Morgunblaðið - 19.10.1991, Síða 43
43
MORftUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 1991
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD KARLA
Ævintýraleg
lokamínúta
- þegar bikarmeistarar ÍBV náðu jafnaði
gegn íslandsmeisturum Vals
ÍBV náði jafntefli, 29:29, gegn
íslandsmeisturum Vals á ævin-
týralegan hátt eftir að hafa
verið þremur til fimm mörkum
undir mest alian leikinn.
að voru Eyjamenn sem byijuðu
betur og höfðu frumkvæðið
mest allan fyrri hálfleik, en undir
lok hans sigu Vals-
Sigfús menn framúr og
Gunnar náðu þriggja maka
Guðmundsson forskoti J leikhléi.
s ,ar _ Það blés ekki byr-
lega fyrir ÍBV í upphafi seinni hálf-
leiks því Valsmenn skoruðu úr
fyrstu sókninni.
Gestimir héldu forskotinu þang-
að til 3 mín. voru eftir, fram að
því höfðu Eyjamenn verið iðnir við
að skjóta í þverslá Valsmarksins
og einnig varði Guðmundur Hrafn-
kelsson á mikilvægum augnablik-
um. En heiliadísirnar snérust á band
með ÍBV undir lokin og náði að
minnka muninn í 27:28 þegar 80
sek. voru eftir. En Valdimar Gríms-
son gerði vonir heimamanna engu
héldu flestir er hann gerði 29. mark
Vals þegar 50 sek. voru eftir.
Leikmenn ÍBV gáfust ekki upp,
minnkuðu muninn í eitt mark þegar
29 sek. vora eftir. Zoltan Belany
stal boltanum frá Valdimari þegar
14 sek. voru eftir og endaði sókn
Eyjamanna með því að Gylfí Birgis-
son braust í gegn og skoraði þegar
aðeins 6 sek. voru eftir. Þess má
geta að Valsmenn vora tveimur
færri þegar Gylfí gerði jöfnunar-
markið.
Hjá ÍBV var Ungverjinn, Belany,
í hominu mjög skemmtilegur og er
hann mikill styrkur fyrir liðið. Einn-
ig átti Gylfi góðan leik. Guðfinnur
átti ágæta spretti og gerði nokkur
mikilvæg mörk.
Hjá Val klikkaði. Valdimar ekki
í hominu en lét þó tvívegis reka sig
útaf og missti boltann í lokin á
mikilvægu auganbliki. Guðmundur
Hrafnkelsson varði oft ágætlega
sem og Sigmar Þröstur.
„Það var mjög gott að ná jöfnu
þar sem við voram komnir fimm
mörk undir og áttum á brattan að
sækja,” sagði Gylfi Birgisson, leik-
maður ÍBV. „Þetta sýnir góða bar-
áttu í liðinu og við erum að ná upp
leikæfingu. Við verðum samt að
vinna betur úr því þegar menn eru
teknir úr umferð. En við erum von-
andi komnir í gang.”
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Handagangur í öskjunni í viðureign KA og FH í gærkvöldi — fyrsta leiknum í nýju og glæsilegu íþróttahúsi KA.
Kristján Arason liggur ofan á KA-manninum Arna Stefánssyni, en Alfreð Gíslason fórnar höndum.
Mm
FOLX
■ ÞÓRHALLUR Höskuldsson,
sóknarprestur í Akureyrarkirkju,
blessaði KA-húsið fyrir leikinn í
gærkvöldi, hvatti til drengilegrar
keppni og sagðist vona að starfsem-
in í húsinu yrði sál og líkama tii
framdráttar. _
H HALLDÓR Jónsson, bæjar-
stjóri á Akureyri, var heiðursgest-
ur KA á leiknum.
■ KA-HÚSIÐ var blómum skrýtt
í gær í tilefni dagsins — mikill fjöldi
blóma barst frá hinum ýmsu félög-
um og fyrirtækjum.
