Morgunblaðið - 23.05.1991, Blaðsíða 43
Gerða veiktist. Barátta Gerðu við
sjúkdóminn var mikil. Hún fór í
gegnum margvísleg tilfínningastig
og dugnaður hennar og jákvæðni
var með ólíkindum.
Fæðing og dauði eru eins og gleði
og sorg. Tveir óaðskiljanlegir hlutir.
Þjáning fyrirfinnst oft bæði við fæð-
ingu og dauða og hvort við þjáumst
og hversu mikið tel ég fara eftir
lögmáli orsaka og afleiðinga. En á
sama hátt og við getum ekki umflú-
ið dauðann þá birtist sorgin og sökn-
uðurinn í kjölfar hans. Við verðum
alltaf að muna eftir og virða lögmál
lífsins og biðja með hugrekki og
gleði fyrir hinum látnu til þess að
hjálpa þeim áfram.
Gerða var svo gæfusöm að geta
verið heima hjá ástvinum sínum síð-
ustu mánuðina sem umvöfðu hana
eftir bestu getu.
Einu sinni enn sé ég betur en
áður hversu dýrmætur hver einstakl-
ingur er. Ég mun ávallt minnast
hennar með þakklæti í hjarta.
Elsku Steini, ég sendi þér, börn-
unum og allri fjölskyldunni rnínar
bestu kveðjur.
Kakel Ólöf Bergsdóttir
Nú ertu leidd, mín ljúfa
lystigarð drottins í,
þar áttu hvíld að hafa
hðrmunga og rauna frí;
við guð þú mátt nú mæla,
miklu fegri en sól
unan og eilíf sæla
er þín hjá lambsins stól.
(Hallgr. Pétursson)
Ljúf kona er látin og ljúfar eru
minningarnar sem hún eftirlét okkur
sem söknum hennar nú svo sárt.
Þorgerður Guðmundsdóttir eða
Gerðra eins og hún var köliuð meðal
vina, var fædd 26. mars 1930 og
var því aðeins rúmlega sextug þegar
hún lést. Hún giftist Hólmsteini
Hallgrímssyni, mátarameistara og
eignuðust þau 4 börn; Sigrúnu, bú-
setta í Bretlandi, Guðmund, Hall-
grím og Guðrúnu.
Gerða var góður vinur. Hún var
gædd þeim einstöku hæfíleikum að
geta laðað að sér börn og unglinga
jafnt sem fullorðna, og ávann sér
trúnað þeirra og traust sem jafningi
— opnaði fyrir þeim heimili sitt og
hjarta. Hennar vinafjöld var ekki
neinn ákveðinn aldurshópur, hennar
faðmur var stór og skilningur henn-
ar í vandamálum æskunnar svo
óendanlegur.
Gerða og Steini hafa verið nánir
vinir foreldra minna í meira en 35
ár — sannir vinir og veit ég ekki til
að þar hafi nokkurn tíma borið
skugga á. Það eru góðar minningar
sem við eigum, fullar af gleði og
birtu — minningar frá ferðalögum
okkar innanlands sem utan. Það
voru góðar stundir.
Nú, þegar löngu og erfíðu sjúk-
dómsstríði er lokið stöndum við eftir
bræðrum og aðstandendum hans
okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Freyr Eyjólfsson,
Karl Ægir Karlsson.
Mig langar að minnast látins vin-
ar míns, Sigurjóns Axelssonar, með
nokkrum orðum. Þegar ég heyrði
þær váfréttir að Sigutjón væri lát-
inn varð ég harmi sleginn.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAI 1991
hnípin en full aðdáunar eftir að hafa
fylgst með andlegum og líkamlegum
styrk Gerðu þá undanfarna 13 mán-
uði sem hún liefur barist svo hetju-
lega við sjúkdóm sinn. Umvafin ást
og umhyggju eiginmanns og barna
auðnaðist henni að vera heima meira
og minna frá því að hún veiktist þar
til síðasti lífsneistinn íjaraði út.
Gerða lést á heimili sínu mánudaginn
13. maí, á 21. afmæiisdegi yngri
dóttur sinnar.
