Morgunblaðið - 23.05.1991, Blaðsíða 53
MORGUNBLÁÐIÐ
IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 1991
53
SMAÞJOÐALEIKARNIR I ANDORRA
Hart barist yið Kýpurmenn 1 slendingar koma til með að beijast við Kýpurmenn um 1 hvorir fái fleiri verðlaunapeninga á Smáþjóðaleikunum. Kýpur hefur fengið flest verðlaun á síðustu tveimur mótum. Nú hafa íslendingar fengið níu gull, níu silfur og þijú brons, þegar tveir keppnisdagar eru búnir. Kýpur hefur fengið fimm gull, eitt silfur og sex brons. Fjórir festust ílyftu ■JJ jórir kraftakarlar festust í lyftu á ■ hótelinu, þar sem íslensku íþrótta- mennirnir búa á hér í Andorra. Það voru þeir Sigurður Einarsson, Einar Vil- hjálmsson, Eggert Bogason og Sigurður Bergmann, júdókappi. Eggert Guðmundur sparaði FRÍ fimmtán þús. kr. uðmundur Karlsson, sleggjukastari, sparaði Fijáls- Wi íþróttasambandinu fímmtán þúsund krónur í gær, þeg- ar hann óskaði eftir að fara í iyfjapróf í Andorra. Guðmund- ur óskaði eftir því í kjölfarið á íslandsmeti sínu, sem hann setti í Hafnarfirði um sl. helgi, en allir þeir sem setja íslands- met verða að fara í lyfjapróf.
4íVOorra
MKKI og Ólympínefnd íslands
hafa krafist þess að mótshaldarar
í Andorra greiði þeim 80.000 pe-
seta, eða sem nemur um 40.000
íslenskum krónum vegna ferða-
kostnaðar Kristins Albertssonar
körfuknattleiksdómara. Hann fór á
mótið til að dæma en fær síðan
ekkert að dæma og því vilja íslend-
ingar fá endurgreiddan ferðakostn-
að hans.
MEin stúlka í körfuknattleiksliði
Kýpur virðist vera ólögleg. Forráða-
menn liðsins hafa ekki getað sýnt
fram á að hún hafí verið búsett í
þijú ár á Kýpur, en það þarf til að
vera löglegur. Kýpurbúar hafa frest
til kl. 11 { dag til að sanna mál
sitt og ef það tekst ekki verður
íslensku stúlkunum dæmdur sigur
gegn þeim, en þær töpuðu leiknum,
og leika þá til úrslita við Lúxem-
borg.
MBJÖRN Guðbjartsson hefur
dæmt tvo blakleiki hér. Fyrst leik
Kýpur og Möltu og í gær dæmdi
hann leik San Marino - Möltu.
MKARLALIÐIÐ í blaki tapaði
fyrir Lúxemborg í gær í þremur
hrinum, 6:15, 5:15 og 9:15. Áður
hafði liðið tapað fyrir Liechtenstein
með sama mun.
BTennismennirnir Einar Sigur-
geirsson og Atli Þorbjörsson töpuðu
í gær í tvíliðaleikskeppninni í tennis.
MTVEIR skotmenn hófu keppni í
haglabyssuskotfimi í gær. Það voru
þeir Gunnar og Theódór Kjartans-
synir. Þeir fengu það hlutverk að
skjóta á 75 leirdúfur. Gunnar hitti
67, sem var fjórði besti árangur og
Theódór náði að hitta 56.
MALLS taka 685 íþróttamenn þátt
í Smáþjóðaleikunum. Flestir koma
frá Kýpur, eða 119. Andorra er
með 106 íþróttamenn, en íslending-
ar eru 87 talsins.
M GUNNAR Guðmundsson
tryggði sér silfurverðlaun í 400 m
hlaupi, er hann kom í mark á tíman-
um 48,29 sek., en sigurvegari var
Marcoullides frá Kýpur, sem fékk
tímann 47,27 sek. „Ég átti ekki
möguleika gegn honum. Hann er
það sterkur," sagði Gunnar, sem
var ánægður með árangur sinn. „Ég
hef átt við meiðsli að stríða og hef
aðeins haft einn mánuð til að gera
mig kláran fyrir keppnina hér.“
MEGGERT Bogason kringlu-
kasstari er að reyna að fá inni á
mótinu í Sevilla, þar sem spjótkast-
ararnir Sigurður Einarsson og Ein-
ar Þór Einarsson fara til að keppa á.
MSUNDLANDSLIÐIÐ fer í æf-
ingabúðir til Frakklands, þar sem
sundmennirnir verða í þrjár vikur
eftir keppnina í Andorra.
MJÓN Oddson tók þátt í
þrístökkskeppninni í gær og hafn-
aði hann í fjórða sæti. Jón stökk
lengst 14.21 m, en sigurvegarinn
stökk 16.52 m.
- tok þátt í 100 m grindahlaupi og 200 m hlaupi með
stuttu millibili og vann gull í báðum greinunum
„GUÐRÚN sýndi geysilega
keppnishörku í 200 m hlaupinu.
