Morgunblaðið - 23.11.1991, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 23.11.1991, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 1991 Akureyrarkirkja: Hádegistón- leikar alla næstu viku 30 ára vígsluafmælis ^ orgelsins minnst í TILEFNI af 30 ára vígsluafmæli orgelsins í Akureyrarkirkju verð- ur efnt til hádegistónleika í kirkj- unni alla næstu viku, en þar munu skiptast á orgelleikur og ritning- arlestur. Orgelið er eitt stærsta pípuorgel á landinu og hefur það gjörbreytt möguleikum kirkjunn- ar hvað varðar tónleikahald. Fyrstu hádegistónleikarnir í Akur- eyrarkirkju verða á þriðjudag, 26. nóvember, en á efnisskránni eru verk eftir Bach. Á tónleikunum á miðviku- dag verða leikin verk eftir Brahms og Mendelssohn og á fimmtudag verk eftir Franck. Á föstudag, 29. nóvember verða leikin verk eftir Pál ísólfsson, Jóhann Ó. Haraldsson, Jón Hlöðver Áskels- son og Jón Nordal og á laugardag verða verk eftir Buxtehude og Bach á dagskránni. Allir hefjast tónleikarnir kl. 12.05 og auk tónlistar verður ritningarlest- ur á hveijum degi. Þá má geta þess að sunnudaginn 1. desember, fyrsta sunnudag í að- ventu verða aðventutónleikar í Akur- eyrarkirkju, sem hefjast kl. 20.30. Bjöm Steinar Sólbergsson organ- isti Akureyrarkirkju leikur á orgelið á framangreindum tónleikum og sér- stakur heiðursgestur verður Jakob Tryggvason fyrrverandi organisti kirkjunnar, en hann beitti sér mjög fyrir kaupum orgelsins á sínum tíma. Morgunblaðið/Hólmfriður Grímseyingar héldu hið árlega Fiskeafmæli fyrir skömmu og við það tækifæri sýndu nemendur úr eldri deild barnaskólans leikþátt, en yngri börnin tók Iagið fyrir viðstadda sem voru fjölmargir. Grímsey: Fjölmenni á Fiske-afmælinu GRIMSEYINGAR héldu hið árlega Fiske-afmæli hátíðlegt fyrir skömmu, en þann dag minnast eyjaskeggjar fyrrum velgjörðar- manns síns, Daniels Willards Fiskes. Samkoman var haldin í félags- heimilinu Múla og var mjög fjölmenn. Kvenfélagið í Grímsey hefur haft veg og vanda að Fiske- afmælinu með aðstoð frá skóla- börnum, en þau hafa jafnan undir- búið skemmtidagskrá fyrir hátíð- ina. Kvenfélagskonur sjá um allar veitingar á samkomunni. Daniel Willard Fiske var mikill velgjörðarmaður Grímseyinga, hann gaf fé til byggingar skóla- húss, bækur til bókasafns og einn- ig gaf hann hveiju heimili í eynni tafl. Fjölmennt var í félagsheimilinu, 11. nóvember síðastliðinn þegar haldið var upp á afmæli Fiskes og var dagskráin sem í boði var óvenju vönduð. Anna Dóra Heið- arsdóttir, ung stúlka í Grímsey lék nokkur lög á píanó, eldri deild barnaskólans sýndi leikþátt sem börnin sömdu sjálf, en hugmyndin var fengin úr kvikmyndinni Gre- ase, nemendur úr yngri deild skól- ans stældu Rokklingana við mik- inn fögnuð og börn sem enn eru ekki kominn á skólaaldur sungu. HSH Hlíðarfjall: Skíðasvæðið opnað í dag SKÍÐASVÆÐIÐ í Hlíðarfjalli verður opnað í dag, laugardag, og verður opið frá kl. 10 til 17, en einnig verður opið á sama tíma á sunnudag. Ivar Sigmundsson forstöðumaður Skíðastaða sagði að sæmilegur snjór væri í fjallinum. „Við hefðum hoppað hæð okkar í loft upp í febrúar rneð það magn sem nú er í fjallinu,” sagði hann. „Þetta