Morgunblaðið - 03.03.1992, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 03.03.1992, Blaðsíða 29
28 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1992 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1992 29 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpátsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 110 kr. eintakið. Fossvogsdalurínn og höfuðborgarsvæðið Samkvæmt tillögu til þings- ályktunar um vegaáætlun, sem nú liggur fyrir Alþingi, verður framkvæmdafé Vega- gerðarinnar til nýrra fram- kvæmda árið 1992 rétt rúmar 2.800 m.kr. Af þessari heildar- summu, 2.800 m.kr., ganga trúlega 530-550 m.kr. til höfuð- borgarsvæðisins. Svæði, sem spannar um 60 af hundraði íbúa og skattborgara landsins, fær í sinn hlut innan við 20 af hundraði af þessu fram- kvæmdafé. Enginn getur haldið því fram, að landsbyggðin búi við skertan hlut að þessu leyti. Það gefur augaleið að mikil- vægt er að byggja upp greiðar samgöngur innan hvers þróun- arsvæðis á landsbyggðinni, sem og samgöngur milli landshluta, til að styrkja atvinnulíf og byggð á viðkomandi svæðum og í landinu öllu. Til þess liggja margs konar þjóðfélagsleg rök. Og um þau er ekki deilt. Jafnljóst er, eða ætti að vera, að þar sem byggð er þéttust og bílaumferð þyngst verður að byggja upp traust og öruggt vegakerfi. Langt er síðan að bifreiðafjöldinn á höfuðborgar- svæðinu óx flutningsgetu vega- kerfisins yfir höfuð. Það fer ekki fram hjá neinum sem til þekkir. Það er nauðsynlegt að hafa framangreint í huga þegar grunduð eru orð Markúsar Arn- ar Antonssonar, borgarstjóra, um nýlega staðfest aðalskipu- lag Reykjavíkur 1990 til 2010 og samkomulag samstarfs- nefndar Reykjavíkur og Kópa- vogs um Fossvogsdal. í aðal- skipulaginu er m.a. gert ráð fyrir að koma samgönguæð um Fossvogsdal fyrir neðanjarðar. Um þetta efni sagði borgar- stjóri í viðtali við Morgunblaðið: „íbúar höfuðborgarsvæðisins þurfa að leggja áherzlu á að ríkið taki þátt í gerð mikil- vægra samgöngumannvirkja hér á þessu svæði. Við þurfum að fá í okkar hlut réttlátan hluta af skattpeningunum til að standa undir gerð jafn mikil- vægra og dýrra samgöngu- mannvirkja og hér er um að ræða.“ Samkomulag samstarfs- nefndar Reykjavíkur og Kópa- vogs um það, hvern veg verður staðið að nauðsynlegum um- hverfisbótum í Fossvogsdal er sérstakt fagnaðarefni. Það ætti að tryggja, að íbúar höfuðborg- arsvæðisins geti áfram notið þessa kjörna útivistarsvæðis, eins og það nú er, að teknu til- liti til staðfests aðalskipulags. Það ætti einnig að tryggja að útivistarsvæðið í Fossvogsdal tengi á eðlilegan hátt útivistar- svæðin í Elliðaárdal og Öskju- hlíð. Morgunblaðið hefur það eftir Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni, for- manni samstarfsnefndar Reykjavíkur og Kópavogs, að stofnbraut verði ekki lögð ofan- jarðar í dalnum. „Það hefur enn ekki verið tekin afstaða til þess á hvern hátt austur-vestur tengingin verður bezt tryggð. Aðallega er rætt um tvær leið- ir, stofnbraut neðanjarðar eftir dalnum eða göng undir byggð í Kópavogi. Við erum sammála um að líta á dalinn sem eitt skipulagssvæði án bæjarmarka og að hraðbraut ofanjarðar í dalnum er ekki til umræðu. Við gefum okkur góðan tíma áður en endanleg ákvörðun verður tekin.