Morgunblaðið - 11.04.1992, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 11.04.1992, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. APRÍL 1992 Brotinn gítar ÞRIÐJA tilraunakvöld Músíktilrauna var sögulegt uin margt og úrslitin komu á óvart, því hljómsveit, sem ekki vildi sigra sigraði örugglega. Það varð meðal annars til þess að einu dauðarokksveitir kvöldsins komust í úrslit. Fyrsta sveitin á svið hét því undarlega nafni Tjalz Gissur og kom úr Kópavogi. Sveitarmenn höfðu lýst tónlist sinni sem pönki en það var öðru nær, því megn- ið var hrein sýra. Fyrsta lag sveitarinnar galt þess að sveitar- menn voru fyrstir á svið og því óöruggir, þó söngvari sveitarinn- ar hafi verið frískur. í öðru lag- inu mátti þó heyra að Tjalz Giss- ur býr yfir ýmsu og þriðja lagið var fyrirtak, þó endirinn hafi mislukkast. Fjórða lag sveitar- innar var svo gríðarlegt klisju- safn í tónlist og textum og best að gleyma því sem fyrst. Tjalz Gissur á góða framtíð fyrir sér og þá sérstaklega þegar sveitar- menn vaxa uppúr þunnum ensk- um textum. Dyslexia hét næsta sveit og kom úr Eiðaskólar Þaðan hafa áður komið nokkrar sveitir, þeirra helst Trassarnir og Dyslexia stendur reyndar nokk- uð í skugga Trassanna. Tónlistin var full afleidd og allmikið skorti á sjálfstæðan persónuleika, en það kemur líklega í næstu Músíktilraunum. Þriðja lag sveitarinnar var ágætt, en loka- lagið mætti að skaðlausu stytta um % og jafnvel meira. Niturbasarnir koma frá Djúpavogi og leika pönkað rokk. Sveitin var ein sú skemmtileg- asta þetta kvöld og keyrði gríð- arvel. Sérstaklega var lokalagið, Ugludjöfull, gott, en nokkuð spiliti barnaskapur í textum í hinum lögunum. Eins og pönk- sveita er siður lauk sveitin leik sínum á að brjóta gítar og dreifa hlutum hans meðal áheyrenda, sem var í fullu samræmi við það sem á undan var komið. Uxorius er trashsveit frá Dal- vík, sem leikur verk í lengri kantinum. Fyrir vikið náðu Dal- víkingar ekki upp neinni stemmningu sem nokkru nam, þrátt fyrir góða tilburði í hljóðfæraslætti og þétta keyrslu. Besta lagið var annað lag henn- ar, Misery, en hin náðu ein- hvemveginn ekki að lifna. Dauðasveitin Cremation var fyrsta dauðarokksveit kvöldsins og á köflum skemmtileg. Söngv- ari sveitarinnar er prýðilegur, en ekki gekk sveitarmönnum vel að halda saman í hægum köflum laganna, þó hraðakstur hefi Stoltir Niturbasar. Sjúðann úr Breiðholti. heppnast mjög vel. Þetta var sérstaklega áberandi í öðru lagi sveitarinnar þar sem taktskipti klúðruðust í miðju. Sjúðann lék rokk allt annarrar gerðar en áður var komið og á köflum mjög skemmtilegt. Best tókst sveitinni upp í þriða lagi, en þó fjórða lag hennar hafi verið gott þá voru á því ýmsir hnökrar sem skrifast ýmist á reynslu- eða stefnuleysi. Baphomet var geysiþétt dauðaokksveit frá Akureyri sem kom vel undir tilraunirnar búin. Þriðja lag sveitarinnar var gott, en það fjórða, sem var jafnframt Maunir, takk, en nei takk. Cremation. Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir Dyslexia, Trassarokk. Uxorius hraðast, langbest og reyndar með betri lögum þetta kvöld. Lokasveit kvöldsins, kamm- erpönksveitin Maunir, virtist hafa salinn að nokkru á sínu bandi, ef marka mátti fagnaðar- lætin áður en sveitin byrjaði að spila. Það mátti glöggt heyra að sveitarmenn voru komnir til að reyna á þanþol tónlistarinn- ar, því aðeins sýndi einn sveitar- manna kunnáttu á hljóðfæri, trymbillinn, sem átti góða spretti, en aðrir sveitarmenn frömdu hermdarverk á hljóðfæri sín og beittu fyrir sig hömrum og ámóta. Sérstaklega var gam- an að heyra hvernig blúsformið var leyst upp, tuggið og spýtt út í öðru lagi sveitarinnar, þar sem blústextaklisjur voru matreiddar með. Lokalag sveitarinnar end- aði á eggagjörningi og síðan var gítar brotinn í spón og dreift til lystahafenda. Maunir voru skemmtilegasta sveit kvöldsins; sveit sem ögraði viðteknum hug- myndum um tónlist, tætti í sig tónlistarform