En líf fer og líf kemur. í svart-
asta myrkri kviknar ljós. Aðeins 5
sólarhringum eftir andlát Gerðu
fæddist fimmta barnabarn hennar,
þegar Sigrún ól son í Bretlandi.
Guð gefi öllum ástvinum Gerðu
nær og fjær styrk á þessari erfiðu
stundu. Ég og fjölskylda mín þökk-
um henni samfylgdina — það var
gott að eiga Gerðu að vini. Guð blessi
minningu hennar.
Sigrún E. Árnadóttir
Veistu
að vonin er til
hún vex
inni í dimmu gili,
og eigirðu leið
þar um
þá leitaðu
í urðinni
leitaðu á syllunum
og sjáðu
hvar þau sitja
lítil og veikbyggð
vetrarblómin
lítil og veikbyggð
eins og vonin.
(Þuríður Guðmundsdóttir)
Vonin er stórt hugtak og góður
vinur. Lítil og veikbyggð, en svo
óendanlega sterk. Við héldum í hana
allt síðastliðið ár, létum hana aldrei
frá okkur fara. Þetta fallega ljóð yin
vonina minnir mig á kæra vinkonu,
Þorgerði Guðmundsdóttur, eða
Gerðu, eins og hún var kölluð. Hún
lést hinn 13. þ.m. á heimili sínu
Háaleitisbraut 16, aðeins sextíu og
eins árs að aldri.
Gerða fæddist 27. mars 1930.
Þann 17. júní 1950 gekk hún að
eiga eftirlifandi eiginmann sinn,
Hólmstein Hallgrímsson, málara-
meistara. Börn þeirra eru Sigrún,
Guðmundur, Hallgrímur og Guðrún.
Barnabörnin eru orðin fimm. Það
verða aðrir til að rekja ættir Gerðu.
Ég ætla aðeins að hugsa til baka,
látá hugann reika.
Kynni okkar hófust fyrir meir en
40 árum með þeim hætti að nemar
á hárgreiðslustofum Kristínar Ingi-
mundar og Gróu Sigmundsdóttur
ákváðu að stofna saumaklúbb. Þá
vorum við allar í heimahúsum.
Seinna bættust fleiri í þennan hóp,
og að nokkrum árum liðnum var
•þetta orðið að stórum vinahópi. Við
giftumst allar um svipað leyti og
eiginmenn okkar urðu bestu vinir.
Þá hittumst við einu sinni í viku,
vetrarmánuðina. Öllu var miðlað og
við lærðum hver af annarri, ef ein-
hver fékk uppskrift eða gott snið,
þá var það rætt. Eiginmennirnir
náðu ávallt í okkur og voru með
okkur síðasta klukkutímann. Það
segir sig sjálft að eftir svo löng kynni
hefur rótgróin vinátta skapast í þess-
um hópi.
Þegar ég fletti myndaalbúmi okk-
ar sé ég hvað líf okkar var samtvinn-
að. Þegar börnin voru lítil var tjald-
inu og matarkassanum fleygt inn í
bíl og keyrt af stað út í náttúruna.
Þegar árin liðu þróuðust þessar ferð-
ir um öræfi landsins. Ein slík stór
ferð var farin á hverju ári. Ég sé
fyrir mér stóra topptjaldið, sem við
dvöldum öll í. Þá vorum við ung, og
allt varð okkur til gleði. Hin seinni
ár varð til leikhúshópur. Við höfðum
fasta miða í Þjóðleikhúsið og skipt-
umst á að hafa kaffi á heimilum
okkar eftir sýningu. Þá voru það
árlegar ferðir okkar að Flúðum, sem
enduðu með laxveiðidegi í Stóru-
Laxá. Við ferðuðumst einnig talsvert
til útlanda. Minningarnar um þetta
allt eru ógleymanlegar og bjartar.
Síðan Gerða veiktist fyrir rúmu
ári hefur allt breyst og ekkert verð-
ur aftur eins. Það var einmitt í síð-
ustu utanlandsferðinni okkar, sem
ógæfan dundi yfir okkur. Steini fékk
hjartaáfall og við urðum að skilja
hann eftir í fjarlægu landi. Þá kom
í ljós að Gerða gekk ekki heil til
skógar. Þetta var erfiður tími og
reyndi mikið á Gerðu.
