Morgunblaðið - 23.05.1991, Side 46
SIEMENS
Kæliskápur á kostaverði!
KS 26V00
• 148 x 60 x 60 sm (hæð x breidd x dýpt).
• 189 lítra kælirými.
• 67 lítra fjögurra stjörnu frystihólf.
Afborgunarverð: 55.900,- kr.
SMrTH & NORLAND
NÓATÚNI4-SÍMI28300
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 1991
í Napólí tók Ingi Gunnar lagið fyrir nokkrar ítalskar stúlkur, og söng fyrir þær „O, sole mio“ sem
þær kunnu vel að meta og sungu með af innlifun.
Með aukinni umfjöllun um
mengun og umhverfisvernd
virðast augu heimsins beinast í
síauknum mæli að íslandi sem eft-
irsóknarverðum ferðamannastað.
Erlendum ferðamönnum fjölgar
með ári hveiju og hefur aukning á
ítölskum ferðamönnum verið veru-
leg. Fyrr í vor gengust Flugleiðir
fyrir viðamikilli Islandskynningu í
átta stærstu borgum Ítalíu, þar
sem land og þjóð voru kynnt sölu-
mönnum á ferðaskrifstofum.
Nýr umboðsaðili Fþugleiða á Ítalíu,
Cimair, skipulagði íslandskynning-
una og var það Richard Gugerli,
yfirmaður söluskrifstofu Cimair,
sem hafði veg og vanda af undir-
búningnum. Sölumönnum frá ferð-
askrifstofum var boðið í veislur í
ráðstefnusölum hótela í þeim átta
borgum sem heimsóttar voru. Þar
héldu fulltrúar Flugleiða mynda-
sýningu, fjölluðu um land og þjóð
og svöruðu fyrirspurnum. Ingi
Gunnar Jóhannsson, tónlistarmað-
ur og meðlimur í hljómsveitinni
Islandica, var með í hópnum og
söng íslensk þjóðlög fyrir gestina.
Á hveijum stað var happdrætti þar
sem einn veislugesta fékk vikuferð
til Islands í verðlaun. Aukavinning-
ar voru bakpokar frá Flugleiðum
og geisladiskur með hljómsveitinni
Islandicu.
„ítalir, sérstaklega á Norður-
Italíu, sýndu landkynningunni mik-
inn áhuga,“ sagði Ingi Gunnar í
samtali við Morgunblaðið. Varð-
andi tónlistina, sagði hann að ítal-
irnir hafi kunnað sérstaklega vel
við lög með hröðum og ákveðnum
takti, eins og Ríðum, ríðum, Suður-
Áður en myndasýningin hófst var gestum boðið uppá mat og
drykk.
nesjamönnum, og þess háttar lög-
um. Hann sagði að sums staðar
hefði myndast mikil og góð
stemmning og gestir hefðu klappað
í takt við tónistina. „í stórborgun-
um á Norður-Italíu er mengunin
gífurleg og þess vegna ekki að
undra að þar skuli fólk hafa áhuga
á að fara í frí til íslands,“ sagði
Ingi Gunnar. Hann sagði að í kynn-
ingunni hefði verið lögð mest
áhersla á náttúru landsins auk þess
sem möguleikar á ferðalögum á
Islandi hefðu verið kynntir.
Stúdentastj aman,
14 karat gull, hálsmen eða prjónn.
Verð kr. 3.400
Oön Sípunílsson
Skúrtjripavenrlun
LAUGAVEG 5 - 101 REYKJAVÍK
SÍMI13383
fclk ■
fréttum
FERÐAMAL
Islandskynning á Italíu
TISKUSYNING
- *
'.Iriiiiniili
í NAUSTKJALLARANUM
FIMMTUDAGINN 23.5.
SÝND VERÐA UNDIRFÖT
FRÁ VERSLUNINNI LONDON
MÓDELSAMTÖKIN SÝNA.
NAUSTKJALLARINN
Það fjölgaði ærlega...
FRJÓSEMI
Það fjölgaði ærlega í Sidney
Gráu hárunum í kollum
starfsfólksins í Baulkham
Hill fæðingarheimilinu í Sidney
í Ástralíu fjölgaði verulega á
dögunum, því þá gerðust þau
undur og býsn, að fimm mæður
eignuðust allar tvíbura í sömu
vikunni, en annað eins hefur
ekki gerst þar um slóðir í manna
minnum. Við það bættist, að
óvenjulega mikið var að gera
svona yfirleitt og því fékk
starfsfólkið svo sannarlega að
vinna fyrir kaupinu.
Á meðfylgjandi mynd má sjá
ungahópinn sem er hinn glæsi-
legasti eins og sjá má. Þegar
myndinni var smellt af höfðu
öll litlu krílin hlotið nafn, en
þau heita, talið f.v., Sarah,
Kurt, Jennifer, Michel, Jason,
Ben, Delene, Brena, Benjamin
og Luke.
STÚÐENTA FA GNA Ð UR VÍ
Stúdentafagnaður Stúdentasambands VÍ verður haldinn laugardaginn 25. maí í Átthagasal Hótels Sögu og hefst
með borðhaldi kl. 19.30. Aðgöngumiðar fást á skrifstofu Verzlunarskóla íslands og við innganginn.
Nauðsynlegt er að tilkynna þátttöku í borðhaldinu til fulltrúa viðkomandi afmælisárgangs fyrir föstudaginn 24. maí.
Stjórnin.