“ Það hefur verið tilhneiging til þess í fjölmennari sveitarfé- lögum, hérlendis sem erlendis, að byggja þétt, á stöku stað allt of þétt, trúlega af hag- kvæmnisástæðum. Stein- steypuskógurinn hefur sums staðar lagt undir sig nær allar grónar lendur. Útvistarsvæði hafa orðið of fá og of smá. Umhverfið, ramminn um byggðina og mannlífið, hefur þá setið á hakanum, þvi miður. Þess er þó skylt að geta að fá, ef nokkur íslenzk sveitarfé- lög, hafa sinnt umhverfisþætt- inum, útivistarsvæðunum, blóma- og trjárækt, betur en höfuðborgin. En betur má ef duga skal. Og samkomulag Kópavogs og Reykjavíkur um Fossvogsdal er góður vegvísir inn í framtíðina að þessu leyti. Það er stórmál að að gera um- hverfi fólks aðlaðandi, fagurt og gróðursælt. Eftir stendur að umferðin á höfuðborgarsvæðinu gerir kostnaðarsöm samgöngumann- virki óhjákvæmileg á næstu misserum og árum. Atvinnulífið á höfuðborgarsvæðinu kallar á þessar framkvæmdir, sem og félagsleg og menningarleg starfsemi og samskipti íbúanna á þessu svæði. Það vegur og þungt að arðsemi framkvæmd- anna réttlætir þær. En þyngst vegur umferðaröryggi rúmlega 60 af hundraði landsmanna, sem að óbreyttu er hvergi nærri nægilega mikið. Frá Norðurlandaráðsþing’i Forsætisráðherrar Norðurlanda um framtíð norræns samstarfs: Mörg verkefni flytj ast á evrópskan vettvang Aukin áherzla á samráð Norðurlanda um Evrópumál, utanríkis- og öryggismál Helsinki. Frá Ólafi Þ. Stephensen, blaða- manni Morgunblaðsins. Forsætisráðherrar Norður- landanna slógu tóninn í gær fyr- ir 40. þing Norðurlandaráðs, sem hefst í finnska þinghúsinu i Helsinki í dag, þriðjudag. Ráð- herrarnir ræddu framtíð nor- ræns samstarfs á tveggja daga löngum fundi. Helzta niðurstaða þeirra er sú, að með samþykkt EES-samningsins og hugsan- legri inngöngu fleiri Norður- landa í Evrópubandalagið (EB) muni fjölmörg verkefni flytjast af norrænum vettvangi og á evrópskan. Norrænt samstarf muni því í framtíðinni beinast að þrengra sviði en áður. Ráð- herrarnir vilja leggja mikla áherzlu á aukið samráð Norður- landanna um Evrópumál, utan- ríkis- og öryggismál. Mikilvægasta málið á dagskrá ráðherrafundarins var áfanga- skýrsla starfshóps persónulegra fulltrúa forsætisráðherranna, sem þeir stofnsettu á fundi sínum á Álandseyjum í nóvember til að endurmeta norrænt samstarf. Skýrsluhöfundar eru allir virtir stjórnmála-, kaupsýslu- eða emb- ættismenn. Fulltrúi Davíðs Oddss- onar í hópnum er Matthías Á. Mathiesen, fynverandi utanríkis- ráðherra. í skýrslu hópsins segir að það Forsætisráðherrar Norðurlanda á blaðamannafundi í Ilelsinki í gær. Frá vinstri: Poul Schlúter, Dan- mörku, Gro Harlem Brundtland, Noregi, Esko Aho, Finnlandi, Carl Bildt, Svíþjóð, og Davíð Oddsson, íslandi. sé í þágu norrænna hagsmuna að skuldbindandi samstarf Evrópu- ríkja verði eflt, og er þá vísað bæði til Evrópubandalagsins og Evrópska efnahagssvæðisins. „Norrænt samstarf er ekki leið framhjá því evrópska, heldur hluti af því,“ segir í skýrslunni. Mat hópsins er að EES-samn- ingurinn gangi mun lengra en nor- rænt samstarf hefur hingað til gert í efnahagsmálum og hvað varðar frelsi í flutningum fólks, fjármagns, þjónustu og vara á milli Evrópuríkja. Norrænt sam- Forsætisráðherrar Norðurlanda: íslendingar fái aðild að sam- starfi ríkja við Eystrasalt ÍSLENDINGAR munu í framíðinni eiga aðild að samstarfi þjóða við Eystrasalt. Forsætisráðherrar Norðurlanda voru sammála um þetta á fundi sínum í Helsinki í gær. Svo virðist því sem Uffe Ellemann-Jensen, utanríkisráðherra Dana, hafi ekki talað í um- boði stjórnar sinnar þegar hann í síðustu viku neitaði íslendingum um áheyrnaraðild á ráðstefnu Eystrasaltsríkja, sem hefst í Kaup- mannahöfn á fimmtudag. Aðilar að Eystrasaltssamstarf- inu eru allar