Morgunblaðið - 23.05.1991, Qupperneq 52
52
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 1991
SMÁÞJÓÐALEIKARNIR í ANDORRA
Sund-
menn-
imir
fengu
fjögur
gull
SUIMDLAIMDSLIÐIÐ vann til níu
verðlauna á fyrsta keppnisdegi
sundsins á Smáþjóðaleikunum
í Andorra. Sundmennirnir voru
þó langt frá sínu besta, enda
hafa þeir ekki æft á fullum
krafti fyrir Smáþjóðaleikana.
„Við förum héðan í æfinga-
búðirtil Frakklands. Takmarkið
er að vera komin í sem besta
æfingu í ágúst, en þá fer Evr-
ópumeistarakeppnin fram í
Aþenu,“ sagði Magnús Ólafs-
son, sem fékk gull í 100 m
skriðsundi — kom í mark á
tímanum 53,24 sek.
Helga Sigurðardóttir varð sigur-
vegari í 100 m skriðsundi
kvenna á 1:00,45 mín., en Bryndís
Olafsdóttir varð í þriðja sæti á
1:01,28 mín.
Ragnheiður Runólfsdóttir varð
sigurvegari í 200 m fjórsundi
kvenna á tímanum 2:29,23 mín.,
en Arna P. Sveinbjörnsdóttir varð
önnur á 2:33.28 mín.
Arnar Freyr Ólafsson varð þriðji
í 200 m fjórsundi karia á 2:16,91
mín. og Arnþór Ragnarsson fimmti
á 2:19.72 mín.
Eðvarð Þór Eðvarðsson varð sig-
urvegari í 200 m baksundi karla á
2;13.08 mín., en hann á Smáþjóða-
metið — 2:07.54 mín., sem hannn
setti 1987.
Ævar Örn Jónsson varð annar á
2:13,73 mín.
Elín Sigurðardóttir varð fimmta
í 200 m baksundi kvenna á 2:39,16
mín.
Ragnheiðúr Runólfsdóttir varð
önnur í 200 m bringusundi kvenna
á 2:42.08 mín., eh hún á Smáþjóða-
metið — 2:35,87 mín., sem hún
setti 1989.
Arnþór Ragnarsson varð fjórði í
bringusundi karla á 2:28,14 mín.,
en Oskar Guðbrandsson varð sjötti
á 2:36.02 mín.
Magnús Ólafsson og aðrir
sundkappar stóðu sig vel á
sundmótinu í gær þrátt fyrir að
ekki næðist að setja íslands-
met.
Tvær
bráðefni-
Sigurborg jafnaði
landsleikjametið
Er á förum til Noregs, þar sem hún mun leika blak og stunda nám í tölvufræði
SIGURBORG Guðmundsdóttir,
blakkona úr Breiðabliki, jafnaði
landsleikjametið í blaki kvenna
íleikgegn Lúxemborg. Húnlék
sinn 34 landsleik og jaf naði
metið sem Málfríður Pálsdóttir
átti.
það í tvö ár. „Stúlkurnar björguðu
oft glæsilega skellum niður við gólf,
en það voru slæmar móttökur sem
fóru mest með leik þeirra.
Stúlkurnar leika gegn Kýpur í
undanúrslitum. „Ég reikna ekki
með sigri gegn Kýpur, sem hefur
besta liðið hér. En allt gengur upp
þá eigum við möguleika á að hreppa
þriðja sætið og brons,“ sagði Sig-
urður.
austan
jt
Íslenska kvennalandsliðið í blaki
er skipað mjög ungum leikkon-
um, sem eiga framtíðina fyrir sér.
Yngstu stúlkurnar koma báðar að
austan, nánar tiltekið frá Neskaup-
stað — þær Jóna Harpa Viggós-
dóttir og Jóna Lind Sævarsdóttir,
sem leikur nú með meisturum
Víkings í Reykjavík.
„Það hafa komið margar góðar
blakkonur úr liði Þróttar í Neskaup-
stað. Jóna Lind er ein þeirra. Hún
er mjög öguð leikkona og gefur
allt sem hún á í leikinn,“ sagði Sig-
urður Hafsteinsson, þjálfari blak-
landslið kvenna.
Jóna Harpa Viggósdóttir og Jóna
Lind Sævarsdóttir eru báðar frá Nes-
kaupstað.