er í rauninni ekki mik- ill snjór, en við látum okkur hafa það.” Stólalyftan verður opin og einnig tvær togbrautir, en enn er ekki nægi- legur snjór kominn efst í fjallið, þannig að einhver bið verður á að unnt verði að opna diskalyftuna í Strýtu. Þeir sem keyptu sér vetrarkort í lyfturnar í upphafi árs geta tekið gleði sína, því þau verða í gildi fram til áramóta. Þetta er gert til að bæta skíðamönnum upp snjóleysið í fjallinu á fyrri hluta árs. ♦ ♦ ♦ Kergja komin í mjólkursamlagsdeiluna: Lokatilraun til að ná sáttum - segir Guðlaugur Þorvaldsson sáttasemjari EKKERT miðaði í samkomulagsátt á sáttafundum í mjólkursamlags- deilunni í gær. Sáttasemjari ákvað undir kvöldið að gera Iokatilraun til að ná fram lausn í deilunni og hefur boðað fund nú fyrir hádegi í dag, laugardag. Deiluaðilar voru ekki bjartsýnir eftir fundina í gær, en finnist ekki lausn í deilunni nú um helgina skellur ótímabund- ið verkfall á í mjólkursamlögunum á Akureyri og Húsavík. Allt eins er búist við að verkfallið geti dregist á langinn komi til þess á ann- að borð. Guðlaugur Þorvaldsson sátta- semjari sagði að deiluaðilar hefðu varpað á milli sín ýmsum hugmynd- um og tillögum í gær, en síðdegis hefði komið í ljós að ekki næðist samkomulag um þær tillögur. „Ég er ekki sáttur við að hætta þessu alveg strax, ég vil gera lokatilraun til að ná fram sáttum. Það er kannski ekki svo mikið sem ber í milli, ekki stórar fjárhæðir,” sagði Guðlaugur í samtali við Morgun- blaðið eftir síðasta fund gærdags- ins. Hann sagði að báðum aðilum væri á móti skapi að slíta viðræðum og því yrði reynt til þrautar að finna viðunandi lausn áður en til verk- fails kæmi. Kristín Hjálmarsdóttir, formaður Iðju, félags verksmiðjufólks á Akur- eyri, sagðist í gær ekki vera bjart- sýn, lítið hefði gengið á samninga- fundum. „Við teljum okkur vera búin að spila út öllu okkar, við höf- um teygt okkur eins langt og við framast höfum getað, en án árang- ur. Vissulega eru það mér mikil vonbrigði að það stefnir í að við náum ekki samningum um þau atr- iði sem við hófum verkfallið út af,” sagði Kristín. Kröfur iðnverkafólksins í mjólk- ursamlögunum beinast að því að fá metið til launa starfsnám líkt og tíðkast í öðrum greinum matvæla- iðnaðar, en þar er um að ræða rúm- lega 3.000 króna kaupauka á mán- uði. „Okkar viðsemjendur virðast ekki hafa áhuga á að koma til móts við okkur í þessu máli og það eru mikil vonbrigði,” sagði Kristín. Árni Benediktsson, formaður Vinnumálasambands samvinnufé- laganna, sagði að sambandið legði allt kapp á að ekki kæmi til verk- falls í samlögunum, en málið væri afar snúið og þungt. „Staðan er þannig, að hér þarf að leysa sérmál þegar aðalkjarasamningar standa yfir. Ef til verkfalls kemur, þá sér maður ekki hvernig verður hægt að leysa þetta fyrr en við gerð að- alkjarasamninga,” sagði Árni. „Ef til verkfalls kemur sýnist /nér það allt eins geta orðið langt. Ég óttast það þó ég vilji ekki vera svartsýnn. Verðið er samkomu- lagsatriði - segir framkvæmda- sljóri Krossaness „ÞETTA var ágætis loðna, hún leit vel út,” sagði Jóhann Pétur Anderssen framkvæmdastjóri Krossaness hf., en Súla EA kom með