Morgunblaðið - 27.10.1991, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 27.10.1991, Blaðsíða 19
MÖRGUNBLÁÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR sdIHudá l27. OKTÓBER 1991 19 I DÆGURTÓNLIST Eru Frakkamir örugglegafamir? Villt stemmning Les Sattelites Hápunktur og hnig LOKASPRETTURINN í franskri rokk- hátíð var 16. og 17. sl. þegar Les Sattelit- es og Babylon Fighters og Manu Dibango með Soul Makossa-sveit sinni léku í Hót- el Islandi. Þar mátti sjá enn aðrar liliðar á franskri dægurtónlist en Amnina fyrr í sumar og Les Negresses Vertes og Salif Keita á síðustu Listahátíð. sér og mun afrísk- ari en sveit Salifs. Gaman væri að fá Manu aftur hingað til lands og þá á Listahátíð, þannig að lokka mætti fleiri á tónleika með honum. Lötum má benda á að mikið er til að plötum með honum hér á landi um þessar mundir. Frönsku sveitirnar tvær, Babylon Fighters og Les Sattelites, sem tróðu upp 17., eru að sögn nokkuð dæmigerðar fyrir þá gerjun sem á sér stað í frönsku poppi. Ekki virðist það þá vera ýkja spennandi, sé Hápunktur þessarar frönsku hátíðar var tónleikar kamerúnsk/fr- anska tónlistarmannsins Manus Dibangos í Hótel Islandi. Ekki voru ýkja margir áheyrend- ur, eitt- hvað á eftir Árnn Matthíasson milli 3-400, og því margir sem misstu af bestu afrísku sveit sem hingað hefur komið. Manu sjálfur, sem sannaði rækilega hve mikill yfirburðamaður hann er á saxófóninn, lék á als oddi og höfðu við- staddir Frakkar, sem sögð- ust oft hafa séð hann spila í París, ekki hafa séð hann eins góðan og þetta kvöld. í hljómsveitinni var og hvert rúm vel skipað, því hvaða sveitarmeðlimur sem er virtist geta staðið einn í framlínunni. Eftirminni- leg er frábær söngkona, sem söng bakraddir, en hún fékk að spreyta sig ein í upphafi. Samanborið við Salif Keita var Manu með yfirburða hljómsveit með eitthvað að marka Babylon Fig- hters, því sú sveit vakti ekki mikla hrifningu; til þess var tilgerðin fullmikil. Hún átti þó ágæta spretti, án þess þó að ná sér á flug. Les Sattelites var öllu skemmtilegri sveit; þar gekk allt út á villta stemmningu og áheyrend- ur kunnu vel að meta ham- aganginn, en sveitin hélt mönnum við efnið fram á rauða nótt. Næsta skref er að íslensk sveit heldur utan til að leika á tónleikum í París í febrúar á næsta ári á norrænni rokkhátíð þar sem fram koma ein sveit frá hverju Norðurlandanna auk einnar sveitar frá hverju Eystrasaltsríkjanna. Tilgerð Babylon Fighters Síðustu fregnir herma þó að tveimur sveitum hafi verið boðið frá íslandi, en of snemmt er að segja um 'hvort af verði. Ef marka má það sem boðið var upp á frá Frakklandi í þessari lotu, eiga íslenskar sveitir fullt erindi á Frakklands- markað, ekki síður en franskar á íslandsmarkað. Ljósmynd/Björg SveinSdóttir Sigurjón Axelsson Aðeins eitt líf SJÁLSVIG ungmenna hafa aukist mjög síðustu misseri og næstkomandi fimmtudag verða minn- ingartónleikar helgaðir baráttunni gegn sjálfsvíg- um ungmenna undir yfir- skriftinni Aðeins eitt líf. Tónleikarnir eru til minn- ingar um tvo tónlistar- menn, þá Jón Finn Kjart- ansson og Sigurjón Axels- son og verða haldnir í Menntaskólanum við Sund og hefjast kl. 20.00. Hljómsveitirnar sem fram koma eru ís- lenskir tónar, Formaika, Babalú og Stripshow, en einnig kemur fram kassa- gítardúóið Lipstick Lovers, sem Sigursjón var í er hann lést. Með flestum tónlistar- mönnum í þessum sveitum starfaði Siguijón og Jón Finnur með sumum, en sveitirnar hyggjast leika lög eftir Siguijón meðal annars. Einnig verða flutt