Morgunblaðið - 23.11.1991, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 23.11.1991, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 1991 fclk i fréttum Morgunblaðið/Guðlaugur Tryggvi Karlsson NORRÆN SAMVINNA Gunnar Hoppe á íslandi Nýlega var staddur hér á landi Gunnar Hoppe, fyrrverandi rektor Stokkhólmsháskóla og framkvæmdastjóri Wallenberg- stofnunarinnar. Hoppe er mikill íslandsvinur og hefur um árabil setið í stjórn Norræna hússins í Reykjavík. Hoppe var haldið samsæti og var myndin þá tekin, talið frá vinstri: Magnús Magnússon prófessor, Helgi Bjömsson, prófessor, Þórir Kr. Þórðarson, prófessor, Gunnar Hoppe, Sveinbjörn Björnsson, háskólarektor, Guðmundur Magnússon, prófessor og fyrrv. rektor og Guðlaugur Þorvalds- son, ríkissáttasemjari og fyrrv. rektor. Þeir Gunnar Hoppe og Guðlaugur sátu saman í stjórn Norræna hússins í 12 ára. HVÍLD Nicholson ætlar að taka sér gott frí frá kvikmyndum Stórleikarinn Jack Nicholson verður í aðalhlutverkinu í kvikmyndinni „Hoffa” , en tökur hefjast í janúar á næsta ári. Hann hefur tiikynnt að eftir að tökum líkur, muni hann taka sér tveggja ára hvíld frá kvikmyndaleik. Ástæðan er sú, að hann er orðinn sólginn í fjölskyldulíf og á nú tæp- lega tveggja ára gamla dóttur og annað barn á leiðinni með sambýl- iskonu sinni, leikkonunni Rebeccu Broussard. „Ég ætla að vera á staðnum og taka þátt í uppeldi barna minna og hafa það að aðal- starfi fyrstu árin þeirra,” segir Nicholson sem fer létt með að sleppa vinnu í nokkur ár, þar eð hann hefur rakað saman digrum sjóðum fyrir leik sinn í gegn um árin og er nú moldríkur maður. í kvikmyndinni Hoffa leikur Nicholson Jimmy Hoffa, verka- lýðsleiðtogann umdeilda sem hvarf sporlaust og er álitinn látinn. Danny DeVito er framleiðandi og leikstjóri myndarinnar og er hún síðasta myndin í röð sem þeir félagarnir sömdu um samvinnu við. Talið er víst að Nicholsonfjöl- skyldan ætli að verja fríinu góða í suðurhluta Frakklands, en vinir þeirra á þeim slóðum leita nú log- andi ljósum að hæfilegu húsi. Þau dvöldu þar einmitt í stuttu sól- arfríi fyrir örfáum mánuðum. Jack, Rebecca og dóttirin Lorrain. Erlu í húsgagnaleit? Svefnsófarnir komnir Ný sending af 2ja manna svefnsófum með rúmfata- geymslu. 4 gerðir. Stærðir 190x130 og 190x120 Ármúla 8, sími: 68-53-75 STANGAVEIÐI Landskunnir flugxihnýt- arar sýna í Arósum Stangaveiðifélagið Ármenn efna í dag til fluguhnýtingarsýn- ingar í félagsheimili sínu Arósum. Nokkrir landskunnir hnýtarar verða við tækin og sýna áhorfend- um handtökin. Þarna verða enn fremur veitingar og jólakortasala. Stefán Hjaltested, einn af forvígis- mönnum þessa veiðifélags hvers félagar einskorða sig við flugu- veiðar er þeir veiða á vatnasvæð- um félagsins, sagði í samtali við Morgunblaðið að dagskráin myndi standa yfir milli klukkan 14 og 17 og hér væri á ferðinni uppá- koma sem til greina kæmi að halda árlega ef vel tækist til. Stefán sagði að meðal þeirra sem myndu sýna hnýtingar væru Analíus Hagwaag, sem er nú 84 ára, en hnýtir betur og betur eftir því sem árin hlaðast á hann. Geir Birgir Guðmundsson, höfundur „Þingeyingsins”, Skúli Kristinsson veiðivörður við Elliðaárnar og Guðmundur Árnason. „Sá elsti er 84 ára, sá yngsti 8 ára,” sagði Stefán Hjaltested.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.