Morgunblaðið - 23.05.1991, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 1991
39
Jensína K. Guðmunds-
dóttir — Minning
Fædd 14. október 1928
Dáin 14. maí 1991
Það var árið 1936 er ég kom inn
í 8 ára bekk í Austurbæjarskólanum
að ég tók eftir stúlkunni á næsta
borði fyrir framan mig. Það var
Didda. Didda var falleg og vel gef-
in, það gneistaði af henni lífsgleðin
og brandararnir fuku í allar áttir.
Hún var ákaflega fallega limuð og
lipur, enda alltaf best af "okkur
stelpunum í leikfimi. Seinna meir
æfði hún með fimleikastúlkum úr
íþróttafélaginu Ármanni og sýndu
þær leikfimi bæði hér og erlendis.
Bernska mín og unglingsár eru
samofin fjölskyldunni á Grettisgötu
20b. Þessi trausta, samhenta ijöl-
skylda mótaði mig á margan hátt
og gaf mér innsýn í stórt og glað-
vært fjölskyldulíf.
Mér er ljúft að minnast hjónanna
Lilju Magnúsdóttur og manns henn-
ar Guðmundar Finnbogasonar,
járnsmiðs, er ávallt tóku mér opn-
um örmum, fylltu maga minn af
mat og drykk og umvöfðu mig
ástúð og hlýju. Fyrir það vil ég svo
sannarlega þakka. Þessi samhentu,
duglegu hjón eignuðust sex börn,
en þau eru: Ragnheiður er varð
fyrir þeirri sáru sorg að missa
mann sinn fyrir rúmu ári, Sigur-
laug, gift og býr í Kópavogi, Finn-
bogi er lést langt um aldur fram,
Helga Perla, gift og býr í Reykja-
vík, Petra er býr í Bandaríkjunum
og mína kæru vinkonu Diddu, eins
og hún var kölluð og ég kveð nú
um stundarsakir.
Það var ekki annað hægt en að
laðast að þessari elskulegu stúlku.
Við urðum vfnkonur og árin liðu
við ærsl og leik. Ingimarsskólinn
tók við og áhyggjulaus unglingsárin
héldu innreið sína og fyrr en varði
hitti Didda sína einu sönnu ást, lífs-
förunautinn, Ásgeir Sigurðsson.
Þau voru fallegt par og samstillt
og hjónaband þeirra óvenju ástríkt
þar til yfir lauk. Eignuðust þau
fjóra syni, Guðmund, Kristján, Ás-
geir og Birgi, en hann er enn í
heimahúsum. Allir eru þeir mann-
kostamenn og aðdáunarvert hversu
vel þeir reyndust móður sinni í veik-
indum hennar.
Didda mín fór aldrei úr föðurhús-
um. Hún og Geiri hófu búskap sinn
á hæðinni fyrir ofan foreldra henn-
ar. í þessu húsi var aldrei neitt
kynslóðabil og jafn elskulegt að
koma hvort heldur var á efri eða
neðri hæð. Dásamlegt samspil
barna og foreldra sem varði alla tíð
meðan foreldrar hennar lifðu.
Didda var einstök mannkosta-
manneskja. Dugnaður og glaðlyndi
laðaði alla að henni svo jafnan var
þröng á þingi, mikið rætt og mikið
hlegið. Hún var einstök þessi vin-
kona mín sem alla gladdi og bætti
og aldrei kom hún svo í heimsókn
til mín að ekki væri eitthvað í vasa
hennar, sem gladdi börnin mín,
enda sögðu þau: „Didda er best.“
Fyrir rúmum þremur árum
kenndi Didda sér fyrst meins. Kom
fljótt í ljós að um illkynjaðan sjúk- -
dóm var að ræða. Á þessum þrem-
ur árum þurfti hún að gangast
undir margar skurðaðgerðir og
sumar hvetjar lífshættulegar. En
alltaf reis hún upp sterkari og
ákveðnari í að berjast til þrautar
og svo sannarlega gerði hún það
uns yfir lauk. Aldrei var kvartað
Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdðttir
Kór Rangæingafélagsins í Reykjavík og Samkór Trésmiðafélags
Reykjavíkur sungu saman.
