Morgunblaðið - 04.07.1992, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 04.07.1992, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1992 17 hans máli. Hann naut sín vel í ræðu- stól. Sagði vel og skilmerkilega frá. Það var líka oft stutt í gamansem- ina, enda var hann góður tækifæris- ræðumaður. Það var oft hlegið þeg- ar hann kom. Sannarlega aufúsu- gestur, sem var dáður og virtur að verðleikum. Kona Björns var Siguijóna Ólafs- dóttir frá Görðum í Vestmannaeyj- um. Hún dó fyrir nokkrum árum. Börn þeirra eru Kristín, Áslaug og Guðmundur. Við í Stýrimannaskó- lanum sendum þeim og fjölskyldum þeirra dýpstu samúðarkveðju. Friðrik Ásmundsson. Fréttin um andlát Bjöms Guð- mundssonar barst mér að kveldi 24. júní frá vini okkar beggja, Jóakim Pálssyni í Hnífsdal, rétt í þann mund, sem ég ætlaði að hringja út í Eyjar og óska Birni til hamingju með afmælisdaginn! Mér brá og ég var sleginn hryggð og söknuði, því Bjöm var mér einkar kær. Föstudaginn 19. júní töluðum við saman og sagði hann mér þá, að hann væri á förum til Eyja, til að sitja aðalfund ísfélagsins daginn eftir, þess félags, sem var honum kærast af öllum þeim mörgu félög- um, sem hann kom nálægt og léði krafta sína, á löngum, farsælum og gæfuríkum ferli. Hann sagðist hlakka til ferðarinnar, „ég er sífellt haldinn heimþrá og það er orðið allt of langt um liðið síðan ég var úti seinast", eins og hann komst að orði. Við kvöddumst og það var bundið fastmælum að hittast við fýrsta tækifæri, eftir að hann kæmi til baka. Þeir fundir verða að bíða um sinn. Kynni okkar Björns hófust snemma árs 1975, er ég hóf störf hjá Innkaupadeild LÍÚ. Hann hafði verið kjörinn formaður fram- kvæmdaráðs deildarinnar stuttu áður. Mér varð fljótt Ijóst, að hér fór enginn meðalmaður, hvorki að gáfum né reynslu, svo ekki sé minnst á líkamlegt atgerfi hans, sem var mikilúðlegt. Samstarf okk- ar Bjöms var mjög náið og ánægju- legt, hann fylgdist grannt með öllu, sem var að gerast, hélt títt og reglu- lega stjórnarfundi ogþað fór enginn í grafgötur um það, að hann kunni góð skil á öllu því, er snerti þennan rekstur, enda búinn að vera farsæll útgerðarmaður um langa hríð. Bjöm var endurkjörinn formaður deildarinnar árlega, allt til aðal- fundar 1983, að hann gaf ekki leng- ur kost á sér. Á þessum árum fórum við Bjöm í margar ferðir á vegum deildarinnar, bæði hér innanlands og til útlanda, og efldust þá kynni okkar enn betur en ella. Bjöm var maður glaðsinna og skemmtilegur í þröngum hópi, hafsjór af fróðleik um Eyjamar og samferðamenn sína á heimaslóðum, sagði skemmtilega frá og kunni þá list að segja sögur af sjálfum sér, sjálfshólslausar, en kímnar með afbrigðum. Ekki minn- ist ég þess, að hann hafi nokkum tíma talað á bak nokkrum manni, lífs eða liðnum, enda Bjöm stór, bæði til orðs og æðis. Mér er mikill söknuður í huga, er ég nú kveð vin minn Björn. Hann var fremstur meðal jafningja, þeirra manna, sem ég hef átt að húsbænd- um um dagana. Við Ása sendum bömum Bjöms og fjölskyldum þeirra innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minn- ing