þjóðir, sem eiga land að Eystrasalti. Það eru Finnar, Svíar, Danir, baltnesku þjóðirnar, Pólveijar og Þjóðveijar, auk Norð- manna. Poul Schlúter, forsætisráð- herra Dana, skýrði frá því á blaða- mannafundi í Helsinki í gær að á ráðstefnunni í Kaupmannahöfn væri ætlunin að setja á stofn óformlegt ráð ríkjanna við Eystra- salt. Ráðið ætti að samræma sam- starf allra landa, sem hefðu hagsmuna að gæta við Eystrasalt, og leggja því til pólitískan drif- kraft. Forsætisráðherrann sagði að hugmyndin væri að utanríkisráð- herrar ríkjanna hittust einu sinni á ári, en einnig væri möguleiki á að fagráðherrar héldu með sér fundi. Hann minntist sérstaklega á umhverfisráðherra ríkjanna í því sambandi, en mengun í Eystrasalti er gífurleg og margir fiskistofnar í hættu af þeim sökum. Schlúter lagði mikla áherzlu á að ekki væri um nýja alþjóðastofn- un að ræða, heldur óformlegan samráðsvettvang. „Við ætlum alls ekki að falla í þá freistni að byggja upp formlegt eða stofnanabundið samstarf," sagði hann. Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið að alger samstaða hefði verið um það á milli forsætisráðherranna fimm að íslendingar ættu heima í Eystrasaltssamstarfinu. „Við tók- um þetta upp á fundinum og fund- um að því að ekki hefði verið sam- þykkt að við yrðum aðilar að mál- inu,“ sagði Davíð. „Þeir lýstu því allir yfir, forsætisráðherrarnir, Schlúter meðtalinn, að hann vildi styðja það að við yrðum aðilar að samstarfinu.11 Forsætisráðherra sagði að ekki væri ljóst hvort íslendingar yrðu fullgildir aðilar að samstarfsvett- vangi ríkjanna við Eystrasalt. Að minnsta kosti myndi ísland eiga áheyrnarfulltrúa á fundum í fram- tíðinni, þótt óvíst væri að tími ynn- ist til að ganga frá áheyrnaraðild Islendinga á fundinum í Kaup- mannahöfn á fimmtudag. „Við létum þá skoðun í ljós að það væri mjög undarlegt, að við yrðum skildir eftir úti,“ sagði Davíð Odds- son. „Þó menn gætu sagt að við ættum ekki beinlínis land að Eyst- rasalti, væri enginn vafí á að þetta samstarf gæti skarazt talsvert við Norðurlandasamstarfið og þess vegna væri eðlilegt að við gætum fylgzt með því.“ Efnahagsnefnd Norðurlanda- ráðs sendi Uffe Ellemann-Jensen bréf að loknum fundi nefndarinnar í gær. I bréfinu segir að það hljóti að vera mistök að íslendingum hafi ekki verið boðið til ráðstefn- unnar í Kaupmannahöfn og er far- ið fram á að þau verði leiðrétt. starf geti hins vegar haldið áfram á þeim sviðum, sem EES nær ekki til, eða þar sem ákvarðanir Norður- landa stangist ekki á við þ_að, sem ákveðið er innan EES. í þessu sambandi hafa einkum verið nefnd menningarmál, umhverfismál og ýmis mál, sem snúa að félagslegum réttindum og velferð. Skýrsluhöf- undar benda líka á að samkvæmt EES-samningnum rúmist svæðis- bundið samstarf á borð við nor- ræna samvinnu með ágætum innan Evrópusamstarfsins. í yfirlýsingu, sem forsætisráð- herrarnir fimm gáfu út að loknum fundi sínum í gær, segir að aukinn samruni Evrópuríkja og samþykkt EES-samningins skapi skilyrði fyr- ir enn nánara samstarf Norður- landa.,,1 nánustu framtíð munu fleiri Norðurlönd semja um aðild að Evrópubandalaginu," segir í yfirlýsingunni. „Þar með er nauð- synlegt að endurmeta norrænt samstarf út frá þeim kringum- stæðum að öll eða flest Norður- löndin verði aðildarríki EB.