■ ARRIGO Sacchi, fyrram þjálf-
ari AC Mílanó, var í gær ráðinn
landsliðsþjálfari ítala í knattspymu
í stað Azeglio Vicini. Sacchi hefur
í hyggju að gera miklar breytingar
á leikskipulagi ítalska liðsins. Vic-
ini var rekinn í kjölfar þess að
landsliðið náði aðeins jafntefli gegn
Sovétríkjunum og þar með urðu
möguleikar ítala á að komast í
úrlitakeppni Evrópumótsins í Sví-
þjóð nánast að engu. Sovétmenn
þurfa aðeins að ná jafntefli gegn
Kýpur til að tryggja sér sigur í riðl-
inum.
KA-menn töpuðu á
„frumsýningunni”
„ÉG er mjög ánægður með sigurinn. FH-liðið lék góðan hand-
bolta í40 mínútur og það dugði. Leikmenn KA hafa líklega verið
mjög spenntir í leiknum og gerðu því of mikið af einföldum mis-
tökum, sem við nýttum okkur vel með hraðaupphlaupum,” sagði
Kristján Arason, þjálfari og leikmaður með FH, eftir að lið hans
sigraði KA, 33:28, ífyrsta leik í hinu nýja og glæsilega íþrótta-
húsi KA á Akureyri í gærkvöldi.
Það kom í hlut Guðmundar Guð-
mundssonar, línumanns í liði
KA, að vígja netamöskvana — hann
gerði fyrsta markið
af línu eftir send-
ingu Alfreðs Gísla-
sonar. KA-menn
höfðu undirtökin og
náðu fljótlega tveggja marka for-
ystu en um miðjan hálfleikinn, þeg-
ar staðan var 7:6, kom hroðalegur
leikkafli þeirra og FH-ingar gerðu
átta mörk í röð. „Þetta var mjög
lélegt hjá okkur. Við töpuðum bolt-
anum hvað eftir annað og þeir
Anton
Benjamínsson
skrífarfrá
Akureyrí
gengu á lagið og náðu góðri for-
ystu,” sagði Alfreð þjálfari og leik-
maður KA. „Eftir þetta var munur-
inn einfaldlega orðinn of mikill þrátt
fyrir að við næðum að sýna betri
leik í síðari hálfleik.”
KA-menn voru allan seinni hálf-
leikinn að reyna að vinna upp for-
skot FH-inga, en þeir náðu því ekki.
Munurinn minnkaði reyndar en þeir
ógnuðu sigrinum aldrei. Undir lokin
beittu heimamenn þeirri aðferð að
leika maður-á-mann vöm og gafst
það ágætlega, en of skammt var
til leikloka til að það skipti máli og
FH-ingar sigruðu öraggl'ega.
Gífurlegur hraði var í leiknum
enda 61 mark gert þrátt fyrir að
markverðirnir hafi varið þokkalega.
Það segir meirá en mörg orð.
Lið KA lék undir getur, hvort sem
framsýningar-skrekk var um • að
kenna eður ei. Stefán Kristjánsson
fann þó leiðina í mark sinna gömlu
félaga tíu sinnum og einnig gerði
Sigurpáll Árni falleg mörk úr;
vinstra horninu. Aðrir leikmenn
liðsins náðu sér ekki á strik.
Hans Guðmundsson, sem lék með
KA í fyrra, var fyrri félögum sínum
einnig erfíður, gerði tíu mörk. Þá
var Kristján Arason geysilega
sterkur bæði í sókn og vörn og
reyndar má segja að liðið hafí verið
mjög jafnt og sterkt. Hvergi var
veikan hlekk að fínna í liðinu, fyrr
en KA fór að beita pressuvörninni
í lokin en þá náðu þeir að slá gest-
ina út af laginu.
HK vann upp sex marka forskot Fram
MAGNÚS Stefánsson markvörður HK hélt marki sínu hreinu síð-
ustu fjórtán mínúturnar í leik liðsins við Fram og það dugði
Kópavogsliðinu til þess að ná i annað stigið. HK skoraði sex
síðustu mörk leiksins og breytti stöðunni úr 16:22 í 22:22 sem
urðu lokatölur leiksins.
