréttingavinnu ÍRáðhúsi Reykjavíkur.
Upplýsingar í síma 622700 á skrifstofutíma.
ÍSTAK
Menntaskólinn á
ísafirði
Við Menntaskólann á ísafirði vantar kennara
í nokkrum greinum skólaárið 1991-92.
'Heilar stöður: Eðlisfræði/stærðfræði, stærð-
fræði/tölvufræði, þýska, viðskiptagreinar og
skipstjórnarfræði.
Hlutastöður: Danska, franska og enska.
Við skólann er rekið margvíslegt framhalds-
nám í öldungadeild og dagskóla, rekin útibú
um Vestfirði og farskóli.
í skólanum er góð vinnuaðstaða fyrir kenn-
ara, gott samstarfsfólk og elskulegir nem-
endur. Kennurum er útvegað húsnæði gegn
vægri leigu.
Ef þú ert góður kennari og langar til að
starfa með okkur næsta skólaár, hafðu þá
samband við undirritaðan í síma 94-4017,
eða einfaldlega sendu inn umsókn.
Umsóknarfrestur er til sunnudagsins 9. júní nk.
Skólameistari.
RADAUGÍ YSINGAR
Tli SÖLU
FJÖLBRAUTASKÚUNN
BREIÐHOLTI
Til sölu
sumarbústaður
Til sölu er mjög vandaður sumarbústaður í
byggingu við Hraunberg í Reykjavík.
Sumarbústaðurinn verður til sýnis iaugar-
daginn 25. maí 1991 frá kl. 10.00-14.00.
Fjölbrautaskólinn, Breiðholti,
tréiðnadeild.
Til sölu jarðýta
I.H. TD-15C, árgerð 1976, með „ripper" og
skekkjanlegri tönn. Vélin er í ágætu ástandi
og tilbúin í vinnu.
Upplýsingar í síma 98-66767.
KVÓTI
Rækjukvóti
Til sölu 297 tonn innan ársins eða í skiptum
fyrir fisk.
Upplýsingar í símum 96-61707 og 96-61728
(heima).
Fiskvmnslustoð KEA,
Hrísey.
ÓSKAST KEYPT
Hlutafélag óskast
Óska eftir að kaupa skuldlaust hlutafélag
sem er ekki í rekstri.
Upplýsingar í síma 46986.
NAUÐUNGARUPPBOÐ
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta á Háarifi 15, neðri hæð, Rifi, þinglýstri eign Kára
Rafnssonar og Guðbjargar 0. Þórðardóttur, fer fram eftir kröfum
Ólafs Björnssonar, lögfr., Ingibjargar Bjarnardóttur, hdl. og Bygginga-
sjóðs ríkisins, á eigninni sjálfri, fimmtudaginn 30. maí 1991 kl. 15.00.
Sýslumaöur Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu,
bæjarfógetinn í Ólafsvík.