Björns Guðmundssonar. Gylfi Guðmundsson. Með Birni Guðmundssyni er fall- inn í valinn mikill áhrifamaður um málefni íslensks sjávarútvegs á liðnum áratugum. Hann var umsvif- amikill útgerðarmaður í Vest- mannaeyjum frá 1951 til ársins 1986 er hann seldi útgerð sína og fluttist til Reykjavíkur. Hann var einnig stór hluthafi í ísfélagi Vest- mannaeyja, sem er eitt stærsta fisk- vinnslufyrirtæki í Vestmannaeyjum og gegndi þar stjórnarformennsku í tvo og hálfan áratug. Samhliða útgerðarrekstri rak hann verslun og sölutum lengst af frá árinu 1940. Þrátt fyrir þessa umfangsmiklu atvinnustarfsemi gaf hann sér tíma til þess að sinna ýmsum félairsmál- um á sviði sjávarútvegsins. Hann var formaður Utvegsbænd- afélags Vestmannaeyja frá árinu 1955 til 1980 að undanskildum 3 ámm og sama tíma átti hann sæti í stjóm Landssambands ísl. útvegs- manna. Hann var stjórnarformaður í Innkaupadeild LÍÚ til margra ára. Öllum þessum trúnaðarstörfum gegndi hann af alúð og árvekni. Auk þessara starfa var hann áhugamaður um stjómmál. Hann var virkur félagi í Sjálfstæðis- flokknum og gegndi mörgum trún- aðarstörfum fyrir flokkinn, m.a. var hann bæjarfulltrúi í tvö kjörtímabil og formaður kjördæmisráðs. Hann sótti nám í Samvinnuskól- anum og útskrifaðist þaðan 1937. Hann aflaði sér menntunar í Banda- ríkjunum eftir að hann var kominn á fullorðinsár og orðinn fjölskyldu- maður. Ég kynntist Bimi og hans ágætu konu, Siguijónu, á árinu 1958 er ég kom fyrst til Vestmannaeyja á vegum LIÚ. Tókst þá með okkur vinátta sem staðið hefur síðan, þrátt fyrir nokkurn aldursmun. Ég varð heimagangur í Birkihlíð og átti þar margar ánægjustundir. Mér er minnisstætt hvað mér þótti mikið til um hið glæsilega heimili þeirra hjóna. Húsið, húsbúnaður og heim- ilisbragur allur bar þeim hjónum gott vitni. Móttökur og viðurgern- ingur allur var með þeim hætti að ég hlakkaði alltaf til að heimsækja þau ágætu hjón. í eldgosinu mikla í janúar 1973 spilltist þeirra ágæta heimili eins og svo mörg önnur í Vestmannaeyj- um. Mér er það ofarlega í minni hve metnaður Björns var mikill fyr- ir heimilinu í Birkihlíð, því mér var ekki boðið þangað aftur fyrr en allt var fullbúið að nýju. Sátum við þá oft í skrifstofu ísfélagsins og ræddum landsins gagn og nauð- synjar fram á nótt eftir að hafa setið fund í Útvegsbændafélaginu, sem alltaf voru hinir líflegustu. Björn var fátækur í æsku og hafði því ríka tilhneigingu til þess að efnast og skapa sér og sínum fjárhagslegt öryggi. Hann lagði oft mikið á sig í þeim efnum og famað- ist honum ávallt vel í útgerð sinni enda fór hann vel með fjármuni sina og annarra. Hann var höfðingi heim að sækja og sýndi vinum mikla ræktarsemi. Hann kynntist bömum okkar Kristínar. Talaði ávallt við þau þeg- ar þau svöruðu í síma. Fylgdist með námi þeirra og velferð. Hafði ávallt eitthvað við þau að segja og þeim þótti vænt um hann. Þannig er góður vinur. Björn var hávaxinn maður og nokkuð mikill á velli. Fríður og hlýr í viðmóti. Hann hafði ákveðnar skoðanir sem hann setti fram af festu. Hann hlustaði á sjónarmið annarra