En hver var hún, þessi kona sem
við kveðjum í dag og söknum svo
mikið? Lítil og veikbyggð eins og
vonin, en svo óendanlega sterk.
Gerða var ákaflega stillt kona og
vönduð til munns og handa. Traust-
ur vinur, sem ávallt var hægt að
leita til. Hún kunni að gleðjast með
glöðum og hryggjast með hryggum.
Þó var það æðruleysið og gjafmildin,
sem einkenndu hana mest. Hún öf-
undaði engan, gladdist yfir öllu, sem
öðrum gekk í haginn. Orðin, sem
Pétur postuli sagði við ölmusumann-
inn: „Silfur og gull á ég ekki, en
það sem ég hef gef ég þér,“ (Post-
ulas. 3. kv., 6.-7. v.), áttu vel við
Gerðu. Hún gaf það sem hún hafði
í orðsins fyllstu merkingu.
Þegar elsta barnabarnið okkar
hjóna fæddist sagði Gerða: „Ég verð
að fá að vera svolítil amma hans“
og það var hún svo sannarlega. Þá
var hún ekki orðin amma sjálf. Eini
staðurinn sem hann gisti fyrir utan
fjölskylduna var hjá Gerðu og
Steina. Og þannig var það, allt þar
til síðasta barnabarnið okkar fædd-
ist í janúar síðastliðnum, að hún,
helsjúk, studd af eiginmanni sínum,
fór að kaupa sængurgjöf handa
„prinsessunni", eins og hún kallaði
hana. Það skildi ekki verða eftir.
Fyrir rúmu ári kom í ljós að Gerða
var haldin ólæknandi sjúkdómi. Erf-
iður tími fór í hönd. Hún dvaldi lang-
dvölum á Landakotsspítala og
gekkst undir erfiða uppskurði. Það
er óhætt að segja að Steini hafi
búið þar, því hann dvaidi hjá henni
öllum stundum. Hann vék varla frá
sjúkrabeði liennar. Það var lærdóms-
ríkt að sjá kærleikann og umhyggj-
una sem hann sýndi. Hans kappsmál
var að fá hana heim, og það tókst
í desember. Þá var herbergi breytt
í sjúkrastofu og heimahjúkrun feng-
in. Þar var hún umvafín ástvinum
sínum, eiginmanni, börnum og
tengdabörnum, að ógleymdum litiu
ömmu-drengjunum.
Ég vona að ég halli ekki á neinn,
þó ég nefni Einar, unnusta Guðrún-
ar, en hann annaðist Gerðu einstak-
lega vel. Við hugsum til Sigrúnar
og fjölskyldu, sem er búsett í Eng-
landi og getur ekki verið hér til að
kveðja móður sína. Ástæðan er sú
að hún ól dreng þann 18. þ.m. og
er það þriðja barn hennar.
Élsku Steini. Við Árni sendum þér
og fjölskyldu þinni okkar innilegustu
samúðarkveðjur og biðjum Guð að
lina sorg ykkar og gefa ykkur styrk
á þessum erfíðu tímum. Guð blessi
minninguna um Gerðu.
„Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.“
(V. Briem)
Sigríður Sveinbjarnar.
Þegar ég var lítil var heimurinn
stór. Oft þurfti að fara svo víða og
skoða svo margt að allar heimsins
klukkur gleymdust. Hvort sem var
farið út í Gryfju, út á tún eða í enda-
lausa hjólreiðatúra. Þá var eins og
Gerða vissi alltaf hvað við værum
að bralla. Samt sat hún bara og
prjónaði í stólnum sínum.
Enga konu þekkti ég sem gat
prjónað eins og Gerða. Einu sinni
pijónaði hún 42 lopapeysur og fékk
kaffivé! í verðlaun. Flottari verðlaun
var varla hægt að hugsa sér og ég
kom í sérferð upp til að rannsaka
gripinn.
Éinn góðan veðurdag hætti Gerða
að pijóna og fór að vinna í búð. Þá
var ég orðin aðeins stærri. Samt
fannst mér alltaf skrýtið að hitta
hana sem búðarkonu og varð stund-
um hálffeimin.