Framan af síðari hálfleiknum var
ekki neitt sem benti til þess
að heimamenn mundu veita Fram
MBHHi einhveija keppni.
Frosti Þeir hugsuðu meira
Eiðsson um ag atast j slokum
skrifar dómurum leiksins
heldur en að ein-
beita sér að handboltanum. En það
var markvarsla Magnúsar sem gaf
liðinu aukna trú, vörnin þéttist og
leikmenn fóra að einbeita sér að
leiknum. Jöfnunarmarkið kom
hálfri mínútu fyrir leikslok og var
það sérlega glæsileg „sirkusmark”
þar sem Tonar batt endahnútinn á
sóknina. Framarar brunuðu í sókn
og Gunnar Andrésson átti skot sem
Magnús markvörður missti innfyrir
línuna en dómarar höfðu þá flautað
á aukakast. Úr aukakastinu skaut
Jason knettinum í slánna og yfir
og HK hrósaði happi.
„Við tókum okkur saman í vörn-
inni í lokin og lékum skynsamlega
í sókninni en það kom greinilega í
ljós í lokin að Framarar hafa litla
reynslu,” sagði Magnús Stefánsson
hetja HK en það var ekki fyrr en
í gærdag að ljóst var að hann gæti
leikið vegna meiðsla í hné. Oft á
tíðum var ekki heil brú í leik HK-
liðsins og liðið lék eins og miðlungs
3. deildarlið en inn á milli náðu leik-
menn upp stemmingu. Markverð-
irnir voru bestu menn liðsins. Bjarni
varði vel í fyrri hálfleiknum og
Magnús stóð sig frábærlega í þeim
síðari. Tonar og Gunnar Már voru
öflugir í sóknarleiknum.
Það er greinilegt að reynsluleysi
háir enn Framliðinu sem stillir upp
yngsta liði deildarinnar. Um það
vitna fyrstu leikir liðsins á tímabil-
inu. Jason og Gunnar voru aðal-
mennirnir í sóknarleiknum og liðið
var betri aðilinn að fímmtán síðustu
mínútunum undanskildum. „Ég
kann enga skýringu á þessum
hroðalega kafla hjá okkur í lokin.
Það virtist enginn þora að skjóta á
markið og við létum veija allt frá
okkur. Kannski ereini ljósi punktur-
inn við þennan leik að við erum enn
taplausir,” sagði Karl Karlsson eft-
ir leikinn.
Tveir leikmenn fengu rauða
spjaldið, Andri V. Sigurðsson vegna
þriggja brottvísana og einn leik-
maður HK vegna ummæla af vara-
mannabekknum.
KNATTSPYRNA
Ingólfur
Valdimar
Ingólfur oc
Valdimar
eftirsóttir
Stjömumennimir Ingólf ~
Ingólfsson og Valdim ■
Kristófersson, sem leika einn
með U-21 árs liðinu, eru mji •
eftirsóttir af 1. deildarliðunu
í knattspyrnu. Mörg félög ha
haft samband við þá félaga ,
að fá þá til að leika í L deil<
inni næsta sumar, en Stjarna i
féll sem kunnugt er í 2. deiltí
Ingólfur staðfesti það í sar. ■
tali við Morgunblaðið í gær í )
niörg lið hafí sýnt honum áhugi .
„Ég hef enn ekki tekið ákvörði: i
um hvað ég geri, enda nægu#-
tími til stefnu,” sagði Ingólfuv.
Valdimar var á sama máli og
sagði. „Þar sem nýr landsliðs-
þjálfari er að byggja upp nýtt
landslið tel ég möguleikana á
að komast í landsliðið meiri éf
maður leikur í 1. deild. En
og stadan er í dag er hef
ekki ákveðið hvort ég v<
áfram í Stjömunni eða ekl
sagði Valdimar.