“ í yfir- lýsingunni segir einnig að þar sem stór hluti Norðurlandasamstarfsins flytjist nú til EES eða EB, verði hægt að einbeita sér enn frekar að samstarfi á öðrum sviðum. Hlutleysisstefna Svía og Finna stendur nú ekki lengur í vegi fyrir samstarfi'Norðurlanda í utanríkis- og öryggismálum og forsætisráð- herrarnir leggja mikla áherzlu á að þróað verði samráð Norðurlanda í þeim efnum. Einnig telja þeir mikilvægt að löndin geti haft með sér samráð um ýmis mikilvæg Evrópumál, jafnóðum og þau koma upp á yfirborðið. „Með það í huga að Norðurlöndin hafa gert mismunandi bandalög og bera mismunandi skuldbindingar, á samráðið að byggjast á fijálsri þátttöku og ekki að vera bind- andi,“ segja ráðherrarnir. Þeir leggja einn'ig áherzlu á ann- að pólitískt samstarf ríkisstjórna Norðurlandanna, í því skyni að gæta norrænna hagsmuna í Evr- ópusamstarfinu. Ráðherrarnir ræddu þrjár tillögur, sem snúa að þessu. I fyrsta lagi er rætt um að forsætisráðherrarnir taki að sér forystuhlutverkið í norrænu sam- starfi til að gefa því aukinn þunga. í öðru lagi taki löndin að sér til skiptis formennsku í hópi Norður- landa og formennskulandið sam- ræmi og_ skipuleggi hið pólitíska amstarf. í þriðja lagi vilja forsætis- ráðherrarnir að norrænar stofnanir verði lagaðar að Evrópusamstarf- inu, bæði Norræna ráðherranefnd- in og sjálft Norðurlandaráð. Starfshópurinn um endurskoðun norræns samstarfs mun skila loka- skýrslu fyrir fund forsætisráðherr- anna á Borgundarhólmi í ágúst- mánuði næstkomandi og þá munu ráðherrarnir væntanlega gera formlegar tillögur um breytingar á Helsinkisáttmálanum, stofnsátt- mála Norðurlandasamstarfsins. Forsætisráðherrum Eistlands, Lettlands og Litháens hefur verið boðið til Borgundarhólmsfundarins til að leggja áherzlu á stuðning Norðurlanda við Eystrasaltsríkin. * Atta milljarðar til fjárfest- inga í Eystrasaltsríkjimum RÍKISSTJÓRNIR Norðurlandanna ætla að verja tæplega átta millj- örðum íslenzkra króna til fjárfestinga í Eystrasaltsríkjunum, Eist- landi, Lettlandi og Litháen, næstu þrjú árin. Einkum verður stutt við bakið á litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Frá þessu var skýrt á blaðamann- yrði bezt ýtt undir frumkvæði og afundi forsætisráðherra Norð- urlandanna í Helsinki í gær. Fram kom að ráðherrarnir teldu heppileg- ast að beina fé til lítilla og meðal- stórra fyrirtækja, þar sem þannig einkaframtak. Ákveðið hefur verið að nýta þær norrænu fjárfestingarstofnanir, sem fyrir eru, í þágu verkefnisins. Með því hefur verið fallið frá hug- myndum um sérstakan Ijárfesting- arbanka fyrir Eystrasaltsríkin. Meðal annars munu Norræni fjár- festingarbankinn og Evrópski þró- unarbankinn (EBRD) lána til fjár- festinga í ríkjunum þremur. Gert er ráð fyrir að íslendingar leggi til um 1% lánsfjárins, sem er sama hlutfall og þeir leggja til kostnaðar við norrænt samstarf. Mikill mannfjöldi fagnaði Sigdísi á Egilsstaðaflugvelli. MorgunblaðiS/Bjöm Svoinsson Nýr Fokker lendir á Egilsstöðum; Sýnir trú Flugleiða Sigrún Yrja Klörudóttir gefur vélinni nafn og það er Sigurður Helga- son forstjóri Flugleiða sem aðstoðar hana. - segir Sigurður Helgason forstjóri Egilsstöðum. SIGDÍS, ný Fokker 50 vél Flug- leiða, lenti á Egilsstaðaflugvelli á laugardag. I ávarpi sem Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, flutti við það tækifæri sagði hann að með kaupunum á fjórum vélum fyrir innanlandsflugið hefðu Flugleiðir ráðist í fjárfestingu til framtíðar. Sýndi þetta trú Flug- leiðamanna á öflugri byggð um land allt og öflugri ferðaþjónustu á landsbyggðinni. Mikill fjöldi Austfirðinga fagnaði komu Sigdísar er hún lenti á Egils- staðaflugvelli í blíðskaparveðri laust eftir hádegi á laugardag. Við kom- una