En sem betur fer var hún áfram
Gerða uppi og Gerða var góður
granni. Það var alltaf ósköp notalegt
að kíkja upp og mala svolítið. Hún
kunni nefnilega svo vel að hlusta
hún Gerða.
Nú er hún farin frá okkur' en
minningin um hana lifir áfram.
Elsku Steini, Hallgrímur, Gunna,
Gummi og Sigrún. Fyrir hönd fjöl-
skyldu minnar sendi ég ykkur inni-
legar samúðarkveðjur. Guð blessi
ykkur.
Sessý
Ég varð þeirrar lukku aðnjótandi
snemma í barnæsku að kynnast
Sjonna, þessum hlédræga mannvini
sem vildi engum illt. Það var mikil
músík í Sjonna og áttum við marg-
ar okkar bestu stundir saman í
tengslum við það sameiginlega
áhugamál okkar. Hann var á því
sviði fyrirmynd margra samferða-
manna sinna og félaga, þar á með-
al mín.
Gamall vinur er horfinn á vit
forfeðra sinna og skilur eftir sig
djúpt tóm.
Minningarnar eru samt til staðar
um Sjonna sem mun verða mér ein-
staklega minnisstæður um alla
framtíð og mun ég sakna hans sárt.
Það býr þakklæti í bijósti mér að
hafa kynnst honum sem var bæði
gefandi og lærdómsríkt.
Ég vona að Sjonna líði vel þar
sem hann er nú staddur og þessi
fátæklegu orð hughreysti fjölskyldu
hans og ættingja í þeirri þjáningu
sem þau ganga nú í gegnum eftir
andlát hans og votta þeim niína
dýpstu samúð.
Þá ég hníg í djúpið dimma,
Drottinn, ráð þú hvemig fer.
Þótt mér hverfi heimsins gæði, —
hverfi allt, sem kærst mér er:
Æðri heimur, himna faðir,
hinumegin fagnar mér.
(M. Joch.)
Ég gestur er i heimi hér,
tíðin líður, boð ei bíður.
Senn ég heim til feðra fer.
(V.Briem)
Gunnar Örn Hannesson
Siguijón Axelsson var skólafé-
lagi okkar í Menntaskólanum við
Sund síðastliðna tvo vetur. Hann
er nú horfinn af sjónarsviðinu langt
fyrir aldur fram. Það er erfitt fyrir
okkur skólafélgana að átta okkur
á slíkum kaflaskilum og sætta okk-
ur við að einn úr okkar hópi skuli
ekki lengur vera virkur þátttakandi
í daglegu starfi innan veggja skól-
ans og margvíslegu félagslífi.
Allt frá því að Siguijón Axeisson
hóf nám við MS, var hann virkur
þátttakandi í félagslífi skólans en
flestir nemendur MS kynntust hon-
um fyrst og fremst sem fjölhæfum
tónlistarmanni. Hæfileikar Sjonna
á tónlistarsviðinu fóru ekki fram
hjá neinum skólafélaganna hvorí
sem það var hin frábæra rödd hans
þegar hann var að syngja frumsam-
in lög og texta eða einstök næmni
hans fyrir tónlistinni sem hann fékk
útrás fyrir í gegnum svartan Gibs-
on-gítarinn.
Tónlistargáfa Sjonna var einstök;
„Homesick jazz“ og hin lögin sem
hann samdi munu lifa áfram í hug-
um okkar skólafélaganna. Það á til
dæmis við um lagið hans, Ævintýri
úr Breiðhoiti, sem hann flutti í
Söngvakeppni MS eftir að félagar
og vinir höfðu skörað á hann að
taka þátt í henni. Þeir sem sáu
uppfærslu Leiklistarfélags MS á
Þrettándakvöldi Shakespeare síðst-
liðinn vetur gleyma seint snilld-
arlegum tónlistarflutningi Sjonna
og Bjarka í þeirri sýningu.
