Morgunblaðið - 08.12.1991, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 08.12.1991, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1991 KLUÐUR eftir Boga Þ. Arason Margt er enn á huldu um misheppnað valdarán sovéskra harðlínukommún- ista í Sovétríkjunum í ágúst síðastliðn- um. Mörgum spurningum er til að mynda ósvarað um þátt Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétforseta í aðdrag- anda valdaránsins. Þó hafa komið fram upplýsingar um að Gorbatsjov hafi látið KGB hlera símtöl Borís Jelts- íns, forseta Rússlands, fyrir valdarán- ið og þykir það benda til þess að Sovét- forsetanum hafi staðið meiri stuggur af leiðtoga rússnesku umbótasinnanna en harðlínuöflunum. Ennfremur hefur ýmislegt uggvænlegt komið í ljós, svo sem það að einn maður hafði aðgang að öllum dulmálslyklunum, sem nauð- synlegir eru til að skjóta kjarnorku- eldflaugum af sovéskum skotpöllum. Þótt leyndardómar valdaránsins séu margir er ljóst að það var ekki heil brú í því sem valdaræningjarnir tóku sér fyrir hendur þessa þijá daga sem þeir fengu alla heimsbyggðina til að nötra. Ennm hefur ekkert komið fram sem sannar á óyggj- andi hátt að Gorbatsjov hafi vitað að valdarán væri í uppsiglingu. Hins vegar þykir mörgum ótrú- legt að valdaránið hafi komið forsetanum í opna skjöldu. Þeir benda meðal annars á að margir höfðu varað hann við samsæri harðlínumanna, þeirra á meðal tveir af helstu samstarfs- mönnum hans, Edúard Shev- ardnadze, sem sagði af sér embætti utanríkisráðherra nokkrum mánuð- um áður, og Alexander Jakovlev, sem sagði sig úr kommúnistaflokkn- um í ágúst. Þá hafði James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, boðað Alexander Bessmertnykh, þáverandi utanríkisráðherra Sovét- ríkjanna, á sinn fund í Berlín 20. júní til að biðja hann að færa Gorb- atsjov þau skilaboð að valdamiklir harðlínumenn væru að brugga hon- um launráð. Gorbatsjov hafði allar þessar viðvaranir að engu. Lét hlera símtöl Jeltsíns Harðlínumennirnir, sem áttu sæti í neyðarnefndinni svokölluðu í valdaráninu, voru flestir nánir sam- starfsmenn Gorbatsjovs og forsetinn hafði sjálfur skipað marga þeirra í embætti. Vikurnar fyrir valdaránið hafði Gorbatsjov setið nokkra fundi með þessum mönnum og rætt þar hugmyndir um að stofnuð yrði neyð- amefnd, sem setti neyðarlög til að draga úr spennunni í landinu. Tíu af mönnunum 14, sem voru hand- teknir fyrir aðild að valdaráninu, Stuðningsmenn Borís Jeltsíns reyna að stöðva brennandi skriðdreka í grennd við rússneska þinghúsið. Talið er að skrið- drekahermennirnir hafi villst. hafa haldið því fram að þeir hafi aðeins framfylgt skipunum Gorb- atsjovs. Þótt þeir kunni að hafa notað forsetann sem blóraböggul til að verða ekki dæmdir til dauða virð- ast þeir allir hafa verið vissir um að Gorbatsjov myndi fyrr eða síðar snúast á sveif með þeim. Harðlínumennimir og umbóta- sinnar höfðu lengi háð harða valda- baráttu og Gorbatsjov sigldi ætíð milli skers og báru. Ymislegt bendir til að Gorbatsjov hafi á þessum tíma staðið mikill stuggur af Jeltsín og bandamönnum hans ogjafnvel meiri en af harðlínuöflunum. Þetta kemur meðal annars fram í niðurstöðum rannsóknar tveggja sérfræðinga í sovéskum stjórnmálum, Bandaríkja- mannsins Jeffs Trimbles og sovéska blaðamannsins Peters Vasílíevs, sem birtar voru í bandaríska tímarit- inu US News nýlega og þessi grein er byggð á. Þeir segja að þegar liðs- menn rússnesku deildarinnar innan KGB hafí opnað peningaskáp Val- eríjs Boldíns, skrifstofustjóra Sovét- forsetans og eins af valdaræningj- unum, hafi komið í ljós „þúsunda blaðsíðna” afrit af símtölum Jelts- íns, sem KGB hafi hlerað. Á spáss- íunum hafi verið skrifaðar athuga- semdir, sumar með rithönd Gorb- atsjovs sjálfs. Þetta, meðal annars, þykir renna