og það var ánægjulegt að eiga við hann samræður. Bjöm kvæntist Siguijónu Ólafs- dóttur árið 1941. Hún andaðist árið 1981 og var það Bimi mikill miss- ir. Þau eignuðust 3 böm er öll lifa foreldra sína. Bjöm hafði áhuga á að ferðast og skoða sig um í heiminum. Síð- ustu árin naut hann þess að hafa til þess efni að sinna þessu áhuga- máli sínu. Hann hafði nýlega flutt í íbúð fýrir aldraða í Árbæjarhverfi og naut þess að vera kominn í nálægð við börnin sín sem sýndu honum ástúð og umhyggju. Við Kristín sendum börnum, tengdabömum og barnabörnum Björns Guðmundssonar hugheilar samúðarkveðjur um leið og við minnumst góðs drengs sem við höf- um haft ánægju af að eiga að góð- um vini. Kristján Ragnarsson. Sú fregn barst hinn 24. júní sl. að félagi minn, Björn Guðmundsson útgerðarmaður, væri látinn. Yfir- leitt er maður óviðbúinn þegar slík- ar fregnir berast en ég neita því ekki að fréttin um andlát Bjöms kom mér ekki alveg á óvart. Síð- ustu misserin hafði heilsan verið að bila og þrótturinn að minnka. Á mánudaginn fyrir rúmri viku sat Bjöm inni á skrifstofu hjá mér hjá Isfélagi Vestmannaeyja og spurði mig spjömnum úr. Fann ég að Bjöm var vel með á nótunum og fylgdist gjörla með því sem var að gerast í Eyjum. Bjöm spurði mig um framkvæmdir á vegum fé- lagsins. Hvað hefði kostað að gera svona gott bílaplan og mála ísfélag- ið svona fallega á sl. ári. Þegar svör vom fengin var áfram spurt: Áttirðu fyrir þessu? Fékkstu lánað og hvaða vexti borgarðu? Já, þetta var nokkuð dýrt og þó — þetta var vel sloppið. Áfram var spurt og spjallað. Hvað fæst fyrir þorskinn í dag? Borgar sig að senda fiskinn óunninn út? Hvert er olíuverðið í Englandi í dag? Svona spumingar koma frá Birni einum og lýsa hon- um vel. Aðhaldssemi var honum í blóð borin. Ég var ungur að ámm þegar ég byijaði að taka þátt í stjórnarstörf- um hjá ísfélagi Vestmannaeyja. Árið 1973 kom ég fyst á aðalfund hjá félaginu. Síðar varð ég einn af stjórnarmönnum þess og loks stjórnarformaður. Þá var gott og lærdómsríkt að hafa aðgang að manni eins og Birni Guðmundssyni og hlusta vangaveltur hans og til- lögur. Björn var farsæll maður í lífi sínu og það sem hann tók ábyrgð á og vann að skilaði hann af sér með miklum ágætum. Hann var stjórn- arformaður ísfélagsins í alllangan tíma. Eftirmaður Björn var faðir minn og síðan tók ég við af honum. Hef ég lært margt af Birni Guð- mundssyni sem vissulega hefur reynst mér vel. í nokkur ár eftir 1975 sat ég sem stjórnarmaður í Útvegsbændafélagi Vestmannaeyja með Birni en þar sat hann við stjórnvölinn árin 1955- 1962 og fóst það svo vel úr hendi að honum var aftur falin for- mennska frá árinu 1965-1980. Og víðar lágu leiðir okkar sam- an. Ég fór að vinna í pólitík og þar hafði Bjöm víða komið við bæði í lands- og bæjarstjórnarmálum og verið valinn til trúnaðarstarfa á vegum Sjálfstæðisflokksins. Það var leitað til hans aftur og aftur og segir það meira en mörg orð um að fólk kunni að meta störf hans. Á meðan Björn var í stjóm ísfé- lagsins rak hann sína eigin útgerð, Einar Guðmundsson hf. Hann vildi gera það á sem hagkvæmastan og bestan hátt og velti því oft fyrir sér hvort best væri að selja ísfélaginu fiskinn eða senda hann út. Oft sagði hann við mig: „Magnús, þú selur ekki fiskinn út óunninn nema að þú fáir þrefalt meira fyrir hann miðað við verð hér heima. Þú ert að tapa nema að þú fáir þrefalt meira fyrir fiskinn. Hafðu það alltaf hugfast að ef þú tapar peningum á útgerðinni þinni þá verður þú að vinna þá aftur upp.