Guðmundur H. Þorsteinsson
Blakararmr Særún Jóhannesdóttir, Oddný Erlendsdóttir og Sigurborg Gunnarsdóttir. Sigurborg jafnaði leikjametið
þegar hún lék sinn 34 landsleik í gærkvöldi.
legar að
Ekki fagnaði hún þessum tíma-
mótum með sigurleik, því að
Lúxemborg vann, 3:1. „Þetta var
skemmtilegur baráttuleikur, en því
miður fórum við ekki með sigur af
hólmi. Leikmenn Lúxemborgar eru
stærri en við og sterkari. Þeir skella
fast, en við erum aftur á móti með
minni og sneggri leikmenn," sagði
Sigurborg, sem hefur hug á því að
fara til Noregs næsta vetur, þar sem
hún ætlar að stunda nám í tölvu-
fræði og að sjálfsögðu að leika blak.
„Það er ekkert ákveðið með hvaða
liði ég mun koma til með að leika."
Stúlkurnar töpuðu fyrstu hrin-
unni, 6:15, en komu síðan ákveðnar
til leiks og unnu aðra hrinuna,
17:15. Lúxemborg vann þriðju hrin-
una létt, 15:2, en fjórða hrinan var
fjörug. íslensku stúlkurnar veittu
Lúxemborgarstúlkunum þá harða
keppni, en þegar staðan var, 7:9,
kom slæmur leikkafli og Lúxem-
borgarstúlkurnar gengu á lagið og
unnu, 8:15.
„Stúlkurnar léku þennan leik vel
og það var góð barátta í liðinu,"
sagði Sigurður Þráinsson, þjálfari
kvennaliðsins, en hann hefur þjálfað
Knattspyma verður
a leikunum a Moltu
Verður að vera til að vekja áhuga heimamanna á leikunum
MALTA heldur Smáþjóðaleik-
ana næst, eða eftir tvö ár —
1993. Mótið fer síðan fram í
Lúxemborg 1995 og það kem-
ur í hlut íslendinga að halda
leikana 1997.
Guðfinnur Ólafsson hjá
Ólympíunefnd íslands, sagði
í samtali við Morgunblaðið að
Möltumenn ætla að láta keppa í
knattspyrnu — þannig að íslensk-
ir knattspyrnumenn taka þátt í
Samáþjóðaleikunum 1993.
„Knattspyrna er vinsælasta
íþróttagreinin á MÖltu og segja
Möltuinenn að ef knattspyrna
verði ekki á ieikunum — verði
lítill sem enginn áhugi fyrir þeim
hjá fólki. Leikarnir eru alltaf að
verða stærri og stærri í sniðum
og íþróttagreinum fjölgar jafnt
og þétt á þeim,“ sagði Guðfinnur
Ólafsson.
íslenska Ólympíunefndin legg-
ur mikla áherslu á að íslensku
íþróttamennirnir stendi sig sem
best hér ( Andorra og vonast
menn eftir að íslendingar nái að
stöðva sigurgöngu Kýpurmanna.'
Atll Eðvaldsson, fyrirliði íslenska
landsliðsins. Verður hann með á
næstu leikum á Kýpur?
Einar keppir ekki í
Bratislava og Moskvu
Einar Vilhjálmsson, spjótkastari
ætlar að hætta við að keppa í
Grand Prix-keppni í Bratislava í
Tékkóslóvakíu og í Moskvu. Keppn-
in í Bratislava verður 4. júní og í
9. júní verður keppt í Moskvu. Sig-
uijón Sigurðsson, læknir Ólympíu-
nefndarinnar, mun athyga meiðsli
Einars í dag, en eins og hefur kom-
ið fram tóku gömul meiðsli í hné
sig upp hjá Einari í spjótkasts-
keppninni hér á Smáþjóðaleikunum
í Andorra, sömu meiðsli og hafa
htjáð hann í tvö ár.
„Þetta _eru svipuð meiðsli í hné
eins og Ólafur Þórðarson, knatt-
spyrnumaður, átti við að glíma. Það
eb hnéskeljarsin sem er að gefa sig,“
sagði Siguijón læknir um meiðsli
Einars í gær.
Björg
Björg skor-
aðimest
Björg Hafsteinsdóttir frá Keflavík skoraði
mest þegar íslenska kvennalandslið lagði
Möltu, 68:35. Anna María Sveinsdóttir skoraði
16 stig, en aðrar sem skoruðu voru þær María
Sturlaugsdóttir 14, Linda Stefánsdóttir 6, Guð-
björg Norðfjörð 7, Vigdís Þórisdóttir 2, Vanda
Sigurgeirsdóttir 2.
Islensku stúlkurnar, sem höfðu yfir, 27:22,
í leikhléi, yfirspiluðu stúlkurnar frá Möltu í
seinni hálfleik.
Karlalandsliðið lék ekki í gær.