fyrsta loðnufarminn, 600 tonn til verksmiðjunnar á fimmtudagskvöld. Jóhann Pétur sagði að enn væri ekki búið að ganga frá hvaða verð yrði greitt fyrir tonnið af loðnunni, það yrði samkomulagsatriði milii verksmiðjunnar og útgerðarinnar. Búið verður að bræða þennan fyrsta farm í verksmiðjunni á sunnudag og er ekki ljóst hvenær næsta löndun verður. Súlan EA fór aftur út á miðin strax í gærmorg- un, en Þórður Jónasson EA er ekki farinn til veiða. „Það kemur bara í Ijós hvað okkur býðst, við erum til- búin að taka á móti öllum sem hing- að vilja koma með loðnu,” sagði Jóhann Pétur. Tungumólanóm fyrir börn I janúar nk. stendur til að bjóóa upp á stuðnings- nám í dönsku, ensku, norsku og sænsku fyrir börn, yngri en 1 1 ára. Námið er hugsað fyrir börn, sem dvalið hafa lang- dvölum erlendis og náð góðum tökum á viðkom- andi tungumáli. Fjöldi í námshóp er áætlaður 10-12 nemendur og skólagjöld verða 2.200,- kr. fyrir önnina. Skráning nemenda fer fram á skrifstofu skólafull- trúa, Strandgötu 19B, sími 27245. Þar eru einnig veittar nánari upplýsingar. Skráningu lýkur 10. desember nk. Skólafulltrúi Tvö fjölbýlishús fyrir aldraða byggð við Bugðusíðu: Þegar búið að selja allar íbúðirnar í öðru húsinu Reiknað með að framkvæmdir við byggingarnar hefjist í apríl MIKILL áhugi er fyrir íbúðum aldraðra sem byggðar verða á lóð Sjálfsbjargar við Rugðusíðu. Byggð verða tvö 35 íbúða hús og er þegar búið að selja allar íbúðirnar í öðru húsinu og nokkrar í liinu, Fyrirspurnir hafa borist frá brottfluttum Akureyringum sunnan heiða um íbúðirnar og eins hafa aðilar í sveitunum umhverfis bæinn sýnt kaupum á íbúðum þar áhuga. Aðalsteinn Óskarsson, formaður Byggja á tvö fjölbýlishús á lóð- Framkvæmdanefndar um íbúðir aldraðra á Akureyri, sagði að fyrir- hugað væri að bjóða jarðvegsskipti sem og byggingu beggja húsanna út í mars á næsta ári og væri reikn- að með að framkvæmdir gætu haf- ist jafnvel í lok apríl. Gert væri ráð fyrir að frá því að framkvæmdir hæfust og þar til fyrra húsið yrði fullbúið liðu 18 mánuðir og frá þeim tíma og þar til síðara húsinu yrði lokið liðu 6 mánuðir. inni, sem nær frá húsi Sjálfsbjargar og að Austursíðu. í hvoru húsi verða 35 íbúðir eða samtals 70 i húsunum tveimur og verða þær 2ja og 3ja herbergja. Akureyrarbær mun kaupa stærstan hluta kjallarans í húsnæði Bjargs þar sem útbúin verður sameiginlega aðstaða og þjónusturými, en þangað verður innangengt frá fjölbýlishúsunum. „Það gengur mjög vel að selja þessar íbúðir, við höfum þegar selt allar íbúðirnar í fyrra húsinu sem byggt verður og erum farin að skrá niður kaupendur í því síðara. Það er mjög mikið spurt um þessar íbúð- ir, m.a. höfum við fengið fyrirspurn- ir frá gömlum Akureyringum úr Kópavogi og Reykjavík sem hafa áhuga á að eyða ævikvöidinu á forn- um slóðum og eins hefur fólk úr sveitunum hér í kringum okkur spurt um þessar íbúðir,” sagði Aðal- steipn. Aldursmörk kaupenda hafa verið færð niður úr 67 ára aldri í 60 ára og sagði Aðalsteinn að það skýrði einnig þann mikla áhuga sem væri fyrir hendi varðandi íbúðakaup í þesSum; húghnj.í i *.,ú' i}

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.