miskunnarlaust. Sveitinni tókst og að fá áheyr- endur með sér og í lokin voru allir viðstaddir komnir á fætur og farnir að hvetja sveitina áfram eins og á kappleik. I ljósi ofangreinds kom niður- staða talningar ekki svo mjög á óvart, því Maunir sigruðu með allnokkrum yfirburðum. Sveitar- menn ákváðu þó að draga sig í hlé; sögðu að annan eins gjörn- ing væri ekki hægt að endurtaka með svo litlum fyrirvara og því fóru sveitinar í öðru og þriðja sæti, Cremation og Baphomet, i úrslit. Dómnefnd ákvað síðan að Niturbasarnir ættu erindi í úrslit. Árni Matthíasson GÖSLARAGANGUR Leigjandinn lokkaprúði Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Saga Bíó Kuffs Leikstjóri Bruee Evans. Aðal- leikendur Christian Slater, Tony Goldwyn, Bruce Boxleitn- er, Milla Jovovich. Bandarísk.- Universal 1991. Myndin Kuffs segir af hugarf- arsbreytingum og hetjudáðum piltsins Slaters, sem í myndarbyij- un er harla léttvægur fundinn. Undir’dansatriði (stolnu úr Risky Business) gugnar hann á áfram- haldandi sambandi við kærustuna (Jovovich), er hún tjáir honum að hún sé þunguð af hans völdum. Vill guttinn mun frekar halda til Brasilíu í gulleit og koma hlaðinn þeim göfga málmi í fyllingu tímans en axla byrðar borgaralegs lífs. Síst af öllu vill hann starfa sem lögreglumaður í sveit stóra bróður, sem stjórnar löggæslu í einu hverfi San Fransisco. En svo fer allt á annan veg því brósi er drepinn og Slater vindur sér umsvifalaust í hlutverk hans. Við litla hrifningu samstarfsmanna, yfirmanna og glæpamanna borgarinnar. Hér er að finna velflestar klisjur sem sést hafa í hasarmyndum síð- ustu árin. Þar fyrir utan er hún ósmekkleg og þreytandi hræri- grautur farsa, sorgarleiks og hetjuóðs og blandast þessir þættir illa saman. Myndin hefst í álappa- legum farsastíl með mikilli sveiflu en þegar bróðirinn er drepinn verð- ur söguþráðurinn grafalvarlegur, litli bróðir vill koma Iögum yfír morðingjana. En ekki nema í nokkrar mínútur, þá hefst sami hálfvitagangurinn aftur, glórulaus fíflalæti og nú í bland við alvar- legri söguþráð. Og einsog það hálfa sé ekki nóg þá þarf Slater sínkt og heilagt að vaða elginn beint í myndavélina sem verður fljótlega ótrúlega hallærislegt. Handritið er sem sagt ekki uppá marga fiska frekar en annað. Slat- er er þungamiðjan í þessum sam- setning öllum og má eiga það að hann heldur haus á sinn hátt, er trúr sinni persónusköpun uns yfir líkur. Hvað hefur farið á milli hans og leikstjórans er mikil ráðgáta en svo mikið er víst að Slater verður að velja hluverk sín af meiri vand- fýsni í framtíðinni, Mobsters og einkum Kuffs eru ekkert annað en illa skrifaðar og unnar B-myndir í sparifötunum. Og piltur hefur örugglega ekki gott af því að sjá fleiri myndir með Jack Nicholson í bráð. Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Laugarásbíó: Reddarinn - “Suburban Comm- ando“ Leikstjóri Thomas Wright. Að- alleikendur Hulk Hogan, Chri- stopher Lloyd, Shelley Duvall. Bandarísk. New Line Cinema 1991. Hulk Hogan er sérstakt fyrir- brigði í Bandarískum skemmtana- iðnaði. Hefur hlotið gífurlegar vin- sældir sem margfaldur heims- meistari í þeirri eðlu íþrótt fjöl- bragðaglímu. Enda spámannlega vaxinn, hár og þrekvaxinn, egg- sköllóttur með síðan, ljósan hárkraga og tjúguskegg. Allur hinn reffilegasti, þó kominn sé bersýnilega á fimmtugsaldurinn, og geislar af honum lífskraftur- inn. Aukinheldur er hann ekki laus við skopskyn sem er nokkuð groddalegt en einlægt af þeirri gerð sem börnum og yngri táning- um hugnast ágætlega. Efnið er vitaskuld endemisvit- leysa, samin í kringum líkams- burði glímukappans. Nú leikur hann stríðsmann utanúr geimnum sem verður strandaglópur á Móð- ur Jörð og sest að í úthverfi á heimili .þeirra hjóna, Duvall og Lloyd. Það fer ekki á milli mála að leigjandinn er maður ekki ein- hamur og fá óknýltaunglingar, hrakmenni, svo og morðhundar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.