Suðurland:
Kór Rangæingafélags-
ins í heimsókn á M-hátíð
Hvolsvelli.
KÓR Rangæingafélagsins í
Reykjavík stóð fyrir tónleikum í
félagsheimilinu Hvoli á Hvols-
velli á dögunum. Elín Ósk
Óskarsdóttir sópransöngkona er
stjórnandi kórsins. Gestur á tón-
Ieikunum var Samkór Trésmiða-
félags Reykjavíkur. Hann söng
undir stjórn Kjartans Ólafssonar.
Fjölmenni var á tónleikunum en
kórarnir sungu lög eftir ýmsa ís-
lenska höfunda. Þá sungu stjórn-
endur kóranna, þau Elín Ósk og
Kjartan, nokkur einsöngslög og lög
úr söngleikjum og óperum. Að lok-
um tóku báðir kórarnir lagið saman
og mynduðu þannig 80 manna kór.
- S.Ó.K.
og svo var kjarkurinn mikill að við
vinkonur hennar vorum jafnvel
farnar að trúa á kraftaverk og til
sanninda um það ákváðum við skól-
asystur hennar úr barnaskóla að
hittast 11. maí, eftir 49 ára aðskiln-
að. Engin hlakkaði meira til en
Didda, þó svo hún yrði að koma í
hjólastól.
En sólin hneig og 10. maí var
þessi elskulega vinkona nn'n flutt á
sjúkrahús og þaðan átti hún ekki
afturkvæmt. Enn og aftur hafði
þessi mæta kona komið góðu til
deiðar. Við skólasystur hennar hitt-
umst fyrir hennar tilstilli sem ann-
ars hefði ekki orðið. Enda þótt ég
verði aldrei sátt við þennan ótíma-
bæra aðskilnað vil ég þakka Diddu
fyrir þau gjöfulu kynni og þá hug-
ljúfu samferð sem við áttum.
Ekki get ég lokið þessu án þess
að minnast systra hennar en þær
voru óvenju samstilltar og höfðu
með sér systrakvöld. Oftar er ekki
var einhver þeirra stödd hjá Diddu
er ég kom til hennar. Ég bið til
guðs að blessa þær og styrkja, þær
hafa misst mikið.
Ég spurði Diddu fyrir alls ekki
löngu hvort hún væri sátt við líf
sitt. Hún svaraði mér að engu vildi
hún breyta. Betri mann og syni
hefði hún ekki getað átt. Þeir eru
mér allt. Svo bætti hún við: „Já líf-
ið hefur verið mér gott.“
Elsku Geiri og synir. Sárastur
er missir ykkar. Þið gerðuð það
besta sem hún gat óskað sér en
það var að gera henni kleift að
vera heima í veikindum hennar.
Guð blessi ykkur og alla ástvini
hennar. Hann gefí ykkur styrk og
frið.
Brynhildur Bjarnarson
FESTINGAR
boltarogfær, allar
gerðir og stærðir.
1
OplA frá 8—18
Laugardaga 9-13
STRANDGATA 75
HAFNARFJÖRÐUR
B 91-652965
a gutitnlme lor qualily
Wordnámskeiö • Macintosh
Word er fjölhæfasta ritvinnsluforritiö fyrir Macintoshl
© 12 klst námskeið fyrir byrjendur og lengra komna! ^
Tölvu- og verkfræöiþjónustan
V<9q Grensásvegi 16 - fimm ár fforystu
Tríumiili
VORLINAN
H-BUÐIN
HRÍSMÓUM 2, GARÐABÆ
Ijúfffengu karl
sem ereinsog
mamma gerði
Unnið úr ekta kartöflui
I GARÐINUM BYRJA HJA OKKUR
REYNSLA - RÁÐGJÖF - ÞJÓNUSTA
SÖLUFÉLAG
GARDYRKJUMANNA
SMIÐJUVEGI 5. 200KÓPAVOGUR, SÍMI 43211