Morgunblaðið - 08.12.1991, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 08.12.1991, Blaðsíða 53
I ( < þessa gæti ekki síður í lífeyrissjóða- kerfinu. Búnaðarbankinn hf. fullvirtur Þegar viðskiptaráðherra hafði lokið sinni ræðu varð hann að svara < nokkrum spurningum frá þing- manninum Guðna Agústsyni (F-Sl), formanni bankaráðs Búnaðarbank- < ans, m.a. um hveija hann teldi lík- lega til að kaupa hlutabréf í Búnað- arbankanum ef hann yrði seldur 4 eins og forsætisráðherra hefði haft á orði fyrr um daginn? Hvort við- skiptaráðherrann vildi afnema rík- isábyrgð á sparifé almennings? Og Guðni vildi einnig fá því svarað hvort viðskiptaráðherra væri sam- mála því sjónarmiði fjármálaráð- herra að selja hlut Búnaðarbanka íslands á hálfvirði? Jón Sigurðsson viðskiptaráð- herra taldi sér ekki fært á þessum stað og stundu til að svara því hveij- ir gætu orðið kaupendur að svo góðum banka sem Búnaðarbankinn væri. „Á það iriun að sjálfsögðu reyna á markaðnum.” Viðskipta- ráðherra sagðist ekki hafa í huga að afnema ríkisábyrgðina á sparifé almennings. Jón Sigurðsson kvaðst ekki vera hlynntur því sjónarmið að selja hinn góða banka á hálf- virði. „Ég vil fá sannvirði fyrir Búnaðarbankann, því þannig og aðeins þannig er hagsmuna al- mennings gætt.” Jón Sigurðsson Sverrir Stormsker Guðrúnar E. Ólafsdóttur sem mynd- skreytti bókina.” Bókin er 80 blaðsíður, framleidd hjá G. Ben. Prentstofu. Ný bók um dulræna reynslu DÖGUN/PRENTVER hefur gefið út bókina Þetta líf - og önnur líf eftir Stellu Eyjólfsdóttur frá Gilla- stöðum í Reykhólasveit. í kynningu útgefanda segir: „Stella segir frá dulrænni reynslu sinni. Hún dvaldi í 28 ár í Bandaríkj- unum, við nám og störf. Þar kynnt- ist hún og vann með ýmsu fólki við heilun og miðilsstörf. I bókinni segir hún frá mörgu forvitnilegu, sem á dagana hefur drifíð, bæði erlendis og heima.” Bókin er 125 bls. loei HaiiMaaaa .h hödaciumhub qihajbmuoíiom MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1991- 53 Er Seðlabankínn að leita að sökudólg' fyrir háum vöxtum? - spyr félagsmálaráðherra „ÉG HÉLD að það sé alveg nauðsynlegt að ég og hæstvirtur viðskipta- ráðherra köllum til fundar við okkur Jóhannes Nordal til þess að fara yfir þessa stöðu. Fara yfir húsbréfakerfið og hvernig gangverkið í þessu er, þegar bankastjóri Seðlabankans leyfir sér að setja fram slíkar tölur, eins og hér er gert,” sagði Jóhanna Sigurðardóttir félags- málaráðherra. Jóhanna telur sumt furðulegt í greinargerð frá Seðla- banka íslands. Jóhanna Sigurðardóttir félags- málaráðherra svaraði ■ nokkrum spurningum á fundi Alþingis í fyrri- nótt í umræðum um frumvarp ríkis- stjórnarinnar um ráðstafanir í rík- isfjármálum á árinu 1992, m.a. vegna ríkisábyrgðar á launum og einnig útskýrði hún málefni Hús- næðisstofnunar ríkisins. Ráðherra sagði að nokkrir þingmenn hefðu vikið að nýútkominni greinargerð Seðlabanka íslands um þróun og horfur í peningamálum og vitnað til þess sem þar væri sagt um húsbréfa- kerfið. Félagsmálaráðherra taldi ástæðu til að fara um þetta nokkrum orðum. Jóhanna Sigurðardóttir lýsti furðu sinni á þeim ummælum sem þar kæmu fram. Það væri reyndar furðu- legt að Seðlabankinn sendi frá sér slík skrif sem fengu engan veginn staðist. T.d. fullyrðingar um að hús- bréfakerfíð hefði leitt til stökkbreyt- ingar í lánsfjáröflun til íbúðabygg- inga fýrir milligöngu ríkisins, og hefði þetta hvort tveggja orðið til þess að heildarlántökur ríkisins og annarra opinberra aðila á innlendum lánamarkaði stefndu í hærri tölu en næmi öllum peningalegum sparnaði landsmanna. Afleiðingamar hefðu komið fram í mikilli umframeftir- spum og hækkandi vöxtum á verð- bréfamarkaði þar sem húsbréfa- markaðurinn hefði verið . leiðandi varðandi vaxtastigið. Jóhanna sagði að hér væri mjög hallað máli. Það væri einkennilegt að virðuleg stofn- un sem „ætti að vera hægt að tre- ysta”, skyldi setja slíkt fram og ekki gera minnstu tilraun til að gera sam- anburð á því hvað það hefði dregið úr lántökum íbúðarkaupenda og húsbyggjenda í