stoðum undir kenningar um að Gorbatsjov hafi kosið að láta sam- særi harðlínumannanna viðgangast í von um að hann myndi sjálfur standa uppi sem sigurvegari að lok- um. Hann hafi gengið út frá því að ef valdaránið mistækist myndi hann komast til valda aftur og losna um leið við nokkra harðlínumenn. Ef það tækist hins vegar myndi hann geta tekið við forsetaembættinu á ný síðar og stjórnað landinu með neyðarlögum, laus við afskiptasama umbótasinna. Hafí Gorbatsjov tekið þessa afstöðu steytti hann í þetta sinn á skeri, því valdaránið varð til þess að draga mjög úr völdum hans og flýtti fyrir hruni sovéska ríkja- sambandsins. Fundurinn með Gorbatsjov Þegar valdaræningjamir létu til skarar skríða virtust þeir vissir um að Gorbatsjov myndi annaðhvort fallast á neyðarnefndina eða segja af sér. Þeir hittust í einu af glæsi- hýsum KGB fyrir utan Moskvu laug- ardaginn 17. ágúst til að leggja síð- ustu hönd á undirbúninginn. Æðstu embættismenn KGB voru kallaðir til starfa án útskýringa klukkan 10 að staðartíma daginn eftir og örygg- islögreglunni var skipað að vera í viðbragðsstöðu. Gorbatsjov var þá í sumarbústað skammt frá herstöð á Krímskaga og ýmsir, sem áttu þar leið um, urðu varir við óvenju mikinn viðbún- að hersins í grenndinni. Þeir tóku meðal annars eftir þremur herskip- um við ströndina. Fimm af valdaræningjunum fóru á fund við Gorbatsjov síðdegis á sunnudeginum, þeirra á meðal Val- erí Boldín, Júrí Plekhanov, yfirmað- ur lífvarðasveita KGB, og Valentín Varenníkov, yfírmaður landhersins. Þetta voru allt menn sem Gorbatsjov hafði treyst. Þeir settu honum úr- slitakosti: annaðhvort féllist hann á neyðamefndina eða segði af sér. Gorbatsjov segist hafa neitað að ræða kröfu þeirra og skipað þeim að snauta burtu. Nánir samstarfs- menn forsetans segja að Varenníkov hafí brýnt raustina og skipað Gorb- atsjov að fallast á neyðarnefndina, en án árangurs. Vadím Medvedev, yfirmaður líf- varðasveitar forsetans, fór til Moskvu með fimmmenningunum en hinir lífverðirnir stóðu með Gorb- atsjov. Þeir voru vopnaðir skamm- byssum og ekki var reynt að taka þær af þeim. Hermennirnir fyrir utan reyndu aldrei að fara inn í sumarbústaðinn; þeir höfðu aðeins fengið fyrirskipun um að stöðva alla sem reyndu að komast inn eða út fyrir svæðið. Hernum skipað að beita ekki valdi Fimmmenningarnir sátu síðan fund með hinum valdaræningjunum í Kreml á sunnudagskvöldinu. Vlad- ímír Ktjútsjkov, yfirmaður KGB, stjórnaði fundinum og sagði að Gorbatsjov væri veikur. Leyniþjón- ustan hefði komist á snoðir um að andsovésk öfl væru að undirbúa gagnbyltingu og því væri nauðsyn- legt að stofna þegar í stað neyðar- nefnd og setja neyðarlög. Skipuð var átta manna neyðar- nefnd, sem varaforsetinn, Gennadí Janajev, fór fyrir. Hinir voru Vlad- ímír Kijútsjkov, Dmítrí Jazov varn- armálaráðherra, Valentín Pavlov forsætisráðherra, Borís Púgo innan- ríkisráðherra, Vasílíj Starodúbtsjev, formaður bændasamtakanna, Oleg Baklanov, varaformaður varnar- málanefndarinnar, og Alexander Tízjakov, formaður samtaka sov- éskra ríkisfyrirtækja. Janajev setti neyðarlögin kl. fjög- ur aðfaranótt mánudags og um hálfri klukkustund síðar skipaði Jazov hernum að vera í viðbragðs- stöðu. Öryggisviðbúnaður var hert- ur víðs vegar um landið og þremur herdeildum var skipað að fara á mikilvæga staði í Moskvu. Þeim var sagt að halda uppi lögum og reglu en varast að beita valdi. Viðbrögð hersveitanna einkenndust af fáti og ráðaleysi. Herforingjar þurftu að byija á því leita að vegakortum fyr- ir ferðamenn til að geta áttað sig á hvaða leiðir skriðdrekarnir ættu að fara. Timbraður forseti bíður Kremlverjum birginn Borís Jeltsín, forseti Rússlands, var í Kazakhstan á laugardeginum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.