var vélin ausin vatni úr Lagar- fljóti og gefið nafnið Sigdís. Um þá athöfn sá Sigrún Yija Klörudóttir frá Fáskrúðsfirði með aðstoð Sigurðar Helgasonar. Sigurður Helgason afhenti verð- laun í teiknimyndasamkeppni sem Flugleiðir efndu til í skólum á Aust- urlandi. Hlutskörpust varð Þóra „Samskonar tilboð hefur verið í gangi á áætlunarleiðum félagsins til New York og Baltimore frá því í jan- úar,“ sagði Pétur J. Eiríksson fram- kvæmdastjóri markaðssviðs Flug- leiða. „Reynslan var góð og tilboðinu vel tekið af viðskiptavinum. Þó að farþegum á fullu fargjaldi til Evrópu hafi ekki fækkað hjá Flugleiðum upp Magnea Helgadóttir. Einnig afhenti Sigurborg Kr. Hannesdóttir, hótel- stjóri, í Valaskjálf, Sigrúnu Yiju farandbikar til staðfestu þess að hún var valinn Austfirðingur ársins af hlutstendum svæðisútvarps Austur- lands. Sigurður Helgason sagði við komu Sigdísar að eftir ítarlega skoðun á á síðkastið teljum við rétt að gefa farþegum á Saga Class til Evrópu kost á því sama.“ Tilboðið gildir til 31. maí, og ein- ungis er keypt er Saga Class-fargjald fram og til baka. Hámarksdvöl á áfangastað er einn mánuður en lág- marksdvöl engin. markaðnum hefðu Fokker 50 vélar orðið fyrir valinu þegar Flugleiðir hefðu staðið frammi fyrir því að endurnýja flugvélakostinn á innan- landsleiðum félagsins. Fokker 50 vélarnar hefður ekki verið ódýrustu vélarnar sem völ var á en þeir hefðu metið þær sem hagkvæmustu og öruggustu vélarnar sem á markaðn- um væru. Sú skoðun hefði ekki breyst við óhappið sem Ásdís lenti í fyrir fáum dögum. Það óhapp mætti að öllu leyti rekja til gijóthlífar sem sett var á vélina vegna slæmra flug- valla hér á landi. Þessar hlífar hefðu nú verið fjarlægðar af öllum vélar Flugvéla og yllu því ekki frekari vandræðum. Hver Fokker 50 vél kostaði 870 milljónir króna. Það væri því ljóst að með þessum véla- kaupum væru Flugleiðir að ráðast í fjárfestingu til framtíðarinnar. Sýndi þetta glöggt hvaða trú forráðamenn Flugleiða hefðu á öflugri byggð um land allt og þeim möguleikum sem fælust í ferðaþjónustu á landsbyggð- inni. - Björn. Frír miði fyrir maka á Saga Class með Flugleiðum FLUGLEIÐIR hafa sótt um það leyfi til samgönguráðuneytisins að mega bjóða frían farmiða fyrir maka þeirra er ferðast á fullu Saga Class-far- gjaldi frá íslandi til allra áfangastaða félagsins í millilandaflugi. • • Olfushreppur gefur gænt ljós á Sogn: Samningar við eiganda í dag ÖLFUSHREPPUR hefur gefið heilbrigðisráðherra grænt ljós á að setja á stofn réttargeðdeild að Sogni í Ölfusi. Þorkell Helgason aðstoð- armaður heilbrigðisráðherra segir að í framhaldi af þessu verði strax í dag hafist handa við að semja við eiganda Sogns, Náttúrulækninga- félagið, um leigu eða kaup á staðnum. Þorkell reiknar frekar með að ríkið kaupi Sogn en leigi enda erfitt að vera með ótyggan aðgang að húsnæði undir starfsemi sem þessa. „Fyrir utan samninga við eigenda munum við hefjast handa við að gera nauðsynlegar breytingar á hús- inu en endurskoðaðar teikningar um breytingarnar hafa Iegið nokkuð lengi fyrir,“ segir Þorkell. „Og við munum einnig hefjast handa við að ráða starfsfólk til staðarins en það þarf að fara í starfsþjálfun til Sví- þjóðar.“ Þorkell segir að hann sé ánægður með að þetta mál sé loks komið í höfn en upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir að starfsemi á Sogni hæf- ist í vor. Vegna tafa er nú gert ráð fyrir að réttargeðdeildin hefji starf- semi um mitt sumar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.