bankakerfínu og hjá lífeyrissjóðum. Einnig vitnaði félagsmálaráð- herra til þess að í greinargerð Seðla- bankans væri það sett fram að heild- arskuldir á lánamarkaði hefðu auk- ist 90 milljarða á 12 mánuðum. Síð- ar í skýrslunni kæmi fram að um helmingurinn af þessu hefði verið lán til heimila sem hefðu aukist um 27,7% Og síðan kæmi: „Þessi gífur- lega skuldasöfnun einstaklinga átti að langmestu leyti rót sína að rekja til húsbréfa og annarra lána hins opinbera íbúðalánakerfís. Líkur benda til þess að ekki meira en helm- ingur lánsfjárnotkunar einstaklinga hafi gengið til fjárfestinga í nýju húsnæði.” Síðan væri vikið að því enginn vafí væri á því að mikill mik- illar neyslu og innflutnings á árinu mætti rekja til þessarar miklu lánsf- járnotkunar heimilanna. Félagsmálaráðherra fullyrti að þetta væri rangt og fengi engan veginn staðist. Þegar útgáfa hús- Jóhanna Sigurðardóttir bréfa á þessu ári væru ekki nema 12-13 milljarðar króna. — Og þótt bætt væri við því sem færi til Bygg- ingarsjóðs ríkisins og Byggingar- sjóðs verkamanna, í heild um 20 niilljarðar það sem af væri þessu ári. — Ef helmingurinn af húsbréf- unum hefði farið í þessa neyslu, væri það þó ekki nema um 6,5 millj,- arðar. Sem auðvitað stæðist ekki því innri fjármögnun vegna notaðra íbúða væri um 48% af þessum 13 milljörðum. „Þetta dæmi gengur engan veginn upp,” sagði félagsmálaráðherra. „Maður spyr sig til hvers er þetta sett fram í slíkri skýrslu? Er Seðla- bankinn að draga athyglina frá þeim vöxtum sem eru í bönkunum? Er verið að leita að einhveijum söku- dólgi sem sé leiðandi um vaxtastigið í landinu, til að draga athyglina frá háu vaxtastigi í bönkunum? Mér dettur í hug að svo hljóti að vera.” Þriggja manna tal Jóhanna Sigurðardóttir taldi al- varlegt þegar Seðlabankinn setti slíkt fram: „Ég héld að það sé alveg nauðsynlegt að ég og hæstvirtur viðskiptaráðherra köllum til fundar við okkur Jóhannes Nordal til þess að fara yfír þessa stöðu. Fara yfir húsbréfakerfíð og hvernig gang- verkið í þessu er, þegar bankastjóri Seðlabankans leyfir sér að setja fram slíkar tölur, eins og hér er gert.” Félagsmálaráðherra greindi einn- ig frá því að hún hefði fyrr um dag- inn fengið í hendur aðra skýrslu, úttekt á húsbréfakerfínu og reynslu af því síðustu tvö árin. Bæri henni lögum samkvæmt að leggja hana fram fyrir Alþingi. „Og þar kemur heldur betur fram allt annað en það sem hér er sett fram af Seðabankan- um.” Ráðherra vænti þess að Alþing- ismenn fengju skýrsluna fljótlega í hendur en þar væri talað um að jafn- vægi væri á húsbréfakerfínu. Nefnd- in sem samið hefði skýrsluna kæm- ist meira að segja að þeirri niður- stöðu, sem hún væri reyndar ekki sammála, að þær breytingar sem gerðar hefðu verið nýlega á húsbréf- akerfinu hefðu verið óþarfí vegna þess að jafnvægi væri á húsbréfa- kerfínu. í lok sinnar ræðu ítrekaði Jóhanna Sigurðardóttir þá skoðun sína að Seðlabankinn væri að setja fram þessar villandi upplýsingar til að draga athyglina frá háum vöxtum 5 bankanum og reyna að finna ein- hvern sökudólg. 1 Góðar oa sérlega ódýrar vorur!! T O /~\T er eitt stærsta fyrirtæki sinnar _ % | \ || j tegundar í Englandi. 80 síðna litprentaður bæklingur til sýnis á staðnum. ^OOORCLOT^ luinvoi Einkaumboð, heildsöludreifing BERGMANN BERGMANN M. Ssl Nýbýlavegi 4, 202 Kópavogi, sími 91-45800 □ □ Q □ □ □ □ Dæmi um verð í smásölu □ Kuldaúlpur frá.... kr. 6.900, □ Snjósleðagallar.. kr. 12.490, □ Skyrtur frá..... kr. 1.290, □ Húfurfrá.........kr. □ Waxúlpur frá....kr. □ Peysur frá......kr. □ Bakpokar frá....kr. □ Gallabuxurfrá.... kr. 490,- 6.900,- 1.990, - 1.090,- 2.990, - Umboðsmenn úti á landi, Sportver, Glerárgötu 28, Akureyri, sími (96) 11445. Sportbær, Selfossi, simi (98) 21660. Verslunin Hvammur, Höfn í Hornafirði, sími (97) 81503. Verslunin Sparta, Sauðárkróki, sími (95) 35802. Verslunin Vik, Neskaupstað, sími (97) 71900. Verslunin Skógar, Egilsstöðum, sími (97) 11230. Siglósport, Siglufirði, sími (96) 71866.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.