“ Lengi gæti ég áfram rifjað upp margvíslegt úr lífshlaupi Bjöms Guðmundssonar og samskiptum okkar. En það verður ekki gert hér. En þegar Bjöm er í dag borinn til hinstu hvílu langar mig til að senda stutta kveðju þar sem við vorum góðir vinir og ég er fyrrver- andi stjómarformaður ísfélagsins þar sem Bjöm kom mikið við sögu. Um leið minnist ég eiginkonu hans, Siguijónu Ólafsdóttur, þeirri ágætu konu sem látin er fyrir allmörgum ámm. Þau eignuðust 3 böm, Krist- ínu, Guðmund og Áslaugu. Ég minnist þess með þakklæti þegar ég var yngri og leikfélagi Guðmund- ar að þá var ósjaldan komið inn á heimili Björns og Sigutjónu og þeg- ið mjólkurglas með nýbökuðum kökum. Að lokum sendi ég bömum Bjöms, vinum hans og vandamönn- um samúðarkveðjur og þakka Bimi fyrir góð kynni. Magnús Kristinsson. Í dag verður jarðsettur frá Landakirkju í Vestmannaeyjum Bjöm Guðmundsson útvegsmaður og kaupmaður. Björn fæddist í Vestmannaeyjum 24. júní 1915 og lést, 77 ára að aldri. Bjöm ólst upp í Vestmanna- eyjum en hann var aðeins 9 ára þegar hann missti föður sinn. Hann ólst upp hjá móður sinni en systkin- in vora fimm og öll yngri en Björn. Björn byijaði snemma að aðstoða við að framfleyta fjölskyldunni, því að á þessum áram var lífsbaráttan mjög hörð hjá sjómannsekkju með fimm ung börn. Lífsbaráttan byggðist fyrst og fremst á því að þiggja ekki af sveit og að vera sjálfs sín herra og það má segja að þessi atriði í uþpvextinum hafi mótað Björn æ síðan. Björn gekk í Samvinnuskólann og lauk þaðan námi. Hann stundaði ýmis störf um ævina, sem aðallega tengdust kaupmennsku, útgerð og fiskvinnslu. Hvarvetna sem Björn kom að málum skipaði hann sér í forystusveit og var mjög áberandi. Björn sat í bæjarstjórn Vest- mannaeyja í tólf ár, á árunum 1946- 1954 og 1966-1970. Hann var mjög virkur á vettvangi bæjarmála og hafði þar ákveðnar skoðanir eins og alls staðar. Bjöm átti sæti í stjórnum margra félaga bæði í Vestmannaeyjum og í Reykjavík. Hann var mjög félagslyndur og tók bæði þátt í starfi ýmissa félaga sem tengdust aðalstarfi hans og líka annarra félaga. Bjöm var kvæntur Siguijónu Ólafsdóttur sem lést árið 1981. Eignuðust þau þijú börn, Kristínu, Áslaugu og Guðmund. Það væri hægt að rekja lífshlaup Bjöms í löngu máli og segja frá öllum þeim trúnaðarstörfum, sem hann sinnti um ævina en það verð- ur ekki gert hér. Ég held, að Björn verði samferða- mönnum sínum mjög minnisstæður, sem sérkennilegur, eftirminnilegur og skemmtilegur maður. Björn hafði skoðanir á mönnum og mál- efnum og talaði fyrir þeim málum, sem hann trúði á og fylgdi þeim SJÁ BLS 33.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.