Hún var sex metrum á eftir
hinum stúlkunum þegar 50 m
voru eftir í mark, en með f rá-
bærum lokaspretti náði hún að
tryggja sér sigur,“ sagði Stefán
Jóhannsson, frjálsíþróttaþjálf-
ari, eftir að Guðrún Arnardóttir
vann 100 m grindahlaup og 200
m hlaup strax í kjölfarið.
etta var nokkuð strembið en
geysilega skemmtilegt,“ sagði
Guðrún sem vann 100 metra
grindahlaupið á miklum enda-
spretti, hljóp á 14,19 sek, sem er
Smáþjóðamet. Þórdís Gísladóttir
varð fimmta á 14,95 sek.
Strax eftir hlaupið fór Guðrún
til að taka þátt í 200 m hlaupi, en
þar keppti hún vegna meiðsla Geir-
laugar B. Geirlaugsdóttir, en Guð-
rún er ekki þekkt fyrir að hlaupa
200 m, en hennar sterkustu greinar
eru grindahlaup og 100 m hlaup.
Guðrún sigraði, kom í mark á
24,72 sek., en í öðru sæti varð
Constantinou frá Kýpur á 24,79
sek. „Ég hef best náð áður 24,09
sek. í 200 m hlaupi, en það var
tekið á handklukku,“ sagði Guðrún,
sem kom, sá og sigraði.
Guðmundur
ogPétur
settuSmá-
þjóðamet
Tvöfalt hjá sleggju- og kúluvörpurunum
Sigurvegarar í köstum
Pétur Guðmundsson og Guðmundur Karlsson sigruðu í sínum grein-
um á Smáþjóðaleikunum í Andorra í gær. Pétur í kúluvarpi og
Guðmundur í sleggjukasti.
ivuicuuan oiyui, uœui ■ uuiu-
varpi og í sleggjukasti á Smá-
þjóðaleikunum í gær.
Hitinn var óþolandi á meðan á
keppninni stóð og einnig var
kringlukastshringurinn óþolandi,"
sagði Guðmundur Karlsson,
sleggjukastari, sem
varð sigurvegari í
sleggjukastskeppn-
inni á Smáþjóðaleik-
unum í Ándorra í
gær, en Eggert Bogason varð í
öðru sæti.
„Hringurinn er nýr og er hann
SigmundurÓ.
Steinarsson
skrifarfrá
Andorra
Guðrún kom,
sá og sigraði
mjög sleipur og við áttum í erfiðleik-
um með að fóta okkur í honum,“
sagði Guðmundur, sem náði ekki
að bæta Islandsmet sitt eins og
hann vonaðist eftir. Guðmundur
setti þrjú Smáþjóðamet — kastaði
sleggjunni 61.44 m, 62.02 m og
63.64 m, sem var ekki langt frá
meti hans — 64,42 m. Guðmundur_
náði einu kasti, sem var 64.90 m,
en hann rann til í hringnum og
kastaði sleggjunni út fyrir kast-
geirann. Eggert Bogason, sem varð
annar, var samt á undan Guðmundi
að setja Smálþjóaðmet, þar sem
hann kastaði á undan honum —
53.78 m, en lengsta kast hans var
55.04 m. „Það var aðalatriðið að
vinna tvöfalt,“ sagði Eggert.
Einnig tvöfalt í kúluvarpi
Bræðurnir Pétur og Andrés Guð-
mundssynir héldu merki íslands á
lofti í kúluvarpskeppninni, en þeir
röðuðu sér í tvö efstu sætin. „Það
var erfitt að kasta úr hringnum,
sem var háll sem áll. Ég varð að
skipta um skó nokkrum sinnum til
að geta fótað mig í hringnum,"
sagði Pétur, sem kastaði lengst
allra, eða 18.61 m. „Ég tognaði á
vöðva í brjóstkassa í fyrsta kasti
mínu og það háði mér,“ sagði Pét-
ur, sem hefur einnig verið með
flensu. Andrés kastaði kúlunni
17.11 m. Pétur tekur þátt í kringlu-
kasti á morgun, en síðan halda
þeir bræður til Grenada, þar sem
þeir taka þátt í alþjóðlegu móti.
„Það var gott að bæta Smáþjóða-
metið, sem ég setti í Mónakó 1985
er ég kastaði 18.53 metra,“ sagði
Pétur.
Næsta
stérverk-
efnierí
Portúgal
Næsta stórverkefni hjá
íslenskum fijálsíþrótta-
mönnum er Evrópumótið í Port-
úgal, þar sem einn maður kepp-
ii' í hverri grein. „Við förum
fyrst til Bretlandseyja og kepp-
um þar gegn landsliðum Skot-
lands, Wales, írlands og
Norður-írlands. Við höldum í
þessa ferð um miðjan júní,“
sagði Guðmundur Karlsson,
sleggjukastari.