Ég var svo heppinn að kynnast
Sjonna persónulega fljótlega eftir
að hann hóf nám í MS og spilaði
með honum á árshátíðum, tónlistar-
kvöldum að ógleymdum ótal
skemmtistundum með kassagítar-
ana í húsakynnum Nemendafélags-
ins í skólanum. Þessar samveru-
stundir voru mér og öðrum kunn-
ingjum hans og vinum mjög
ánægjulegar og þrátt fyrir hóg-
værðina hafði hann ótrúleg áhrif á
okkur sem umgengumst hann. Þau
áhrif firnast ekki þótt hann sé horf-
inn á braut.
Af hálfu nemenda Menntaskól-
ans við Sund færi ég foreldrum
Siguijóns, systkinum og öðrum
vandamönnum okkar innilegustu
samúðarkveðjur og vona að minn-
ingarnar um ljúfan dreng og mikinn
hæfileikamann verði þeim eins og
okkur skólafélögum hans styrkur á
sorgarstund.
Fyrir liönd skólafélags MS,
Ragnar Helgi Ólafsson,
ármaður.
43
RAYMOND WEIL
GENEVE
L E TEMPS CRÉATEUR
FIDELIO
Sígild hönnun, handunnið,
með 18 K. gullhúð, vatnsþétt.
Einnig til í dömustærð með
eða án steina.
Otskriftargjöfin í ár
MEBA,
úra- & skartgripaverslun
Kringlunni, simi 31199
Sveitarfélagió
Syðri-Þrændalög.
Héraðssjúkrahúsið
Þrándheimi
SkurAstofudeild - Bæklunarsjúkdómar:
SÉRMENNTAÐIR HJÚKRUNARFR/EÐINGAR
(nr. 358/91)
HJÁLP!!! BÆKLUNARDEILD-
INA VANTAR
TILFINNANLEGA
SKURÐSTOFUHJÚKR-
UNARFRÆÐINGA.
I sambandi við endurbyggingu/endurbætur
deildarinnar fjölgar stöðum sérmenntoðra hjúkr-
unarfræðinga úr 18 í 26. 4 af þessum stöðum
eru núna lousor. Ennfremur fara tvær af sér-
menntuðum hjúkrunarfræðingum okkar i fæð-
ingarfri, önnur i júni og hin í september. Þar
að auki ætlar ein til Svalbarðo í haust til
tveggja óra dvalar.
Bæklunordeildin þjónor öllum sérgreinum bækl-
unarlækninga, þ.e.a.s. annast allar skurðaðgerð-
ir vegna sjúkdóma og slysa ó beinum og
vöðvum.
Við fromkvæmum oðgerðir ð um 3000 sjúkling-
um ó óri. Deildin hefur 5 1/3 skurðstofur, og
þegar búið verður að róða í ullar stöður er
ætlunin að nota eino stofuna til að sinna ein-
göngu bráðotilfellum að degi til.
Vaktskrá er samin til 9 vikna með vakt 3.
hverja helgi. í hverjum vakthóp eru 3 sérmennt-
aðir hjúkrunarfræðingar.
Nánari upplýsingar um deildina má fá hjá
yfirhjúkrunarfræðingi eða Gro Langnes, deildar-
hjúkrunarfræðingi, í sima +45 7 99 83 91.
Laun samkvæmt samningi sambands sveitarfé-
laga og norska hjúkrunarfræðingafélagsins. Eft-
irlaunasjáður sveitarfélaga.
Umsókn auðkennd umsóknarnr., afrit af vottorð-
um, meðmæli og opinber viðurkenning sendist
Personalseksjonen, Regionsykehuset í Trond-
heim, 7006 Trondheim, Norge. Nr. ó að nota
þessu víkjondi.
Vinsamlegast nefnið minnst 2 persónur sem
hægt er oð snúa sér til (referansepersoner).
Storfið þarf að hefjast í síðasta lagi 3 mánuð-
um eftir umsókn ef annað er ekki tekið fram.
Upplýsingar um heilsufar og nýleg berklapráf
þarf að leggja fram áður en starf er hofið.
Umsóknarfrestur er til 13. júní 1991.
T—Jöfðar til
XAfóIks í öllum
starfsgreinum!
IMflyjpniMafoíifo