ljóð. Að- gangseyrir rennur til for- varnarstarfs gegn sjálfsvíg- um unglinga. Morgunblaðið/Sverrir TODMOBILE UM LANDIÐ TODMOBILE hefur ekki gert ýkja mikið af því að spila úti á landi, enda óhægt um vik, þar sem tónlist sveitariimar kall- ar á mikið umstang. Um þessar mundir er Todmobile þó á ferð um landið, því sl. fimmtudag hóf sveitin þriggja vikna för sína með miklu stil- standi. T A •i 'M . í Angurværð Þórir Baldursson, Sinika Langeland, Gísli Helgason og Herdís Þor- valdsdóttir. Einfaldleikinn er bestur GÍSLI Helgason hefur selt fleiri plötur en margur sem hefur hátt, bæði einn síns liðs og með sveit sinni Islandicu. Á næstunni kemur út platan Heimur handa þér, sem fyrirtæki Islandicu, Fimmund, gefur út og á eru alls fjórtán lög, þar af tvö sungin. Gísli sagði lengi hafa stað- ið til að gera sólóplötu, en það hefði ekki gefist tími til fyrr en í vor að hann fékk Þóri Baldursson til liðs við sig í útsetningar og upptöku- stjórn. „Við Þórir náðum saman í júlí og segja má að allar útsetningar hafi verið tilbúnar í september. Okkar samstarf gekk því mjög vel. Mér finnst Þórir einstakur tónlistarmaður og ég gæti ekki hugsað mér betri mann að vinna með." Fjölmargir leggja Gísla lið á plötunni og má þar nefna norsku tónlistarkonuna Sikn- iku Langeland, sem leikur á kantele, sem er finnsk harpa. Fyrirmyndin að henni er 2000 ára gömul. Gísli segist ekki afkasta- mikill lagasmiður, lögin hafi orðið til á löngum tíma. „Á plötunni verða lög sem ég hef spilað lengi og þótt vænt um, en ég er ekki þurrausinn.” Uppáhaldslög á plötunni seg- ir hann Síðasta súmarið, sem er tileinkað Guðmundi Ing- ólfssyni, Ég er að leita þín, sem Eyjólfur Kristjánsson syngur, og Ástarljóð á sumri, sem Sinikka leikur í. Platan er angurvær, ert þú mjög angurvær? „Það má kannski segja það, heildarsvipur plötunnar er mjög blíður, en það eru fjörkippir á milli. Ég er ekki þekktur fyrir að spila þúsund nótur á mínútu, mér finnst einfaldleikinn alitaf bestur. Við blokkflautuleikarar segj- umst syngja á blokkflautu og það er gott að túlka tilfinning- ar með henni. Þess vegna nota ég flauturiá til að túlka meðal annars gleði og djúpa sorg.” Sett verður saman hljóm- sveit til að kynna plötuna, sem í verða auk Gísla Herdís Hall- varðsdóttir og Þórir Baldurs- son meðal annarra og verða útgáfutónleikar á Púlsinum 14. nóvember. Fyrstu tónleikarnir voru á Akranesi, en á næstunni leikur sveitin sem hér segir: Nk. þriðjudag, 29. októ- ber, á Blönduósi, 30. á Sauðárkróki, 31. á Akur- eyri og einnig 1. og 2. nóv- Útgerð Todmobile ember þar, 4. á Ólafsvík, 5. á Húsavík, 6. á Nes- kaupstað, 7. á Egilsstöð- um, 12. á Selfossi, 15. í Vestmannaeyjum og ioka- tónleikarnir verða í Kefla- Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir vík 22. nóvember. Eftirþað taka svo við tónleika syðra til að kynna væntanlega breiðskífu sveitarinnar, Óperu, sem kemur út um miðjan næsta mánuð. HAMMYND ROKKSVEITIN Ham hélt tónieika fyrir skemmstu í Duus og voru tónleikarnir hljóðritaðir fyrir útgáfu. Á undan sveitinni lék dauðarokksveitin góð- kunna Sororicide. Að sögn Óttars Proppé, forsöngvara Ham, er í smíðum kvikmynd um tón- leikaferð sveitarinnar til Hafna, en Hafnir hafa orðið hljómsveitarmönnum áleitið Ham Kvikmynd væntan- leg. yrkisefni. Stefnt er að því að kvikmyndin verði gefin út á myndbandi fyrir jól, en Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir einnig verður gefín út snælda með tónlistinni ef allt fer að óskum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.